Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Side 20
20 LÁÚGARDAÓUR 7. SEPTEMBRR 1991 Kvikmyndir Endurholdgun Líklega hafa fáir leikarar skotist eins liratt upp á stjörnuhimininn og Kenneth Branagh. Þessi þrítugi írski leikari sló eftirminnilega í gegn 1989 með leik sínum í kvik- myndinni HENRY V, sem var byggð á samnefndu verki Sha- kespeare. Var honum líkt við Sir Laurence Olivier þegar hann var upp á sitt besta í myndum eins og OTHELLO. En nú hefur Kenneth Branagh aldeilis snúið við blaðinu því nýlega var frumsýnd í Banda- ríkjunum myndin DEAD AGAIN, þar sem hann ekki aðeins leikur eitt aðalhlutverkið heldur er einnig titlaður leikstjóri. Til að kóróna allt saman leikur síðan konan hans, Emma Thompson, á móti honum. Það mætti helst líkja DEAD AGA- IN við rómantíska morðsögu. Myndin gerist bæði í nútíð sem þátíð. Branagh leikur glaðlegan leynilögreglumann í Los Angeles, að nafni Mike Church, sem er ekki allur þar sem hann er séður. Thom- son leikur hins vegar konu sem hefur misst minnið - man ekki hvað hún heitir né hvaðan hún er og hefur auk þess misst mál- iö. Church fær það hlutverk að finna út hver sé þessi dularfulla kona, sem hann nefnir í fyrstu Grace. Grace fær slæmar martraðir á nóttunni. Þær gerast um 1940 og fjalla um hjónakornin Margaret, frægan píanóleikara, og Þjóöverj- ann Roman Strauss, heimsþekkt, auðugt tónskáld og stjórnanda. Strauss-hjónin eru einnig leikin af þeim Branagh og Thompson. í mar- tröðinni kemur fram að Strauss myrti konu sína með skærum og endaði ævi sína í rafmagnsstóln- um. Mike Church ákvaður að láta dáleiða Grace til að komast að því hver hún sé. Hann fær sér til hjálp- Hér eru hjónakornin Kenneth Branagh og Emma Thompson. ar Franklyn Madson, eiganda ant- draumur einn. Þau Margaret og ikbúðar, sem virðist einnig vera Roman Strauss voru til í raunveru- sérfræðinguríaðdáleiðafólk.Und- leikanum og svo virðist sem þau ir dáleiðslunni kemur í ljós að hafl endurfæðst í líkömum þeirra martröö Grace er meira heldur en Grace og Church. Olík áhrif Það má með sanni segja að Bra- nagh hefði varla geta vahð sérstæð- ara efni til að kvikmynda heldur en söguþráöinn að DEAD AGAIN sem stundum virðist vera í líkum keim og kvikmyndin NAKED GUN. En með Shakespeare-reynslu sína að bakgrunni virðist Branagh hafa átt auðvelt með að söðla um. Hann tók til dæmis öll atriðin upp í svart-hvítu sem áttu að hafa gerst í þátíðinni og auðvitað í lit þau sem gerðust í nútíðinni. Þetta gefur myndinni ákveðinn ævintýralegan blæ. Branagh hefur einnig gengið í smiðju hjá mörgum þekktum leik- stjórum því að í sumum atriðanna kennir áhrifa meistara eins og Or- son Wells úr myndinni CITIZEN KANE, ásamt Hitchcock í myndum á borð við SPELLBOUND, REBECCA og DIAL M FOR MURD- ER. Hann hefur ofið þessum atrið- um svo vel inn í myndina að þau virka örfandi frekar en truflandi á áhorfendur. Einnig reynir Bra- nagh líkt og Hitchcock að láta áhorfendur ekki meira í té af upp- lýsingum en nauðsynlegt er til að halda þeim við efnið svo að myndin missi ekki niður spennu. Góðir dómar DEAD AGAIN hefur hlotið góða dóma og þykir bæði spennandi og vel gerð. Myndin hefur verið aug- lýst einum of mikið sem hryllings- mynd því að í henni eru mörg atr- iði sem eru grátlega fyndin. Meðal þeirra sem koma fram í myndinni í minni hlutverkum eru Robin Williams sem leikur geðlækni sem virðist vera sjálfur stórklikkaður. Það sem gagnrýnendur hafa helst kvartað undan er leikur eiginkonu Branagh sem þeir segja að vanti allan neista. Ástaratriði þeirra hjóna eru litlaus og virka ósann- færandi á áhorfendur. Það eru hins vegar kvikmyndahúsagestir sem hafa síðasta orðið og það er ekki þar með sagt aö þeir séu á sama máli en það mun skírast á næstu mánuðum eftir frumsýningu. Leikarinn og leik- stjórinn Ron Howard Þessa dagana er verið að sýna í Laugarásbíói myndina Back Draft sem hefur fengið nafnið Eldhugar á íslensku. Hér verður ekki farið nánar út í efnisþráðinn heldur þess í stað fjallað nánar um leikstjóra myndarinnar sem er Ron Howard. Þeir sem sóttu unglingamyndir í kvikmyndahúsunum á áratugnum 1970 til 1980 muna ef til vill eftir rauðhærðum frekknóttum strák í gallabuxúm og skrautlegum skyrt- um. Þetta var Ron Howard, sem meðal annars lék í myndunum American Graffiti (1973), The Spik- is Gang (1975) og The Shootist (1976). Hann lék einnig í sjónvarps- þáttaröðum eins og The Andy Griffith Show (1960-1968), The Smith Family (1971-1972) og svo Happy Days (1974-1979). En það eru færri sem vita að Ron Howard er meðal virtustu leikstjóra Banda- ríkjana þótt hann eigi ekki nema átta myndir að baki ef ELDHUGAR er talin með. Beðið eftir tækifæri Ron Howard leiddist aö leika hlutverk sitt í Happy Days þar sem hann lék á móti Henry Winkler. Á þessum tíma vantaði konung „B“ myndanna, Roger Corman, ungan leikara með þekkt andlit til að leika í myndinni Eat My Dust. Howard samþykkti þetta með þeim skilyrð- um að hann fengi einhvern tíma seinna að leikstýra mynd fyrir Cor- man. Eat My Dust varð ein vinsæl- asta myndin sem Corman hefur gert og því leið ekki á löngu áður en hann bauð Howard aö leika í Umsjón Baldur Hjaltason og leikstýra mynd. Það var The Grand Theft Auto (1977). Þetta var bílamynd þar sem einir 5000 bílar komu við sögu og flestir þeirra löskuðust meira eða minna meðan á myndinni stóð. Howard tók myndina upp á einum mánuði með lágmarkskostnaði. Þetta var í eina og fyrsta sinn sem Ron Howard leikstýrði sjálfum sér. Ástfangin hafmeyja The Grand Theft Auto gekk þokkalega en samt sem áður var ekkert kvikmyndaver tilbúið að gefa þessum 23 ára leikara annað tækifæri sem leikstjóri. Howard setti því upp sitt eigið fyrirtæki og hóf að leikstýra sjónvarpsþáttum. Þaö var svo ekki fyrr en 1982 að kvikmyndaframleiðandinn Alan Ladd eldri ákvað að bjóða Howard að leikstýra myndinni Night Shift. í þessari mynd leikstýrði Howard félaga sínum Henry Winkler úr sjónvarpsþáttarööinni Happy Days en þaö var samt sem áður Michael Keaton sem sló ærlega í gegn í sinni fyrstu kvikmynd. Með Nightshift var ísinn brotinn og 1984 gerði Howard líklega sína bestu mynd sem var Splash þar sem Tom Hank fellur fyrir haf- meyju. Þessi mynd markaði einnig ákveðin tímamót hjá Walt Disney kvikmyndaverinu, sem framleiddi myndina, því efni hennar gat varla talist í stíl við stefnu Disney sem fjölskyldumyndaframleiðandi. Góður árangur Til að fara hratt yfir sögu tókst Howard að blanda einstaklega vel saman vísindaskáldsögu og róman- tík í myndinni Cocoon (1985).'Síöan fylgdu á eftir myndirnar Gung Ho (1986) og Willow (1988) sem voru ágætis myndir þótt þær nytu ekki mikilla vinsælda. Gung Ho fjallaði um kosti og galla þess að reka bandarískt fýrirtæki samkvæmt japönsku stjórnunarmynstri með- an Willow var ævintýramynd sem framleidd var af lærimeistara Howard, George Lucas. Árið 1989 datt Howard aftur í lukkupottinn með Parenthood þar sem Steve Martin fór á kostum sem Leikstjórinn og leikarinn Ron Howard. fjölskyldufaðir. Nýjasta mynd Ron virtasti leikstjóri í Hollywood. Það Howard er framleidd af hans eigin má því með sanni segja aö það hafi fyrirtæki og allt bendir til þess aö ræst úr þessum rauðhæröa frekn- hún verði vinsælasta myndin sem ótta strák sem kom fyrst fram í hann hefur gert og mun án efa festa kvikmynd aðeins 9 ára gamall. hann enn frekar í sessi sem einn Heistu heimiidir: Empire

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.