Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR -7. SEPTEMBER 1991. 21 Menning PIONEER HAGÆÐA HATALARAR ERU STAÐLAÐIR FYRIR BÍLINN ÞINN Stjömubíó - Hudson Hawk ★★ XA Michael Lehman vakti athygli fyrir tveim árum fyrir óvægna og kol- svarta gamanmynd að nafni „Heat- hers“. I henni stóðu Wynona Ryder og Christian Slater saman að því að myrða skólasystkini Ryder, sem hún hafði fengið nóg af, sérstaklega þremur að nafni Heather. Sú mynd hefur verið lofuð sem ein besta tán- ingamynd áratugarins (enn ósýnd hér) og það var út á það lof sem Leh- man fékk að leikstýra 60 milljóna dollara ævintýragamanmynd með Bruce Willis um borð. Reyndar var það eftir að hann kláraði sína næstu mynd um brasilílska kakkalakkaíjöl- skyldu í Los Angeles til þess að fremja hermdarverk í þágu regn- skóganna (líka ósýnd hér). Það hjálp- ar aö vita að Lehman er einn sá villt- asti í Hollywood til að skilja hvernig Hudson Hawk, sem á yfirborðinu virðist vera venjuleg ævintýramynd um slunginn innbrotsþjóf, er í raun íjærstæðukenndur farsi þar sem lög- mál Gög og Gokke myndanna eru tekin fram yfir raunveruleikann. Annars er hætt við að menn verði hvumsa yfir því að ein af gullnu regl- um Hollywood er þverbrotin: Með- aláhorfandi skal alltaf vera öruggur um það á hvers konar mynd hann er. Kvikmyndir Gísli Einarsson Súperstjarnan Bruce Willis leikur innbrotsþjófinn fyrrverandi, Hudson Hawk, sem er ekki fyrr sloppinn úr steininum eftir langa vist en hann er á ný flæktur í misjöfn mál. Hann á, nauðugur en hálfviljugur, að að- stoða við að stela nokkrum hlutum sem vantar i gullgeröarvél sem Leon- ardo DaVinci gerði í hjáverkum. Hvem hann á að aðstoða liggur ekki alltaf ljóst fyrir en málinu tengjast moldrík hjón að nafni Mayflower, hópur CIA durga, sem er stjórnað af gamla lærimeistara Hawk, mafíósar og Vatíkanið. Leikurinn berst um víðan völl til Rómaborgar og af- skekkts fjallavirkis þar sem búið er að endursmíða véhna góðu og lagt er á ráðin um alheimsyfirráð. Sagan er kolragluð, það verður fljótt nokkuð ljóst. Öllu sem heitir alvara er varpað fyrir borð og alls kyns furðufuglar vaða inn og út úr rammanum. Ramminn er síðan margmilljóna stórmynd með íburð- armiklum sviðsmyndum, sögu sem spannar hálfan hnöttinn og stórleik- urum. Þessu er þó öllu stjórnað af mikilli nákvæmni og útkoman er meinfyndin gamanmynd, eftirminni- leg, svo ekki sé minna sagt, og ca 2,5 sinnum fyndari en ég þorði að vona. Húmorinn spannar vítt bil milli fífla- legra handalögmála, hrakfalla, hag- mælskra orðahríða í ætt við Monty Python og ærslafenginn gamaleik. Það kemur alltaf einn brandari úr hörðustu átt, síst þegar maður á von á. Léttkrimminn Hudson Hawk sjálf- • ur er blanda af Indiana Jones og Harold Lloyd, bæði ofboðslega sval- ur, leikinn við að koma sér í vand- ræði og nægilega heppinn til að rata út úr þeim. Bruce Willis hefur ekki verið fyndnari síðan hann sleit barnsskónum í Moonlighting. Andie McDowell sannar að hún er fær gam- anleikkona en hin alræmda vinkona Madonnu, Sandra Bernhard, fer hér með sitt fyrsta (og vonandi síðasta) kvikmyndahlutverk. Restin af leik- urunum er mismunandi yfirgengi- legar típur, flestar bráðfyndnar, sér- staklega fleskfiallið „Butterfinger“ og „felusérfræðingurinn" mállausi. Litríkar aukapersónur eru án efa uppspretta bestu og óvæntustu brandaranna. Leikstjórinn Lehman er snargeggj- aður og bráðefnilegur. Hann nær sögunni upp á heljarskrið og hraðinn dettur nærri því aldrei niður. Það er þó hætt við að þeir sem eru ekki innstilltir verði skildir eftir í mold- ryki. Sagan gerist æ fiarstæðukennd- ari þegar á líður en fer ekki út af teinunum, nema kannski rétt í lokin þegar sprengingarnar ómissandi byrja. Þessi hraði ætti að vera kunn- ugur þeim sem sáu Die Hard mynd- irnar en Stephen E. DeSouza skrifaði þær líka. Hann er ansi leikinn við að koma meö ferskar (á mælikvarða Hollywood) hugmyndir þar sem aör- ir væru búnir að smella skotbardaga eða bílaeltingaleik. Hudson Hawk (Band-1991) Handrit: Ste- ven E. de Souza (Die Hard &2) Leikstjórn: Michael Lehman (Heathers, Meet the Applegates). Leikarar: Bruce Willis (Blind Date, In Country) Danny Aiello (Do the Right Thing), Andie McDowell (Green Card), James Coburn, Richard E. Grant (Henry & June), Sandra Bernhard. Bruce Willis leikur innbrotsþjófinn Hudson Hawk. Þess vegna er ekkert rask við að koma Pioneer hátölurunum fyrir þar sem þeir eiga að vera í bílnum þínum og þar af leiðandi ódýrara og fljótlegra. HÁTALARAR verð frá kr. 3.600,- stgr. parið. BÍLTÆKI verð frá kr. 13.950,- stgr. Komið til okkar og sannfærist VERSLUNIN flö PIONCEŒR The Art of Entertainment Haukur í hættu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.