Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Síða 46
58
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1991.
Afmæli
Ömólfur Thorlacius
Örnólfur Thorlacius, rektor
Menntaskólans við Hamrahlíð.
Bjarmalandi 7, Reykjavik, verður
sextugur mánudaginn 9. september.
Starfsferill
Örnólfur er fæddur i Reykjavík og
ólst þar upp. Hann var stúdent 1951
frá MR. Var við nám í náttúrufræði
í Háskólanum í Lundi 1952-1959 og
fil. kand. 1960. Aðstoðarkennari við
háskólann 1955-1960. Tók próf í upp-
eldis- og kennslufræði við HÍ1967.
var við framhaldsnám í kennslu-
fræði við Edinborgarháskola 1974-
1975. Diploma in Education 1975.
Örnólfur var stundakennari í MR
1959-1960. Kenndi við MR1960-1967,
við MH1967-1980, deildarstjóri í lif-
fræði þar 1972-1976. Örnólfur hefur
verið rektor Menntaskólans við
Hamrahlíð frá 1980.
Hann var námsstjóri i líffræði við
barna- og gagnfræðaskóla 1971-74, í
landsprófsnefnd 1968-1973. í Nátt-
úruverndarnefnd. síðar Umhverfis-
málaráði Reykjavíkur 1970-1982.
Varaformaður stjórnar raunvís-
indadeildar Vísindasjóðs 1978-1987
ogí Námsgagnastjórn frá 1979-1987.
Örnólfur hefur gefið út nokkrar
kennslubækur og kennsluleiðbein-
ingar í líffræði, erfðafræði og efna-
fræði. Auk þessa hefur hann þýtt
fjöldann allan af fræðibókum og
barnabókum. Örnólfur var ritstjóri
Náttúrufræðingsins 1966-1967.
Hann hefur haft umsjón með ísl.
útgáfu nokkurra þýddra bóka og
bókaflokka. meðal annars Fjöl-
fræðibóka AB. Heimsmetabókar
Guinness og Heimsstyrjaldarinnar
1939-1945.
Fjölskylda
Örnólfur er kvæntur Rannveigu
Tryggvadóttur. f. 25.11.1926. þýð-
anda. Foreldrar hennar voru
Tryggvi Ófeigsson útgerðarmaður
og Herdís Ásgeirsdóttir.
Fyrri kona Örnólfs var Guðný Ella
Sigurðardóttir kennari. f. 4.5.1931,
hún lést 1983.
Börn Örnólfs og Guðnýjar eru:
Sigurður. f. 10.5.1953. dr. í tauga-
lækningum. kennirvið HÍ. kvæntur
Sif Eiríksdóttur þroskaþjálfa. þau
eru búsett í Reykjavík og eiga tvö
börn; Arngrímur, f. 17.9.1956, efna-
fræðingur, búsettur í Reykjavík,
hann á þrjú börn; Birgir, f. 28.3.1958,
lyfjafræðingur, kvæntur Rósu Jóns-
dótturmatvælafræðingi, þau eru.
búsett í Reykjavík og eiga fjögur
börn; Lárus f. 27.1.1964. dr. í eðlis-
fræði, er í rannsóknarstöðu við
Standford-háskóla í Kaliforníu í
Bandaríkjunum, kvæntur Þóru
Árnadótturjarðeðlisfræðingi.
Systkini Örnólfs eru Kristín
Rannveig. f. 30.3.1933. kennari, gift
Rögnvaldi Finnbogasyni presti, þau
eru búsett á Staðarstað á Snæfells-
nesi; Hrafnkell.22.1.1937. arkitekt,
kvæntur Kristinu Bjarndóttur,
meinatækni; Hállveig, f. 30.8.1939,
brúðuleikari og kennari, gift Ragn-
ari Arnalds. fyrrv. ráðherra, þau
eru búsett í Reykjavík; Kristján,
30.10.1941, kennari. kvænturÁsdísi
Kristinsdóttur kennara, þau eru
búsett í Reykjavík.
Foreldrar Örnólfs voru Sigurður
Thorlacius, f. 4.7.1900, d. 17.8.1945,
skólastjóri. og kona hans, Áslaug
Kristjánsdóttir.f. 21.11.1911,
ritari.
Ætt
Faðir Sigurðar var Ólafur Thorlac-
ius, læknir á Búlandsnesi, Jónsson-
ar, prests í Saurbæ í Eyjafirði, Ein-
arssonar Thorlacius, prests þar, en
móðir Jóns var Margrét Jónsdóttir,
systir Álfheiðar, langömmu þeirra
Einars Guðfinnssonar, útgerðar-
manns í Bolungarvík, Helga Hálf-
danarsonar leikritaþýðanda, Helga
Tómassonar, yfirlæknis á Klepps-
spítala. föður Ragnhildar, fyrrv. al-
þingismanns, og Þórhildar, móður
Sigurðar Líndal prófessors.
Móðir Sigurðar var Ragnhildur
dóttir Péturs Eggerz, kaupmanns í
Akureyjum á Breiðafirði, systir Sig-
urðar Eggerz ráðherra, föður Péturs
Eggerz sendiherra. Aðrar systur
Ragnhildar voru Arndís, langamma
Þorbjarnar Broddasonar, lektors
viðHÍ.
Bræður Sigurðar eru Erlingur
Thorlacius ökukennari, Birgir
Thorlacius, fyrrv. ráðuneytisstjóri
og Kristján Thorlacius, fyrrv. for-
maöur BSRB.
Foreldrar Áslaugar voru Kristján,
bóndi á Fremstafelli í Kinn, Suður-
Örnólfur Thorlacius.
Þing., Jónssonar, bónda á Hriflu í
Ljósavatnshr.. Kristjánssonar, og
kona hans, Rósa Guðlaugsdóttir.
bónda í Fremstafelli, Ásmundsson-
ar.
Systkini Áslaugar eru J ónas
Kristjánsson, prófessor við lieim-
spekideild HI og forstöðumaður
Stofnunar Árna Magnússonar, og
Helga Kristjánsdóttir skólastjóri og
Rannveig Kristjánsdóttir, móðir
Heimis Pálssonar.
Örnólfur og Rannveig taka á móti
gestum á heimili sínu, Bjarmalandi
7, í dag milli klukkan 16-19.
Ingunn S.
Guðmunds-
dóttir
Ingunn S. Guðmundsdóttir. Álf-
hólsvegi 52. Kópavogi. verður átta-
tiu og fimm ára sunnudaginn
8. september
Ingunn og eiginmaöur hennar.
Guðjón E. Long. taka á móti gestum
á afmælisdaginn í Víkingasal Hótel
Loftleiða frá kl. 15.00 til 18.00.
Ingunn S. Guðmundsdóttir.
Til hamingju med afmælið 7.
september
85 ára 40 ára
Bjarni Guðmundsson, Heiöargerði 104,ReykjavíIí. Bry njar Þór Hafdal, Heiöargarði 22, Keflavík. Unnur Baldvinsdóttir, Eyjabakka 13, Reykjavík. Helga Sigurjónsdóttir, Sundabakka 10, Stykkishólmi. Gerður Sveinsdóttir, Sogavegi 192, Reykjavík. Jens Pétur Jensen, Hlíðargötu 15, Fáskrúösfirði. Guðrún Jónina Karlsdóttir, Bragavöllum 6, Keflavík. Guðmunda Ólöf Jónsdóttir,
70ára
Steinþóra Níelsdóttir, Reykjavíkurvegi 7B, Hafharfirði.
50 ára Miðsandi, Strandarhreppi. Jóhanna Guðbjörnsdóttir, Víðimel 65, Reykjavík. Jakob Sigtryggsson, Borgarbraut 9, Grundarfirði. Björg R. Sigurðardóttir, Bollagörðum 13, Seltjarnarnesi.
Friðbjörg Óskarsdóttir, Melgerði 30, Kópavogi. ArnarSkúlason, Þuríðarbraut 7, Bolungarvík.
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN
FYRIR LANDSBYGGÐINA:
99-6272
DV
GRLÆNI
SÍMINN
-talandi dæmi um þjónustu!
Halldór Hákonarson
Halldór Hákonarson, háseti á Kol-
beinsey ÞH10 frá Húsavík, Garðars-
braut 67. Húsavík, verður fertugur
á morgun.
Fjölskylda
Halldór kvæntist 23.12.1980 Önnu
Björgu Stefánsdóttur, f. 16.7.1957,
húsmóður, frá Reykjavík. Foreldrar
hennar eru Stefán Aðalbjörnsson
og Sigurlaug Guömundsdóttir, hún
er látin.
Börn Halldórs og Önnu Bjargar
eru: Einar Daði Halldórsson, f. 20.10.
1980; Eyþór Mar Halldórsson, f. 3.
11.1983. Anna Björg átti eina dóttur
fyrir hjónaband, Eygló Sif Sigurðar-
dóttur, f. 21.9.1974.
Systkini Halldórs eru: Ingibjörg
Hákonardóttir, gift Gunnari J.
Magnússv ni, þau-eru búsett á Húsa-
vík og eiga einn son; Sigurður A.
Hákonarson, kvæntur Ruth Jóns-
dóttur, þau eru búsett á Húsavík og
eiga tvö börn; Aðalheiöur L. Hákon-
ardóttir, gift Val Sigurðssyni, þau
eru búsett í Reykjavík og eiga tvo
syni; Sigurbjörn Kristján Hákonar-
son, ókvæntur og barnlaus, búsett-
ur á Húsavík.
Foreldrar Halldórs: Hákon Aðal-
steinsson frá ísólfsstöðum á Tjör-
nesi, f. 14.4.1921, d. 26.9.1961, sjó-
maður, og Guðbjörg Sigurðardóttir,
frá Borgarfirði eystra, f. 3.4.1922,
húsmóðir. Þau bjuggu allan sinn
búskap á Húsavík þar sem Guðbjörg
býr enn.
Halldór Hákonarson.
Páll Ámason
Páll Árnason.
Páll Árnason, vinnur við járn-
smíðar, Smárabraut 8, Höfn, er sjö-
tugurídag.
Starfsferill
Páll er fæddur og uppalinn að Set-
bergi í Hornafirði, A-Skaftafells-
sýslu. Hann lauk hefðbundinni
barnaskólamenntun.
Páll fór ungur að vinna á sjó en
hóf störf hjá íslenskum aðalverk-
tökum árið 1962 og vinnur þar
enn.
Fjölskylda
Páll er ógiftur og barnlaus.
Bræður Páls eru Ari Árnason,
bóndi á Setbergi í Hornafirði,
kvæntur Guðrúnu Stefánsdóttur, og
Helgi Árnason, búsettur á Höfn í
Hornafirði, kvæntur Jóhönnu Þor-
varðardóttur og eiga þau fjögur
börn.
Foreldrar Páls voru Árni Pálsson
bóndi og Helga Pálsdóttir. Þau eru
bæði látin. Þau bjuggu allan sinn
búskap á Setbergi í Hornafirði.
Jón
Bjömsson
Jón Björnsson húsasmíðameist-
ari, Teigaseli 5, Reykjavík, er fimm-
tugur í dag. Hann og kona hans,
María Alexandersdóttir, sigla nú
með skemmtiferðaskipinu Sover-
eign of the Seas til eyjanna í Karíba-
hafi.
Jón Björnsson.
Guðbjörg
Jóns-
dóttir
Guðbjörg Jónsdóttir, Dalbraut 27,
Reykjavík, verður níutíu og fimm
ára mánudaginn 9. september.
Guðbjörg tekur á móti gestum á
afmælisdaginn í safnaöarheimili
Bústaðakirkju milli klukkan 17.00
og 20.00.
Snorri Jónsson
Snorri Jónsson, Sunnubraut 15, l Snorri tekur á móti gestum í fé-
Akranesi, verður sextíu og fimm ára lagsheimilinu Miðgaröi, Innri Akra-
mánudaginn 9. september. | neshreppi, í dag eftir klukkan 20.00.
Guðlaug Sigurjónsdóttir
Guðlaug Siguijónsdóttir húsmóö- i Guðlaugtekurámótigestumí
ir, Ránargötu2, Ákureyri, verður Lóni við Hrísalund á sunnudaginn,
áttræö á mánudaginn, 9. september. | 8. september, klukkan 15.00-18.00.