Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1991, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1991, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1991. Fréttir Hjukrunarfólk leitar annarra starfa vegna lélegra launakjara: Deildarstjóri af gjörgæslu- deild í bensínaf greiðslu „Ég vinn á kassa við bensínaf- greiðslu og fæ betri laun fyrir að handfjatla peninga en ég fæ fyrir að bjarga mannslífum," sagöi Kristín Davíðsdóttir í samtali við DV. „Þegar ég vann sem hjúkrunar- fræðingur með tveggja ára sémám og 17 ára starfsreynslu og starfaði sem deildarstjóri á gjörgæsludeild fékk ég ekki nema 83.240 krónur í grunnlaun. En sem bensínaf- greiöslustúlka með enga starfs- reynslu fæ ég 74.064 krónur í grunn- laun,“ sagði Kristín. „Núna vinn ég aldrei á jólunum, páskunum eða öðmm hátíðisdögum og aldrei á næturvöktum. Ég losna við allt álag og tek ekki áhyggjurnar með mér heim,“ sagöi Kristín. Aðspurð sagðist hún samt eiga von á því aö fara aftur í hjúkrun ein- hvern daginn. „Sláturhúsið“ 1 Grindavík: Innsiglað fram yf ir helgi Ægir Már Kárason, DV, Keflavík; „Við leituðum til Hollustu- vemdarum faglega ráðgjöfí mál- inu. Þeir taka þetta sennilega fyr- ir á fundi á mánudagsmorgun og þá mun væntanlega ráðast hvað verður gert viö kjötiö,“ sagði Magnús Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits Suðumesja, er DV innti hann eft- ir því hvað yrði gert við kjötið af lömbunum sem fláreigendur j Grindavík slátraðu sjálfir í vik- unni. „Það era skýr fyrirmæli um þaö í lögum frá árinu 1990 aö f kaup- stöðum og kauptúnum sé óheim- ilt að slátra búfé utan sláturhúsa, jafnvel þótt afurðimar séu ein- göngu æöaðar til heimilisnota,“ sagði Magnús. Innsiglið á iðnaöarhúsnæðinu, þar sem slátrunin fór fram, verð- ur þvi ekki rofiö fyrr en á mánu- dag og jafnvel seinna því Magnús taldi sennilegt aö Hollustuverad myndi senda máliö áfram til landbúnaðarráðherra sem þá tæki endanlega ákvörðun. ÞorsteinnPálsson: Formleg tengslvið ECU óráðleg „Viö þær aðstæður sem nú blasa við tel ég óráðlegt að binda hendur okkar raeð því að tengjast evrópska myntkerflnu ECU með formlegum hætti," sagði Þor- steixm Pálsson sjávarútvegsráð- herra á fundi Samtaka fisk- vinnslufólks á Akureyri í gær. Þorsteinn sagöi tímabært að forystumenn þrennra stærstu sölusamtaka sjávarútvegsins hygðu aö því að sameina kraft- ana. „Viðskiptavinir á erlendum mörkuöum haía ekki svo miklar áhyggjur af því hvort menn eru sjálfstæðismenn eða framsóknar- menn uppi á íslandi," sagði hann. „Ég er bara þreytt núna og þarf að sjá og reyna eitthvaö nýtt og hitta hraust fólk til tilbreytingar. Ekki bara fólk sem er í sorg og krefst þess að þú gefir helminginn af sjálfri þér. Nú svo þarf að vera hægt að lifa mannsæmandi lífi á þessum laun- um.“ Niðurlæging að láta bjóða sér þetta „Mér var boðið þetta starf og ákvað að slá til því þetta starf er miklu bet-„ ur launað og vinnutíminn allur ann- ar,“ sagði Björg Pálsdóttir, menntað- ur hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir sem nú starfar á fasteignasölu. „Hjúkranarstarfið er mjög erfitt og kreflandi og miöað viö launin, sem maður fær, finnst manni bara niður- læging að láta bjóða sér þetta. Þaö má líkja því saman að vera á fasteignasölu, þar sem maöur er með flárhagslega aleigu fólks í höndun- um, og að vera hjúkrunarfræöingur með andlega, líkamlega og félagslega aleigu fólksins í höndunum. Manni finnst það ansi hart að þaö skuli ekki vera metið meira til launa en dauðu hlutirnir," sagði Björg. „Það sem ég get borið saman núna er reglulegur vinnutími, skrifstofu- vinna í dagvinnu, öll kvöld og allar helgar fríar, á móti vaktavinnu og gífurlegu álagi, plús það að maður kemst ekki hjá því að taka áhyggj- urnar með sér heim. Og launin eins og þau era; ég bara læt ekki bjóða mér þetta. Ég er með 6 ára menntun og valdi mér þessa braut af einlægri löngun og áhuga. En launin era niðurlægj- andi og þau, ásamt álaginu, halda aftur af mér við að vinna við þetta. Ef það er stefna stjórnvalda að halda okkur niðri, eins og gert hefur verið undanfarin ár, þá á ég eftir að sjá fleiri taka til fótanna. Þetta er bara byrjunin því hjúkrunarfræð- ingar eru mjög eftirsóttir vinnukraft- ar,“ sagði Björg. 273 hjúkrunarfræðingar starfa við annað „Hjúkrunarfélag íslands er tvö þúsund manna félag, af þeim eru 1500 starfandi, einhverjir orðnir elli- lífeyrisþegar en um það bil 273 starfa viö eitthvað allt annað," sagði Sigur- björg Björgvinsdóttir en hún er starf- andi hjúkrunarfræðingur á gjör- gæsludeild Borgarspítaians. • „Skýringin á þessu er fyrst og fremst launin. Það er alltaf verið að kvarta yfir því að það vanti hjúkrun- arfræöinga til starfa og þvi kennt um Sigiún Björgvinsdóttir, DV, Egflsstöðum: Kartöfiuuppskera á Héraði er í góðu meðallagi í haust. Þurrkurinn í sumar hefur þó dregið allmikið úr vexti svo jafnvel grösin náðu ekki fullum þroska og sölnuðu strax í ág- úst á þurrastu svæðunum. Engir al- varlegir sjúkdómar hijá kartöflur á aö loka þurfti heilu deildunum en það eina sem þarf að gera er að hækka grunnlaunin því þær leita í betur launuð störf í dag. Ég veit til dæmis um margar sem vinna sem flugfreyjur og eina sem vinnur sem tæknifræðingur. Flestar hafa þær byrjað að starfa við hjúkr- un en gefist upp vegna vaktavinn- unnar, álagsins og launanna. Deild- imar eru oft undirmannaðar og álag- ið því mikið og launin alltof lág, 67.396 krónur í byrjunarlaun. Sjálf hef ég sex ára starfsreynslu og aldrei starfað annað en ég velti því nú mikið fyrir mér að fara að vinna við eitthvað annaö," sagði Sig- urbjörg. -ingo Héraði. Ræktun garðávaxta hefur aukist mikið hin síöari ár og er nú nægileg fyrir markaðinn á svæðinu, það er Hérað og firöina. Framleiðendur, sem eitthvaö kveður að, era þó ekki nema um 10. Þeir reka sína eigin af- urðasölu, AkurguU, í Fellabæ við Lagarfijótsbrú. í prentun Þótt blaöabunkinn á myndinni láti kannski ekki mikiö yfir sér er innihald hans þeim mun merkilegra. Þama er nefnilega komið fjárlagafrumvarp rikis- stjórnarinnar fyrir árið 1992 sem verið er að prenta í Gutenberg-prentsmiöj- unni. Þaö er einn prentaranna sem höndlar þarna niðurskurðarhugmyndir ráðherranna á einu bretti. Annars verða prentuð 2300 eintök af þessu merka riti sem er rúmlega 400 síður. Verður unnið aö prentun alla helgina og lokið við hana annað kvöld. -JSS/DV-mynd Hanna Norömenn „stela“ Leifi Eiríkssyni vestra: Norskt einka- framtak kæfir rödd íslands - efasemdirumþjóðerniLeifsáCNN „Það er ansi sárt að sjá hvernig norskir aðilar hér vestra hreinlega vaða uppi með áróður um að Leifur Eiríksson hafi veriö norskur. Aug- lýsing flugfélagsins SAS og skipafé- lagsins Bergen Line í New York Times hefur vakið feiknaathygli og á sjónvarpsstöðinni CNN hafa komið fram miklar efasemdir um þjóðerni Leifs. Þennan vafa og þessa athygli notfæra norskir aðilar sér til hins ýtrasta og mokgræða á því. í þeim efnum eru íslendingar með allt niöur um sig,“ sagði íslendingur búsettur í New York í samtali við DV. Töluverð umræða hefur orðið í Bandaríkjunum eftir aö stór auglýs- ing frá SAS og Bergen Line birtist á baksíðu aöalblaðs bandaríska stór- blaðsins New York Times á fimmtu- dag. Þar er spurt stórum stöfum efst á síðunni: Hvaða land fann Ameríku meðan aðrar Evrópuþjóðir trúðu því statt og stöðugt að jörðin væri flöt? Undir auglýsingunni, sem segir frá starfsemi SAS og Bergen Line, stend- ur síðan jafnstórum stöfum: Þaö er rétt. Það var Noregur. Óvissan um þjóðemi Leifs og at- hygli almennings vestra í kjölfar auglýsingarinnar hefur virkað sem vatn á myllu norskra viðhorfa þar. Félög Norðmanna í Bandaríkjunum, auk fyrirtækja og einstaklinga, hafa fylgt þessu eftir með öfiugu átaki þar sem rödd íslands er ósköp hjáróma og lítil. Sem dæmi um yfirburði Norðmanna nefndi viðmælandi DV að þegar víkingaskipin komu til New York hefði meirihluti þeirra sem komu til að horfa á haldið á norskum fána en einungis um 30 manns á ís- lenskum. „íslensk kona dreifði fánunum- Hún hafði haft spurnir af yfirburðum Norðmanna við komu skipanna til Kanada og ætlaöi að ekki að láta kaffæra sig. Þarna bar ekkert á fram- taki íslenskra embættismanna." Ingvi S. Ingvason, sendiherra í Washington, sagöi í samtah við DV að ef Norðmenn vildu eyða peninga- fúlgum í stórar auglýsingar væri það þeirra mál. íslenskir fánar hefðu blakt við hún til jafns við þá norsku. Þórður Einarsson sendiherra á sæti í íslensk-norskri framkvæmda- nefnd vegna ferðar víkingaskipanna vestur um haf. Hann sagðist skilja sárindi íslendinga. „Það era ekki alhr Norðmenn sem vilja eigna sér Leif og allra síst þeir sem standa að þessu verkefni. Þar er Knud Kloster, sá ér byggði vík- ingaskipin, meötalinn. Auövitað væri gamán að geta gert meira fyrir íslenskan málstað almennt en við eram svo litlir í þessu samhengi," sagði Þórður. -hlh Hérað: Góð kartöf luuppskera

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.