Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1991, Side 7
LAUGAKDAGUR 28. SEPTEMBER 1991.
7
Fréttir
Daihatsu Applause fæst bæöi með fjórhjóladrifi og framhjóladrifi. Með framhjóladrifi kostar hann frá 979.000 kr. stgr. á götuna. Með fjórhjóladrifi og
óviðjafnanlegum aksturseiginleikum kostar hann frá 1.249.000 kr. stgr. á götuna. Söluaðili Daihatsu á íslandi er Brimborg hf. Faxafeni 8, sími 91 - 685870.
DAIHATSU APPLAUSE
Sturtaði
lömbum
af vöru-
Viðræðumar um evrópska efnahagssvæðið:
Meiri von um
samkomulag
- segir skrifstofustjóri utanríkisráðuneytis
Gunnar Snorri Gunnarsson, skrif-
stofustjóri utanríkisráðuneytisins,
segir að meiri von sé nú um sam-
komulag um evrópskt efnahags-
svæði en áður þótt mikið beri enn á
milli í viðræðum EFTA og Evrópu-
bandalagsins. Gunnar sat samninga-
fund aðalsamningamanna EFTA og
Evrópubandalagsins í upphafi vik-
unnar í Brussel.
„Mér sýnist sem Evrópubandalagið
sé að þokast í rétt átt og tilboð þeirra
vera hagstæðara en áöur. Það eru
hins vegar meingallar á því og
bandalagið er ekki enn búið að gang-
ast inn á okkar hugmyndir um það
hvernig eigi að nálgast fullt toll-
frelsi."
- Hvað um fréttir um að Evrópu-
bandalagið sé nánast búið að semja
viö Norðmenn og að við íslendingar
sitjum einir eftir?
„Það er ekki rétt.“
Gunnar segir að helsta ástæðan
fyrir því að menn hafi meiri von á
samkomulagi sé sú að fyrst og fremst
beri á milli varðandi fiskafurðir eins
og lax, makríl, síld og hugsanlega
skelfisk. Afurðir sem skipti okkur
ekki höfuðmáli. Á móti komi svo
prinsipp-þrjóska bandalagsins, því sé
einfaldlega ekki vel við að gefa frjáls-
an markaðsaðgang að fullu.
- Er enn krafa um fiskveiðiheim-
ild?
„Þeir halda því til streitu en eru
meö það á lægri nótunum. Eins og
áður hefur aðalpressan verið á Norð-
mönnum með það.“
Ráðherrar Evrópubandalagsins
munu hittast 30. september. Ráðgert
er hins vegar að sameiginlegur ráð-
herrafundur EFTA og EB verði 21.
október.
-JGH
bílspalli
- eitt lambanna drapst
Eitt lamb drapst þegar kassa
með þrjátíu lömbum var sturtað
af palii vörubíls við Litla-Fjarðar-
horn í Fellshreppi.
Austfirskir íjáreigendur og
bændur hafa verið að kaupa fé
af Ströndum síðustu daga, svo-
kölluð líflömb, og fengið til liðs
við sig vörubílstjóra sem safnar
lömbunum í lausan kassa á pall-
inum.
Atvikiö átti sér stað er bílstjór-
inn ætlaði að taka bilinn úr drif-
lás. Talið er að bílstjórinn, sem
var vanur, hafi verið að flýta sér,
en auk þess var þarna svarta-
myrkur.
-ingo
Þessir tuttugu bilar eru i vinning í happdrætti sem ólympíunefnd íslands
hefur hleypt af stokkunum. Hagnaði af happdrættinu er ætlað að standa
straum af hluta af kostnaði og undirbúningi við þátttöku íslands í ólympiu-
leikunum.