Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1991, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1991, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1991. 21 Menning Í Stelpu Strðka Sviðsljós Mia og Carl Bildt ásamt dótturinni Gunnet Blanceflor. Vill ekki flytja í forsæt- isráðherrabústaðinn Mia Bildt, verðandi forsætisráð- herrafrú Svíþjóðar, ætlar ekki að flytja í forsætisráðherrabústaðinn gegnt þinghúsinu í Stokkhólmi. Hún segir að þar sé ekki gott að búa með smábörn. Kunnugir segja að ekki þýði fyrir Carl að mótmæla því heima fyrir sé það Mia sem haldi um stjórnartaumana. Mia og Carl eiga nær tveggja ára gamla dóttur og í næsta mánuði er von á nýjum fjölskyldumeðlimi. Mia er dóttir Gösta Bohman, fyrr- verandi ráðherra og leiðtoga Hægri ílokksins. Að sögn Gösta er Mia ekki alltof hrifin af því að verða forsætis- ráðherrafrú en hann þykist fullviss um að dóttirin muni standa sig með prýði. Hún starfar nú sem lögfræð- ingur hjá skattstofunni í Stokkhólmi. Forsýning sunnudagskvöld kl. 11.15 fm#957 BÍÓHÖIi ÁLFABAKKA SÍMI 78900 Bandalög 4 - Ýmsir flytjendur Vel heppnuð blanda Innlend plötuútgáfa hefur verið með líflegasta móti í sumar og við- tökur kaupenda að sama skapi góð- ar líka. Obbinn af plötum sumars- ins er safnplötur ýmiss konar og virðist sem plötuútgáfa hérlendis sé að skiptast í tvö horn; safnplöt- ur, sem koma út á sumrin, og plöt- ur hljómsveita og einstaklinga sem koma út um jól. Bandalög 4 er önnur bandalaga- plata sumarsins og tvímælalaust betri en sú fyrri. Fyrir það fyrsta er þessi alíslensk en hin var blanda af íslenskum og erlendum lögum. í öðru lagi eru flytjendur og laga- smíðar einfaldlega mun sterkari á þessari síðari bandalagagaplötu. Og það eru tvær hijómsveitir sem mér fmnst að komist áberandi vel frá sínu hér, Sáhn hans Jóns míns og Todmobile. Sálin á lögin Ábyggi- lega og Brostið hjarta, hvort tveggja lög eftir Guðmund Jónsson, fyrirtaks rokklög, melódísk og grípandi. Todmobile á líka tvö lög, Elíf ró og Róbert, kröftug og dulúð- ug lög í beinu framhaldi af því sem hljómsveitin var að gera á síðustu plötu. Ellen Kristjánsdóttir syngur tvö lög á plötunni, annars vegar Ég læt mig dreyma eftir Friðrik Karlsson í mun þéttari útsetningu en áður og svo lagið Litla systir eftir Magn- ús Eiríksson með Mannakornum, ljúft og faUegt lag í djassdúr. Upplyfting á einnig tvö lög á plöt- unni, bæði eftir Birgi Jóhann Birg- isson; það fyrra heitir Kominn í sumarfrí, einfaldur sumarsmellur sem gengur sér til húðar á stuttum tíma og hitt heitir Allt sem ég þrái og er lag í rólegri kantinum. Ríó tríó á sömuleiðis tvö lög og með fullri virðingu fyrir því ágæta tríói finnst mér lögin engan veginn passa inn í þennan hóp enda sú tónlist sem tríóið flytur af allt öðr- um toga en annað efni á plötunni. Sálin hans Jóns míns kemur vel út á Bandalögum 4. Hljómplötur Sigurður Þór Salvarsson Lögin standa hins vegar fyllilega fyrir sínu. Karl Örvarsson á eitt lag, Dans á rósum, prýðisgott lag sem lofar góðu fyrir sólóplötu Karls. Aust- flrðingarnir í Sú Ellen koma skemmtilega á óvart með laginu Kona eftir Steinar Gunnarsson, léttrokkuðu lagi sem venst afar vel og vinnur sífellt á. Herramenn flytja lag Harðar Ól- afssonar, í dag, frá síðustu söngva- keppni og fer þar skagfirska svei- flan í sinni einfóldustu mynd. Galíleo býður upp á lagið Það ert þú eftir Bubba Morthens, gott rokklag í nokkuð öðrum dúr en við var að búast frá Bubba. Botninn í plötuna slær svo Loðin rotta með lagið Ég ligg undir skemmdum eftir Ingólf Guðjóns- son, þokkalegt lag með fönkívafi sem minnir satt aö segja svolítið á Todmobile. ✓ ÞÆGILEGAR UMHVERFISVÆNAR Næturbleiur Nýju bleiurnar eru þœr einu sem hafa tvöfalda lekavörn yPEAUDOUCEy POMTBREAK IT'S 100% PURE ADRENALINE TOGETHER THEY TAKE ADVENTURE PAST ÍHE POINT OF N0 RETURN.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.