Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1991, Side 47
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1991.
59
Menning
Stjömubíó: Tortímandinn 2: Dómsdagur ★★★
Stál við stál
Tortímandinn 2 hefst á atriðum úr myrkri framtíð
árið 2029 þegar áratugabaráttu mannkyns við vélarn-
ar, sem áttu að þjóna því en fengu betri hugmynd, er
að ljúka með sigri Johns Connor, foringja fjölþjóöa-
hersins. En baráttan var einnig háð á öðrum vígvelli
á öðrum tímum. Fyrst árið 1984 þegar vélarnar sendu
fyrsta tortímandann til að myrða móður Connors,
Söru, áður en hann fæðist. Svo aftur árið 1994 til að
myrða hinn unga Connor. Hann er þá í umsjá fóstur-
foreldra eftir að Sarah lenti á geðveikrahæli. Hún hef-
ur lengi verið þjökuð af vitneskjunni um dómsdaginn
29. ágúst 1997 þegar 3 milljarðar manna farast í kjarn-
orkustríði. Enginn trúir henni, ekki einu sinni John
sem hefur afneitað henni og er á góðri leið með að
verða smákrimmi. Einn daginn stendur hann þó and-
spænis sannleikanum í líki tveggja tortímenda. Annar
þeirra er af sömu gerð og með útlit þess sem móðir
hans kramdi í málmpressu tiu árum áður. Nú er hann
kominn til að vernda Connor fyrir hinum raunveru-
lega óvini, fullkomnari og nær ósigrandi tortímanda,
samsettum úr fljótandi málmi sem getur tekiö á sig
hvaða lögun sem er.
Það var engin hætta á að ekki yrði gert framhald
af Tortímandanum. Sú mynd gerði austurrískt vöðva-
fjall að stórstjörnu og ungan tæknibrellusmið að ein-
um færasta kvikmyndagerðarmanni heims. Þegar
Tortímandanum lauk var sagan galopin og það voru
aðeins viðskiptalegar flækjur sem töfðu fyrir fram-
haldinu.
James Cameron og æskuvinur hans, William Wish-
er, hafa tekið upp þráðinn að nýju en gert það á frek-
ar einfaldan máta. Síðast þegar Cameron gerði fram-
haldsmynd hóf hann upprunalegu söguna upp á nýtt
svið og kvikmyndaði hana á svo kynngimagnaðan
hátt að úr varð ein besta kvikmynd allra tíma: Aliens.
Núna endurtekur hann sig á kostnað frumleika og
heildrænnar uppbyggingar í sögunni með því að senda
tortímanda á ný aftur til fortíðar.
Það sem fylgir er að mestu langur eltingaleikur og
átök með jöfnu miiiibili. En þegar mynd kostar 100
milljónir dollara (rúmlega tvö ráðhús) eru eltingaleik-
irnir allt annað en venjulegir og átökin eru tækni-
brelluorgía sem slær allt út sem sést hefur. Lifandi
persónur myndarinnar njóta sín ekki í öllum hasarn-
um, sem er synd því Sara hefur tekið athyglisverðum
breytingum úr saklausri þjónustustúlku í gallharðan
en örvæntingarfullan skæruliða sem þarf að gera upp
við sig hvort hún á að bíða eftir framtíðinni eða reyna
að móta hana sjálf. Sonurinn John, leikinn af nýliðan-
um Furlong, fær ekki að sýna hvaða áhrif það hefur
að vera alinn upp í þeirri trú að hann sé frelsari mann-
kyns og beri að vemda það hvað sem það kostar.
Tölvufræðingurinn Miles Dyson (Morton) fær varla
að átta sig á eigin siðblindu og annarra er líta á morð-
tólasmíð sem verðugt viðfangsefni vísindanna.
Áhersla á aðeins eina af þessum persónum hefði
gefið myndinni nauðsynlegt mótvægi við vélabrögðin,
mannlegan þátt til jafns við örstutt en afdrifaríkt sam-
band Söru Connor við hermanninn Kyle Reese í fyrstu
myndinni. Það glittir í það sem hefði getað verið í
nokkrum rólegum atriðum en þau eru ergilega stutt.
Þrátt fyrir lausa enda, sem munu sennilega ekki
pirra neinn sem hefur ekki séð fyrstu myndina oftar
en tvisvar, virkar myndin ágætlega sem ofur-hasar
með mögnuðum áhættuatriðum og ótrúlega vel gerð-
um tæknibrellum þar sem hið nýja málmmenni, T-
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
1000, fer bókstaflega hamförum. Arnold er alltaf góður
þegar hann þegir og plægir niður óvini og hinn nýi,
aðeins blíðari Tortímandi, er mjög sannfærandi. Hon-
um er leyft að taka sjálfan sig ekki of alvarlega og
getur verið, þegar hann er að herma eftir mönnum
(brosa?), ansi fyndinn. T-1000 er hins vegar málm-
gerving alvörunnar og leikur Roberts Patrick (sem
skoðaði erni og skordýr til fyrirmyndar), tölvubrellur
ILM og líkön Stans Winston hafa skapað eftirminnileg-
asta bíóskrímslið síðan Predator sást fyrst (Hannibal
Lecter telst ekki með því hann kom úr bók). Að sjá
Tortímendurna tvo mölbrjóta veggi hvor með öðrum,
án þess að nein svipbrigði sjáist á þeim, er það næsta
sem alvörubíó kemst Tomma og Jenna og þá hlýtur
það að vera gott. En James Cameron geröi þrjú meist-
araverk í röð á undan þessari mynd (Terminator, Ali-
ens, The Abyss), hvert öðru frumlegra og kröftugra,
og ég (eins og allir aðdáendur vísindaskáldsagna) gerði
miklar kröfur til Tortímandans 2. Cameron brást í
þetta sinn og það er lítil sárabót að fyrsta glappaskot
hans er betra en flestar aðrar myndir sem boðið er
upp á í dag.
Terminator 2: Judgement Day (Band-1991) 137 min. Handrit:
James Cameron & William Wisher. Leikstjórn: Cameron.
Kvikmyndataka: Adam Greenberg (Alien Nation, Ghost). Tón-
list: Brad Fidel (Terminator, Big Easy). Leikarar: Arnold
Schwarzenegger, Linda Hamilton (Beauty and the Beast),
Robert Patrick (Die Hard 2), Edward Furlong, Joe Morton
(Brother trom Another Planet), Jenette Goldstein (Aliens).
Afmæli
Steindór Guðmundsson
Steindór Guðmundsson fanga-
vörður, Gundargerði 10, Reykjavík,
verður sjötugur á morgun.
Starfsferiil
Steindór er fæddur í Smádalakoti
í Sandvíkurhreppi í Ámessýslu.
Hann var alinn upp á ýmsum stöð-
um í Ámessýslu, þó aðallega í
Gnúpveijahreppi. Fyrstu tíu ár
ævinnar var hann með fóstru smni,
Þórunni Guðmundsdóttur frá
Framnesi á Skeiðum, síðan hjá
Brynjólfi Melsted, bónda á Stórahoíi
í Gnúpverjahreppi, og Önnu Gunn-
arsdóttur, konu hans.
Alltfrá unga aldri stundaði
Steindór almenn landbúnaðarstörf.
Steindór lauk búfræðinámi 1944 frá
HólumíHjaltadal.
Hann varð síðar bóndi á Stórahofi
og einnig i Keldnakoti í Stokkseyr-
arhreppi.
Hann hefur verið fangavörður frá
1960 allt til þessa dags, lengst af á
Litla-Hrauni og var þá búsettur á
Stokkseyri. Síðustu sjö árin hefur
hann verið fangavörður við fangels-
ið við Síðumúla í Reykjavík og hefur
verið búsettur í Reykjavík síðan.
Fjölskylda
Steindór kvæntist 23.10.1955 Á-
gústu Önnu Valdimarsdóttur, hús-
móður og verslunarmanni. Foreldr-
ar hennar eru Anna Þórarinsdóttir
húsmóðir og Valdimar Anton Valdi-
marsson, bifreiðastjóri í Reykjavík.
Börn Steindórs og Ágústu em Þór-
ir, f. 10.6.1955, fangavörður og söðla-
smiður, búsettur á Eyrarbakka,
hann á þrjú börn og eitt stjúpbarn;
Anna Brynhildur, f. 27.02.1959, af-
greiðslustjóri í Reykjavík, hún á eitt
barn; Steingerður, f. 11.9.1962, hús-
móðir og verslunarmaður, maki
Þorvarður Björnsson, þau eru bú-
sett í Reykjavík og eiga eitt barn.
Stjúpbörn eru Þórður Grétar
Árnason, f. 26.3.1950, maki Vigdís
Hjartardóttir, þau eru búsett á Sel-
fossi og eiga tvö börn; Hinrik Ingi
Árnason, f. 11.11.1951, húsasmiður
í Reykjavík, maki Oddný Stein-
grímsdóttir, þau eiga fjögur börn;
Sigurður Þórarinn Árnason, f. 8.11.
1952, stýrimaður á Stokkseyri, maki
Hafdís Jónsdóttir, þau eiga tvö börn
og hann á þrjú börn utan hjóna-
bands.
Systkini Steindórs, Ragnheiður
Guðmundsdóttir, f. 22.8.1918, hús-
móðir í Reykjavík, maki Kjartan
Árnason, þau áttu eitt kjörbarn, þau
eru bæði látin; Bergvin Guðmunds-
son, f. 23.3.1920, sjómaður í Reykja-
vík, fyrri kona hans er Viktoría Sig-
urjónsdóttir og eiga þau eitt barn,
síðari kona hans er Erika Evers;
Engilbert Guðmundsson, f. 8.8.1924,
bifreiðastjóri í Reykjavík, maki Ing-
er Sanne og eiga þau þrjú börn;
Guðbjartur Guðmundssor., f. 22.9.
1926, maki Elín Ólafsdóttir, látin,
þaueigafjögurbörn.
Foreldrar Steindórs eru Guð-
mundur Ingjaldsson, f. 18.6.1891,
verkamaður, og Steinunn Dagbjört
Steindór Guðmundsson.
Þorsteinsdóttir, f. 13.11.1890, hús-
móðir, þau eru bæði látin. Þau
bjuggu lengst af á Stokkseyri.
Ætt
Foreldrar Guðmundar vom Ingj-
aldur Hróbjartsson og Jóhönna
Magnúsdóttir, dóttir Magnúsar
Jónssonar og Sigríðar Guðmunds-
dótturíSkarfanesi.
Steinunn Dagbjört var dóttir Þor-
steins Þorbergssonar og Guðrúnar
Magnúsdóttur frá Hæringsstaða-
hjáleigu.
Vegna hinna merku tímamóta hjá
Steindóri og sextíu ára afmælis Á-
gústu taka þau á móti gestum á
morgun, 29. september, í Skagfirð-
ingaheimilinu, Síðumúla35, milh
klukkanlðog 18.
Tortímandinn (Arnold Schwarzenegger) og John Connor (Edward Fur-
long) sem hann á að vernda.
Rýmingarsala
á sturtuklefum
Takmarkað magn
Sturtuklefar í úrvali
V VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966 '