Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1991, Side 52

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1991, Side 52
FRÉTTASK T I Ð Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. ; : : Gnmdarfiörður: Grunur um - íkveikju í rækjutrolli Tjón sem nemur hundruðum þús- unda króna varð þegar rækjutroll brann á bryggjunni fyrir framan fiskverkunarhúsið Tanga í Grundar- firði í gærmorgun. Lögreglan rann- sakar málið og leikur grunur á að um íkveikju hafi verið að ræða. Tvö rækjutroll úr bátnum Hauka- bergi voru á bryggjunni á vöru- bretti. Starfsmenn í fiskvinnslunni voru nýlega farnir í kafíi þegar fyrst varð vart við eldinn um klukkan 10.10 í gærmorgun. Logaði þá í öðru rækjutrollinu. Slökkvibíll kom fljót- lega á staðinn og var annað trollið þá alelda. Rétt áður tókst verkstjóra að forða hinu rækjutrollinu með lyft- ara. Eldur náði að gjöreyðileggja annað trollið en hitt skemmdist að hluta þar sem eldurinn náði að kom- ast í belginn á því. Málið er í rann- sókn. -ÓTT Utanríkisráðherra ^ Króatíu í heimsókn Dr. Zvonimir Separovic, utanríkis- ráðherra Króatíu, var væntanlegur í heimsókn til íslands í morgun í boði Jóns Baldvins Hannibcdssonar utan- ríkisráðherra. í dag munu þeir eiga fund saman og ræða stöðu mála í Júgóslavíu og síðar hitta Davíð Oddsson forsætisráðherra að máli. Jón Baldvin hefur látið á sér skilja í samtölum við DV að viðurkenning á sjálfstæði Króatíu og Slóveníu komi til álita að því tilskildu að Þjóð- verjar eða Austurríkismenn hafi frumkvæðiíþvíefni. -kaa ÞJÓFAVARNIR FYRIR FYRIRTÆKI OG HEIMILI Vönduð og viðurkennd þjónusta VARI -29399 Allan sólarhringinn Oryggisþjónusta síðan 1 9Ó9 LOKI Þarskutu Norðmenn Is- iendingum Leif fyrirrass! lyfsölu verði af lagður „Það er sérstök nefnd á mínum lyijaverslun áfram verða á ábyrgð aður nefndarinnar er Brynjólfur nokkm's konar einkarétt á. Þessu vegum að skoða möguleikana á lyfjafræðinga auk þess sem versl- Sigurðsson prófessor. fylgja þó nokkur vandræði, Til að aukinni samkeppni og frjálsræði í anir verða að sjálfsögðu að uppfylla - Verður þá um það að ræða að mynda er þannig i pottinn búið að verslun með lyf, bæði hvað varöar ströng skilyrði um búnað og starfs- almennar verslanir eins og mat- lyfsölum er gert skylt aö kaupa innflutningsverslun og smásölu- hætti,“ sagði Sighvatur Björgvins- vöruverslanir geti framvegis selt eignir og lager af fyrirrennurum verslun. Auk þessa er nefndin að son heilbrigðisráðherra i samtali lyf? sínum. Það eitt getur valdið erfið- skoöa þá erfiðleika sem kunna að við DV. „Það er verið að athuga mögu- leikum við að koma á skipulags- vera samfara auknu frjálsræði í Nefnd á vegum Sighvats er nú að leikana á aö framkvæma þetta breytingu í lyfjasölumálurn á lyfjaverslun. Þó verið sé að skoða endurskoða lög um lyfjadreifingu þannig að menn séu ekki lengur skömmum tíma.“ aukið ffjálsræði í lyfjaverslun er og lyfsölu. Nefndin hefur haldið með kvótakerfi í lyfsölunni þar -hlh ekki gert ráö fyrir að breyta neinu nokkra fundi og býst ráðherra við sem lyfsölum er úthlutaður ákveð- sem varðar öryggi. Þannig mun að hún skili fljótlega af sér. Form- inn kvóti viðskiptavína sem þeir fá mm Kristín Daviðsdóttir er menntaður hjúkrunarfræðingur en starfar við bensin- afgreiðslu í Öskjuhlíðinni vegna þess hversu hjúkrunarstarfið er illa borg- að. Sjá viðtal við Kristínu á bls. 2. DV-mynd G\lfi Fj ármálaráðherra: Ríkisstjómin vill einkavæða Lyfja- verslun ríkisins - vinnuhópur Qármálaráðherra tekur út reksturinn „Þessi ríkisstjórn vill kanna mjög rækilega hvernig hægt er að koma sem mestu af starfsemi Lyfjaversl- unar ríkisins út á markaðinn, einka- væða sem mestan hluta hennar. Það verður ekki hlaupið að því. Það verð- ur að skoða þau mál mjög gaumgæfi- lega, ekki síst hjá viðkvæmum fyrir- tækjum eins og ÁTVR og Lyfjaversl- un ríkisins sem heyra bæði undir fjármálaráðuneytið," sagði Friðrik Sophusson fjármálaráðherra í sam- tali við DV. Á vegum fjármálaráðherra er starfandi vinnuhópur sem er að kanna rekstur Lyfjaverslunar ríkis- ins og rekstrarumhverfi hennar. „Það er gert með það í huga að í framtíðinni verði þeim möguleika velt upp að gera Lyfjaverslunina að hlutafélagi," sagði Þór Sigþórsson, forstjóri Lyfjaverslunar ríkisins. Hann er í vinnuhópnum en vísaði á fjármálaráðuneytið þegar leitað var frekari upplýsinga. Friðrik sagði að hlutverk vinnu- hópsins væri mjög takmarkað. Hon- um væri einungis ætlað að skila inn upplýsingum svo hægt yrði að ákvarða um framhald málsins, hvort og hvernig eigi að breyta rekstri fyr- irtækisins. Friörik sagði að breyting Lyfjavcrslunar ríkisins í hlutafélag væri inni í myndinni. Heilbrigðisráðherra er með nefnd í gangi sem endurskoðar lög um lyfjasölu og dreifingu með meira frjálsræði og samkeppni í huga. Frið- rik sagði að ekkert samband væri á milliþessaravinnuhópa. -hlh Veðrið á sunnudag og mánudag: Næturfrost fyrir norðan Á sunnudag og mánudag verða suðlægar áttir ríkjandi. Vætusamt verður sunnan- og vestanlands og um tíma einnig á Norður- og Norðaustur- landi en þar verður annars að mestu bjart veður. Hiti verður á bilinu 6-S stig sunnanlands að deginum en heldur svalara norðanlands. Víða verður næturfrost á norðanverðu landinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.