Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Blaðsíða 6
v LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1991. Utlönd ísraelsmenn féllust á öll skilyröi fyrir friðarráöstefnu fyrir Miö-Austurlönd: Palestína sjálf stætt ríki þegar innan árs - ráöstefnan hefst í Madríd þann 30. október aö viðstöddum Bush og Gorbatsjov Háttsettur bandarískur embættis- maöur segir aö væntanlegar viöræö- ur um friö í Mið-Austurlöndum miði aö því að Palestína verði sjálfstjórn- arríki á herteknu svæðunum í Israel innan árs frá því að samningum lýk- ur. Áætlað er að komið veröi á fót bráðabirgðastjórn í Palestínu. Það voru PaJestínumenn sem settu þetta skilyrði fyrir því að senda full- trúa á friðarráðstefnuna. ísraels- menn voru mjög tregir til að sam- þykkja að þessi skilyrði en gerðu það þó með hálfum huga síðdegis í gær. „Stjóm ísraels var treg til að sam- þykkja þetta en geröi það þó á endan- um athugasemdalaust. Friðarráð- stefnan verður því haldin með þess- um skilyrðum og í fullu samkomu- lagi við Israelsmenn," sagði embætt- ismaðurinn sem ekki hefur verið nafngreindur. Afráðið er að ráðstefnan hefjist í Madríd þann 30 október. Þar verða fulltrúar stjóma Bandaríkjanna og Sovétríkjanna auk allra deiluaðila. Þá hefur Míkhaíl Gorbatsjov Sovét- forseti lýst því yfir að hann verði á ráðstefnunni. George Bush Banda- ríkjaforseti hefur þegar lýst því yfir aö hann verði við setninguna þann 30. Það eykur mönnum vonir um árangursríkan fund að bæði stór- veldin standa að friðargerðinni. Það voru James Baker, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, og Borís Pankin, utanríkisráðherra Sovét- ríkjanna, sem lýstu því yfir í gær að þeir byðu ísraelsmönnum og araba- ríkjunum til ráðstefnunnar í Madríd. Fyrr um daginn hafði ríkt mikil óvissa um hvort ísraelsmenn ætluðu sér að fara til Madrídar. Baker virtist um tíma vondaufur um að mánaðalangar viðræður hans við þjóðaleiðtoga i Mið-Austurlönd- um ætluðu aö bera árangur en svo fór að lokum að ísraelsmenn gáfu eftir. Hann hefur farið átta ferðir til funda við leiðtogana og náði nú loks settu marki. Baker ítrekaði þó á fréttamanna- fundi eftir að samkomulag um ráð- stefnuna var í höfn að langur vegur væri enn til þess að friöur kæmist á í Mið-Austurlöndum þótt mikilvægt skref hefði verið stigið þegar deiluað- ilar settust loks að samningaborði eftir 43 ára átök. Reuter Fjölskyldanfékk súkkulaðitertu meðhassi „Ég fór alla leið til helvítis og til baka aftur,“ sagði Margrét Jellico, kona á sextugsaldri, eftir að hafa borðað af dýrindis súkku- laðitertu i teboði hjá ungri frænku sinni ásamt fleirum úr íjölskyldunni. Við rannsókn á áhrifamætti tertunnar kom líka í ljós að fleira hafði verið notað til að bragðbæta hana en súkkulaði. Álitlegur skammtur af hassi var einnig í herini. „Ég vildi bara að teboðið yrði afslappað og að öllum liði vel,“ sagði Kathleen Pollard, frænkan unga sem bakaði tertuna, í yfir- heyrslu hjá lögreglunni. Hún slapp með sekt fyrir tiltækið og lofaði að gera þetta aldrei aftur. Gamla frænkan sá miklar of- sjónir eftir tertuátið. Hún flúði út úr húsinu og beit gras í garðin- um. Þegar hún sá lögregluþjón tók hún til fótanna og hélt að hann væri að ofsækja sig. Fjöl- skyldan býr í Wales. Reuter Enn er barlst um bæinn Dubrovnik. Sambandsherinn situr um borgina og hér má sjá hermenn leita skjóls bak viö skriðdreka i nágrenni hennar. Símamynd Reuter EB vill uppstokkun í Júgóslavíu: Nýtt samband fullvalda ríkja Evrópubandalagðið ætlar að halda fast við áform sín um að koma á nýju sambandsríki í Júgóslavíu þrátt fyrir að Serbar hafi lýst yfir óánægju méð hugmyndirnar. Ef vilji Evrópu- bandalagsins fer eftir verða lýðveldi núverandi Júgóslavíu í laustengdu bandalagi, ekki ólíku því sem nú virðist vera aö komast á laggirnar í Sovétríkjunum. Vinna við nýjan sambandssáttmála er þegar hafin á vegum Evrópu- bandalagins í Haag í Hollandi þar sem friðarráðstefna þess hefur staðið síðustu vikur. Leiðtogar annarra lýðvelda en Serbíu hafa lýst sig ánægða með drögin. Þrjú lýðveldanna hafa þegar lýst yfir sjálfstæði. Haft er eftir Carr- ington lávarði, sem leiðir friðarvið- ræðurnar, að Serbar telji drögin stefna framtíð Júgóslavíu í voða og efist um að hin lýðveldin hafi lagaleg- an rétt til að samþykkja breytingarn- ar. Afstaða Serba ræður úrslitum í málinu því sambandsherinn er á þeirra bandi og auk þess hefur skæruliðum Serba orðið vel ágengt í baráttunni við fjendur sína frá Króa- tíu í bardögum undanfarinna vikna. Vopnahlé á enn að heita í gildi í Júgó- slavíu en samt er víða barist í land- inu. Reuter Skriðdrekar umkringja þinghúsið í Moskvu Skriðdrekar Sovéthersins um- kringdu þinghúsið í Moskvu í gær, vegfarendum til skelfingar. Valdaránið frá því í ágúst var þó ekki að endurtaka sig heldur hafði herinn Iánað kvikmynda- fyrirtæki tól sín. Nú á að endur- taka leikinn fyrir hvíta tjaldið. Myndin er tekin í réttu umhverfi og með réttu skriðdrekunum. Og það er ekki aðeíns von á kvikmynd um valdaránið, Þijár bækur um það eru væntanlegar á markaðinn á þessu og næsta ári. Höfundarnir eru ekki ófræg- ari menn en Míkhail Gorbatsjov og Boris Jeltsin. Þá er náinn sam- verkamaður Jeltsíns einnig að skrifa. Morðinginn þekktistárödd- inniísíma Lík tveggja þýskra lögreglu- þjóna eru fundin á æfingasvæði breska hersins nærri Bielefeld í Þýskalandi. Lögregluþjónarnir höfðu farið að sinna útkalli rétt þar hjá. Mannanna hafði verið saknað í nokkra daga en fulltrúi áöur ókunnra samtaka hafði lýst í síma ábyrgð á hvarfi þeirra. Lög- reglunni tókst að bera kennsl á rödd mannsins í símanum og handtók hann. Um var að ræða góðkunningja lögreglunnar en hann sagðist hafa myrt lögregluþjónana í nafni hóps raanna sem kallar sig Baráttusamtök fyrir upplausn lögregluríkisins. Suöur-AMka: Viðskipta- þvingunum af- léttíáföngum Leíðtogar ríkja í Breska sam- veldinu hafa ákveðiö að aflétta viðskiptaþvragunum á Suður- Afríku í áfongum. Fundur leið- toganna hefúr staðið í Harare í Zimbabwe. Utanríkisráðherrar samveldis- ríkjanna höfðu áður saraþykkt afhám viðskiptaþvingana þar sera stjóm Suður-Afrlku hefði stigið raikilvæg skref í átttiijafn- réttis kynþátta í landinu. Reuter Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst INNLAN OVERÐTRYGGÐ Sparisjóðsbækur óbundnar 3,5-4 Allir nema Sparisjóðir Sparireikningar 3ja mánaða uppsögn 4 6,5 Sparisjóðirnir 6 mánaða uppsögn 5-7,5 Sparisjóðirnir Tékkareikningar, almennir 1 Allir Sértékkareikningar 4-7 Landsbanki VlSITÖLUBUNDNIR REIKNINGAR 6 mánaöa uppsögn 3.0 Allir 15-24mánaða 7-7,75 Sparisjóðirnir Orlofsreikningar 5.5 Allir Gengisbundnir reikningar í SDR 6,5-8 Landsbanki Gengisbundnir reikningar i ECU 8,5-9 Landsbanki ÓBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. 3,25-4 Búnaðarbanki överðtryggð kjor, hreyfðir 8-8,5 Sparisjóðirnir SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR (innan timabils) Vísitölubundnir reikningar 4-8 Landsbanki Gengisbundir reikningar 4-8 Landsbanki BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKNINGAR Visitölubundin kjör 6,25-7 Búnaðarbanki Överötryggö kjör 10,5-11 Búnaðarbanki INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadalir 3,75-4,1 Sparisjóðirnir Sterlingspund 8,25-8,8 Sparisjóðirnir Þýsk mörk 7.5 7,8 Sparisjóðirnir Danskar krónur 7,75-8 Sparisjóðirnir ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst OTLAN óverðtryggð Almennir vlxlar (forvextir) 16,5-19 Sparisjóðirnir Viðskiptavíxlar (forvextir)1 kaupgengi Almenn skuldabréf 17-20 Sparisjóðirnir Viðskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdráttur) 20-22,5 Sparisjóðirnir útlánverðtryggð Skuldabréf 9,75-10,25 Búnaðarbanki AFURÐALÁN Islenskar krónur 16,5-1 9,25 Sparisjóðirnir SDR . 9-9,5 islandsbanki, Landsbanki Bandarikjadalir 7,25-8,0 Sparisjóðirnir Sterlingspund 12-12,75 Landsbanki Þýsk mörk 11 Allir Húsnæðlslán 4.9 Lífeyrissjóöslán 5 9 ' • 1 Dráttarvextir 30.0 MEÐALVEXTIR Almenn skuldabréf september 21,6 Verötryggð lán september 10,0 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala október 31 94 stig Lánskjaravisitala september 31 85 stig Byggingavísitala október 598 stig Byggingavisitala október 1 87 stig Framfærsluvísitala september 1 58,1 stig Húsaleiguvísitala 1,9% hækkun 1. október VEROBRÉFASJÖOin HLUTABRÉF Gengi bréfa veröbréfasjóöa Sölu- og kaupgengi aö lokinni jöfnun: KAUP SALA Einingabréf 1 5,968 Sjóvá-Almennar hf. 6,10 6,40 Einingabréf 2 3,186 Ármannsfell hf. 2.33 2,45 Einingabréf 3 3,919 Eimskip 5,70 5,95 Skammtímabréf 1,990 FJugleiðir 2,05 2,25 Kjarabréf 5,595 Hampiöjan 1,80 1,90 Markbréf 3,000 Haraldur Böðvarsson 2,95 3,10 Tekjubréf 2,123 Hlutabréfasjóður VlB 1,01 1,06 Skyndibréf 1,738 Hlutabréfasjóðurinn 1,64 1.72 Sjóðsbréf 1 2,860 Islandsbanki hf. 1,66 1.74 Sjóösbréf 2 1,935 Eignfél. Alþýðub. 1,68 1,76 Sjóðsbréf 3 1,978 Eignfél. Iðnnðarb. 2,45 2,55 Sjóðsbréf 4 1,732 Eignfél. Verslb. 1,75 1,83 Sjóðsbréf 5 1,183 .Grandi hf. 2,75 2,85 Vaxtarbréf 2,0157 Olíufélagið hf. 5 10 5,40 Valbréf 1,8896 Olís 2Í05 2,1 5 Islandsbréf 1,247 Skeljungur hf. 5,65 5*95 Fjórðungsbréf 1,131 Skagstrendingur hf. 4,80 5,05 Þingbréf 1,244 Sæplast 7,33 7,65 öndvegisbróf 1,226 Tollvörugeymslan hf. 1,04 1,09 Sýslubréf 1,265 Útgerðarfélag Ak. 4,70 4,90 Reiðubréf 1,211 Fjárfestingarfélagið 1,35 1,42 Almenni hlutabréfasj. 1,12 1,17 Auðlindarbréf 1,03 1,08 Islenski hlutabréfasj. 1.15 1,20 Síldarvinnslan, Neskaup. 3,23 3,40 ’ Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabrétum. útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.