Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Blaðsíða 44
56
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1991.
Andlát
Sigrún Matthildur Einarsdóttir lést í
Sjúkrahúsi Seyðisfjaröar 17. október.
Bryndís Friðþjófsdóttir, Safamýri 55,
lést 17. október.
Margrét Eggertsdóttir lést á Hjúkr-
unarheimihnu Sunnuhlíð fimmtu-
daginn 17. október.
Pétur Wiencke, Túngötu 18, Reykja-
vík, lést 15. október.
Gislina Bjarney Guðmundsdóttir,
Dalbraut 10, Bíldudal, andaðist
þriðjudaginn 15. október í Sjúkra-
húsi Patreksfjarðar.
Happdrætti
Vinningaskrá í A-flokki sjóðshapp-
drættis H.í. - HAPPÓ
Vinningssjóðurinn kr. 6.413.500,-
1. vinningur: kr. 3.206.750,-
Númer: 188495, Smárinn, Breiðholti.
2. -11. vinningur: Hver vinningur kr.
192.405.
Númer:
140630, Neskaupstaður.
147032, Hornafjörður.
156137, Selfoss.
167643, Bókav. Jónasar.
186839, Sælgætisv., Hólagarði.
188142, Árkaup.
212925, aðalumboð.
213696, aðalumboð.
213793, aðalumboö.
227835, Söluskálinn, Grímsbæ.
Tilkyimingar
Hallgrímssókn -
starf aldraðra
Vegna viðgerðar á kirkjunni fellur opiö
hús niður nk. miðvikudag, 23. október. í
jþess stað verður farið í Stjömubíó,
Laugavegi 94, kl. 17 þann dag. Þar verður
sýnd íslenska kvikmyndin Börn náttúr-
unnar. Tilkynna þarf þátttöku til Dóm-
hildar í síma 39965 og á fóstudag í síma
kirkjunnar 10745.
Grænlandsmánuður i
Norræna húsinu
Laugardaginn 19. október kl. 16 segja
Benedikta og Guðmundur Þorsteinsson
frá lífi og starfi á Grænlandsgrund og
Benedikta segir frá stjómmálum á Græn-
landi. Sunnudaginn 20. október kl. 16
heldur Bodil Kaalund listmálari fyrirlest-
ur með litskyggnum um grænlenska
myndlist. Sama dag kl. 17.30 heldur
Christian Berthelsen fyrirlestur um bók-
menntir Grænlendinga.
Breskir dagar á Ránni
Nú um helgina verður margt til gamans
gert í Ránni, Keflavík. Niðri mun hljóm-
sveitin SÍN leika fyrir dansi og á efri hæö
mun Guðmundur Rúnar Lúövíksson
koma krárgestum í rétta stemmningu en
Guðmundur Rúnar og SÍN em að gefa
út hljómplötu ásamt fleiri sem sem mun
koma út í næsta mánuði og væntanlega
taka þeir lög af þessari hljómplötu. Um
þessar mundir em breskir dagar á Ránni
og í tilefni af því er bresk matseld í háveg-
um höfð. Og í tilefni bresku daganna
munu tveir heppnir gestir Ráarinnar fá
ferðavinning til Newcastle með gistingu
og öllu saman.
Tvennirtímar,
ný hljómsveit
Tekið hefur til starfa hljómsveitin
Tvennir tímar. Hljómsveitin, sem var
stofnuð í lok júlí, leikur gömuí lög og ný,
íslensk og erlend í bland. Hljómsveitina
skipa: Hannibal Hannibalsson rafgít-
ar/söngur, Sigurður Kristinn Guðfmns-
son kassagítar/söngur, Ólafur Kolbeins-
son trommur/ásláttur og Alfreð Lilii-
endahl bassi. Aðalstarfsvettvangur sveit-
arinnar verður öldurhús, dansleikir, svo
og aðrar uppákomur.
Tertusýning í Borgar-
kringlunni
Glæsileg tertusýning á vegum Nýja
kökuhússins verður í Borgarkringlunni
í dag. Á langborði munu gestir geta barið
augum hnallþórur sem vart eiga sinn
líka. Simpson’s fjölskyldan verður á
svæðinu og tekynning á efri hæðinni.
Næturgali Þjóðleik-
hússins á Norðurlandi
Þjóðleikhúsið er nú að leggja af stað í
ferð um Norðurland með leiksýninguna
Næturgalann sem leikhópur hefur samið
eftir hinu þekkta ævintýri H.C. Anders-
en. Sýnt verður fyrir alla grunnskóla-
nemendur í fimm sýslum norðurlands.
Markmið Þjóðleikhússins með sýning-
unni er að kynna nemendum list leik-
hússins, tengja starfsemi Þjóðleikhússins
skólakerfmu og örva nemendur til ftjórr-
ar sköpunar í tengslum við námsefnið á
hveijum tíma.
Opið hús Björgunarsveitar
SVFÍ, Fiskakletts
Af tilefni 25 ára afmæhs björgunarsveitar
SVFÍ, Fiskakletts í Hafnarfirði, gefst
bæjarbúum og öörum, sem áhuga hafa,
kostur á að skoða húsnæði og búnað
sveitarinnar að Hjallahrauni 9 milli kl.
13 og 16 í dag, laugardag 19. október.
M.a. verður til sýnis nýr öflugur 25 feta
hraðbjörgunarbátur af Viking-gerð sem
sveitin hefur nýlega fest kaup á. Slysa-
vamadeild Fiskakletts var stofnuð í nóv-
ember 1928 en björgunarsveitin þann 15.
febrúar 1966. *
Dimmalimm Muggs væntan-
leg í nýrri útgáfu
Sagan af Dimmalimm mun innan
skamms koma út hjá bókaforlaginu
Vöku-Helgafelli í nýrru útgáfu í tilefni
aldarafmælis höfundarins, Guðmundar
Thorsteinssonar, Muggs. Þetta verður 8.
útgáfa bókarinnar en hún kom fyrst út
hjá Helgafelli árið 1942. Bókin hefur ver-
ið uppseld hjá forlaginu um tíma en mun
nú birtast í nýjum búningi og stærra
broti en áður. Myndimar í Dimmalimm
þykja nú meðal helstu gersema sem
Muggur lét eftir sig. Bókin hefur notið
mikilla vinsælda því ævintýrið um
Dimmalimm er perla íslenskra barna-
bóka. Vaka-Helgafell mun gefa Dimma-
limm út samtímis á íslensku, dönsku og
ensku.
Tónleikar
KK-bandið á L.A. café
KK-bandið heldur tónleika tvö næstu
sunnudagskvöld i veitingahúsinu L.A.
café, Laugavegi 45. KK-bandið skipa KK
og Þorleifur Guðjónsson en sérstakir
gestir þeirra þessi kvöld verða Leo Gille-
spie farandsöngvari, ljóð- og tónskáld og
Mick M. látbragðsleikarí og sjónhverf-
ingamaður.
Námskeið
Fræðslunámskeið í
Hallgrímskirkju
Sunnudaginn 20. október verður mikið
um að vera í Hallgrímskirkju. í sam-
bandi við „Átak um safnaðarbyggingu”
hefjast fræðslunámskeið sem verða
hvem sunnudag kl. 10 á undan guðsþjón-
ustunni. Það fyrsta hefur yfirskriftina
„Kjarni kristinnar trúar“. Við messu kl.
11 syngur Jón Þorsteinsson óperusöngv-
ari einsöng. Komin er út á vegum Ólafs-
fjarðarkirkju hljómplata með 18 þekktum
sálmum sem Jón syngur við undirleik
Harðar Áskelssonar organista. Platan
var hijóðrituð í Hallgrímskirkju og verð-
ur hún til sölu eftir messuna kl. 12 og
munu þeir félagar einnig árita hana. Kl.
17 verður kvöldguðsþjónusta um mann-
réttindi. Þetta er kyrrlát stund íhugunar
og bæna samkvæmt guðsþjónustuformi
sem kennt er við Taije. Sálmar úr nýju
sálmabókarviðbætinum verða sungnir.
Allir eru velkomnir.
Fyrirlestrar
Fyrirlestur um ónæmis-
fræði beinfiska.
Dr. Lars Pilström frá háskólanum í Upp-
sölum, Biomedical Center, Department
of Immunology, heldur fyrirlestur um
ónæmisfræði beinfiska á vegum líffræði-
skorar Raunvísindadeildar H.í. í Odda,
stofu 101, þriðjudaginn 22. október kl. 17.
Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og
nefnist „Immunoglobulin genes and their
expression in teleost fish with some evol-
utionary perspective". Gestafyrirlestrar
við lífiræðiskor eru hluti af námsefni
allra nemenda á 3. og 4. ári. Öllum er
heimill aðgangur.
Félag eldri borgara
Félagsvist spiluð kl. 14 á sunnudag í Ris-
inu, Hverfisgötu 105. Dansað frá kl. 20 í
Goðheimum.
Skautasvellið í Laugar-
dalopnað
Skautasvelhð í Laugardal verður opnað
í dag, 19. október. Þann dag og sunnudag-
inn 20. okt. verður svelUð opiö kl. 13-18
báða dagana. Upplýsingar um opnun í
símsvara 685533.
Sérverslun með kerta-
stjaka og smíðajárnsvörur
Verslunin Fom-ný hefur verið opnuð í
GKS húsinu, er þetta sérsverslun með
kertastjaka og smíðajárnsvörur. Forn-ný
verslunin er í eigu systkinanna Þuríðar
Steinþórsdóitur og Einars og Trausta
Steinþórssona og foður þeirra, Steinþórs
Einarssonar. í Forn-ný versluninni í GKS
húsinu, Hesthálsi 2 -4, er úrval af hönnun
Þuríðar á kertastjökum, blómasúlum,
kerta-ljósakrónum, ávaxtaskálum, hill-
um og borðum í mörgum stærðum. Úrval
af kertum í UtavaU er einnig á boðstólum.
í framtíðinni er stefnt aö meira úrvali
af gjafavöru. Þuríður fékk í vor styrk til
náms í Bandaríkjunum við Haystack
School of Craft þar sem hún starfaði og
nam ásamt þekktum listamönnum frá
Bandaríkjunum. Fyrirtækið hefur einnig
hafið útflutning á kertastjökum o.fl. til
Lúxemborgar.
Ný sérverslun
með símabunað
Nú nýverið var opnuð ný sérverslun með
símbúnað á íslandi. Verslunin ber nafnið
Símval og er til húsa að Ármúla 32, í
nýinnréttuðu húsnæði. Verslunin selur
aUan mögulegan símbúnað, s.s. símboða,
mótöld, súnsvara, þráðlausa síma, heim-
iUsstöðvar, símkerfi o.s.frv. Símval býö-
ur upp á vörur frá áður þekktum fram-
leiðendum eins og t.d. Hyundai og Alcat-
ell, en einnig er mikil áhersla lögð á vör-
ur frá sænska fyrirtækinu Doro sem hafa
ekki verið fáanlegar hér á landi áður.
Auk sölu mun Símaval sinna aUnennri
ráðgjöf varðandi símbúnað, jafnt til
handa einstaklingum sem fyrirtækjum.
Framkvæmdastjóri er Örn Jóhannsson,
einn af eigendum, og sölustjóri er Jóhann
Gylfason. AUur símabúnaður, sem verð-
ur tfi sölu í versluninni, er samþykktur
af Pósti og sima.
Myndgáta dv
Starfsmenn ullarþvottastöðvarinnar í Hveragerði. DV-mynd Sigrún Lovísa
Myndir víxluðust
Þær voru myndarlegar, konurnar
í Kaupfélagi KÁ í Hveragerði, sem
birtust á 4. síðu DV í gær, föstudag,
en myndin átti ekki að vera með
þeirri frétt sem þar birtist. Þar áttu
hins vegar þessir karlmenn að vera,
starfsmenn ullarþvottastöðvarinnar
Istek í Hveragerði, þegar þeir mættu
til vinnu þar á þriðjudagsmorgun
eftir langt hlé vegna gjaldþrots Ala-
foss. Myndir víxluðust því miður hér
hjá okkur og eru hlutaðeigandi beðn-
ir velvirðingar á því.
-hsím
Lífsvon:
Almennur kynningarfundur
Lífsvon - samtök til vemdar ófædd-
um bömum, heldur kynningarfund
nk. sunnudag 20. október að Hávalla-
götu 16 kl. 4 síödegis.
Sýnd verður myndin „Silent Scre-
am“, um fóstureyðingar og fram-
kvæmd þeirra, en gerð myndarinnar
annaðist bandarískur kvensjúkdó-
malæknir, dr. Bernard Nathanson.
Myndin er með íslenskum texta.
Einnig verða sýndar tvær enskar
myndir um fóstureyðingar og bar-
áttu lífsvemdarsinna fyrir breyttum
viðhorfum og meiri upplýsingu al-
mennings um ófædd börn í móður-
kviði.
Allir eru velkomnir ókeypis kaffi-
veitingar.
á næsta sölustað • Áskriftarsími 62-60-10