Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1991. Veiöivon Aðalfundur Landssambands stangaveiðifélaga Haldinn mn næstu helgi í Borgarfirði Stjórn Landssambands stangaveiðifélaga, Grettir Gunnlaugsson formaður, Hjörleifur Gunnarsson, Rafn Hafnfjörð, Guðmundur Halldórsson, Sigurður Sveinsson, Matthias Einarsson og Jón Bjarnason. DV-mynd G.Bender Það er nokkur spenna í loftinu yfir aðalfundi Landssambands stanga- veiðifélaga sem haldinn verður um næstu helgi. Fundurinn verður hald- inn í Munaðarnesi í Borgarfirði og á hann mæta veiðimenn af öllu land- inu og ræða málin. Eitt mál hefur verið óvenjulega heitt þetta sumarið og það eru netaveiðar í sjó víða um land. Nokkuð sem fundurinn hlýtur að taka á. Stærstu málin á þessum fundi eru líka verð á veiðileyfum og samningar um veiðiárnar og netaveiði í sjó víða um landið. Þaö er enginn annar en veiöimað- urinn Steinar J. Lúðvíksson sem mun ræða um verö á veiðileyfum og samninga um veiðiámar. Fundurinn mun hefjast klukkan hálftíu á laugardaginn og verður án efa fróölegur og fjörlegur. Þarna koma veiðimenn af öllum landinu, úr flestum veiðifélögum sem eru starfrækt hérlendis. DV hefur heimildir fyrir því að Grettir Gunnlaugsson muni gefa kost á sér áfram sem formaður. Hann verður áfram kosinn formaður veiði- manna. -G.Bender Tungufljót: Sextán punda sjóbirtingur áland „Það var meiriháttar gaman að fá þennan 16 pund sjóbirting í Ár- mótunum á Jeson spúninn," sagði Ólafur Júlíusson í samtali við DV, en fyrir skömmu veiddi hann stærsta sjóbirtinginn í Tungufljóti, ennþá. „Það var ekki mikið af fiski en við settum í stærri sjóbirting en hann fór af eftir stutta baráttu. Laxarnir á land eru 15 á þessari stundu,“ sagði Ólafur ennfremur. -G.Bender Þjóðar- spaug DV Guðmundur Hagalín rithöfund- ur kynnti sig eitt sinn á eftirfar- andi hátt: Ég hef farið yfir Rín. Ég hef drukkið brennivín. Ég er hundur. Ég er svín. Ég er Gvendur Hagalín. í Danaveldi Forstjóri einn hitti kunningja- konu sína og spurði um son henn- ar. „Hann er í Danmörku," svaraði konan. „Er hann við vinnu eða nám?“ spurði forstjórinn þá. „Hvorugt. Hann er á styrk,“ ansaði konan. Aðeins böm Vestmannaeyingur átti eitt sinn erindi til Húsavíkur. Er hann var búinn að koma sér vel fyrir á hótelinu rölti hann niður í bæ og spurði fyrsta manninn sem hann mætti: „Hafa einhver mikilmenni fæðst hér?“ „Nei, aðeins kornabörn," svar- aði Húsvíkingurinn og gekk í burtu. Námið Hér á árunum þegar sem mest var bruggað af landa í sveitum landsins bjó karl einn í afdala- koti er Kinn hét og var hann frægur bruggmeistarí. Einhverju sinni tók karl þessi nokkra menn til sín, þeirra á meðai mann að nafni Jón, til þess að kenna þeim bruggun. Nokkrum dögum eftir að Jón var farinn til „námsins" kom maður einn heim til hans og 'spurði eftir honum. Kona hans varð þá fyrir svörum og sagði: „Jón minn er ekki heima sem stendur. Hann er í landafræði- námi aö Kinn." Finnurþúfmmibreytmgai? 125 Er það hér sem herbergi er til leigu fyrir rólegan ungan mann? Nafn:........ Heimilisfang: Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum hðnum birtum við nöfn sigurvegara. 1. Fimm Úrvalsbækur að verðmæti kr. 3.743. 2. Fimm Úrvalsbækur að verðmæti kr. 3.743. Bækurnar sem eru í verðlaun heita: Á elleftu stundu, Flugan á veggnum, í helgreipum hat- urs, Lygi þagnarinnar og Leikreglur. Bækurnar eru gefnar út af Frjálsri fjölmiðl- un. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 125 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Vinningshafar fyrir hundrað tuttugustu og þriðju getraun reyndust vera: 1. Sesselja Þórðardóttir Faxabraut 36 B, 230 Keflavík 2. Stefán Þór Jessen Krummahólum 2,111 Rvík Vinningarnir verða sendir heim

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.