Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1991. Skák Að loknu heimsbikarmóti Flugleiða: Karpov tefldi allra manna best Þótt Karpov og Ivantsjúk heföu deilt sigrinum bróöurlega á heims- bikarmóti Flugleiða hefur Ivant- sjúk tekið forystu í heimsbikar- keppninni. Skákir við Jóhann Hjartarson, sem tefldi sem gestur á mótinu, reiknast ekki með - Karpov vann Jóhann en þeir Ivant- sjúk skildu jafnir. Stórmeistararnir 26, sem þátt taka í keppninni, tefla hver um sig á þremur heimsbikarmótum af fimm á næstu tveimur árum. Næst verður teflt í Brussel í júlí 1992, síðan í Wellington á Nýja-Sjálandi í nóvember, þá Barcelona í apríl 1993 og loks Brussel í júlí sama ár. Samanlagður árangur þeirra í öll- um mótunum reiknast til heims- bikarstiga. Sá sem flest stig hlýtur hreppir titilinn „heimsbikarmeist- ari í skák“. Ivantsjúk stendur sem sagt best að vígi að fyrsta mótinu loknu en Karpov kemur fast á hæla hans. Efstur í 91. sinn Að mínum dómi hefði Karpov fyllilega verðskuldað að ná fyrsta sætinu óskiptu. Hann tefldi allra manna best - var óheppinn að tapa fyrir Ljubojevic eftir að hafa hafn- að jafnteflisboði í jafnri stöðu og heilladísimar voru honum heldur ekki hliðhollar í síðustu skákinni viö Chandler. Karpov er stórkost- legur skákmaður. Eftir að hafa fylgst með honum að tafli þarf ekki að koma á óvart að heimsbikarmót Flugleiða var 91. keppnin þar sem hann verður efstur! Er þá allt með talið - einvígi, mót og sveitakeppn- ir af ýmsu tagi. Ivantsjúk fór aðra leið. Margar skákir hans vom bráðfjörugar og nokkmm sinnum sneri hann skák- um viö í miklu tímahraki. Gegn Chandler átti hann t.a.m. aðeins tvær mínútur eftir á klukkunni til aö leika yfir tuttugu leiki en fór létt með að laga stöðuna og vinna skákina, meðan hann velti fyrir sér ijósabúnaðinum yfir sviðinu. Missti af flugvélinni Ljubojevic tefldi einnig vel og hefði verið vel að 3. sætinu kominn án Nikolic og Khalifmans en árang- ur þeirra er vissulega eftirtektar- verður. Nikohc seiglaðist. gegnum mótið án þess að eftir því væri sér- staklega tekið en Khalifman tók hins vegar á sprett um miðbik mótsins og klykkti út með sigrum gegn Timman og Ehlvest í tveimur síðustu skákunum. Hann hafði því rika ástæðu til að fagna í mótslok en öllu má nú ofgera enda fór svo að hann missti af flugvélinni morg- uninn eftir lokahófið! Hnökralaus framkvæmd Jóhann hækkar eitthvað á stig- um við frammistöðu sína en hann var stigalægstur keppenda. Hann fór illa af stað og var lengstum meö allra neðstu mönnum. Hins vegar var taflmennskan frískleg og marg- oft var búið að afskrifa stöður hans í skákskýringasalnum, sem honum Skák Jón L. Árnason tókst þó að bjarga í jafntefli. Að- sókn að mótinu var í fullu sam- ræmi við áætlanir Skáksambands- manna en með betri frammistöðu hefði Jóhann áreiðanlega getað vakið enn meiri áhuga á mótinu. Áhorfendur horfðu fyrst og fremst á skákir Jóhanns en „íslendingur- inn í baráttunni við erlenda stór- mei$tara,“ hefur ávallt verið vin- sælasta dægradvöl skákáhuga- manna. Vissulega var fengur að mótinu en þeim sem þetta ritar fannst held- ur súrt í brotið að fá alla þessa er- lendu snillinga til landsins án þess aö gefast tækifæri til að „stríða þeim“ við skákborðið og hygg ég að svo sé um fleiri. Mótshaldið kostar Skáksamband íslands mikiö fé, þrátt fyrir að Flugleiðir greiði ferðir og upphihald keppenda og SWIFT fyrirtækið í Belgíu verð- laun. Álitamál er hvort peningum fjárvana sambands sé vel varið í mót, þar sem aðeins einn íslending- ur er meðal keppenda, ef haft er í huga aö hér á landi hefur ekki ver- ið haldið albjóðlegt skákmót, með erlendum meisturum, síðan í mars 1990. Framkvæmd mótsins var ekki með sama glæsibragnum og heims- bikarmóti Stöðvar 2 í Borgarleik- húsinu, þar sem ekkert var til spar- að, en ég hygg hún hafi engu aö síður verið hnökralaus. Erlendu stórmeistaramir höfðu enga 10. - Da5 11. Bd3 Rb4 12. 0-0 Rxd3 13. Dxd3 Dc5+ 14. Khl e6 15. Re3 h5 16. Hadl Be7 Valery Salov: „Hefði getað orðið besta skák min á mótinu." DV-mynd E.J. ástæðu til að kvarta enda eru þeir orðnir því vanir að staðið sé að skákmótum á íslandi með miklum sóma. Framkvæmdastjóri mótsins var Ásdís Bragadóttir en móts- stjóm skipuöu Jón Rögnvaldsson (formaður), Páll Magnússon, Andri Hrólfsson, Áskell Örn Kárason og Þráinn Guðmundsson. Yfirdómari var Þorsteinn Þorsteinsson og hon- um til aðstoðar Guðmundur Arn- laugsson, Ríkharður Sveinsson, Ólafur Ásgrímsson og Amold Eikr- em, hinn norski. Blaðafulltrúar Áskell Örn Kárason og Lárus Jó- hannesson. Ekki má gleymast aö minnast á vegleg mótsblað, sem gefið var út eftir hveria umferð, þar sem allar skákir mótsins er að finna og fjöldi bráðskemmtilegra ljósmynda með smellnum myndatextum. Ritstjóri þess var Jóhann Þórir Jónsson og útgefandi tímaritið Skák. Nafn 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 Vinn. Röð 1. V. Salov 2665 1 0 Vi 0 '/, 0 1 0 '/, 0 '/, 1 '/, '/, 1 7 2. A. Beljavskí 2650 0 'A 0 1 '/, '/, '/, 0 '/, 1 0 1 '/, '/, '/, 7 3. A. Karpov 2730 1 V, 1 1 0 '/, 1 '/, '/, '/, 1 '/, 1 '/, 1 107, 4. A. Khalifman 2630 7, 1 0 '/, 1 0 '/, 1 '/, 1 1 '/, '/, '/, '/, 9 5. B. Gulko 2565 1 0 0 '/, '/, 0 '/, '/, 0 '/, '/, 0 '/, 0 '/, 5 6. L. Ljubojevic 2600 V, '/i 1 0 '/, '/, '/, 1 '/, 1 '/, '/, '/, 1 '/, 9 7. V. fvantsjúk 2735 1 Vi '/, 1 1 '/, 1 '/, '/, '/, '/, 1 '/, 1 '/, 107, 8. U. Andersson 2625 0 7, 0 '/, '/: '/, 0 '/, '/, '/, '/, 0 '/, '/, 7, 57, 9. Y. Seirawan 2615 1 1 '/, 0 '/, 0 '/, '/, '/, 1 '/, '/, '/, '/, 7, 8 10. P. Nikolic 2625 Vi '/i '/, '/l 1 '/, ’/, '/, '/, '/, 1 1 '/, '/, 7, 9 11. J. Timman 2630 1 0 Vi 0 '/, 0 '/, '/, 0 '/, '/, '/, 0 '/, 7, 57, 12. J. Ehlvest 2605 Vx 1 0 0 '/, '/, '/, '/, '/, 0 '/, 1 0 1 1 77, 13. M. Chandler 2605 0 0 '/, '/, 1 '/, 0 1 '/, 0 '/, »i '/, 0 7, 57, 14. J. Speclman 2630 V, Vi 0 '/, '/, '/, '/, '/, '/, '/, 1 1 '/, '/, 0 77, 15. L. Portisch 2570 V, V.i '/: '/, 1 0 0 '/, '/, '/, '/, 0 1 '/, 7, 7 16. Jóhann Hjartarson 2550 0 7, 0 '/, '/, '/, '/, '/, '/, '/, '/, 0 '/, 1 '/, p’ 67, Slæm áhrif á Salov Valery Salov varð ásamt Short fyrir ofan Karpov og Kasparov á minningarmóti um Euwe í Amst- erdam í vor. Því var full ástæða til að búast við því aö hann myndi blanda sér í baráttuna um æðstu metorð á heimsbikarmóti Flug- leiða. En það fór á annan veg. Salov átti versta mót sitt um langa hríð og komst aldrei nálægt því að ógna veldi efstu manna. Sjálfúr sagði Salov skákina við Ivantsjúk, sem tefld var í 7. um- ferð, hafa ráðið úrshtum um slaka frammistöðu sína. „Þetta hefði get- að orðið besta skák mín í mótinu," sagði hann og bætti við: „En þess í stað hafði hún slæm áhrif á mig.“ Taflmennska Salovs í skákinni er sérdeilis frábær, þar til í tíma- hrakinu undir lok fyrri setu, að allt fer í handaskolum. Ivantsjúk nær að snúa á hann og vinna mikil- vægan sigur. Svona getur ein skák haft úrslitaáhrif á frammistöðu einstakra keppenda. Hvaö hefði gerst, ef Salov hefði unnið skákina? Hefði hann kannski hrokkið í gír og staðið í sporum Ivantsjúks nú? Hvítt: Vassily Ivantsjúk Svart: Valery Salov Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 d6 6. Bg6 Bd7 Þetta afbrigði hefur Salov teflt alloft á undanfórnum árum, m.a. gegn Timman og Short í Amsterd- am í vor. Þeir léku báðir 7. Be2 og hrókuðu stutt en uppskeran var aðeins hálfur vinningur. Ivantsjúk velur beittustu leiðina. 7. Dd2 Hc8 8. f4 h6 Annar möguleiki er 8. - Rxd4 9. Dxd4 Da5 en reynslan hefur sýnt að með því móti tekst svörtum ekki alls kostar að jafna tafliö. 9. Bxf6 gxf6 10. Rf5!? Eftir 10. Rb3 gæti svartur svaraö með 10. - f5!? en riddarakaup létta á hinn bóginn á stöðu hans. Ivantsjúk yann Kasparov heims- meistara í Linares fyrr á árinu, í áþekkri stöðu - með riddarana aö vopni gegn biskupum svarts og staða svörtu peðanna var sú sama. Hann hafði hins vegar komiö ár sinni betur fyrir á drottningar- væng og vann skákina með áhlaupi peðanna þar. í þessari skák brýst hann fram á heföbundinn hátt með f4-f5, sem þrengir aö svörtu stöðunni og und- irbýr að þrýsta á e6. En e.t.v. er sá leikur of fljótt á ferðinni. Strax 17. Hf3, eða 17. Re2 ásamt 18. Rd4 kem- ur vel til greina. Þá ætti svartur ekki aðgang að e5-reitnum. 17. f5 Kd8! 18. Hf3 b5 Hugmynd svarts er að flnna kóngnum skjól á drottningarvæng, leika Hc7 og síðan Kd8-c8-b8. Fyrst hindrar hann taktíska möguleika með e4-e5 og Rc4, tryggir aðgang að e5-reitnum og undirbýr um leið að koma biskupnum á hornalín- una. 19. Re2 De5 20. Rd4 a6 21. Hg3 Bf8 22. c3 Hc7 23. Bfl Bc8! 24. Rf3 Dc5 25. Rh4 Be7 26. fxe6 fxe6 27. Hg7? Slæmur leikur að sögn Salovs og hann útskýrir það á lærdómsríkan hátt: Aðalvandi svarts felst í því aö hann nær ekki að tengja saman hrókana. Leikur hvíts leiðir ein- mitt til þess að uppskipti verða á hrókapari en þá eru vandamál svarts úr sögunni. 27. - Bb7 28. Rg6 He8 29. Rc2 Kc8! 30. Rd4 Bd8! 31. Rf4 De5! Salov teflir frábærlega vel. Auð- vitað hafði hann ekki áhuga á hróknum - ef 31. - Hxg7 32. Rxe6 og hrókur og drottningjn í uppn- ámi. 32. Hxc7+ Kxc7 33. Dh3 Kb8? Frá og með þessum leik missir Salov þráðinn. Rétt er 33. - Kd7! og svrtur á yfirburðastöðu. 34. Dxh5 Hg8 35. Df7? Hh8? Missir af 35. - Hg4! 36. Rfxe6 Dxe4 með vinningsstöðu því að g2-reitur- inn verður ekki varinn. 36. Dxe6 Bxe4 37. h3 f5? Enn er svartur á grænni grein eftir 37. - Bb6! sem hótar illþyrmi- lega 38. - Bxd4+ 39. cxd4 Hxh3+! 40. Kgl Dxd4+ 41. Hf2 Ddl+ 42. Hfl Hhl+ 43. Kxhl Dxfl+ 44. Kh2 Dxf4+ o.s.frv. 38. Dd7! Dc5 39. Rde6 Dc4 40. Dxd6+ Ka8 41. Hf2 Tímamörkunum er náð og ljóst er að lítið er orðið eftir af svörtu stöðunni. Salov gerir örvæntingar- fulla tilraun til að flækja málin en án árangurs. 41. - Bh4 42. Dxa6+ Kb8 43. Db6+ Kc8 44. Hd2 Be7 45. Rg6! Dfl+ 46. Kh2 Hxh3+ 47. Kxh3 Auðvitað ekki 47. gxh3 Dhl + 48. Kg3 Df3+ með þráskák. 47. - Bxg2+ 48. Hxg2 Df3+ 49. Kh2! Dh5+ 50. Kg3 Bh4+ 51. Kf4! Og Salov gafst upp.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.