Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Blaðsíða 30
42 LAUGARDÁGIÍR '19. OKTÓBER Í99Í: Merming_____________________: Góð byrjun hjá S.f. Fyrstu áskriftartónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands á þessum vetri voru haldnir sl. fimmtudagskvöld. Stjórnandi var Petri Sakari. Á efnisskránni voru verk eftir Wolf- gang Amadeus Mozart, Jón Leifs og Béla Bartok. Þaö mun áreiðanlega mál margra aö val viðfangsefna á þessum tónleikum sé gott dæmi um blöndu sem hvað heppilegust er fyrir Sinfóníuna. Þarna var eitt frægt klass- ískt verk, frumflutningur verks eftir íslensk- an höfuðsnifling og eitt af mikflvægustu hljómsveitarverkum tuttugustu aldar. Ekk- ert léttmeti, hvergi litið niður til áheyrenda, en auðgi og fjölbreytni tónlistararfsins látin njóta sín. Sagt er að Prag sinfónía Mozarts sé meðal þeirra sem hafl haft mest áhrif á Beethoven og varð honum hvati til stórvirkja. Fyrsti - þátturinn er fullur af pólyfóníu þótt það liggi ekki alveg í augum uppi. Andante er fullkom- inn í fegurð sinni og innra jafnvægi. Síðasti þátturinn ber í sér tvíræðni glaðlegs yfir- borðs með harmþrungnum undirtónum. Það er hjónaband fegurðar og dauöa. Þaö er mjög virðingarvert að taka til flutn- ings óflutt verk Jóns Leifs. Fine I er fallega hljómandi verk og ber höfundi sínum gott vitni. Hins vegar er álitamál hvort heppilegt sé aö það standi eitt, því það er samið sem endir á stóru verki, Edduóratóríu-þríleikn- um. Þetta varð því svolítið svipað því aö Tónlist Finnur Torfi Stefánsson heyra niðurstöðu dóms án þess að þekkja forsendur. Vonandi kemur að því að óratór- íur Jóns verði fluttar í heild sinni. Konsert fyrir hljómsveit eftir Bartok er með vinsælli hljómsveitarverkum sem sam- in hafa verið á þessari öld. Kann að vera að ein ástæða þess sé sú að verkið er að mörgu leyti aðgengilegt, þótt það sé jafnframt þrungið djúpri og fagurri speki. Að því leyti minnir verkiö svolítið á Mozart. Hljómur og ytri búnaður er mjög glæsilegur og ber þjálf- un og tækniþekkingu höfundarins gott vitni. Með Konsert fyrir hljómsveit er átt við verk þar sem hljóðfæraleikarar hljómsveitarinn- ar skiptast á um að leika einleikshlutverk á móti afganginum af hljómsveitinni. Hefur Eitt verkanna á tónleikunum er eftir Jón Leifs. þetta form notið töluverðra vinsælda á okkar öld. Konsert fyrir hljómsveit gerir að sjálfsögðu miklar kröfur til hljómsveitarmanna. Komst hljómsveitin í meginatriðum vel frá sínum hlut. Fiðlur og víólur hljómuðu mjög vel og raunar strengjasveitin í heild. Fagottleikar- arnir voru einnig meöal þeirra sem komu mjög vel út í þessu verki. Það liggur ekki í augum uppi hvernig túlka beri tónlist Jóns Leifs. Það var greinilegt að Sakari hljóm- sveitarstjóri hafði lagt hugsun og alúð við túlkunina á Fine I, enda var það mjög vel flutt og kom skýrt fram hvert hljómsveitar- stjórinn vildi fara. Naut litróf verksins sín mjög vel. Tíminn mun svo skera úr hvort þessi leið eða einhver önnur verður ofan á. I flutningi Prag sinfóníunnar, sem flestir þekkja í mörgum útgáfum, kom vel fram hve hljómsveitinni vex stöðugt ásmegin í snerpu, nákvæmni og samspili yfirleitt. Strengja- sveitin var einnig upp á sitt besta í þessu verki en aðrir hópar komu einnig vel út. Meðal nýjunga í starfi hljómsveitarinnar í vetur má minna á að fyrirlestrar verða haldnir fyrir almenning til kynningar við- fangsefnum hverra tónleika í húsi FÍH í Rauðageröi. Að þessu sinni annaðist Atli Heimir Sveinsson kynninguna. Er þetta gott tækifæri fyrir þá sem vilja kíkja aðeins lengra inn í ómælisvíddir tónlistarinnar en unnt er með hlustuninni einni saman. Nauðungaruppboð á eftirtalinni eign fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10, Kópavogi, á neðangreindum tíma: Sæbólsbraut 38, þingl. eig. Magnús E. Guðmundsson, miðvikudaginn 23. október 1991 kl. 10.35. Uppboðsbeið- endur eru Ævaí Guðmundsson hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík og skatt- heimta ríkissjóðs í Kópavogi. BÆJARFÓGETINN í KÓPAVOGI Nauðungaruppboð annað og síðara á eftirtöldum eignum fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10, Kópavogi, á neðangreindum tíma: Álfhólsvegur 57, þingl. eig. Sturla Snorrason, miðvikudaginn 23. október 1991 kl. 10.10. Uppboðsbeiðendur eru skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi og Bæjarsjóður Kópavogs. Brattabrekka 4, þingl. eig. Jóhann Bogi Guðmundsson, miðvikudaginn 23. október 199lkl. 10.05. Uppboðs- beiðendur eru skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi og Bæjarsjóður Kópavogs. Brattabrekka 9, þingl. eig. Sveinbjöm Tryggvason, miðvikudaginn 23. okt- óber 1991 kl. 10.05. Uppboðsbeiðandi er skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi. Digranesvegur 94, þingl. eig. Elías B. Jóhannsson, miðvikudaginn 23. okt- óber 1991 kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur em íslandsbanki, Ásgeir Magnússon hdl., Ólaíúr Gústaísson hrl. og Jón Ingólísson hrl. Engihjalli 3, 5. hæð D, þingl. eig. Helga B. Gunnarsdóttir, miðvikudag- inn 23. október 1991 kl. 10.35. Upp- boðsbeiðendur em Magnús Norðdahl hdl., Guðjón Ármann Jónsson hdl., Veðdeild Landsbanka Islands, Bæjar- sjóður Kópavogs og Ólafúr Gústafs- son hrl. Fífúhjalli 4, íbúð 1-1, þingl. eig. Hilm- ar Hilmarsson, miðvikudaginn 23. október 1991 kl. 10.15. Uppboðsbeið- endur em Veðdeild Landsbanka ís- lands og Bæjarsjóður Kópavogs. Hamraborg 12, 5. hæð, þingl. eig. Magnús Guðlaugsson, miðvikudag- inn 23. október 1991 kl. 10.15. Upp- boðsbeiðendur em Ingólfúr Friðjóns- son hdl., Búnaðarbanki íslands og Bæjarsjóður Kópavogs. -----------c------------------:— Kársnesbraut 108, 02-01 og 02-02, þingl. eig. Prenttækni, miðvikudaginn 23. október 1991 kl. 10.00. Uppboðs- beiðendur em Ami Einarsson hdl. og Bæjarsjóður Kópavogs. Kjarrhólmi 18, 3. hæð B, þingl. eig. Hildur Leifsdóttir, miðvikudaginn 23. október 1991 kl. 10.10. Uppboðsbeið- andi er Baldur Guðlaugsson hrl. Lundarbrekka 16, 1. hæð t.v., þingl. eig. Guðmundur A. Kristinsson, mið- vikudaginn 23. október 1991 kl. 10.05. Uppboðsbeiðendur em Guðjón Ár- mann Jónsson hdl., Helgi V. Jónsson hrl., Veðdeild Landsbanka íslands, Ólafúr Garðarsson hdl., Sveinn H. Valdimarsson hrl., Ólafúr Axelsson hrl. og Bæjarsjóður Kópavogs. Mánabraut 17, þingl. eig. Borgþór Bjömsson, miðvikudaginn 23. október 1991 kl. 10.20. Uppboðsbeiðendur em Kristján Ólafsson hdl. og skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi. Neðstatröð 6, þingl. eig. Gunnar Már Gíslason o.fl., miðvikudaginn 23. okt- óber 1991 kl. 10.15. Uppboðsbeiðandi er skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi. Nýbýlavegur 26, 3. hæð austur, þingl. eig. Óskar J. Bjömsson og Rannveig Höskuldsd., en tal. eig. Kristófer Eyj- ólfsson, miðvikudaginn 23. október 1991 kl. 10.25. Uppboðsbeiðendur em Gjaldheimtan í Reykjavík og Sigríður Thorlacius hdl. Smiðjuvegur 4, þingl. eig. Davíð Sig- urðsson hf, miðvikudaginn 23. október 1991 kl. 10.10. Uppboðsbeiðendur em Gjaldheimtan í Reykjavík, skatt- heimta ríkissjóðs í Kópavogi og Sig- ríður Thorlacius hdl. Þinghólsbraut 15, þingl. eig. Ámi Edwins en tal. eig. Kristmann Áma- son, miðvikudaginn 23. október 1991 kl. 10.15. Uppboðsbeiðendur em Bæj- arsjóður Kópavogs, Pétur Kjerúlf hdl., Ingvar Bjömsson hdl., Brynjólfúr Kjartansson hrl. og Bæjarsjóður Kópavogs. Þinghólsbraut 70, þingl. eig. Ingimar Sveinbjömsson, miðvikudaginn 23. október 1991 kl. 10.05. Uppboðsbeið- endur em íslandsbanki og Guðjón Ármann Jónsson hdl. BÆJARFÓGETINN í KÓPAV0GI iu lÉr^ ^íÍéSÍÍ ■PjLXc Manu Dibango og hljómsveit á sviðinu á Hótel Islandi. DV-mynd GVA Afrískt fönk - Manu Dibango og Soul Makossa Gang á Hótel Islandi Tónleikar Manu Dibango frá Kamerún og hljóm- sveitar hans, Soul Makossa Gang, á Hótel íslandi mið- vikudagskvöldið 16. okt. var liður í menningarsam- skiptum íslands og Frakklands á sviði popptónlistar. Dibango hóf reyndar feril sinn sem djassleikari eins og greinilega má heyra á saxófónleik hans en hann leikur einnig á píanó og víbrafón. Tónlist hans núna er eins konar heimshomabræðingur en afrísku áhrifin Djass Ingvi Þór Kormáksson eru skiljanlega mest áberandi, sérstaklega í ryþma og söng. Laglínurnar era ekki flóknar og músíkin fremur einfóld frá hljómfræðilegu sjónarmiði; yfirleitt ekki nema þrír til fjórir grunnhljómar sem þætti kannski dálítið þunnt ef ýmislegt annað kæmi ekki til, sem nóg var af hér. Bassi, trommur og gítar sáu um fónkið í grunninn og slagverksleikarinn nýtti smekklega þagn- ir og lék öðru hvoru pólýryþmískt á móti straumnum, Dibango á saxófón og trompetleikari hljómsveitarinn- ar fraseruðu saman og voru aðalsólóistar, hljómborðs- leikarinn hélt þessu öllu í samhengi og rúsínan í pylsu- endanum var hörkugott söngtríó. Að vísu söng hljóm- sveitarstjórinn líka en meira var það í ætt við söngl eða jafnvel rapp. Reyndar hófst þessi skemmtun á því að Sveinbjörn goði Beinteinsson fór með rímur. Með fullri virðingu fyrir honum og kveðskapnum er ómögulegt að skilja hvaða erindi þetta efni átti á tónleika sem þessa. Nema það hafi bara verið til þess að fyrirtækið Smekkleysa, sem á sinn þátt í tónleikahaldinu, stæði undir nafni. Upphitunarhljómsveit var Kvartett Sigurðar Flosa- sonar og fór leikur hans að því er virtist að mestu leyti fyrir ofan garð og neðan hjá tónleikagestum, svona svipað og gerist með dinnermúsík. Þetta er fín djasshljómsveit en músíkin krefst athygli og nálægðar sem ekki var fyrir að fara þaraa og kvartettinn virtist kunna illa við sig á miðju dansgólfi staðarins. Hljóð- blöndun var líka allt öðruvísi en hjá aðalnúmeri kvöldsins. Bræðingshljómsveit hefði trúlega fengið meiri hljómgrunn að þessu sinni. En Dibango-gengið hélt uppi miklu stuði alveg frá byrjun, sumir í mjög litríkum klæðnaði og tóku ófá dansspor á sviðinu. Allt minnti nokkuð á Saflf Keita og félaga á síðustu listahátíð, sællar minningar, enda fólk og músík frá svipuðum slóðum. Hljómsveitarmeð- limir komu frá Kamerún, Saír, Suður-Áfríku og Frakk- landi og í farteskinu var fersk og heit músík úr suðri til að ylja okkur í fyrsta vetrarfrostinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.