Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1992, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1992.
Fréttir
Ökumaður ákærður bæði fyrir hegningarlagabrot og umferðarlagabrot:
Gef ið að sök að aka á
98 km hraða á gangstétt
- refsingar krafist fyrir röskun á öryggi á alfaraleiðum
Tvítugur Reykvíkingur hefur veriö
ákærður bæði fyrir brot á almennum
hegningarlögum og mörg brot á um-
ferðarlögum þegar hann sinnti ekki
stöðvunarmerkjum lögreglu þann 3.
nóvember og reyndi að stinga af á
miklum hraða í gamla bænum í
Reykjavík. Ákæran /ekur athygli þar
sem sjaldgæft er að ríkissaksóknari
ákæri og krefjist refsingar fyrir hegn-
ingarlagabrot ef ekki hlýst af líkams-
tjón eða dauði vegna gáleysisaksturs.
Ökumaðurinn er ákærður fyrir að
hafa hvorki virt stöðvunarskyldu-
merki við Sóleyjargötu né Njarðar-
götu. Honum er einnig gefið að sök
að hafa ekki sinnt stöðvunarmerkj-
um lögreglunnar og ekið á undan
henni á allt að 90 kílómetra hraða
austur Skothúsveg, um Fjólugötu,
Bragagötu, Laufásveg, Barónsstíg og
síðan norður Freyjugötu á móti ein-
stefnu og án þess að virða stöðvunar-
skyldu.
Ökumaðurinn ók síðan á miklum
hraða eftir Njarðargötu og Frakka-
stíg og austur Bergþórugötu að Bar-
ónsstíg á yfir 93 kílómetra hraða,
samkvæmt mælingu lögreglu. Við
Njálsgötu fór hann í öfuga átt eftir
einstefnuakstursgötu. Bifreiðin
rakst á einstefnuakstursmerkið. Á
Njálsgötimni er manninum gefið að
sök að hafa ekið eftir gangstétt á allt
að 98 kílómetra hraða, síðan suður
Frakkastíg, að Njarðargötu, inn á
Skólavörðustíg og að Kárastíg þar
sem akstrinum var hætt.
Með þessum akstri þykir maðurinn
hafa raskað umferðaröryggi á akst-
ursleið sinni. Ríkissaksóknari krefst
þess að ökumanninum verði refsað
og hann sviptur ökuréttindum. Hann
er ákærður fyrir brot á 168. grein
almennra hegningarlaga. Þar segir:
„Ef maður raskar öryggi járn-
brautarvagna, skipa, loftfara, bif-
reiða eða annarra slíkra farar- eða
flutningatækja, eða umferðaröryggi
á alfaraleiðum, án þess að verknaður
hans varði við 165. grein, skai hann
sæta fangelsi allt að 6 árum eða varð-
haldi.“ Máhð verður tekið fyrir í
Sakadómi Reykjavíkur bráðlega.
-ÓTT
Geir Gunnarsson, fyrrum alþingismaður, hefur frá síðustu áramótum verið ráðinn aðstoðarrikissáttasemjari. Guð-
mundur Vignir, sem var i þessari stöðu, varð sjötugur á siðasta ári og lét því af störfum. Guðlaugur Þorvaldsson
ríkissáttasemjari var í april í fyrra endurráðinn rikissáttasemjari til ársins 1995 en þá verður hann sjötugur og lætur
af störfum. Hér má sjá þá Geir og Guðlaug aö störfum í Karphúsinu í gær þar sem sérkjarasamningar fiskvinnslu-
fólks stóðu yfir. DV-mynd GVA
Alþingi:
„Bandormurinn“
fullskapaður
- hörð gagnrýni á elli- og örorkulifeyrisskerðinguna
Það hefur tekið 10 daga að fuhgera
„bandorminn" svokahaða. Til stóð
að taka þetta frumvarp th laga um
ráðstafanir í ríkisfjármálum til um-
ræðu 6. janúar síðasthðinn, daginn
sem Alþingi kom saman eftir jóla-
leyfi. Vegna breytinga á „bandormin-
um“, sem kostaði meðferð í efna-
hags- og viðskiptanefnd þingsins, var
það ekki fyrr en í gær að frumvarpið
var tekiö th 2. umræðu á Alþingi.
Rannveig Guðmundsdóttir, vara-
formaður efnahags- og viðskipta-
nefndar, mælti fyrir frumvarpinu og
færði þar fram rök stjórnarflokk-
anna fyrir þeim aðgerðum sem
„bandormurinn" felur í sér. Tals-
menn stjómarandstöðunnar fundu
honum flest til foráttu og sögðu þetta
hið versta frumvarp. Harðast var
deht á skerðingu ehi- og örorkulíf-
eyris.
Frumvarpið hefur fengið nafnið
„bandormur" vegna þess að það inni-
heldur breytingar á mörgum laga-
greinum.
í fyrsta lagi er þar um að ræða
breytingu á skólahaldi, sem felst í
fjölgun í bekkjardehdum, og fylgir
hún í kjölfar niðurskurðar th
menntamála í fjárlagafrumvarpinu.
Einnig er um að ræða nýjar greinar
sem flaha um breytingar á lögum um
almannatryggingar en þar er um að
ræða skerðingu á elh- og örorkulíf-
eyrisgreiðslum, sem og afnám þess
réttar fólks að fresta töku elhhfeyris
og fá þar með hækkun á honum.
Þá eru breytingar á gjaldtöku
vegna almennrar læknisþjónustu
sem og sérfræðingaþjónustu. Hækk-
ar hún í báðum tilfellum. Einnig er
í frumvarpinu heimhdarákvæði fyr-
ir heilbrigðisráðherra th að bjóða
hehbrigðisþjónustuna út.
Breyting er gerð á hafnarlögunum
þess efnis að taka beri sérstakt gjald
af allri vöruafgreiðslu sem fer um
hafnir landsins, sem og afgreiðslu-
gjald skipa. Þá er í „bandorminum"
ákvæði sem heimhar ríkisstjóminni
að skipa effirhtsmann eða menn sem
tilsjónarmenn ríkisstofnana ogfyrir-
tækja. Geta þeir gripiö inn í fjármála-
legan rekstur og ráðið mannaráðn-
ingum stofnana og ríkisfyrirtækja.
Gjöld á sveitarfélögin vegna lög-
gæslu er í frumvarpinu. Auk þess
skal 100 mhljóna króna aukagjaldi
til jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, sem
ákveðið var í fjárlögum, eingöngu
varið til jöfnunarframlaga.
Þá er ákvæði th bráðabirgða sem
segir að svo lengi sem fjármagnstekj-
ur eru ekki skattskyldar skuh þær
ekki skerða elh- og örkulífeyri fólks.
Hið umdeilda ákvæði um að setja
á stofn ábyrgðarsjóð launa sem komi
í stað ríkisábyrgðar á launum vegna
gjaldþrots fyrirtækja er í frumvarp-
in. Einnig það ákvæði að skylda
sveitarfélög th aö leggja fram óaft-
urkræft framlag, 3,5 prósent af
kostnaðar- eða kaupverði félagslegra
íbúða.
-S.dór
Flatur niðurskurður á launalið 1 grunnskólum nemur 180 milljónum:
260 stöðugildi á haustönn
Samkvæmt nýsamþykktum fjár-
lögum fyrir árið 1992 er ákveðið að
skera niður launahð í gnumskólum
landsins um 180 mhljónir króna.
Kennarasamband íslands hefur látið
reikna út hvað þessi flati niður-
skurður á launahðinn þýðir í stöðu-
ghdum ef hann kemur af fuhum
þunga á næstu haustönn og aíhent
þá útreikninga þingmönnum. Þegar
er ákveðið að hann komi ekki fram
nú á vorönn. Svarar það th 260 stöðu-
ghda í grunnskólunum.
Sé niðurskurðinum dreift hlutfalls-
lega á fræðsluumdæmin þarf að
draga saman í grunnskólunum sem
hér segir:
Reykjavík: 72 stöðughdi, en það
samsvarar lokun Hólabrekkuskóla
og Hhðaskóla.
Reykjanes: 58 stöðughdi, samsvar-
ar lokun Lækjarskóla í Hafnarfirði,
Gagnfræðaskólans í Mosfehsbæ og
Grunnskóla Sandgerðis.
Vesturland: 20 stöðughdi, samsvar-
ar lokun Grunnskóla Eyrarsveitar í
Grundarfirði og Laugaskóla í Dala-
sýslu.
Vestfirðir: 14 stöðughdi, samsvarar
lokim grunnskóla Bhdudals og Þing-
eyrar.
Norðurland vestra: 16 stöðughdi,
samsvarar lokun Laugarbakkaskóla
og Grunnskóla Hofsóss.
Norðurland eystra: 32 stöðughdi,
samsvarar lokun Oddeyrarskóla á
Akureyri og Bamaskóla Húsavíkur.
Austurland: 19 stöðughdi, sam-
svarar lokun grunnskólanna á Seyð-
isfirði og Stöðvarfirði.
Suöurland: 27 stöðughdi, samsvar-
ar lokun grunnskólanna á Hehu, í
Vík og Flúðaskóla.
Verði niðurskurðinum dreift á allt
næsta skólaár í stað þess að ná
spamaði ársins fram á haustönn 1992
þá helmingast þessar tölur sem hér
koma fram.
Ef niðurskurðurinn kemur ahur
fram á haustönn 1992 gæti hann líka
htið þannig út, eftir því sem Kenn-
arasambandið segir:
Kennslustundum hjá öhum grunn-
skólanemendum í landinu fækkaði
um 3 klukkustundir á viku eða öh
tungumálakennsla í grunnskólum
féhi niður eða kennslustundum í ís-
lensku fækkaði um helming eða eng-
in 6 ára böm og aðeins helmingur 7
ára bama kæmust í gmnnskóla
næsta haust.
Þá segir kennarasambandið að nið-
urskurðurinn nemi því að öh grunn-
skólakennsla legðist niður á Akra-
nesi, í Bolungavík, á Sauðárkróki,
Siglufirði, Húsavík, Eskifirði, Homa-
firði, í Vestmannpeyjum, Þorláks-
höfnogGrindavík. 1 ' -S.dör
Blönduós:
Um 20 milljón-
iríbrimvöm
Þórhallux Asmunds., DV, Norðl. vestra:
Á fjárlögum þessa árs er í íyrsta
skipti að finna fjármagn sem
eyraamerkt er brimvarnargarði
á Blönduósi. Það eru 19,9 mhljón-
ir, áætiað er aö brimvarnargarð-
urinn kosti um 150 milij. króna.
„Viö erum að vona að þetta
dugi, aha vega th aö hefja fram-
kvæmdir. Annars er mjög freist-
andi að bjóða verkið út í heild þar
sem nokkuð tryggt væri að hag-
stæð thboð fengjust eins og stað-
an er á verktakamarkaönum í
dag,“ sagði Pétur Arnar Péturs-
son, forseti bæjarstjómar
Biönduóss, í samtali við DV.
1t ift~' •*»