Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1992, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1992, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1992. 13 Sviðsljós Þjóðminjasafn íslands: Óþekktar ljósmyndir Heldur óvenjuleg sýning var opnuð í Þjóðminjasafninu um helgina en þar voru tÚ sýnis óþekktar ljósmynd- ir úr fónun safnsins. Fólk var beðið að kanna hvort það bæri kennsl á fólk, staði eða atburði á myndunum og skrifa það á bsta við hhð myndarinnar. Um er að ræða eitt þúsund myndir eftir tæplega 20 ljósmyndara sem störfuðu víöa um land á árunum 1890-1940. Sýningin hefur því tvíþætt gildi: að afla upplýsinga um myndirnar og að sýna brot úr sögu íslenskrar ljós- myndunar. Þeir voru ófáir sem lögðu sitt af mörkum til þess að bera mætti kennsl á myndefnið. Þessi var ekkert að tvínóna við hlutina og tók með sér stækkunargler. DV-myndir Hanna Alli ríki sjötugur: Höfðingleg veisla Emil Thorarensen, DV, Eskifirði: Aðalsteinn Jónsson, eða AUi ríki eins og flestir kaba hann, hélt upp á sjötugsafmæb sitt nú á dögunum og eins og vænta mátti var höfðinglega að verki staðið hjá afmæbsbaminu. Afmæbsveislan var haldin í félags- heimibnu ValhöU á Eskifirði og veitti ekki af, því um 350 manns voru þar saman komnir til þess að samgleðjast afmæbsbarninu, þar af margir komnir víðs vegar af landinu. Veitingar voru rausnarlegar bæði í mat og drykk og glatt var á hjaba eins og vera ber á stundum sem þess- um. Margir tóku til máls og fluttu snjallar ræður og færðu Aðalsteini veglegar gjafir og árnaðaróskir. Þegar fór að nálgast miðnætti var dansínn stiginn fram eftir nóttu og sá þá hljómsveitin 3 X-D um fjörið. Menn skemmtu sér konunglega þetta kvöld en veislustjóri kvöldsins var HrafnkeU A. Jónsson og stóð hann sig með mikUb prýði. Afmælisbarnið ásamt eiginkonu sinni, Guðlaugu Stefánsdóttur, á af- mælisdaginn. Árborgarþorri á Hótel Örk Aðalsteinn ásamt þeim Haraldi Haraldssyni í Andra, Einari Oddi Kristjánssyni, formanni VSÍ, og Sigrúnu Gerðu Gísladóttur, eiginkonu Einars. Hátt í 350 manns voru í afmælisveislunni sem tókst í alla staði mjög vel. DV-mynd Emil Signm L Siguijónsdóttir, DV, Hveiageröi: Fyrir nokkru var haldið þorrablót á Hótel Örk í Hveragerði, svokabað- ur Árborgarþorri ’91, og var þar fjöldi manns saman kominn. Veislustjóri kvöldsins var hinn annálaði grínisti Flosi Ólafsson og er það mál manna aö honum hafi aldrei tekist betur upp. Indriði G. Þorsteinsson, rithöfund- ur og ritstjóri, var heiðursgestur kvöldsins og svaraði hann af snbld grínyrðum Flosa við frábærar undir- tektir veislugesta. Stórsöngvarinn EgiU Ólafsson var mættur á staðinn og lét gamminn geisa og var hann hvað eftir annað klappaður upp. Einnig söng tíu manna söngsveit úr Fjölbrautaskóla Suðurlands nokkur lög en hún á miklum vinsældum aö fagna hér á Suðurlandi um þessar mundir. Hún nefnir sig Heiðursmenn Þórs sem er skólameistari fjölbrautaskólans. Loks lék hljómsveitin Bergmál fyr- ir dansi fram á rauðanótt og náði upp mjög góðri stemningu. Það voru þau Jón Ragnarsson hóteleigandi og Hrafnlúldur Valdimarsdóttir, eigin- kona hans, sem héldu þorrablótið. Egill Ólafsson gerði mikla lukku og var margoft klappaður upp um kvöldlð. Veislustjórinn sjálfur, Flosi Ólafsson, skálar hér í vatni en við hlið hans situr Indriöi G. Þorsteinsson, heiðursgestur kvöldsins. DV-myndir Sigrún L. Nauðungaruppboð Eftir kröfu Eggerts B. Ólafssonar hdl. og Garðars Briem hdl. fer fram opin- bert uppboð fimmtudaginn 13. febrúar 1992 kl. 10.30 að Hólmaslóð 2. Þar verður selt eftirfarandi lausafé: 1. lausfrystir af gerðinni Telewig (220-80-ÓHM/M leistung 95w VED 0253. VED 0100) ásamt rafmagnstöflu. 2. Frystivél af gerðinni Bitzer (OST 7061) ásamt 45 kw mótor. 3. Lausfrystikæling frá Kælingu hf. Allt talið eign Magnúsar Sigurðssonar eða Fiskvinnslu M. Sigurðssonar. Greiðsla við hamarshögg. UPPBOÐSHALDARINN í REYKJAVÍK NÁMSKEIÐ í FRAMSÖGN OG UPPLESTRI 6 vikna námskeið í framsögn, upplestri, raddbeitingu o.fl. verður haldið í samvinnu Helga Skúlasonar leikara og Námsflokka Reykjavíkur á vorönn 1992. Upplýsingar veit- ir Helgi Skúlason, sími 19451, innritun í sama síma og í símum Námsflokka Reykjavíkur dagana 6., 7. og 8. febrúar. Helgi Skúlason. Námsflokkar Reykjavíkur. SKÁKKEPPNI STOFNANA OG FYRIRTÆKJA 1992 hefst í A-riðli mánudaginn 10. febrúar kl. 20.00 og í B-riðli miðvikudaginn 12. febrúar kl. 20.00. Teflt verður í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur að Faxa- feni 12. Keppt er í fjögurra manna sveitum og er öllum fyrirtækjum og stofnunum heimil þátttaka í mótinu. Nýjar keppnissveitir hefja þátttöku í B-riðli. Þátttaka tilkynnist í síma Taflfélagsins alla virka daga frá kl. 9.00-12.00 f.h. og á kvöldin frá kl. 20.00- 22.00. Lokaskráning í A-riðil verður sunnudag 9. febrúar kl. 14.00-17.00 og í B-riðil þriðjudag 11. febrúar kl. 20.00-22.00. TAFLFÉLAG REYKJAVÍKUR FAXAFENI 12 - SÍMAR 681690 OG 813540 EINN ÁSK £1Wá BÍLL Á MÁNU RIFTARGETRA \v\v\ I Íi . . OG SÍMINN ER 63 27 ,*o«*rn h«' VINNINGASKRA UINNINGAR J FLOKKS '92 UTDRATTUR 04. 2. '92 / KR. 2.315.000,- 110170 KR. 138.900 - 102671 115653 157321 113606 140687 161601 KR. 9.260.- 100623 118419 140299 101626 118791 140440 102000 118884 140694 102644 120405 142435 103062 120483 143232 104317 121050 143762 104318 121634 143844 104553 122244 143859 104830 122416 144720 106103 123407 158653 106580 124887 159484 106781 125403 161612 106892 125411 163816 109045 132314 165213 114083 132431 170114 115629 132737 172714 118412 138213 173224 178408 200954 188908 218836 173603 194489 211197 173845 195832 211410 174615 195861 212016 175111 196230 212225 177232 196841 212288 177873 196860 212409 181811 197805 212877 182251 197889 213037 183827 200955 215018 184642 202003 217021 185038 202223 217027 185813 202929 219093 188420 204817 220207 190556 204976 220412 191582 207479 220871 193607 207577 194413 210551

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.