Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1992, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1992, Page 24
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1992. A æs*0*. ijlP23' ' i ÁSKRIFTARGETRAUN DV verða dregnir út 13 bílar EINN BÍLL Á MÁNUÐI FRÁ DES. 1991 TIL DES. 1992. Allir skuldlausir áskrifendur (bæði nýir og gamlir) erúsjálfkrafa meðí pottinum hverju sinni. Ef þú ert svo heppinn að nafnið þitt sédregið út. þarftu einungis að svara laufléttri spurningú í fyllingu tímans - og þú hefur eignast nýjanbíl. ÁSKRIFTARSÍMI 63 27 00 GRÆNT NÚMER 99 62 70 Fréttir Stórfelld tollahækkun í Færeyjum um mánaðamótin: Óljóst hvort hækkunin nær til íslenskra vara - utanríkisráðuneytiðbíðureftirsvörumFæreyinga Stórfelld tollahækkun gekk í gildi í Færeyjum um mánaðamótin gagn- vart löndum sem ekki hafa í gildi viðskiptasamning við landið. ísland hefur ekki í gildi slíkan samning en á viðskiptaskrifstofu utanríkisráðu- neytisins hefur um nokkurt skeið verið unnið að undirbúningi slíks samnings. Engar formlegar viðræð- ur hafa enn átt sér staö milli land- anna. Að sögn Harald Aspelund á við- skiptaskrifstofunni er ekki ljóst hvort af tollahækkun hefur orðið um mánaðamótin gagnvart -islenskum vörum. Hann segir að fyrir mánaða- mót hafi Færeyingar óskað eftir til- lögum frá íslandi um undanþágur frá tollahækkuninni. Engin viðbrögð hafa hins vegar komið frá Færeying- um gagnvart þeim tillögum. Harald segist hins vegar vongóður um já- kvæð viöbrögð enda hafi Færeyingar á fyrri stigum málsins lýst sig fúsa til samkomulags. Náist hins vegar ekki samkomulag milh þjóðanna á allra næstu dögum er ljóst að tollahækkunin nær til ís- lenskra vara. Á flestar kjötvörur mundu til dæmis leggjast 10 prósent innflutningsgjöld en fyrir bera þess- ar vörur 33 prósent toll. Ýmsar sjáv- arafurðir, kornvörur, vodka, bólu- efni, smurolía, áburður, málningar- vörur, sápur, plast-, gúmmí- og papp- írsvörur, dagatöl og auglýsingabækl- ingar, fatnaður, snúrur, net og kaðl- ar og sighngabúnaður ásamt önglum og öðrum veiðibúnaði er einnig með- al þess sem sérstakir innflutnings- tollar mundu leggjast á. Tollahækkun Færeyinga nú á ræt- ur að rekja til fríverslunarsamnings sem þeir gerðu við EB á síðasta ári. Samkvæmt þeim samningi eru fær- eysk stjórnvöld skuldbundin til að samræma tolla sína tollum EB. Und- anþágu frá þeim tollum mega þeir einungis gera gagnvart þeim ríkjum utan EB sem hafa í gildi viðskipta- samning við Færeyjar. Af hálfu færeyskra stjórnvalda og ýmissa hagsmunaaðila hefur verið orðað við íslensk stjómvöld að þau framlengi veiðiheimildir Færeyinga við ísland og liðki á þann hátt fyrir tohalækkunum. Þessu hafa stjóm- völd á íslandi hafnað og hefur Þor- steinn Pálsson sjávsirútvegsráðherra meðal annars látið hafa eftir sér í DV að ekki komi til greina að blanda þessum málum saman. -kaa Sæljónið SU-104 frá Eskifirði landaði hér 140 tonnum af góðri síld á þriðjudag og fór sildin til söltunar hjá Friðþjófi hf. Myndin var tekin þegar sildinni var landað á Eskifirði. DV-mynd Emil Thorarensen Smáauglýsingar - Sími 632700 Þverholti 11_dv •Nissan Pathfinder ’89, 2,4 bensín, ek. 52 þ., krómfelgur, 30" dekk, toppbíll. •Toyota LandCruiser turbo, dísil ’87, svartur, ný dekk og felgur. Toppein- tak. Skipti á ódýrari koma til greina. Uppl. á Bílasölu Brynleifs, Keflavík, sími 92-14888 og 92-15488, eða á kvöld- in í síma 92-15131. Það er þetta með i. - J bilið milli bíla... éifájfWT'T'; UUMFtROAB ______________________ HAO MMC Lancer hlaðbakur 4x4, árg. '90, hvítur, ekinn 54 þús. km. Verð 1050 þús. staðgreitt. Uppl. á bílasölunni Bílatorgi, sími 91-621033. . i ■ Skemmtanir Félagasamtök, veitingahús, stofnanirog einstaklingar, athugið: Félag ís- lenskra hljómlistarmanna útvegar hljóðfæraleikara og hljómsveitir við hvers konar tækifæri: rokk, djass, klassík. Hringið í s. 678255 alla virka daga frá kl. 13-17. Faxnúmer 678215. ■ Þjónusta F-1S0DM Sandblástur. Eigum á lager 4 stærðir af sandblásturstækjum. Áhöld og tæki, Klettahlíð 7, Hveragerði, sími 98-34634.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.