Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1992, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1992.
25
Margrét Kristín Sigurðardóttir syngur djass í Púlsinum:
Uerði klassískan söng á
Ítalíu og söng djass með
Söngkonur, sem syngja djass, eru
ekki margar hér á landi, enda tæki-
færin ekki mörg fyrir slíkan söng.
Margrét Kristín Siguröardóttir er
ung söngkona sem mun heyja frum-
raun sína hér á landi í Púlsinum
næstkomandi sunnudagskvöld. Það
er þó alls ekki í fyrsta skiptið sem
Margrét kemur fram.
Margrét, sem kom heim rétt fyrir
áramót, hefur dvahð erlendis síðast-
hðin þrjú ár, aðallega í Noregi og
einnig á ítahu þar sem hún söng og
kom fram með ítalska píanóleikaran-
um Dino Lissona.
Margrét hóf img tónhstamám, var
sjö ár í Bamamúsíkskólanum. Eftir
að hafa lokið kennaranámi við Kenn-
araháskóla íslands 1988 fór hún í
leiklistar- og kvikmyndanám í
Þrándheimi. Þar var hún í háskólan-
um í eitt og hálft ár og lagði jafnframt
stund á söngnám í einkatímum hjá
norskri söngkonu, Elen Udegárd,
sem er kunn djasssöngkona í Þránd-
heimi.
Síðasthðið haust fór Margrét síðan
th Ítalíu þar sem hún stundaði nám
í klassískum söng. Þar kynntist hún
ítalska píanóleikaranum Dino Lis-
sona sem hún stofnaði dúett með og
sungu þau á skemmtistöðum.
„Þegar ég fór út var það ahs ekki
á dagskrá að læra sérstaklega söng
en áhuginn hefur ahtaf verið fyrir
hendi og hann jókst eftir að ég fór
að vinna með stúdentaleikhúsi í upp-
setningum á revíum og söngleikjum.
Ég fór í framhaldi í einkatíma í djass-
söng hjá Ehn 0degárd,“ segir Mar-
grét í stuttu spjalli.
- Af hverju djass?
„Djass hefur alltaf haft sterk áhrif
á mig og ég hef hlustað mikið á djass,
ekkert endhega á söngkonur heldur
ahs konar djass.“
- Nú söngst þú djass á Ítalíu ásamt
því að vera í klassísku söngnámi. Fór
þetta tvennt saman?
„Þetta fer ágætlega saman. Hjá
Evginia Ratt lærði ég söngtækni sem
er ekki síður nauðsynleg þeim sem
leggja fyrir sig aðra tónhst. Ég byrj-
aði ekki að syngja opinberlega fyrr
en stuttu áður en ég fór heim en viö-
tökurnar voru það góðar að við hefö-
um vel getað haldið áfram."
- Hvernig djass syngur þú á sunnu-
dagskvöldið?
„Ég mun aðallega syngja þekkt og
gömul lög, th dæmis Teach Me To-
night, Misty, Ah of Me og Summer-
time, svo einhver séu nefnd. Síðan
mun ég syngja eitt og eitt lag eftir
sjálfa mig inn á milli. Á ítahu söng
ég eingöngu við undirleik píanós sem
ég kann ákaflega vel við. Það verður
því tilbreyting að syngja í Púlsinum
við undirleik kvartetts."
- Hvað er fram undan?
„Ég er svo nýkomin heim að ég
ætla að byrja á því að bíða og sjá th.
Þaö er margt í bígerð sem of snemmt
er að minnast á. En ég get nefnt að
ég hef veriö að semja sjálf og hef
mikinn hug á aö halda því áfram."
Þess má að lokum geta að Margrét
kemur fram á Púlsinum kl. 10 á
sunnudagskvöldið. Þeir sem leika
með henni eru Kjartan Valdimarsson
á píanó, Ómar Einarsson á gítar,
Úlfar Haraldsson á bassa og Jón
Björgvinsson á trommur.
-HK
Æfingar að hefjast á La Bohéme
Óperusmiðjan mun í samvinnu við óperuna La Boheme eftir Puccini óperuheiminum. Þetta verður í
Borgarleikhúsið frumsýna 28. mars sem er ein allra vinsælasta óperan í fyrsta sinn sem ópera er sett upp í
Hér má sjá hluta þess söngfólks sem tekur þátt í sýningu Óperusmiðjunnar á La Boéme en hópurinn kom saman
í fyrsta sinn í Borgarieikhúsinu siðastliðinn föstudag. DV-mynd Brynjar Gauti
Borgarleikhúsinu sem sérstaklega er
gert fyrir góðan hljómburð, auk þess
sem þar er fullkomnasta leiksvið
landsins.
Fyrir nokkru var valið í hlutverkin
og er það einvalalið söngvara sem fer
með hlutverkin í óperunni. Hljóm-
sveitarstjóri verður Guðmundur Óh
Gunnarsson sem hefur verið við
framhaldsnám í Finnlandi. Hljóð-
færaleikamir koma flestir úr röðum
Sinfóníuhljómsveitar íslands.
Með helstu hlutverkin fara Þorgeir
Andrésson, Inga Backman, Ingibjörg
Guðjónsdóttir, Jóhanna Linnet,
Keitii Reed, Sigurður Bragason, Stef-
án Arngrímsson, Jóhann Smári Sæv-
arsson, Sigurður Steingrímsson og
Ragnar Davíðsson.
Auk þess hefur veriö leitað til ís-
lenskra tenóra, sem starfa erlendis,
um að syngja í nokkrum sýningum.
Ólafur Bjamason, sem hefur staðið
sig vel í Ópemnni í Regensburg í
Þýskalandi, mun syngja í nokkmm
sýningum í byijun maí. Einnig er
.hugsanlegt að Kristján Jóhannsson
komi ef færi gefst.
í sýningunni er þrjátíu manna
blandaður kór, auk tuttugu barna
sem Ami Harðarson hefur æft. Leik-
stjóri er Bríet Héðinsdóttir.
-HK
Uthlutun til atvimuleikhópa:
Alþýðuleikhúsið fékk 4 milljónir
Nýlega var úthlutað 12 mihjónum
tíl starfsemi atvinnuleikhúsa og
hlaut Alþýðuleikhúsið, sem áður var
sérhður á fjárlögum, þriðjung 'upp-
hæðarinnar, auk þess sem starfandi
leikhópur innan Alþýðuleikhússins
fékk 2 mihjónir.
Forsendur úthlutunarinnar í ár
em að því leyti frábragðnar að því
sem áður vom tveir fjárlagaliðir,
Alþýðuleikhúsið og önnur leikstarf-
semi, hefur nú verið steypt saman í
einn flokk sem kahast Starfsemi at-
vinnuleikhópa. Upphæðin, sem er
undir þessum hö fjárlaga, er tveimur
mihjónum lægri en sú upphæð sem
var th ráðstöfunar fyrir þessa tvo
flokka í fyrra.
Að þessu sinni bámst fjörutíu og
sjö umsóknir frá tuttugu aðhum.
Úthlutunarnefndin, sem skipuð var
þeim Kolbrúnu Hahdórsdóttur,
Helgu Hjörvar og Gunnari Gunnars-
syni, fór yfir ahar umsóknirnar og
ræddi við aðhana um hugmyndimar
sem lágu á bak við umsóknimar. Ef
hefði átt að sinna öhum umsóknum
hefði nefndin þurft að hafa um það
bh 150 mhljónir núlh handanna.
Eins og áður segir fékk Alþýðuleik-
húsið stærsta styrkinn eða Ijórar
mhljónir. Er gert ráð fyrir að sú fjár-
hæð fari í uppsetningu á tveimur
verkefnum á árinu. I starfsáætlun
Alþýðuleikhússins er gert ráð fyrir
að setja upp þrjú verkefni. Þriðja
verkefnið Ihýtur framlag undir nafn-
inu Þíbylja samkvæmt eigin ósk. Þí-
bylju em veittar 2 mihjónir th að
setja upp Brúðuheimihö eftir Henrik
Ibsen.
Aðrir sem fengu styrk em Leik-
smiðjan Kaþaris sem hlaut 2,5 mhlj-
ónir th að setja á svið Heddu Gabler
eftir Henrik Ibsen. Eggleikhúsiö fær
1 mhljón th að vinna Hernaðarhst
svíns eftir Raymond Cousse. Auður
Bjamadóttir hlýtur 1 mhljón th að
vinna dansverkin Ertu svona kona
og Gárur. Óperusmiðjan hlýtur 1
mihjón sem er viðbótarstyrkur th að
halda áfram með uppsetningu á La
Boheme eftir Puccini. Sögusvuntan
hlýtur 350.000 th að vinna brúðuleik-
hús fyrir börn og Frú Emelía hlýtur
hálfa mhljón th að halda sér á floti.
-HK
Meiming
Hættvið
niðurskurðar
í aprh átti að frumsýna söng-
leikinn Nú er aht leyft eför Cole
Porter en vegna niöurskurðar til
Þjóðleikhússins á fjálögum hefur
verið hætt við sýninguna. Að-
spurður sagði þjóðleikhússtjóri,
Stefán Baldursson, að ekki hefði
verið búið að leggja í mikinn
kostnað. Búið var aö kaupa sýn-
ingarréttiim og að borga þýðing-
arkostnað. Stefan sagði aö verið
gæti að húsinu yrði lokað aðeins
fyrr en áætlað var. 1 apríl er fyrir-
huguö aftnælisdagskrá vegna ní-
ræðisafmælis Halldórs Laxness
og sagði Stefán að nú væri stefnt
að því að hún yrði mun viðameiri
en gert var ráð fyrir. Þeim áskrif-
endum, sem áttu miða á söngleik-
inn, hafa verið boðnir miðar á
Ég heiti ísbjörg, ég er Ijón eða
Emh i Kattholti, en þessar sýn-
ingar em ekki i áskrift, eða fá
miðana endurgreidda og sagöi
Stefán að flestir heíðu kosið að
sjá aðra hvora sýninguna.
San Francisco-
skuldumvafinn
JenamaBoÖvaisdótQr, Sanjose:
San Francisco-bahettinn hefur
fengið mikið hrós h)á gagnrýn-
endum undir stjóm Helga Tóm-
assonar og hefur aldrei risið jafn-
hátt listrænt séð. Þrátt fyrir þetta
er stórtap á rekstri hans. Nýlega
fór ballettinn sigurfór th New
York og nú er beðið með efttr-
væntingu eftir frumsýningu hjá
bahettinum í kvöld í Óperuhús-
inu í San Francisco. I árslok voru
skuldir bahettsins 3,3 milljónir
dohara og fara vaxandi. Þess má
geta aö árstekjur Helga 1989-1990
voru 181.480 dollarar og er hann
hæst launaði bahettstjóri i Kali-
forniu. Þetta eru samt litlir aurar
í samanburði við stjórnendur sin-
fóníuhljómsveita. Til dænús
hafði Herbert Blomstedt, stjóm-
andi Sinfóniuhljómsveitarmnar í
San Francisco, 586.66/ dollara
árslaun.
Myndlrásýn-
inguáSinfóníu-
HQómlelkum
Á tónleikum Sinfóníubljóm-
sveitar íslands annað kvöld verða
flutt tvö verk. Annaö þeirra er
hið þekkta verk Mússorgskíjs,
Myndir á sýningu. Hitt verkiö er
Sinfónía nr. 2 eftir John Speight
sem búsettur er hér á landi
Speight settist að á íslandi 1972
og hefur síðan verið áberandi í
íslensku tóniistarlifi, hefur
stundað keimslu, sungið í óper-
um og haldið einsöngstónleika.
Hami hefur samið tónhst af ýmsu
tagi. Sinfónia nr. 2 var valin á
ISCM World Music Dauys-hátíð-
ina sem verður haldin í maí í vor
i Varsjá í Póhandi, Einsöngvari á
tónleikunum er sópransöngkon-
an Julie Kennard sem er frá
Wales. Stjómandi verður Petri
Sakari.
og iiljóðrHasýniitg
í thefhi tónmenntadaga Ríkis-
útvarpsins, sem hefjast í næstu
viku, verður komiö á fót tveimur
sýningum i Útvarpshúsinu. Ann-
ars vegar er um að ræða tón-
minjasýningu þar sem sýndir
verða munir er tengjast tónlistar-
sögu þjóðarinnar og hins vegar
Mjóðritasýningu þar sem fjórir
framleiöendur og innflyijendur
hljóörita, íslensk tónverkamið-
stöö, Japis, Steinar og Skífan
kynna óvenjuleg og athyghsverö
hijóörit, erlend og islensk.