Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1992, Side 28
28
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1992.
Fréttir
Alli ríki heiðurs-
borgari EskHjarðar
Emil Thorarensen, DV, F.skifirði:
Bæjarstjórn Eskiíjaröar ákvað á
fundi sínum 9. janúar sl. aö gera
Aöalstein Jónsson forstjóra aö
heiðursborgara Eskifjarðar á af-
mælisdegi hans hinn 30. janúar sl.
í ávarpi, sem Arngrímur
Blöndahl bæjarstjóri flutti við þetta
tækifæri, sagði hann að enginn
einn maður hefði haft jafnmikil
áhrif á atvinnulíf hér á Eskifirði
síðustu áratugina og Aðalsteinn.
Ekki væri þó vafi að oft hefði á
móti blásið en Aðalsteinn aldrei
misst sjónar af markmiðum sínum.
Þótt Aðalsteinn hefði verið upptek-
inn við störf sín heföi hann ekki
gleymt þeim sem í kringum hann
væru - oft komið færandi hendi
bæði til ungra sem aldinna með þá
aðstoð sem hann gat veitt.
Að þessum orðum töluðum færði
bæjarstjórinn Aðalsteini skjöld
sem í er greypt mynd af fyrsta bát
Aðalsteins ásamt eftirfarandi áletr-
un:
Aðalsteinn Jónsson 70 ára 30. jan-
úar 1992. Bæjarstjórn Eskifjarðar
hefur í dag kjörið þig heiðursborg-
ara Eskifjarðar. Farsæl störf þín í
þágu sjávarútvegs hafa einkennst
af áhuga fyrir framþróun atvinnu-
lífs á Eskifirði.
Með virðingu og þakklæti.
Bæjarstjórn Eskifjarðar.
Þess má að lokum geta að 3 aðrir
núlifandi íslendingar njóta þess
heiðurs að vera heiðursborgarar
Eskifjarðar. Það eru þeir Amþór
Jensen, Jóhann Klausen og Einar
Bragi.
Arngrímur Blöndahl bæjarstjóri hefur fært Aðalsteini skjöldinn og nafnbótina heióursborgari Eskifjarðar. Að
baki þeim eru bæjarfulltrúar Eskifjarðar. DV-mynd Emil
Myndgáta
■'kW
"W~
29?
/VVw.
Andlát
Kristín Árnadóttir er látin. Jarðar-
förin er ákveðin fimmtudaginn 6. fe-
brúar kl. 10.30 í Fossvogskirkju.
Sigríður Jónsdóttir, HofsvaÚagötu
21, Reykjavík, lést á elli- og hjúkrun-
arheimilinu Grund laugardaginn 1.
febrúar. Jarðarfórin fer fram frá
Fossvogskapellu fóstudaginn 7. fe-
brúar kl. 15.
Jarðarfarir
Jón Sigurðsson, Kópavogsbraut 72,
verður jarðsunginn frá Kópavogs-
kirkju fimmtudaginn 6. febrúar kl.
13.30.
Árni Guðmundsson, Skeiðarvogi 103,
verður jarðsunginn frá Langholts-
kirkju fimmtudaginn 6. febrúar kl.
15.
Eybjörg Áskelsdóttir, Flókagötu 63,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju
föstudaginn 7. febrúar kl. 13.30.
Sigríður Friðfinnsdóttir, áöur Gunn-
arsbraut 34, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fostudaginn 7. febrú-
ar kl. 13.30.
Guðjón Guðjónsson, Eiríksgötu 25,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. fe-
brúar kl. 15.
Helgi Þórarinsson, Hrafnistu, Hafn-
arfirði, verður jarðsunginn frá Frí-
, kirkjunni í Hafnarfirði fimmtudag-
inn 6. febrúar kl. 13.30.
Tilkynningar
Félag eldri borgara
Fugl í búri sýnt 5., 8. og 9. febrúar kl. 17.
Fáar sýningar eftir. Fimmtudaginn 7. fe-
brúar verður dansað í Risinu kl. 20.
Hans Petersen hf.
í Kringlunni kynnir nýjung á ijósmynda-
markaðnum. Um er að ræða „mynd-
stækkara" sem viðskiptavinir hafa full-
komna stjóm á. í myndstækkaranum
sameinast heföbundin Ijósmyndatækni
__ nútímarafeindatækni á snilldarlegan
'hátt. Hægt er að velja myndastærðir
13x18 sm tíl 28x35 sm. Þegar allt hefur
verið vaiið er einfaldlega stutt á hnapp
og stækkunin verður tilbúin innan 5 min-
útna.
Ljóðatónleikar í Gerðubergi
verða iaugardaginn 8. febrúar kl. 17 og
mánudaginn 10. febrúar kl. 20.30 og verða
þeir þriðju tónleikar ársins. Þá syngur
Sverrir Guðjónsson kontratenór, og Jón-
as Ingimundarson leikur með á píanó. Á
efnisskrá tónleika þeirra Sverris og Jón-
asar verða sönglög eftir tónskáld allt frá
17. öld til okkar daga.
Happdrætti Badmintonsam-
bands íslands
Dregið verður í happdrætti Badminton-
sambands í slands og vinningsnúmer inn-
sigluð hjá borgarfógetaembættinu í
Reykjavik. Vinningsnúmer verða birt í
dagblöðum 2. mars nk. og þá verða einn-
ig veittar upplýsingar í síma 813377.
Náinskeið
Norrænt
rannsóknarnámskeið
á vegu Áhugahóps um íslenskar kvenna-
rannsóknir og Rannsóknarstofu í
kvennafræðum við Háskóla íslands,
styrkt af NorFa (Nordisk Forskarud-
dannelsesakademi), verður haldið í Skál-
holtí dagana 8.-15. júní 1992. Yfirskrift
námskeiðsins er: Mótun kynbundinnar
sjálfsímyndar við mismunandi sögulegar
og félagslegar aðstæður. Markmið nám-
skeiðsins er að leita svara við því hvort
til sé norræn sjáifsvitund og þá sérstak-
lega norræn kvenvitund. Námskeiðið er
þverfaglegt. Reynt verður að nálgast við-
fangsefnið frá ýmsum sjónarhomum og
veröa fengnar þekktar fræðikonur af
mismundandi fræðasviðum tíl að taka
þátt í því. Aðgangur að námskeiðinu er
takmarkaður. Tungumál, sem notuð
verða, eru danska, norska, sænska og
enska. Námskeiðið er ætlað stúdentum
og öðrum sem fást við kvennarannsókn-
ir. Stjóm námskeiðsins er í höndum Tayo
Andreasen frá Danmörku, Ullu Holm frá
Svíþjóð, Guðrúnar Jónsdóttur, félagsráð-
gjafa frá íslandi, Kari Melby frá Noregi
og Margitu Vainio frá Finnlandi. Um-
sóknarfrestur er til 15. mars 1992 en nán-
ari upplýsingar veitir Guðrún Ólafsdóttir
í síma 694484.
ITC-deildin Björk
heldur fund í kvöld, miðvikudag, að Síðu-
múla 17 kl. 20. Fræðsla um VHS-veiruna.
Fundurinn er öllum opinn. Nánari upp-
lýsingar gefa Gyöa í síma 687092 og
Magný í síma 22312.
ITC-deildin Korpa
heldur fund í safnaðarheimilinu í kvöld
kl. 20 stundvíslega. Ræðudagskrá. Nánari
uppl. veita Helga í síma 666457 og Fanney
í síma 679328.
zvt
1-------eyÞoi^—ð—
Myndgátan hér að ofan
lýsir athöfn.
Lausn gátu nr. 246:
Hárkollur
j HAUTT yÓSj^RAUTT {fÓS/
ÚrSo***
Leikhús
Fundur
ITC-deildin Gerður, Garðabæ
heldur fund í kvöld, miðvikudaginn 5.
febrúar, i Kirkjuhvoli kl. 20.30. Minnst
verður 5 ára afmælis deildarinnar. Gestir
velkomnir. Kaffi verður selt í hléinu og
kostar það 300 kr. Upplýsingar veita:
Edda Bára Sigurbjömsdóttir, s. 656764,
og Brypja Hlíðar, s. 76190.
Kvenfélag Fríkirkjunnar í
Reykjavík
Aðalfundur félagsins verður á morgun,
6. febrúar, kl. 20.30 í safnaðarheimiii
Dómkirkjunnar, Lækjargötu.
Fræðslufundur
um hestaheilsu
verður haldinn í félagsheimili Fáks á
Viðivöllum í Reykjavík fimmtudaginn 6.
febrúar kl. 20.30. A fundinum talar Helgi
Sigurðsson dýralæknir um fóður og of-
fóðrum hrossa. Þá talar Ólafur Sveinsson
„punktur" um punkta- og svæðanudd
hrossa. Aðgangur er ókeypis fyrir félags-
menn í Hestamannafélaginu Fáki í
Reykjavík. Fyrir aðra er aðgangseyrir 100
kr. Fundurinn er á vegum fræðslunefnd-
ar félagsins.
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR
LEIKFÉLAG REYKJAVIKUR
95ÁRA
RUGLIÐ
eftir Johann Nestroy
Fimmtud. 6. lebr.
Laugard. 8. febr.
Föstud. 14. febr.
Sunnud.16.febr.
ÞÉTTING
eftir Sveinbjöm I. Baldvinsson
Aukasýningar
Föstudag 7. febrúar.
Sunnudag 9. febrúar.
Allra siðustu sýnlngar.
LJONISIÐBUXUM
eftir Bjöm Th. Bjömsson
Föstud. 7. febr.
Sunnud. 9. febr.
Flmmtud. 13. febr.
Laugard. 15. febr.
Fáar sýnlngar eftir.
Mlðasala opin alla daga frá kl.
14-20 nema mánudaga frá kl.
13-17. Miðapantanir í síma alla
virka daga frá kl. 10-12.
Sími680680.
Leikhúslinan 99-1015.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavíkur.
Borgarleikhús.
ÖLVPMARAKSTOK
II ÍSLENSKA ÓPERAN
eftir
Giuseppe Verdi
Hljómsveltarstjóri: Robin Stap-
leton
Leikstjóri: Þórhildur Þorleifs-
dóttir
Lelkmynd: Sigurjón Jóhanns-
son
Búningahönnun: Una Collins
Ljósahönnun: Grétar Svein-
bjömsson
Sýningarstjóri: Kristín S.
Kristjánsdóttir
Kór íslensku óperunnar,
Hljómsveit íslensku óper-
unnar
Hlutverkasklpan:
Otello: Garðar Cortes Jago:
Keith Reed Casslo: Þorgeir J.
Andrésson Roderigo: Jón
Rúnar Arason Lodovico: Tóm-
as Tómasson Montano: Berg-
þór Pálsson Desdemona: Ólöf
Kolbrún Harðardóttir Emllla:
Elsa Waage Araldo: Þorleifur
M. Magnússon
Frumsýnlng sunnudaglnn
9. febrúar kl. 20.00.
Hátlðarsýnlng föstudaginn
14. febrúar kl. 20.00.
3. sýnlng sunnudaglnn
16. febrúar kl. 20.00.
Ósóttar pantanir eru seldar
tveimur dögum fyrir sýningar-
dag.
Miðasalan er nú opin frá kl.
15.00-19.00 daglega og tii kl.
20.00 á sýningardögum. Simi
11475.
Greiðslukortaþjónusta
VISA - EURO - SAMKORT
TJÚTT&TREGI
Söngleikur eftir
Valgeir Skagfjörð
Fimmtud. 6 febr. kl. 17.00.
Föstud. 7. febr. kl. 20.30.
Laugard. 8. febr. kl. 20.30.
Sunnud. 9. febr. kl. 20.30.
Miðasala er i Samkomuhúsínu,
Hafnarstræti 57. Mlðasalan er opin
alla virka daga nema mánudaga kl.
14-18 og sýningardaga fram að sýn-
Ingu.
Simiimiöasölu: (96) 24073.