Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1992, Side 32
TAS KOT
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar
Dreifing: Sínii
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1992.
Byggingane&id Ölfushrepps:
Samþykkir
* réttargeðdeild
Bygginganefnd Ölfushrepps sam-
þykkti í gær teikningar að breyttri
innréttingu að Sogni þar sem ætlun-
in er að koma á fót réttargeðdeild.
Áður hafði nefndin hafnaö erindi
sama efnis en neyddist til að taka
máhð aftur fyrir þar sem umhverfis-
ráðuneytið úrskurðaði fyrri af-
greiðslu ógilda.
Verði samþykkt bygginganefndar
staðfest í hreppsnefnd Ölfushrepps
getur heObrigðisráðuneytið þegar í
stað hafið framkvæmdir að Sogni.
Þegar þær hefjast verður tuttugu
manna hópur sendur til Svíþjóðar til
náms og starfsþjálfunar á réttargeð-
deildum þar. Fyrirhugað er að opna
deildina að Sogni þegar í vor eða
sumar. -kaa
Landsbankinn
á sölulista
Hjá ríkisstjóminni eru nú uppi
áform um að selja báða ríkisbank-
ana, Búnaðarbankann og Lands-
bankann. Það er nokkuð langt síöan
ákveðið var að selja Búnaðarbank-
ann. Hugmyndin um að selja Lands-
bankann er hins vegar ný af nálinni.
Sparisjóðir landsins hafa sýnt
áhuga á að kaupa Búnaðarbankann
en hugmyndin um sölu Landsbank-
ans er svo nýtilkomin að enn hafa
engir verið orðaðir við kaup á hon-
um.
Landsbankinn er aðalviðskipta-
banki um það bil 80 prósent sjávarút-
vegsfyrirtækja landsins. -S.dór
Hnífsdalsvegur:
Tvösnjóflóðféllu
Tvö snjóflóð féllu á Hnífsdalsveg í
gærmorgun og var veginum lokað.
Sömuleiðis var Óshlíðarvegur lokað-
ur í gær vegna snjóflóðahættu. Unnið
var við að opna vegina í morgun en
Breiðadalsheiði er kolófær.
Samkvæmt upplýsingum frá
ísafirði í morgun var snjókoma þar
í gær en rigning rétt fyrir sunnan -
á Flateyri. Oljóst var í morgun hvort
Fokkervél, sem er veðurteppt á flug-
vellinum á ísafiröi, kæmist þaðan í
dag. -ÓTT
Hæstiréttur:
Staðfesti úrskurðinn
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð
Sakadóms um gæsluvarðhald yfir
7» manninum sem rak Sportklúbbinn
við Borgartún. Samkvæmt úrskurð-
inum má hafa manninn í haldi til
klukkan 16 í dag. JSS
LOKI
Hvað um þá sem höfðu
barnað upp í tekjuaukann?
i morgun:
Gíf urlegt Ijón
fyrir alla trillu
karla bæjarins
- annar
Slökkviliðið á Seyöisfirði barðist
í þijár klukkustundir við eld í svo-
kölluðu Pöntunarhúsi, eða gamla
bryggjuhúsinu, sem stendur við
hlið Dvergasteins utarlega í bæn-
um, snemma í morgun. Húsið er
nánast brunnið til kaldra kola og
tjónið mjög verulegt þar sem nær
allir trillukariar á Seyðisfirði höfðu
aðstöðu í húslnu. Húsið er ótryggt
samkvæmt upplýsingum DV.
Lögreglumaöur og tveir starfs-
menn loðnubræðslu uröu fyrstír
varir við eldinn um klukkan
hálfsex í morgun. Húsið var tvflyft
myndarlegt timburhus sem setti
svip á umhverfiö. Eldurinn magn-
aöist mjög fljótlega. „Þetta varð
feiknarlegt bál,“ sagði Egill Ragn-
arsson lögregluvarðsljóri í samtali
viö DV í morgun.
Slökkviliðið reyndi að halda eld-
inum í skefjum en ekki tókst að
forða því að stórtjón varð. í húsinu
hafði Skeljungur einnig aðstöðu
fyrir þjónustu við smábátaútgerð.
Stórar smurolíutunnur voru inni
og sprungu þær hver af annarri og
eldurinn fór í olíuna. Slökkvistarf-
ið stóö yfir þangað til klukkan háif-
níu i morgun. Þá var hluti af hús-
inu hruninn og nánast allt brunnið
sem brunnið gat.
Bruninn hefur mikil áhrif á smá-
bátaútgerð á Seyðisfirði. Inni voru
frystiklefar fyrir beitu og þar voru
geymd net, linur, balar og fleira
sem trillukarlar bæjarins áttu.
Margra milljóna tjón varö á veíðar-
færum einum saman.
Þetta er annar bruninn á skömm-
um tíma á Seyðisfirði. í janúar
brann svokallað Wathne-hús sem
einnig var sögufræg bygging. Þar
var talið að um íkveikju væri að
ræða. Óljóst er hins vegar með
eldsupptök í Pöntunarhúsinu en
máliðerírannsókn. -ÓTT
Bronco-jeppabifreið með kerru, sem á var fjórhjól, valt út af veginum við Vattarnes við Reyðarfjörð um kl. 15 í
gær, fimmtudag. Talið er að bifreiðin hafi farið fjórar veltur og stöðvaðist hún loks á hjólunum.
í bifreiðinni er veltigrind og má telja fullvíst að hún hafi komið i veg fyrir stórslys en ökumaður og farþegi voru ekki
í bílbeltum. Þeir voru fluttir á Heilsugæslustöðina á Fáskrúðsfirði og sluppu með smáskrámur. Bifreiðin og fjór-
hjólið eru talin ónýt. DV-mynd Ægir Kristinsson
Veðriðámorgun:
Hlýttog
rigning
Á morgun verður sunnan- og
suðaustanátt, víða allhvöss.
Rigning verður um mestallt land
en einna minnst á Norðaustur-
landi. Hlýtt verður um allt land
og hiti allt að 9 stígiun á Norður-
landi.
Höfrungur AK í nótt:
Skipveiji skarst
erbrotskall
á brúarglugga
Skipverji á loðnuskipinu Höfrungi
AK 31 frá Akranesi skarst talsvert
illa í andlití þegar brotsjór skall á brú
skipsins í nótt. Höfrungur var nýfar-
inn út frá Akranesi eftir loðnulöndun
þegar brotíð skall á brúarglugga.
Maðurinn stóð við gluggann þegar
ólagið reið yfir.
Skipinu var strax snúið við og kom
það aftur til hafnar á fimmta tíman-
um í nótt. Lögreglan flutti manninn
á sjúkrahúsið á Akranesi þar sem
gert var að sárum hans. Snemma í
morgun var gert ráð fyrir að Höfr-
ungur færi aftur á veiðar að lokinni
viðgerðíbrúnni. -ÓTT
Bamagæsla í heimahúsum:
Greiðslum
frestað
Ákveðið hefur verið að fresta
greiðslum Reykjavíkurborgar til for-
eldra vegna barnagæslu í heimahús-
um. Meirihlutí borgarstjómar hafði
lagt fram tillögu um að farið yrði af
stað með slíkar greiðslur. Var fyrir-
hugað að verja tíl þeirra 50 milljón-
um króna í fjárhagsáætlun borgar-
innar. Við síðari umræðu um hana
í gær kom fram sú breytíng meiri
hlutans að fresta umræddum greiðsl-
um. -JSS
Hvassviðriínótt:
Ruslagámur
fauk
Talsvert var um að þakplötur fykju
í hvassvirði í Keflavík í nótt. Einnig
færðist ruslagámur úr stað um 100
metra við Samkaup og tilkynnt var
um að skjólveggur hefði gefið sig við
hús ofarlega í Keflavík. Að sögn lög-
reglunnar var í morgun ekki tahð
að teljandi tjón hefði orðið.
Á höfuðborgarsvæðinu og i Vest-
mannaeyjum var einnig hvasst í nótt
en ekki var tílkynnt um tjón.
-ÓTT
HalldórH. Jóns-
son er látinn
Einn helstí viðskiptajöfur íslensks
viðskiptalífs, Halldór H. Jónsson,
arkitekt og stjórnarformaður Eim-
skipafélags íslands, lést á sjúkrahúsi
í Reykjavík í fyrrinótt. Halldór var á
80. aldursári, fæddur í Borgamesi 3.
október 1912. -JGH
ORYÓSÍÍÍÍMINN
Vandað og viðurkennt öryggistæki
lyrir þig og þó sem þér þykir vænt um
Sala - Leiga - Þjónusta
' 'l 91*29399
Allan sólarhringinn
Öryggisþjórujsta
VARI síðan 1 9ó9
I
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
!