Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1992, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1992, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 28: FBBRÚAR 1992.- Fréttir Athyglisverð doktorsritgerð um þróun bamavemdarmála á Islandi: Börnin hverfa í skugga ráðstaf ana nef ndanna „Það er lögð mest áhersla á móðurina, mjög lítið skrifað um föðurinn og barninu er ýtt til hliðar," segir Guðrún Kristinsdóttir, doktor í félagsráðgjöf. „í skýrslum barnaverndamefnda, sem ég byggi rannsókn mína á, var afskaplega lítiö skráö um bömin sjálf, hvemig þeim leið og hvað þau vildu. Þaö var langmest skrifaö um fullorðna og samtöl sem fóm fram við þá. Það var lögð áhersla á aðgerð- imar, þ.e. að nú ætti að koma við- komandi bami fyrir. Bamið var því mjög lítið í brennidepli í þessum skýrslum, nema þá 1 allra stærstu málunum. Þar komu inn sálfræðing- ar og aðrir sérfræðingar sem gerðu nákvæma úttekt á bömunum. En hið almenna er þetta, að bömin viröast hverfa í skugga ráðstöfunar- innar sem á að gera. Þaö er lögð mest áhersla á móðurina, mjög lítið skrifað um fóðurinn og baminu er ýtt til hliðar.“ Þetta segir Guðrún Kristinsdóttir, doktor í félagsráðgjöf við háskólann í Umeá í Sviþjóð. Doktorsritgerð hennar fjallar um bamavemd á íslandi og heit- ir „Bamavemd og sérfræðiþróun". Guðrún lagði ritgerðina fram í apríl 1991. Heimildimar, sem hún byggir á, era meðal annars unnar upp úr skýrsl- um fjölskyldudeildar Félagsmálastofn- unar á árunum 1984-1986. Athugunin náði til Reykjavíkur svo og tveggja minni sveitarfélaga. Guðrún segist varpa fram þeirri tilgátu að með ofannefndri „ofurá- herslu" á móðurina sé hún beitt miklu félagslegu taumhaldi sem sé neikvætt. í þeim vistunum, sem hún heíði athugað, hefði verið talsvert stór hópur bama sem hefði verið vi- staður aftur og aftur á stofnunum. Vitað væri að slíkt hefði í för með sér mjög mikið álag á börnin. Barnavernd skammt á veg komin „Þaö sem mér finnst sérstaklega athyglisvert er hve skammt á veg bamavemdarmál era komin á ís- landi. Þá á ég bæði við Reykjavík og úti á landsbyggðinni. Það er afskap- lega takmörkuð aðstoð sem er veitt,“ sagði Guðrún. Hún kvaðst hins vegar vilja leggja áherslu á að það hefðu orðið miklar almennar framfarir varðandi skiln- ing á þörfum barha hér á landi. Þær birtust meðal annars á þann hátt að komið hefði verið á fót ýmiss konar þjónustu fyrir þau, til dæmis dagvist- un og sérfræðiþjónustu. „Ein af niðurstöðum mínum eftir athuganir á vistun bama í Reykjavík var sú að margar vistanir hafi farið fram af því að fólk var fátækt en ekki vegna þess að það þyrfti að koma bömunum fyrir utan heimilis. Ég álít að það sé hægt að styðja einstæðar mæður, einkum í Reykja- vík, betur með því að veita þeim ein- hvers konar stuðningsfj ölskyldur, koma þeim í samband við fólk sem þær vilja njóta aðstoðar hjá án þess að taka bömin af heimilunum. Það var athyglisvert hve mikið af þessum vistunum vora hvíldarvistanir sem vora gerðar með formerkjum bama- verndar sem er miklu neikvæðari ráðstöfun heldur en þegar fólki er boðinn stuöningur." Réðu ekkert við hlutverk sitt „Það sem mér fannst athyglisverð- ast við landsbyggðina var að bama- verndamefndimar réðu ekkert við hlutverk sitt. Það sem ekki kemur fram í ritgerðinni, vegna þess hve viðkvæmt það er, en ég skráði niður eftir ítarlegum frásögnum fólks era mjög alvarleg mál sem enginn haíði gert neitt í. Þar má nefna kynferðis- lega árásir á böm sem allir vissu um en bamavemdamefnd skipti sér ekki af. Einnig má nefna langvarandi vanrækslu á börnum. Önnur mál voru léttvægari og þar hefði verið auövelt að koma á stuðningi. En það var ekki gert.“ Hið jákvæða við skipan bama- vemdarmála á landsbyggðinni sagði Guðrún hafa verið hve skóhnn og dagvistunin hefðu verið jákvæð í garð bamanna og hefðu farið út fyrir sitt verksvið til þess að styðja viö fjöl- skyldur sem áttu í erfiðleikum. „Þetta leiðir hugann að því hvemig við eigum að skipuleggja þessi mál,“ sagði Guðrún. „Spumingin er hvort ekki eigi að veita dagvistuninni og skólanum miklu meira félagslegt hlutverk en leggja ekki höfuðáherslu á bamavemdamefndir. Ég tel að nauðsynlegt sé að hafa þær til aö grípa inn í í mjög alvarlegum málum. En ég tel jafnframt að við eigum að koma á fót einhvers konar félags- málastofnunum um allt land. Þær verða þá aö vera stærri en sveitarfé- lögin era nú. Við eigum að reyna að draga úr þessari neikvæðu mynd.“ Stærri barnaverndarumdæmi Guðrún sagöist álíta að ekki ætti að færa bamavemdarmál til dóm- stóla. Hins vegar ætti að tryggja réttaröryggið miklu betur í máls- meðferðinni fyrir bamaverndar- nefndunum. I Reykjavík væra grundvallarskilyrði uppfyllt nú. Þar væri málsmeðferðin skrifleg og skjólstæðingar hefðu aðgang að skýrslum þeim sem úrskurðurinn byggði á. A þessu væri hins vegar allur gangur úti á landi. „Ef við hefðum stærri barna- verndarumdæmi úti á landi til að taka það sem við getum kallað nei- kvæðar ákvarðanir þá myndi það koma af sjálfu sér að réttaröryggið væri betur tryggt. Þá myndum við leysa það vandamál sem kalla má náin tengsl. Þau eru jákvæð þegar allt er í lagi en verða neikvæð, þann- ig að fólk getur ekki tekið á hlutun- um þegar mikið er að. Ég er ekki að tala um að auka veldi sérfræðinganna. Við eigum að vera varkár í þeim efnum. Sú stefna er dálítiö ríkjandi á íslandi að allir mögulegir sérfræðingar eru að reyna að halda sér frammi og segja að það þurfi fleiri sálfræðinga hér og fleiri félagsráðgjafa þar. Með því þrengj- um við einnig hringinn um þessar fjölskyldur sem þurfa á aðstoð að halda. Sérþekking er góð en við verð- um einnig að gera okkur grein fyrir að það hggur heilmikið félagslegt taumhald í að beita henni." -JSS Grálúðan á 143 krónur í Þýskalandi Mikið hefur verið rætt um ofíjár- festingu í fiskvinnslu og útgerð. Fjár- festing í vinnslunni varð th á þeim árum sem fiskveiðarnar voru vertíð- arskiptar, þannig að vetrarvertíð stóð frá janúar til maí. Á þessum tíma kom að landi meginaflinn af bátaflotanum. Þennan tíma þurfti því að nota vel og vinna fiskinn hvað sem tautaði. Frystihúsin vora stækk- uð og afkastageta þeirra aukin svo að hægt væri að vinna ahan aflann, annaðhvort í frystingu, saltfisk eða Fiskmarkaður Ingólfur Stefánsson skreið. Ekki virtist veita af rfnnslu- getunni og varð oft að leggja nótt við dag til að vinna aflann. Svo kom að því að vertíðarafhnn varö ekki eins afgerandi í vinnslunni. Afhnn barst nú að landi með togurum sem fisk- uðu aht árið þorsk og annan fisk og dreifðist vinnslan nú á aht árið. Þá stóðu menn frammi fyrir því að frystihúsin vora of afkastamhdl. Með tilkomu skuttogaranna og út- færslu fiskveiðhögsögunnar gátu landsmenn aukið afla sinn um 100% án þess að afla meira af þorski en gerðist meðan erlend veiðiskip vora á miðunum. Eftir 1976 jókst aflinn jafnt og þétt og náði fimm hundrað þúsund tonnum. Síðan minnkaði það sem veiða mátti og stjómaði Haf- rannsóknastofnunin því og nú er svo komið að aðeins má veiða 260 þúsund tonn. Nú stöndum við frammi fyrir svipuðu fyrirbrigði og gerðist meö vinnsluna en sem betur fer era skip- in, sem nú era að veiöum, það stór og vel útbúin að þau hafa getað bjatg- að sér með ýmsum hætti. Á tímabih vora menn á því að loðnuveiðiflotinn væri th hinnar mesta óþurftar en kannski er hann nú að verða bjarg- vætturinn, náttúran ræður að miklu leyti hve mikið við getum veitt. Ástæða væri th að ræða þessi mál betur en þaö verður ekki gert í þess- um pistlum. England Eitt skip hefur selt í Englandi síðan við vorum hér með sölur síðast: Bv. Ottó Wathne seldi í Grimsby 20. febr. sl., ahs 95,3 tonn fyrir 11,7 mhlj. kr. Meðalverð 123,41 kr. kg. Þorskur seldist á 130,25 kr. kg, ýsa 165,20, ufsi 73,77, karfi 99,65, grálúða 132,16 og blandað 101,48 kr. kg. Þýskaland Bv. Gnúpur seldi í Bremerhaven ahs 112,8 tonn fyrir 11,7 mhlj. kr. Smáslatti af þorski seldist á 131,64 kr. kg, ýsa 100,15, ufsi 66,89, karfi á 106,15, grálúða 142,39 og blandað 46,39 kr. kg. Bv. Engey seldi í Bremerhaven, ahs 177 tonn fyrir 17,2 mhlj. kr. Þorskur, rúm 2 tonn, seldist á 134,63 kr. kg. 500 kg af ýsu fóra á 121,29 kg, ufsi 63,93, karfi 98,20 og blandað 74,90 kr. kg. Bv. Framnes seldi í Bremerhaven, ahs 107 tonn fyrir 11,7 mhlj. kr. Smá- slatti af þorski seldist á 128,85 kr. kg, ufsi á 74,44, karfi 111,87, grálúða 143,16 og blandaö 32,20 kr. kg. Noregur: Verð á loðnu til frystingar Verð á hrygningarloðnu er 61 Nkr. hl. Verðið gildir ef 40% af loðnunni er hrygna. Önnur loðna er á 48,15 hl. Með meiri eða minni hrognafyh- ingu lækkar eða hækkar verðið um 2,01 Nkr. hl. og 0,49 Nkr. hl af bræðsluloðnu. Tölvustýrð flakavinnsla Verið er að setja í gang tölvustýrða flakavinnslu fyrir laxaflök í Fröja- verksmiðjunni í samvinnu við Frio- nor. Mikið hefur verið í þetta lagt og á mannshöndin htið að koma að vinnslunni. Japan Aukin samkeppni á laxamarkaðn- um hefur orðið við að mikið af laxi hefur borist frá Ástrahu. Við það hefur verð á laxi falíið veralega og er nú frá 1100-1300 jen. Á sama tíma hafa margir smáir útflytjendur frá Noregi verið að hasla sér vöh á Jap- ansmarkaðnum og hefur það haft slæm áhrif á verðið. í bih sjá menn ekki að verðið jafni sig og getur orð- ið th frambúðar ef heldur fram sem horfir. Lúða Innflutningur til Japans varð fram th 30.11. 1991 ahs 22.933 tonn. Grá- lúðuútflutningur Norðmanna jókst um 80% á því ári. Þrátt fyrir nokkrar birgðir, sem era 46.000 tonn, eru menn bjartsýnir á að gott verð hald- ist. Þó getur verið, ef Kanadamenn auka veiðamar á flatfiski, að verðið geti orðið óstöðugra. íslendingar era stærstir í innflutn- ingnum með yfir 7000 tonn. Kanada Samkvæmt fréttum ætla Kanada- menn aö minnka þorskkvótann um 65.000 tonn en hann var 190.000 tonn á sl. ári. Margur vandinn steðjar að Kanadamönnum varðandi þorsk- veiðamar, mikhl aragrúi er af sel við Nýfundnaland, eða aht að 3,5 mihj. Fjölgun hans er tahn vera allt aö fimm þúsund á ári og nauðsynlegt að veiða mikið ef á að halda honum í skeflum, ,hvað þá fækka honum. Einnig voru þarna á síðasta ári erfið ísalög og var tahð að það hefði haft slæm áhrif á fiskstofninn. Síðan telja menn að mikhl flöldi erlendra skipa við fiskveiðimörkin veiði mikið af þorski og öðrum fisktegundum en þar eru að verki Spánverjar, Rússar og Austur-Evrópuþjóðimar. íslend- ingar eiga við svipaðan vanda að etja, erlendar þjóðir veiða mikið rétt við mörkin og era þar að verki sömu þjóðir og angra Kanadamenn. Nú bætist það við aö Grænlendingar hafa veitt Rússum leyfi th að fiska á Grænlandshafi á núlh íslands og Grænlands og ekki gott að spá hvaða áhrif það hefur á veiðar hjá okkur. Gámasölur til 21.2. sl. Sundurliðun eftir tegundum: Selt magn kg Verðíerl.mynt Meðalverð kg Söluverð isl. kr. Kr.kg Þorskur 119.897,77 192.693,81 1,61 19.943.132,57 166,33 Ýsa 60 890,25 118.619,58 1,95 12.276.021,19 201,61 Ufsi 2,742,13 2.295,48 0,84 237.442,77 86,59 Karfi 8 214.69 8.176,23 1,00 845.746,07 102,96 Kolí 48.923,81 77.511,83 1,58 8.021.374,52 163,96 Blandað 46.480,58 56.426,79 1,21 5.836.702,44 125,57 Samtals: 287.149,23 455.723,80 1,59 47.160.427,83 164,24

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.