Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1992, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1992, Blaðsíða 32
F R ÉTTAS KOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 63 27 00 Frjálst,óháð dagblað FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1992. Náttúrulækningafélagiö: „Sogn er búið að vera til sölu í þijú ár. Ef þetta tilboð reynist raunhæft tökum við á því máli með fullri al- vöru. Ég hef ekki séð það enn en það mun vera á leiðinni," sagði Vilhjálm- ur Ingi Árnason, varaforseti Nátt- úrulækningafélags íslands, um til- boð sem borist hefur í Sogn í Ölfusi. Það er Náttúrulækningafélag ís- lands sem á Sogn. í gær lá fyrir sveit- arstjóm Ölfushrepps að afgreiða samþykkt bygginganefndar um með- ferðarheimili fyrir geðsjúka afbrota- menn að Sogni. Afgreiðslunni var frestað því síðdegis í gær barst kauptilboð í jörðina. Það sendi Lög- fræðiskrifstofa Suðurlands fyrir hönd einstakhngs sem hefur áhuga á að setja upp hrossabú þar. Einar Sigurðsson, oddviti Ölfushrepps, sagði að ætla mætti að það tæki viku til tiu daga að komast að raun um hvort samningar tækjust um sölu jarðarinnar. „Það hefur verið samþykkt á tveim landsþingum að leita eftir sölu eða leigu á Sogni,“ sagði Vilhjálmur Ingi. „Ríkið geröi tilboð í hluta jarðarinn- ar sem við höfnuðum. Ég vil ekki nefna neinar tölur um það verð sem við viljum fá. Fyrst er að kynna sér tilboðið." -JSS Stúdentakosningar: Röskva með meirihluta Röskva, samtök félagshyggjufólks í Háskólanum, hlaut meirihluta í kosningunum til stúdentaráðs og háskólaráðs í gær. Kosið var um 15 fulltrúa og hlaut Röskva 8 menn í stúdentaráö en Vaka, félag lýðræðis- sinnaðra stúdenta, 7. Fylkingarnar fengu 1 mann hvor í háskólaráð. Með sigrinum er Röskva komin með 16 menn í stúdentaráð en Vaka 14. Á kjörskrá voru 5400 manns og greiddu 3200 atkvæði. Kjörsókn var aðeinslakarienífyrra. -IBS Tíuslasaðirí sprengingu ■ Lundúnum Öflug sprengja sprakk á London Bridge járnbrautarstöðinni í mið- borg Lundúna í morgun. Fyrstu fréttir hermdu að manntjón heföi orðið og lögreglan sagði að tíu hefðu slasast. Öll umferð um stöðina gekk úr skorðum, enda háannatími. Spengjan sprakk klukkan 8.32. Járbrautarstöðin er skammt sunn- an Thempsár og tekur viö umferð frá úthverfum borgarinnar í suðri og bæjum þar fyrir sunnan. Ekki er vit- að hverjir bera ábyrgð á sprenging- unni en grunur beinist að IRA. Reuter LOKI Eitt atkvæðasvindl á dag kemur þinghaldinu í lag! - Alvarlegur verkn aður sem kall- ar á áminningu - segir Sigurður Líndal lagaprófessor „Eg fæ ekki séð í íTjótu bragði að nein hegningarákvæði séu í lögum um svona verknað. Þaö er einfald- lega ekki gert ráð fyrír að þetta geti gerst. Enda segir í lagasaftúnu frá 1990 að menn skuli greíða at- kvæði með því að rétta upp hægri hönd," sagöi Sigurður Líndal laga prófessor um þann atburð sem átti sér stað á þingi í gær, þegar Matthí- as Bjamason greiddi atkvæði fyrir Áma Johnsen sem ekki var í þing- húsinu. „Hitt er annaö aö þarna er um alvarlegan verknað aö ræða sem hlýtur að kalla á áminningu," sagði Sigurður. Páll Pétursson, formaður þing- flokks Frarasóknarflokksins, segist telja víst að atkvæði Árna Johnsen eins hafi aldrei skipt sköpum á þessu þingi, til þess sé meirihluti stjórnarflokkanna of mikill. Hann segíst draga það fullkomlega í efa að aðrir þingmenn hafi leikið þetta fyrr í vetur eins og haldið er fram. Páll sagði að formenn stjórnar- andstöðuflokkaxma hefðu óskað eftir þvi í gærkvöldi að farið yrði yfir allar atkvæöagreiðslur þar sem Árni Johnsen hefði greitt at- kvæði það sem af er þessu þingi. Guörún Helgadóttir, fyrrum for- seti Sameinaðs Alþingis, sagði að þegar ákveðið var að tölvuvæða atkvæðagreiöslu á þingi hefði hún og fieiri varað viö aö taka kerfiö í notkun fyrr en það væri allt til- búið. Svo væri ekki nú. Þaö vant- aði skjá með nöfhum allra við- staddra þingmanna. Þegar hann væri kominn, væri hægt að sjá hvernig hver einstakur þingmaður kysi', Uppsetningu þessa skjás hefði verið frestað í sparaaðarskyni. „Atburðurinn í gær er auðvitað hið alvarlegasta mál sem taka þarf fóstum tökum til þess aö svona endurtaki sig ekki,“ sagði Guðrún Helgadóttir. -S.dór St. Jósefssystur tóku vel á móti þeim Sighvati Björgvinssyni heilbrigðisráóherra og Friðriki Sophussyni fjármála- ráðherra þegar þeir heimsóttu þær síðdegis i gær. Ráðherrarnir greindu systrunum frá fyrirliggjandi tillögum um sameiningu Landakotsspítala og Borgarspitala. DV-mynd Brynjar Gauti Skipstjóri Krossness: Teliir byrðing- inn hafa opnast Sjóprófum vegna sjóslyssins, þegai Krossnes SH 308 sökk á Halamiðum á sunnudagsmorgun, lauk í Grund- arfirði í gærkvöldi. Þar kom meðal annars fram að Hafsteinn Garðars- son skipstjóri telur að eina skýringin á þvi að togarinn sökk hefði verið að byrðingur skipsins hefði opnast. Þarna er þó eingöngu um tilgátu að ræða. Þegar togarinn sökk var eng- inn sjór í vélarrúminu. Hins vegar sá enginn hvemig umhorfs var niðri í lestinni þegar slysið varð. Skipstjór- inn telur enga aðra skýringu koma til greina með hliðsjón af því hve skamman tíma þaö tók fyrir skipið að fara flatt á hliðina og síðan sökkva. Samkvæmt upplýsingum DV hafa ihenn verið að gefa sér þá skýringu eina aö sjór hefði með einhverju móti komist inn í skipið. Lestin var eina rými skipsins sem ekki er vitað til hvernig umhorfs var í fyrir slysiö, annað var „þurrt“. Ekkert högg fannst og taldi áhöfnin allt hafa veriö mjög eðlilegt áður en togarinn lagðist á hhðina. Rannsóknanefnd sjóslysa er í þann mund að hefja hefðbundna rannsókn í kjölfar þess að skýrslur hafa verið teknar af áhöfninni hjá lögreglu og síöan sjóprófum -ÓTT Landakotsmálið: Missa um 200 mannsvinnuita? „Það eru helmingslikur á að sam- eining Borgarspítala og Landa- kotsspítala takist og helmingslíkur á að hún geri það ekki. Hver niðurstað- an verður er að stórum hluta í hendi St. Jósefssystra," sagði Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra þegar hann ásamt Friðriki Sophus- syni hélt til fundar með nunnunum síðdegis í gær. Á fundinum fóru fáðherramir yfir stöðu sameiningarviðræðnanna og greindu þeir nunnunum frá fyrir- hggjandi tihögum. Þær voru ekki krafðar um afstöðu til sameiningar- innar en svars er vænst frá þeim á næstu dögum. Búist er við aö niður- staða fáist í viðræðumar á næstu dögum. Samkvæmt heilmildum DV hefur verið um það rætt að bráða- þjónustan leggist af á Landakoti í kjölfar sameiningar og að starfsfólki spítalans veröi fækkað um aht að 200. Ólafur Öm Arnarson, yfirlæknir á Landakoti, segir það meginatriði yf- irstandandi viðræðna að aht starfs- fólk spítalans verði endurráðið. Það sé aðalatriðið en í tengslum við það sé rætt um hvaða starfsemi eigi að fara fram á spítalanum eftir að bráðaþjónustan þar leggist af. -kaa Veöriðámorgun: Hvasstog slydduél Á morgun verður sunnan- og suðvestanátt, hvasst eða stinn- ingskaldi og slydduél suðvestan- og vestanlands en úrkomulaust annars staðar. ÞJÓFAVARNIR FYRIR FYRIRTÆKI OG HEIMILI Vönduð og viðurkennd þjónusta t/ VARI 0 91-29399 Allan sólarhringinn Oryggisþjónusta siðan 1 969 TVÖFALDUR1. vinningur ú

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.