Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1992, Page 10
10
FIMMTUDAGUR 5. MARS 1992.
ÚÚönd
Eyðniveiran
komin úr mænu-
sóttarbóiuefni
Bandarískur örveirufrœðingur
hefur komist að því aö mænusóth
arbóluefni frá því um 1955 hefur
í sér veiru sem veldur eyöni i
öpum. Hann segir að ef til vill sé
þarna fundin skýringin á þvi
hvernig fyrstu mennlrnir smit-
uöust af eyðni
Viö gerð bólueíhisins voru m.a.
notuö nýru úr afrískum öpum en
grunur manna hefur lengi beinst
að þeim þegar leitað er að upp-
runa eyöninnar. Reynist tilgátan
rétt hefur eyðnin upphaflega bor-
ist í mannfólkið með mænusótt-
arbóluefni.
um svindl
Kviðdómur í Alexandríu í
Virginíu hefur fundiö sæðis-
bankastjórann Cecil Jacobson
sekan um margháttaö svindl.
Mesta athygli hefur vakið að
hann notaði eigið sæði þegar
hann aðstoðaði konur við að
verða bamshafandi en alls verð-
ur hann dæmdur vegna 52 svika-
mála og á yfir höfði sér allt að 280
ára fangelsi.
Talíð er að Jacobson sé faðir
allt að 75 barna þótt mæðurnar
hafi ekki vitað hver hinn raun-
verulegi faðir var. Jacobson hef-
ur viðurkennt brot sitt og segist
hafa notað eigið sæði við fijóvg-
anir í tvö ár.
John M^jorog
Thatchereru
Breskir ættfræðingar hafa rak-
ið saman ættir Johns Major for-
sætisráðherra og Margrétar
Thatcher, fyrrum forsætisráð-
herra. Ættfærslan er birt í tima-
riti ættfræðinga í Bretlandi og
hefur fréttin veriö tekin upp af
dagblöðum þar.
Þau Thatcher og Major eru
komin af fólki sem bar ættamafh-
íð Crust og bjó í Lincolnskíri á
18. öld. Þau hafa ekkert látiö hafa
eftir sér um skyldieikann en
Terry, bróðir forsætisráðherr-
ans, segir að þessi möguleiki sé
mjög skemmtílegur.
lausmeðöllu
fyrir árið2000
Borgarstjórnin í Peking hefur
ákveðiö aö láta eyöa öllum flug-
um í borginni fyrir áríð 2000. Al-
menningi verður gert skylt að
taka þátt í herferðinni gegn flug-
unum tii að auka þrifnað í borg-
inni. Tilgangurinn er aö gera
Peking aö fýsilegum kosti þegar
ólympíuborgin áriö 2000 verður
valin.
vopnaði þjóf
Fatlaður leigubílstjóri í Edin-
borg í Skotlandi afvopnaði byssu-
mann sem hugðist ræna hann
innkomu dagsins. Þjófurinn
beindi afsíigaðri Iiaglabyssu að
hálsi bílstjórans.
Þjófurinn bað bílstjórann aö
aka með sér á afvikinn stað utan
borgarinnar og dró upp byssuna
þegar kom að því að borga. Þeir
voru þá staddir nærri bjargbrún
og ók bílstjórinn fram á ystu nöf
áður en hann snögghemlaöi. Síð-
an hótaði hann aö aka fram af
brúxánni ef byssumaðurinn af-
henti sér ekki vopniö, Þjófurinn
var dæmdur í fangelsi. Reuter
, -
* VM. /
Þrír menn syrgja látna ættingja sina sem voru meðal þeirra sem fórust í gassprengingu í tyrkneskri kolanámu í fyrrakvöld. Talið er að allt að þrjú
hundruð manns hafi látið lífið. Símamynd Reuter
AUt að 300 manns fórust í námuslysinu í Tyrklandl:
Ekki þverf ótað fyrir
líkum í göngunum
„Það var ekki þverfótað fyrir lík-
um í námugöngunum þegar við hlup-
um upp á efri hæðirnar," sagði Sahh
Yanik, einn 87 námuverkamanna
sem komust lífs af úr gassprengingu
í kolanámu í tyrkneska bænum
Kozlu í fyrrakvöld. „Við heyrðum
eins og vindgnauð. Ég gleymi þvi
aldrei."
Talið er að allt að þrjú hundruð
námumenn hafi farist í slysinu,
versta kolanámuslysi í sögu Tyrk-
lands. Anatólíska fréttastofan skýröi
frá því að í gærkvöldi hefði verið
búiö aö finna 104 lík. Björgunarsveit-
armenn voru búnir aö missa alla von
um aö finna fleiri menn á lífi. Um
það bil tvö hundruð manna af nætur-
vaktinni er enn saknað eftir spreng-
inguna.
Þeir síðustu sem komust lífs af
voru fluttir upp úr námunni í gær-
morgun, tíu klukkustundum eftir að
metangassprenging breytti námu-
göngunum og vinnusvæðunum í
eitrað víti.
„Við vorum að fá okkur að borða
áður en við byijuðum að vinna þegar
sprengingin varð,“ sagði Huseyin
Ozcan, 28 ára gamall námumaður,
sem slasaðist í sprengingunni.
„Flestir vina minna féllu við og risu
ekki á fætur aftur.“
Semsi Denizer, leiðtogi verkalýðs-
félags námumanna, bar brigður á þá
skoðun forráðamanna námufyrir-
tækisins að óvænt uppsöfnun á met-
angasi hefði valdið sprengingunni.
Hann sagði að mannleg mistök væru
llklegri skýring. „Það hafa orðið mis-
tök, annars hefði sprengingin ekki
orðið,“ sagöi hann við fréttamenn.
Ættingjar þeirra sm létust og hinna
sem er saknað flykktust á sjúkrahús-
iö í borginni Zonguldak, sem þar er
skammt frá, til að reyna að bera
kennsl á líkin.
Suleyman Demirel, forsætisráð-
herra Tyrklands, og aðrir ráðherrar
fóru á slysstað og lofuðu að veita fjöl-
skyldum fórnarlambanna aðstoð.
Reuter
Öryggisverðimir veiddu
fólk fyrir læknastúdenta
Lögreglan í Barranquilla í
Kolombíu fann viö húsleit í lækna-
skóla þar í borg lík 11 manna og
ýmsa líkamsparta úr 20 mönnum
öðrum. Talið er víst að öryggisverðir
við skólann hafi myrt fólkið á götum
úti og fært stúdentum við skólann
feng sinn. Efiör því sem heimamenn
segja er nánast um mannaveiðar að
ræöa.
Opinber rannsókn er hafin á mál-
inu. Upphaflega var útigangsmaður
í borginni sem kærði til lögreglunnar
og sagði að félagar sínir hefðu verið
drepnir og lík þeirra ílutt í lækna-
skólann. Eftir þvi sem heimildar-
menn innan lögreglunnar segja þá
fengu öryggisveröirnir um tólf þús-
und krónur fyrir hvert lík.
Lögreglan hefur grun um að enn
fleiri hafi verið drepnir með þessum
hætti og er nú verið að grafa í lóö
læknaskólans til að ganga úr skugga
um hvort nokkur hafi verið jarðaður
þar. Enn hefur ekkert fundist í lóð-
inni.
Reuter
Mikill áhugi á Eystrasaltsráðinu
MikUl áhugi hefur verið á þátttöku
í stofnfundi Eystrasaltsráðsins sem
hefst í Kaupmannahöfn í dag, með
þátttöku tíu ríkja. ísland vildi vera
með og sömu sögu er að segja um
Norðurlandaráð, Úkraínu og Tékkó-
slóvakíu.
Uffe Ellemann-Jensen, utanríkis-
ráðherra Danmerkur, þvertekur
hins vegar fyrir það og segir að fund-
urinn sé aðeins fyrir lönd sem liggja
að Eystrasaltinu. Noregur fær að
fljóta með vegna nálægðar sinnar.
Ætlunin er að Eystrasaltsráðið
samhæfi efnahagslega, tæknilega og
mannúðaraðstoð við lýðræðislegar
stofnanir fyrrum landa Austur-
Evrópu. Þá á einnig að koma á fót
samvinnu um umhverfis- og orku-
mál, samgöngur, menntamál og
fleira.
Vonir standa til að með hinu nýja
Eystrasaltsráði muni aðildarlöndin
tengjast sterkum böndum eins og var
á tímum Hansakaupmanna á 14. öld.
Þaö voru þeir Uffe Ellemann-Jens-
en og þýski starfsbróöir hans, Hans-
Dietrich Genscher, sem áttu hug-
myndina að hinum nýju samtökum.
Auk utanríkisráöherra Danmerk-
ur, Svíþjóðar, Finniands og Noregs,
sitja fundinn starfsbræður þeirra frá
Þýskaiandi, Rússlandi, Póllandi og
Eystrasaltslöndunum þremur, Eist-
landi, Lettlandi og Litháen.
NTB og Ritzau
Ráðherraneftidin:
Framkvæmda-
stjórinn fær
600 þúsund í
launámánuði
„Þetta er fáheyrt og hrikalegt,"
sagði Marianne Jelved, einn full-
trúanna í fjárlaganefnd Norður-
landaráðs, þegar hún greindi frá
því að norræna ráðherranefndin
ætlaði að greiða nýjum fram-
kvæmdasfjóra 60 þúsund dansk-
ar krónur í mánaðarlaun auk
ókeypis húsnæöis í Kaupmanna-
höfn. Þessi laun svara til um 600
þúsunda íslenskra króna og eru
þá fríðindin ekki talin með.
Mál þetta hefur valdið hneyksl-
an á þingi Noröurlandaráðs í
Helskinki, sérstaklega þar sem
allt er gert til að draga úr útgjöld-
um 'vegna samstarfs ríkjanna í
ráðinu. Danska blaðið Politiken
hefur eftir dönskum stjómmála-
mönnum að þetta sé bruðl með
peninga og að nauðsynlegt sé að
endurskoða ráðningarsamning-
inn. í stöðu framkvæmdastjóra
hefur verið ráðinn Finninn Pár
Stenbáck. Ritzau