Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1992, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1992, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 5. MARS 1992. Spumingin Borðar þú saltkjöt og baunir? Guðrún Jónsdóttir húsm.: Nei, ég hef ekki gert það í mörg ár, alltof mikið salt. Sigurlina Stefánsdóttir húsm.: Já, a.m.k. einu sinni á ári og stundum oftar. Hilmar Gunnarsson nemi: Já, svona þrisvar sinnum á ári. Mér fmnst það geðveikislega gott. Helena Jónsdóttir, atvinnulaus: Já, svona einu sinni til tvisvar á ári. Finnur Guðlaugsson nemi: Já, alltaf á sprengidag. Siggeir Siggeirsson nemi: Já, mér finnst þaö svona allt í lagi. Lesendur ísraelsför forsætisráðherra Konráð Friðfinnsson skrifar: Háttvirtur forsætisráðherra fór í opinbera heimsókn til ísraels á dög- unum. Víst má segja að hún hafi mælst fremur illa fyrir hjá mörgum. Þó tók fyrst steininn úr í hneykslan þeirra er það fréttist að Wiesenthal stofnunin heíði afhent bréf við þetta tækifæri þar sem sagði að á íslandi byggi nú eftirlýstur „stríðsglæpa- maður“, eistneskur að uppruna. Svar ráðherra var á þá lund að máhð yrði kannað er hann kæmi heim. Ég vona svo sannarlega að af því verði, enda í allra þágu að slíkt verði gert. Margur landinn varð bæði sár og reiður og þótti að sér vegið og hafði uppi stór orð vegna framkomu Wiesenthal-manna. Kannski skutu þeir yfir markið þarna. Það er ekki enn upplýst. Á einu verða menn þó að átta sig í þessu máh. Umrædd samtök eru hvorki að eltast við skatt- svikara né heldur ómerkilega bfi- þjófa, svo að dæmi sé tekið, heldur menn er stóðu fyrir skelfilegustu af- brotiun mannkynssögunnar, þar sem útrýma átti heilli þjóð, afmá hana af kortinu. Gleymum þessu ekki. í ljósi þessa kem ég ekki auga á sekt samtakanna þótt þau komi þess- um upplýsingum sínum á framfæri þegar þeim þykir best henta. Og hve- nær gefst betra tækifæri en einmitt þegar erlendir þjóðhöfðingjar sækja „Auðvitað varð forsætisráðherra að Ijúka þessari vinaheimsókn, annað hefði verið með öllu ósæmandi." Símamynd Reuter þjóðir heim og umhverfið morar af fréttamönnum sem eru reiöubúnir að skýra frá hverju sem markvert þykir. Þessi samtök kunna einfald- lega að nýta sér mátt fjölmiðla tfi hins ýtrasta og gera það. Ég dáist að Davíð Oddssyni fyrir að hafa farið þessa för þrátt fyrir úrtöluraddir á Alþingi og viðar í þjóðfélaginu og því hve hann svaraði skynsamlega er fréttamaðurinn bar undir hann efni títtnefnds bréfs úti í ísrael. Og auðvitað varð forsætis- ráðherra að ljúka þessari vinaheim- sókn. Annað hefði verið með öhu ósæmandi. Að lokum: Hver sú þjóð sem lætur réttlætið ekki sigra er á hættulegri braut og sannleikurinn verður að ná fram að ganga. Sama hver í hlut á. Lýsi eftir tillögum um uppbyggingu S.J. skrifar: Það fer ekkert á milh mála að ís- lendingar þurfa á framsýnum og dugmiklum stjórnmálamönnum að halda nú sem aldrei fyrr, allt frá stofnun lýðveldisins. Atvinnuleys- isvofan er ekkert til að grínast með og enn síður sú staðreynd að við verðum að hætta að eyða um efni fram ef við ætlum ekki að stefna sjálfstæði þjóðarinnar í hættu. Það ættu allir fuhorðnir menn og konur að skilja að ráðstafanir til að draga saman útgjöld eru aldrei vinsælar. Það hefur vakið mig til umhugsun- ar hvemig stjómarandstæðingar bregðast við aðhaldstfilögum ríkis- stjómarinnar nú þegar þjóðin þarfn- ast öðm fremur að stjórnarandstað- an sé ábyrg í máiflutningi sínum. Málflutningur t.d. alþýðubandalags- manna er áróðurskenndari en nokkru sinni og allt á þaö að vera fyrir þá sem minna mega sín því það er jú fallið til vinsælda að hengja utan á sig hjartað og húmanismann. Ef dýpra er skoðað má skfija að þörfin fyrir athygh og völd er drif- krafturinn en ekki sú hugsun að taka þurfi á erfiðum málum og styrkja þjóðina tfi að styðja þá í framtíöinni sem minna mega sín.. Afneitun er algjör og hræsnin sker í augun. Ég var að hugsa um þetta þegar Svavar Gestsson alþm. talaði um að hann heföi nú fundið út að það væri ekki rétt að við séum með dýrasta heil- brigðiskerfi í heimi. Niðurstöður sín- ar setti hann fram eins og þar talaði sá sem aht veit og að nú mætti öllum vera Ijóst að heflbrigðisráöherra aö væri vondur karl en ekki vel upplýst- ur og góöur eins og karlamir í flokks- eigendafélagi Alþýðubandalagsins. Þaö er ekki að ástæðulausu sem Jón Baldvin Hannibalsson kahar þetta fólk „besservissera“. Það er gott að geta vitað aht og skihð ekk- - ert. Auðvitað má deila um ahan sam- anburð en það er enginn stórisann- leikur tfi þarna. Það má ekki reka þetta þjóðfélag á sama hátt og Þjóð- vfijann. Þjóðin verður að sjá í gegnum svona óábyrgan málflutning þar sem allir hlutir eru shtnir úr samhengi. Ég lýsi hér með eftir uppbyggilegum tihögum um uppbyggingu þjóðfé- lagsins frá þingmönnum Álþýðu- bandalagsins, Kvennalistans og Framsóknarflokksins. Er nokkuð að marka þingmenn? Guðmundur Guðjónsson skrifar: í fréttum fjölmiðla sl. fimmtudag var eins og Mikson-máhð væri úr sögunni, atvinnuleysi væri ekki til lengur og kjara- og launamál væru ekki á borðinu. Það var komið upp nýtt mál. - Atkvæðagreiðsla Matthí- asar Bjamasonar á Alþingi fyrir flokksbróður sinn, Áma Johnsen. Þetta var útmálað sem eins konar sakamál og rætt um að Matthías kynni að þurfa að segja af sér. Og ekki bætti úr skák að hann var sagð- ur hafa greitt atkvæði fyrir Áma að honum forspurðum. Árni staðhæföi líka, aöspurður, að hann heföi aldrei ljáð máls á þvd hvað þá meir að Matt- hías ýtti á atkvæðagreiösluhnapp fyrir sig. Fiölmiðar og fréttamenn æstust því enn vdð þann framburð Matthías Bjarnason og Árni Johnsen alþingismenn. - „Var hér um einangr- að tilfelli að ræöa ...?“ Arna. Matthías hlaut því að vera ehi- ær eöa eitthvað annað verra. Svp komu seinni fréttir með vdðtah vdð Áma Johnsen. Að vísu símavdð- tal. Jú, Ami sagðist muna eftir „einu tfivdki11 þar sem hann heföi beðið Matthías að ýta á atkvæðagreiðslu- hnappinn. Það var þegar hann komst ekki í sæti sitt nema „klifra yfir“ borðin. Og það mátti ekki bíða með að ýta! - Enginn spurði Áma hvort hann heföi þá vísvdtandi skrökvað í fyrri yfirlýsingu sinni. Var hér um einangrað tilfehi að ræöa, eða em fleiri þingmenn undir sömu sök seld- ir? Og síðan hefur enginn vdljað spyija neins. Andstæðingar Matthí- asar jafnt og flokksbræður vfija ekk- ert af þessu máh vdta. Segja þetta ekki „stórvæghegt“, þetta sé upplýst mál og nú verði bara að ljúka upp- setningu atkvæðatölvubúnaðarins á Alþingi. Svo verði aht gott. - Kannski hefur Matthías bara verið að gera Alþingi greiða með því að ýta á hnapp fyrir annan. Nú verður veitt fjármagn til að ganga frá kerfinu. - En er nokkuð að marka þingmenn eftir þessa uppákomu? Nústandaþing- menn saman Ingibjörg Magnúsdóttir skrifar; Flestum þykir framkoma þing- manna einkennileg eftir að upp komst um einn þingmann Sjálf- stæðisflokksins sem greiddi at- kvæði fyrir fjarverandi flokks- bróður sinn. Þaö virðist algjör samstaða að þagga máhð niður. Varla er önnur skýring á þessu að minu mati en sú að fleiri þing- menn hafi stundaö þessa iðju, án þess aö upp hafi komist fyrr en núna. - Önnur léttvægari mál á Alþingi hafa orðið tflefni harka- legri viðbragöa af hálfu alþingis- manna. Að maður tah nú ekki um af hálfu andstæðra þing- manna. - En svona er nú sam- tryggingin á Alþingi eftir allt. Ekkispurtum Kristín skrifar: Vegna hins svonefnda Sand- gerðismáls þykir mér tímabært að spyija: Var ekkert mark tekið á vilja drengsins, sem er þó orð- inn 11 ára og er því ekkert ómólga barnlengur? Vildi hannekki vera hjá móður sinni? Mér heföi fund- ist bætt úr því sólartjóni, sem hann hefur orðiö fyrir, ef hann dveldi þar sem hann vdh vera og með móður sinni og systur. Móðirin var tilbúin íil að láta fylgjast með sér og vildi bæta úr og byggja upp framtíð sína með börnunum. Um leið og ég óska þessari htlu fjölskyldu alls góðs, hvet ég tfi frekari umræðu um þessi mál. Skömmað Sognmálinu Guðrún Ólafsdóttir skrifar: Þaö er nú búiö að fuhreyna manngæsku sumra sem reynt hafa að koma í veg fyrir að Sogn í Ölfusi verði gert að heimili fyrir ósakhæfa afbrotamenn. Ein- hveijir góðhjartaðir menn sendu inn tfiboð um að kaupa húsið tfi að reka þar hrossabúskap! - Megi þeim vel famast að láta sínar „andans truntur þeysa“ annars staðar um hlað en á Sogni. Önnur byggðarlögvdlja ljá þessu máh hð og íbúar þar eiga virðingu skihð fyrir skilning á máhnu. En málið hefur enn snúist í höndum Ölfus- hrepps og nú til varanlegrar lausnar, vonandi. Tröppurnar við Domus Medica Birgir Þorvaldsson skrifar: Ég þarf því miður stundum að fara til lækna í húsinu Domus Medica. Þá legg ég bílnum minum auðvitaö á bílastæðinu austan við húsið. Þegar hins vegar ég kem að tröppunum að húsinu eru þær ahtaf fuhar afsnjóog klaka þegar snjóað hefur í vetur. Ég furða mig á þvd hvort enginn húsvörður sé í þessu húsi eða hvort vesa- lings læknamir hafi ekki efni á þvri að láta þrífa þessar tröppur þegar snjóar. Eða er verið að leita eftir þvi að einhver bijóti sig þarna í tröppunum? Hvaðerrangt við plastkortin? Einar Siguijónsson hringdi: í frétt í Tímanum í dag (3. mars) er greint frá þvd að fjórðuhgur ahrar eyðslu Islendinga á sl. ári séútá plastkortín eins og þau eru nefhd í fréttinni Og við notum nú kortin tvöfalt meira en Amer- íkanar. - Ég spyr bara: Hvaö er rangt vdö plastkortin? Þetta er eitt það besta, sem hér hefur gerst i fjármálum okkar, að fá þessi kort. í landi dýrtíðar og óhóflegs vöruverðs em kortin hrein himnasending fyrir hinn al- menna neytanda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.