Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1992, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1992.
Fréttir
Teknirvið
innbrot í bíl
Flmm menn voru handteknir á
páskadagsmorgun þar sem þeir
voru að stela úr bíl við Sólheíma.
íbúi i götunni tilkynnti um þjóf-
ana og var lögregla fljót á vett-
vang. Tveir þjófanna voru inni í
bílnura og reyndu að taka úr hon-
um mælaborðið. Hinir þrír biðu
átekta í flóttabíl við hliðina.
Ókyrrð kom á mannskapinn
þegar lögregla birtist en þjófarnir
komust hins vegar hvergi. Þeir
tveir sem voru að stela maela-
borðinu höföu nefnilega lyklana
aðflóttabílnumívasanum. -hlh
Öivuní
miðbænum
Tðluverö ölvun var í miðbæ
Reykjavíkur eftir að skemmti-
staðir og ölkrár lokuðu á mið-
nætti aðfaranótt páskadags. Erill
var í miðborginni fram til klukk-
an tvö en þá höföu flestir haldiö
til síns heima.
Ölvun var einnig töluverð í
heimahúsum fram eftir nóttu og
þurfti lögregla oft að sinna kvört-
unumvegnagleðiglaums. -hlh
Ö]fusárbrúin:
Alveg lokuð til
20. maí
Ölfusárbrúnni var alveg lokað
í morgun og verður hún ekki opn-
uð aftur fyrir bílaumferð fyrr en
20. maí. Vinnuflokkar munu
vinna sleitulaust við endurnýjun
á aðalbrúargólfinu en endurbæt-
ur hafa þegar veriö geröar á því
þar sem brúin er yfir landí beggja
vegna árinnar. Frá og meö degin-
um í dag verður öll bílaumferð
því að fara um Óseyrarbrúna.
Gangandi vegfarendur munu þó
enn komast yfir Ölfusárbrúna.
Um helgina var bílaumferö
hleypt yfir brúna um eina akrein.
Aö sögn lögreglu gekk umferðin
yfír brúna óhappalítið en bílstjór-
ar stjórnuðu rennslinu að mestu
sjálfir. Engar meiri háttar biðrað-
ir raynduðust, mest 10-12 bílar.
Þorlákshöfh á annan 1 páskum:
Tveimur bjargað á
vélarvana smábát
Ása HF 154, sex tonna plastbátur,
var dregin til hafnar í Þorlákshöfn
um hádegisbil í gær eftir að hafa rek-
ið vélarvana vestur af Eyrarbakka í
vonskuveðri. Tveir menn voru um
borð og sakaði þá ekki.
Hafnarvörðurinn í Þorlákshöfn
heyrði kall frá Ásu klukkan 11.15 um
að báturinn ætti í erfiðleikum vestur
af Eyrarbakka en hann var á leiðinni
frá Stokkseyri til Þorlákshafnar. Vél-
in hafði drepið á sér og rak bátinn
stjórnlaust í vonskuveðri. Haft var
samband við Slysavamafélagið og
björgunarsveitin Mannbjörg frá Þor-
lákshöfn ræst út á björgunarbátnum
Draupni. Særún GK var nýfarin frá
Þorlákshöfn um þetta leyti og var
beðin um að fylgjast með Ásu þar til
björgunarbáturinn kæmi á vettvang.
Vegna slæms veðurs afréðu menn á
Særúnu að taka Ásu í tog og voru
komnir langleiðina til Þorlákshafnar
þegarDraupnirtókvið. -hlh
Tæplega fimm þúsund manns komu í Bláfjöll á páskadag en mun minna aðra daga en lokað var annan í páskum
vegna veðurs. Á meðal þeirra sem renndu sér á skiðum var Þuríður Sigurðardóttir sem hér aðstoðar dóttur sína,
Ellen Rögnu Pálsdóttur. DV-mynd JAK
Þorsteinn Hjaltason:
Aðeins góð
aðsókn á
páskadag
„Það var fremur dauf aðsókn hjá
okkur á skírdag og föstudaginn langa
enda ekki mjög bjart. Á laugardag
var ágætt veður en ekki mikið af fólki
og það var ekki fyrr en á páskadag
sem við fengum góða aðsókn. Það var
toppdagurinn og sennilega hafa verið
um fimm þúsund manns en það
dimmdi yfir upp úr hádeginu og þá
fór fólk að tínast heim. Annan í pásk-
um var leiðindaveður og allt lokað.
Það má því segja að við höfum orðið
fyrir vonbrigðum enda er það bara
páskadagur sem skilar sér og páska-
helgin sem slík kom ekki vel út fyrir
okkur,“ sagði Þorsteinn Hjaltason,
fólkvangsvöröur í Bláfjöllum, í sam-
tali við DV.
Fólkvangsvörðurinn segir að
reynslan sýni að margur skíðamað-
urinn pakki græjunum niður eftir
páska þótt alltaf séu einhverjir sem
vilja koma og hann minnti sérstak-
lega á að opið væri í Bláfjöllum á
næsta almenna frídegi landsmanna,
sumardeginum fyrsta.
-GRS
Merming__________
Himnasending
Á páskadag birtist á skjánum pýtt sjónvarpsleikrit
Allt gott eftir Davíð Oddsson í kvikmyndaleikstjóm
Hrafns Gunnlaugssonar.
Þetta er notaleg mynd úr hugarheimi bamsins, lituð
svolítilli eftirsjá eftir hðnum tíma. Þó að engin stórtíð-
indi gerist frá sjónarhóli hinna fullorðnu riíjar mynd-
in upp hálfgleymda tilfmningu fyrir einmitt svona
pælingum frá því að maður var krakki.
Lífið í þorpinu er alfarið sýnt frá sjónarhóli strák-
anna. Yfir myndinni er litblær gamalla ljósmynda og
ágætlega tekst að endurvekja minningu um þá kyrrð
sem aðeins var rofin af skrölti í stöku bílskrjóð sem
hlunkaðist um pollóttar götur. Það er líka kappkostað
að móta þorpsmyndina á sem raunsæjastan hátt og
ná fram andrúmslofti eftirstríðsáranna þegar erlendar
vörur vora svo sjaldséðar að þeim var líkt við himna-
sendingu þá sjaldan þær bárust.
Lítil atvik, sem fara alveg framhjá fullorðna fólkinu,
verða að stórtíðindum í huga strákanna en svo þegar
liggur við stórslysi láta þeir sér fátt um finnast.
Það lýsir líka vel vinnubrögðum og skilningi höfund-
ar á viðfangsefninu hvað honum tekst vel að sýna
hvernig bömin leggja hlutina út á sinn hátt þegar hin-
ir fullorðnu era að reyna að innræta þeim guðsótta
og góða siði.
„Allt gott kemur frá Guði,“ segir amma og auðvitað
skilur drengurinn það sem svo að hér sé rætt um gott-
erí. Og orð kaupfélagsstjórans um himnasendingu
gefur þeim félögum síðan hugmyndina um að biðja
Guö um að kasta niður til þeirra smáslatta af tyggjói
sem á þessum árum er æðst allra lífsins gæða.
Kvikmyndaleikstjómin byggir á sömu forsendum og
er gaman að virða fyrir sér ,verk Hrafns Gunnlaugs-
sonar sem er hér að æði langt frá hráum og kaldrana-
legum heimi stórmynda sinna. I þessari mynd gilda
hin fíngerðu vinnubrögð og leggst þar allt á eitt, hand-
rit, leikstjórn og falleg myndataka Ara Kristinssonar.
Litlu strákarnir, sem léku aöalhlutverkin, vora af-
slappaðir og elskulegir. Ragnar Nikulásson lék Jó-
hannes og Guðlaugur Hrafn Ólafsson Daníel'. Bjart
Leiklist
Auður Eydal
svipmót endurspeglar heiðríkju bamshugans og fram-
sögnin var eðlilegri en hjá fullorönu leikurunum sem
vora mun þvingaðri þó aö týpurnar væru ágætar.
Myndin stendur og fellur meö því að höfundunum
takist að lýsa atvikum án þess að lita þau einhvers
konar útlagningu frá sjónarhóli hinna fullorðnu.
Þetta fannst mér þeim félögum takast með ágætum
og þó að ekki sé farið með neinum brussugangi í mynd-
inni Allt gott skilur hún meira eftir en ýmsar þær
myndir sem átakanlega vantar kjarnann þrátt fyrir
miklar umbúðir.
Allt gott er sönn og einlæg. Notaleg og falleg mynd.
RÚV-sjónvarp sýndi: x
Allt gott
Sjónvarpslelkrit eftir Davið Oddsson
Stjórn kvlkmyndatöku og klipping: Ari Kristinsson
Tónlist: Hilmar Örn Hilmarsson
Leikmynd og búningar: Karl Júliusson
Hljóösetning: Július Agnarsson
Leikstjóri: Hraln Gunnlaugsson
Ölvaöir menn á sex tonna bát:
Strönduðu við
Eyrarbakka
Sex tonna bátur, Sigurveig ÁR195,
strandaði í skerjagarðinum austan
við Eyrarbakka að kvöldi skírdags.
Þrír menn voru um borð og var þeim
bjargað um borð í þyrlu Landhelgis-
gæslunnar, TF-Sif. Mennina sakaði
ekki en þeir eru grunaðir um ölvun.
Klukkan 22 á skírdagskvöld barst
tilkynning til loftskeytastöðvarinnar
í Vestmannaeyjum um að Sigúrveig
væri vélarvana rétt austan við Eyr-
arbakka og ræki að landi. Voru
björgunarsveitir í Þorlákshöfn, á
Eyrarbakka og Stokkseyri kallaðar
út. Hélt björgunarbáturinn Draupnir
strax af stað frá Þorlákshöfn. Þegar
hann kom á vettvang hafði Sigurveig
þegar strandað.
Vegna aðstæðna á strandstað
komst Draupnir ekki að Sigurveigu
og var því leitað aðstoðar þyrlu.
Björgunarmenn voru reyndar komn-
ir í Sigm-veigu á slöngubát frá landi
þegar þyrlan kom.
Sigurveig er ekki talin mikið
skemmd en henni var bjargað á flóð-
inu snemma á fóstudagsmorgun og
komiðtilhafnaráEyrarbakka. -hlh
Margbrotinn eftir
slys á vélhjóli
Ungur maður hggur illa slasaður
á Borgarspítalanum eftir slys á vel-
hjóh sínu við höfnina á Ákranesi
seinni partinn á páskadag.
Slysið varð með þeim hætti að
maðurinn kom akandi á hjólinu vest-
ur Faxabraut, sem hggur framhjá
Akraborgarbryggjunni. Smásveigur
er á götunni rétt .viö Akraborgar-
bryggjuna en maöurinn náði ekki
beygjunni. Ók hann á steyptan kant-
stein og steyptist af hjóhnu og niður
í grýtta fjöru. Lenti hann í flæðar-
máhnu en drengur, sem horft hafði
á slysið, kom fljótt til bjargar og gat
kallað á hjálp. Var flogið með mann-
inn á Borgarspítalann þar sem hann
gekkst undir aðgerð á fæti. Fótbrotn-
aði hann iha og mun einnig hafa
mjaömargrindar- og handleggs-
brotnað. Líöan hans er sögð eftir at-
vikumgóð. -hlh