Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1992, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1992, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1992. 7 Fréttir Mjólkursamlagið í Borgamesi: Tillaga um að hætta móttöku mjólkur „Á aðalfundinum kom fram tillaga sem fól meðal annars í sér að athug- uð yrði hagkvæmni þess að færa móttöku og vinnslu mjólkurinnar til annarra afurðastöðva og hvaða möguleikar kynnu að vera á nýtingu mjólkursamlagsins til annarrar starfsemi. Það urðu talsverðar deilur um þennan hluta tillögunnar," sagði Indriði Albertsson, mjólkursamlags- stjóri í Borgamesi. Indriði sagði að ljóst væri að alltof stórt húsnæði hefði verið byggt yfir mjólkursamlagið á sínum tíma. Þaö væri að hluta leigt út undir aðra starfsemi núna, svo sem pitsugerð og átöppun áfengis. „Ég tel að það sé ekki góður kostur að senda mjólkina í aðrar vinnslu- stöövar," sagði Indriði. „Við ættum að geta hagrætt með öðru móti. Við höfum tekiö inn ofangreindar auka- greinar til þess að hagræða og minnka fastan kostnað á mjólkinni. Það er sú leið sem við viljum láta reyna á hvort gengur upp.“ Indriði sagði að þessu umdeilda atriði hefði verið kippt út úr tillög- unni áður en hún var samþykkt á aðalfundinum síðasthðinn föstudag. Um 40 manns starfa nú við mjólk- ursamlagið í Borgamesi. Þar var tek- ið á móti 9,7 milljónum lítra af mjólk á síðasta ári en það er 4 prósenta aukning frá 1990. -JSS Þeir liggja hlið við hlið í fiskihöfninni á Akureyri og hafa lokið hlutverkum sínum, togarinn Sólbakur, sem Útgerðarfélag Akureyringa gerði út, og Þorsteinn sem var gerður út af Samherja. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa i upphafi verið gerðir út i Englandi og Sólbakur, sem áður hét C.S. Korester, kom m.a. við sögu hér við land i þorskastríðunum. DV-mynd gk -talandi dœmi um þjónustu! aahA SMÁAUGLÝSINGA / SÍMINN FYRIR Wfc# Wm LANDSBYGGÐINA TOYOTA SNUGTOP PALLHÚS • Amerísk Snugtop trefjaplasthús, meö tvö- földum einangruöum toppi og vel þétt. Opnanlegir hliðargluggar og litað gler. Hægt er að fá húsin klædd að innan og lituð frá framleiðanda. Frábært verð! Sérpöntum einnig hús á aðrar tegundir j pallbifreiða. | • Toyota toppgrindur, sterkar og notadrjúgar. I Passa á flestar jeppategundir. Úrvalsvara - aðaleinkenni Toyota aukahluta. Nýttu þér ráðgjöf okkar og sendingarþjónustu. (^) TOYOTA Aukahlutir NÝBÝLAVEGI 6-8 KÓP. SÍMI 44144

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.