Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1992, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1992.
Fréttir
Dómur í máli manns sem fannst með fíkniefhi 1 fórum sínum í Leifsstöð:
Karp um hassgramm
kostaði 100 þúsund
Gylfi KriatjánsaMi, DV, Aktueyri:
Banaslys varö á bænuui Leyn-
ingi í Eyjafjarðarsveit síðastliö-
inn miðvikudag er bóndinn á
bænum var að vinna við að dæla
úr haughúsi.
Bóndinn mun haTa fest í drif-
skaM við haugsuguna og látist
samstundis. Hann hét Indriði
Kristjánsson og var 29 ára gamall.
Akureyri:
Hæstiréttur hefur dæmt tæplega
þrítugan karlmann til greiðslu 16
þúsund króna í sekt og tæplega eitt
hundrað þúsund króna í málskostn-
að vegna innflutnings á tæplega einu
grammi af hassi. Hér er um einstakt
mál að ræða að því leyti að þrátt fyr-
ir mjög litlar sakargiftir fór málið
alla leið upp í Hæstarétt. Dómurinn
átaldi sakbominginn fyrir að hafa
haldið sjálfur uppi vömum fyrir hér-
aðsdómi með ósönnuðum stóryrðum
í garð fikniefnalögreglumanns.
Málavextir em þeir að umræddur
maöur kom með flugvél til Keflavík-
urflugvallar frá Kaupmannahöfn í
maí árið 1989. Við leit í tösku manns-
ins fundust 0,67 grömm af hassi í
buxum sem geymdar voru í tösk-
unni. Tveir embættismenn, tollvörð-
ur og maöur úr fiknefnadeild lögregl-
unnar, unnu saman að leitinni.
Þegar málið var sent dómara var
manninum boðin dómsátt vegna inn-
flutnings á hassinu - lágmarkssekt
upp á 16 þúsund krónur. En maður-
inn hafnaði sáttinni. Ríkissaksókn-
ari gaf síðan út ákæm. Fyrir héraðs-
dómi hélt maðurinn því fram að lög-
reglumaðurinn hefði einn leitað í
tösku sinni en tollvörðurinn komið
inn í leitarklefann þegar hann var
aö ljúka leitinni. Maðurinn bar á lög-
reglumanninn að hann hefði einung-
is þóst finna efnið í töskunni og síðan
með einhverjum ráðum fengiö toll-
vörðinn til að bera ljúgvitni. Þegar
Sakadómur í ávana- og fíkniefnamál-
um dæmdi manninn til að greiða
sekt upp á 16 þúsund krónur varð
maðurinn enn ósáttur og áfrýjaði til
Hæstaréttar.
Hæstiréttur taldi brot mannsins
sapnaö enda hefði ekkert komið fram
í málinu sem hefði dregið úr fram-
burði lögreglumannsins og tollþjóns-
ins í málinu. Þrír aðilar, sem sættu
sams konar leit og maöurinn, báru
alhr að embættismennimir hefðu
báðir leitað á þeim og í farangri
þeirra. Eins og að framan greinir
átaidi Hæstiréttur manninn fyrir
„ósönn stóryrði" í garð lögreglu-
mannsins.
Ströggl mannsins fyrir dómstólum
kostuðu hann tæplega eitt hundrað
þúsund krónur. I héraði var hann
dæmdur til að greiða tæplega 18 þús-
und krónur fyrir efnagreiningu og í
vottagjöld og í Hæstarétti var honum
gert að greiða 40 þúsund krónur í
saksóknaralaun og 40 þúsund í máls-
vamarlaun til skipaðs veijanda síns.
-ÓTT
Misheppnuð
tilraun til
bankaráns
Tveir menn vora handteknir eftir
misheppnaða tilraun til bankaráns á
Vesturgötunni á skírdag.
Lögreglunni barst tilkynning um
tilraun til bankaráns í útbúi Búnað-
arbankans við Vesturgötu klukkan
5.40 á skírdagsmorgun. Þegar lög-
regla kom á vettvang vora innbrots-
þjófamir á bak og burt. Þeir höfðu
náð að spenna upp glugga við bakdyr
bankans og opnuðu dymar innan
frá. Þjófarnir höfðu að vonum lítið
upp úr krafsinu þar sem allir pening-
ar bankans eru tryggilega geymdir í
peningaskápum. Þeir rótuðu engu að
síður í einni gjaldkerastúkunni.
íbúi í húsinu, þar sem bankaúti-
búiö er til húsa, hafði séö tvo menn
aka burt frá bankanum á rauðri
Mitsubishi Galant-bifreið og var þeg-
ar hafin leit að bílnum. Um sexleytið,
tuttugu mínútum eftir að tilkynning
um innbrot barst, handtók lögreglan
tvo menn á rauðri Galantbifreið á
mótum Hringbrautar og Fjólugötu. í
bílnum fundust ýmis hjálpartæki
sem innbrotsþjófar nota við iðju sína.
-hlh
Innbrotsþjófar höfðu ekkert upp úr krafsinu er þeir reyndu að ræna útibú
Búnaðarbankans við Vesturgötu snemma á skírdagsmorgun. Lögregluþjónn
bendir á glugga sem þjófarnir reyndu að spenna upp en án árangurs. Þjóf-
unum tókst hins vegar að spenna litla gluggann á bak við lörgegluþjónana
upp og opna bakdyrnar innan frá. DV-mynd S
hjá lögreglu
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuieyri:
„Það má segja að hér hafi verið
algjör ládeyða á öllum sviðum,
lítið um útköll og allt rólegt,“
sagði varðstjóri hjá lögreglunni á
Akureyri i gær.
Nokkrir voru teknir fyrir of
hraðan akslur. Þá urðu nokkrir
smávægilegir árekstrar en engin
slys. Talsvert var af fólki í mið-
bænum aðfaranótt skírdags og í
fyrrinótt en allt fór friðsamlega
fram og lögreglan þurfti lítil af-
skipti að hafa af því fólki.
Fjoldia
fjöllum
Magnús Ólafsson, DV, Húnaþingi:
Fjöldi manns var á Qöllum í
blíðviðrinu um páskana. Sérstak-
lega var veðrið gott á fóstudaginn
langa og páskadag. í stuttri flug-
ferð yfir húnvetnsku afréttirnar
á páskadag varð vart viö marga
vélsleða, skiðamenn og jeppa-
kappa. Til dæmis voru þrír bílar
á hraðferð upp Fljótsdrög á harö-
fenni og sex bílar voru sunnan
við Dúfunesfell og stefndu á
Hveravelli.
Á Hveravöllum var margt vél-
sleða og jeppa og þar i kring var
mikið um slóðir eftir íárartæki.
Norðar, á Auðkúluheiði, var hóp-
ur Blönduósbúa að leika sér á
sleðum og skíðum og einnig sáust
nokkrir vélsleðar áijallgaröinum
milli Húnaþings og Skagafjarö-
ar.
í dag mælir Dagfari
Síðasti geirfuglinn
—-----—
Islendingar fóra illa að ráði sínu
þegar þeir létu geirfuglana deyja
út. Síðasti geirfuglinn er stoppaður
upp og geymdur á Þjóðminjasafn-
inu. Eða Náttúragripasafninu.
Dagfari man það ekki, enda gildir
þaö einu. Geirfuglinn dó út. íslend-
ingar hafa líka gert lítið úr vernd
hvalanna og eru núna búnir að
stofna sérstök samtök Norðvestur-
landa til að heíja hvalveiðar á nýj-
an leik. íslendingar era sömuleiðis
á góðri leið með aö útrýma sauðk-
indinni og sagt er að niðurskurður
á sauðfé blasi nú við og stofninn
verði í hættu ef áfram er haldið á
sömu braut.
Sama má segja um þorskstofn-
inn, sem nú er í bráðri hættu vegna
ofveiði, og um páskana vora stofn-
uð sérstök samtök um þorskinn til
að mótmæla núverandi fiskveiði-
stefnu sfjómvalda, sem segir þá
sögu umhúðalaust að íslendingar
skeyta engu um merkileg náttúru-
fyrirbæri og heldur ekki um nytja-
stpfna.
íslendingar era sem sagt litiir
friðunarsinnar og hafa sjálfsagt
einhveija samvisku út af þessum
ofstopa sínum og drápsfýsn. Að
minnsta kosti er nú komin upp
hreyfmg á Alþingi að verrida Ey-
jólf Konráð. Fer vel á því, enda
Eykon hálfgerður geirfugl og
þeirra síðastur í hópi þingmanna
sjálfstæöismanna.
Að vísu má deila um hvort Eyjólf-
ur Konráð flokkist undir sérstakt
náttúrufyrirbæri eða nytjaspendýr
en hvort heldur sem er, vita menn
sem er aö ekki er mikið gagn af
Eyjólfi Konráð þótt hann verði
stoppaður upp og geymdur á safni
þegar dagar hans era taldir.
Aðdragandi þessa máls er sá að
forsætisráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins er ekki sáttur
við aö Eyjólfur Konráð sé formaður
utanríkisnefndar Alþingis. Davíö
vildi.annan mann fyrir formann
en réð ekki við ofureflið þegar
stjórnarandstaðan gerði það að
skepnuskap sínum að greiða at-
kvæði með Eyjólfi þegar formaður
var kjörinn í nefndinni. Forsætis-
ráðherra hefur þar af leiðandi not-
að hvert tækifæri til að ganga fram
hjá Eyjólfi þegar utanríkismál era
á dagskrá og nú er það nýjast að
forsætísráðherra vill stofna sér-
staka nefnd til að fjalla um Evrópu-
mál. Lét hann þau orö falla fyrir
nokkrum dögum og mátti þá ljóst
vera að nú átti að ganga á milli
bols og höfuðs á Eykon, sem nýtur
ekki vemdar eða friðunar hjá þeim
sjálfstæðismönnum frekar en önn-
ur spendýr eða sjaldgæfar fuglateg-
undir. Þó er Eyjólfur Konráð Jóns-
son meðlimur í þingflokki sjálf-
stæðismanna og þingflokkurinn á
að fara nærri um verðmætin í Ey-
jólfi og þann skaða sem íslenskt
dýraríki og stjómmálalíf bíður ef
hans nýtur ekki við.
Stj órnarandstaðan hefur bragð-
ist hart við. Ingibjörg Sólrún segist
ekki láta bjóða sér þá framkomu
að ganga fram hjá Eyjólfi og utan-
ríkisnefnd og sama segir Ólafur
Ragnar Grímsson fyrir hönd Al-
þýðubandalagsins. Ekki er annað
vitað en Framsókn sé sama sinnis
og engir þessara flokka hyggjast
gefa kost á sér í Evrópunefnd og
sniðganga þannig formann utan-
ríkisnefndar. Þeir vilja vernda Ey-
kon!
Eyjólfur Konráð segir í samtali
við sjónvarpið að hann taki ekki
mark á forsætisráðherra. Þetta
með Evrópunefndina hafi verið
sagt í ógáti og af einhverjum mis-
skilningi.
Það era einmitt þessi ummæh
sem gera Eyjólf Konráð svo sér-
stæðan. Hann veit hvenær forsæt-
isráöherra talar í ógáti og hvenær
ekki. Eykon er meðvitaður um sér-
stöðu sína og stjórnarandstaðan
vill friða Eykon. Hún vill ekki láta
útrýma Eyjólfi Konráð frekar en
geirfuglinum og sem betur fer
gengu páskamir í garð og Eyjólfur
hélt lífi yfir hátíðina og forsætis-
ráðherra hefur fengið ráðrúm til
að hugsa sig um og átta sig á því
að hann hefur talað í ógáti.
Vonandi leysist þetta mál með
friði. Og friðun. Vonandi þarf ekki
að stoppa Eykon upp, af því sjálf-
stæðismenn láta hann flakka í ógá-
ti án þess að huga að verndun og
friöun þeirra náttúrufyrirbæra
sem þrífast enn í flokki þeirra.
Vonandi stendur Alþingi Islend-
inga vörð um síðustu fuglana á
þingi og leyfir þeim að fjalla um
Evrópumálin í friði. Hvaða gagn
er líka af því að auka Evrópusam-
starf ef íslenska þjóðin hefur á
sama tíma fórnað öllum þeim sjald-
gæfu tegundum sem hafa gert hana
aö svo merkilegri þjóð?
Dagfari