Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1992, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1992.
7
Fréttir
Mjólkursamlagið í Borgamesi:
Tillaga um að
hætta móttöku
mjólkur
„Á aðalfundinum kom fram tillaga
sem fól meðal annars í sér að athug-
uð yrði hagkvæmni þess að færa
móttöku og vinnslu mjólkurinnar til
annarra afurðastöðva og hvaða
möguleikar kynnu að vera á nýtingu
mjólkursamlagsins til annarrar
starfsemi. Það urðu talsverðar deilur
um þennan hluta tillögunnar," sagði
Indriði Albertsson, mjólkursamlags-
stjóri í Borgamesi.
Indriði sagði að ljóst væri að alltof
stórt húsnæði hefði verið byggt yfir
mjólkursamlagið á sínum tíma. Þaö
væri að hluta leigt út undir aðra
starfsemi núna, svo sem pitsugerð
og átöppun áfengis.
„Ég tel að það sé ekki góður kostur
að senda mjólkina í aðrar vinnslu-
stöövar," sagði Indriði. „Við ættum
að geta hagrætt með öðru móti. Við
höfum tekiö inn ofangreindar auka-
greinar til þess að hagræða og
minnka fastan kostnað á mjólkinni.
Það er sú leið sem við viljum láta
reyna á hvort gengur upp.“
Indriði sagði að þessu umdeilda
atriði hefði verið kippt út úr tillög-
unni áður en hún var samþykkt á
aðalfundinum síðasthðinn föstudag.
Um 40 manns starfa nú við mjólk-
ursamlagið í Borgamesi. Þar var tek-
ið á móti 9,7 milljónum lítra af mjólk
á síðasta ári en það er 4 prósenta
aukning frá 1990.
-JSS
Þeir liggja hlið við hlið í fiskihöfninni á Akureyri og hafa lokið hlutverkum
sínum, togarinn Sólbakur, sem Útgerðarfélag Akureyringa gerði út, og
Þorsteinn sem var gerður út af Samherja. Þeir eiga það sameiginlegt að
hafa i upphafi verið gerðir út i Englandi og Sólbakur, sem áður hét C.S.
Korester, kom m.a. við sögu hér við land i þorskastríðunum. DV-mynd gk
-talandi
dœmi um
þjónustu!
aahA SMÁAUGLÝSINGA
/ SÍMINN FYRIR
Wfc# Wm LANDSBYGGÐINA
TOYOTA
SNUGTOP
PALLHÚS
• Amerísk Snugtop trefjaplasthús, meö tvö-
földum einangruöum toppi og vel þétt.
Opnanlegir hliðargluggar og litað gler.
Hægt er að fá húsin klædd að innan og
lituð frá framleiðanda. Frábært verð!
Sérpöntum einnig hús á aðrar tegundir
j pallbifreiða.
| • Toyota toppgrindur, sterkar og notadrjúgar.
I Passa á flestar jeppategundir.
Úrvalsvara - aðaleinkenni Toyota aukahluta.
Nýttu þér ráðgjöf okkar og sendingarþjónustu.
(^) TOYOTA
Aukahlutir
NÝBÝLAVEGI 6-8 KÓP. SÍMI 44144