Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1992, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1992.
Time birtir nýjar sannanir um Lockerbietilræðið:
Sýrlenskur smyglari
kom sprengjunni fyrir
Bandaríska timaritíð Time skýrir
frá því í nýjasta tölublaði sínu að
nýjar sannanir bendi til að sýrlensk-
ur eiturlyfjasmyglari hafi átt þátt í
því að koma sprengju um borð í vél
Pan Am flugfélagsins sem sprakk
yfir Lockerbie á Skotlandi árið 1988.
Time sagði að sprengjutilræðinu
hefði verið beint gegn sex farþegum
vélarinnar sem unnu fyrir banda-
rísku leyniþjónustuna, CIA.
Blaðið sagði að sexmenningamir
hefðu verið á leiö heim til Bandaríkj-
anna til að fletta ofan af eiturlyija-
smyglaranum þegar vélin var
sprengd í loft upp með þeim afleiö-
ingum að 270 manns fórust.
Stjómvöld í Bandaríkjunum og
Bretlandi hafa sakað tvo Líhíumenn
um sprengjutilræðið og krafist fram-
sals þeirra. Líbíustjórn hefur ekki
sinnt því og varð það til þess að Sam-
einuðu þjóðirnar komu á víðtækum
refsiaðgerðum gegn Líbíu í síðustu
viku.
Blaðamenn Time rannsökuðu mál-
ið í fjóra mánuði og komust þeir að
þeirri niðurstöðu að palestínski
skæruliðaforinginn Ahmed Jibril
væri viðriðinn máhð. Hann er undir
verndarvæng Sýrlendinga.
Time sagði aö skæruliðahópur
Jibrils kynni að hafa komið sprengj-
unni fyrir með aðstoö Monzers al-
Khassars, sýrlensks eiturlyfjasmygl-
ara. Khassar var í sambandi við hóp
innan CLA sem stundaði eiturlyíja-
smygl og vopnasölu til að komast í
samband við hópa hryðjuverka-
manna.
Reuter
Skjótvirkur stíflueyóir
Eyðir stíflum
fljótt
• Tuskur
• Feiti
• Lífræn efni
• Hár
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
TillúiH
SlíflU
eyðir
Utsölustaóir:
Þjónustustödvar ^ —
Shell og helstu byggingavöruversl-
anir.
Dreifing: Hringás ht.
s. 77878,985-29797.
UtLönd
Bandaríkin og EB hóta
slitum við Júgóslavíu
Stjórnvöld í Serbíu vísuðu í morg-
un á bug gagnrýni Bandaríkjastjóm-
ar á þætti Serba í bardögunum í
Bosníu-Hersegóvínu eftir að stjórnin
í Washington og Evrópubandalagið
sögðu að þau íhuguðu að slíta stjórn-
málasambandi við Júgóslavíu.
Slobodan Milosevic, forseti Serbíu,
sagði Ralph Johnson, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, sem er
í heimsókn í Belgrad, að ásakanir
Bandaríkjamanna um að Serbar
væra að reyna að leggja undir sig
landsvæði í Bosníu væru tilhæfu-
lausar.
Hann sakaði bandarísk stjórnvöld
um að reyna að ná fram eigin
markmiðum með því að beita þrýst-
ingi.
Embættismenn Bandaríkjanna og
Evrópubandalagsins kenndu Serb-
um í gær um margra vikna bardaga
milh þjóðarbrotanna í Bosníu og
sögðu að bandarísk stjórnvöld og
lönd Evrópubandalagsins væru að
íhuga að slíta stjórnmálasambandi
við Júgóslavíu.
Meira en tvö hundruð manns hafa
fallið og ehefu hundruð er saknað
eftir sex vikna bardaga Serba við ísl-
amstrúarmenn og Króata í Bosníu
sem vhja sjálfstæði lýðveldisins.
Reuter
Búist við að skæruliðar fái völdin í Afganistan:
Najibullah forseti
f lúinn til Indlands
Benon Sevan, sérlegur sendimaður
Sameinuðu þjóðanna í Afganistan,
sagði í gær að stjórn skæruhða
mundi líklega taka við völdum í Afg-
anistan og að hann ætlaði að yfirgefa
Kabúl í dag til friðarviðræðna utan
höfuðborgarinnar.
„Framtíð þjóðarinnar og landsins
er í veði,“ sagði Sevan þegar hann
hitti fréttamenn í fyrsta skipti í gær
frá því hann kom á laun til Kabúl á
fimmtudag eftir flóttatilraun Naji-
bullahs Afganistanforseta sem hafði
verið steypt af stóh.
„Ef Afganar vilja fá stjórn skæru-
liða er það þeirra val. Það virðist
vera víðtækur stuðningur fyrir þess-
ari hugmynd.“
Á sama tíma og Sevan hélt frétta-
mannafundinn var tahð að Naji-
bullah væri að undirbúa brottfór
sína frá landinu eftir að stjórnin
heimilaði honum að fara. Talið er að
hann muni fara th Indlands og hafa
stjórnvöld þar undirbúið komu hans.
Najibullah var rekinn úr embætti
af eigin ríkisstjórn á fimmtudag og
hann hefur hafst við á skrifstofum
Sameinuöu þjóðanna frá því að kom-
ið var í veg fyrir flótta hans á Kabúl-
flugvelli.
Frá því að forsetinn var settur af
hefur það sem eftir er af stjórn Afg-
anistans misst yfirráð yfir öhum
helstu borgum landsins nema Kabúl.
Valdatakan fór að mestu friðsamlega
fram þar sem stjórnarhermenn
hlupu undan merkjum eða þá að yfir-
menn hersins í borgunum gerðu
samninga við skæruliða.
Ahmad Shah Masood, annar helsti
skæruhðaforingi Afganistans, sem
nýtur mikhla vinsælda í Kabúl, sagði
fréttamönnum í síðustu viku að hann
vildi koma á bráðabirgðastjórn
skæruliða sem gæti efnt til almennra
kosninga innan hálfs til eins árs th
að kjósa íslamska stjórn. Hann féhst
á það í viðræðum við utanríkisráð-
herra Afganistans að ráðast ekki á
höfuðborgina á meðan friðarviðræð-
ur færu fram.
Heimildarmenn innan stjórnar-
flokksins sögðu að stjórnin væri
reiðubúin að afhenda skæruhðum
völdin svo fremi sem harðhnumenn
Gulbuddins Hekmatyars, hins helsta
skæruliðaforingjans, yrðu ekki alls-
ráðandi.
Hekmatyar er af ættflokki Pash-
túna sem hafa ráðið yfir Afganistan
um aldaraðir. Hann er svarinn óvin-
ur Masoods sem er af ættbálki Taj-
ika.
Sveitir Hekmatyars eru fyrir sunn-
an Kabúl og i gær gaf hann stjórn-
inni frest til næsta sunnudags til að
gefast upp ellegar yrði ráðist á borg-
ina. Stjórnarerindrekar efast þó um
að hann haii næghega marga menn
undir vopnum til að ógna höfuðborg-
inni. Reuter
STOÐVUM BILINN
ef viö þurfum aö
tala ■ farsímann!
U^oF
IFEROAR
Afganskir hermenn á leið vestur fyrir Kabúl til að verja borgina fyrir hugsan-
legum árásum skæruliða. Símamynd Reuter
F ALLE
Fimmta kynslóðin af Civic hefur
litið dagsins ljós. Við fyrstu kynni
vekja glæsilegar línurnar athygli,
nánari kynni upplýsa um tækni-
lega kosti og yfirburðahönnun.
Civic árgerð 1992 er til sýnis að
Vatnagörðum 24, mánudaga til
föstudaga kl. 9:00 - 18:00 og
laugardaga kl. 11:00- 15:00.
Nánari upplýsingar eru veittar í
síma 68 99 00
Verð frá: 949.000,- stgr.
Greiðslukjör við allra hæfi.
MITSUBISHI
M-54 riICAM HI-FI STEREO
4 hausa, 8 tíma upptaka/afspilun (long play)
Fjögurra hausa tæki með long play, 8 tíma úpptöku/afspilun, skipanir á skjá. l-ullkomin Kyrrmynd.
Nicam Hi-Fi stereo. Swift servo gerir alla þræðingu og hraðspólun mun hraðvirkari og betri. Skipanir
á skjá, digital tracking. Intelligent picture nær því besta úr gömlum myndböndum. Ýmsir leitunarmögu-
leikar, svo sem punktaleitun (Index), timaleitun. Barnalæsing o.fl.
Sértilboð kr. 49.950 stgr.
ÞETTA FÆRÐU HVERGI NEMA í HLJÓMCO j
Afborgunarskilmálar VÖNDUÐ VERSLUN
QE SS (M) HUÓMC®
FÁKAFENI 11 - SÍMI 688005