Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1992, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1992.
11
Utlönd
Annie Lennox og David Bowie sungu saman á minningartónleikunum um
Freddie Mercury, söngvara bresku rokksveitarinnar Queen, á Wembley-
leikvanginum í London í gær. Simamynd Reuter
Rokkað á Wembley:
Bless Freddie
SPARIÐ BENSÍN
AKIÐ Á
GOODjfÝEAR
Tugþúsundir rokkaðdáenda
minntust breska poppsöngvarans
Freddies Mercury sem lést úr eyðni
í nóvember í fyrra á tónleikum sem
haldnir voru á Wembley-leikvangin-
um í London. Tæplega eitt hundrað
tónlistarmenn komu þar fram og var
viðburðinum sjónvarpað beint til
meira en sjötíu landa.
„Bless Freddie, við munum sakna
þín,“ stóð letrað á borða yfir leik-
vanginum þar sem 72 þúsund manns
voru samankomnir.
Tónleikunum var einnig ætlað að
vekja menn til vitundar um sjúk-
dóminn sem varð Freddie Mercury
að aldurtila, aðeins 45 ára gömlum.
„Þetta þurfti ekki að gerast, þetta
átti ekki að gérast. Ekki láta það ger-
ast aftur,“ sagði leikkonan Elísabet
Taylor við mannfjöldann og hvatti
ungt fólk til að stunda öruggt kynlíf.
Margir fremstu popptónbstarmenn
samtímans komu fram á tónleikun-
um og má þar nefna Elton John,
Paul Young, Roger Daltrey og George
Michael sem lögðu í það erfiða verk-
efni að syngja mörg vinsælustu laga
Freddies Mercury og félaga hans í
Queen, lög eins og Bohemian
Rhapsody og Radio GaGa. Þá fór
David Bowie með Faðirvorið.
Góðgerðarstofnanir, sem sinna
eyðnisjúkhngum, búast viö að fá
hundruð þúsunda doUara í áheit auk
hagnaðarins af miðasölunni og sölu
alls kyns varnings á tónleikunum.
Tónleikarnir stóðu í hálfa fimmtu
klukkustund og lauk þeim með flug-
eldasýningu og leik Queen á breska
þjóðsöngnum.
Reuter
Nektarmyndir af Díönu
og Fergie teknar niður
Listaklúbburinn Chelsea Arts
Club í London skýrði frá því um helg-
ina að ákveðið hefði verið að taka
niður vatnsUtamyndir sem sýndu
nokkra meðUmi konungsfjölskyld-
unnar kviknakta. Þetta var gert eftir
að frétt um sýninguna í æsiblaðinu
Sun vakti mikla reiði.
Blaðið sagði eina myndanna vera
af Elísabetu drottningu sem héldi á
handtösku á hernaðarlega mikilvæg-
um stað. Þá birti blaðið mynd af
málverki af afturendum Díönu
prinsessu og Söru Ferguson sem að-
eins eru íklæddar barðastórum hött-
um og skóm.
Hugh Gilbert, formaður klúbbsins,
sagði að myndirnar, sem eru eftir
Ustamanninn Don Grant, hefðu verið
teknar niður vegna umtalsins og
ekki væri ákveðið hvort þær yrðu
hengdar upp að nýju. Hann sagði að
myndirnar hefðu hlotið misjafnar
viðtökur klúbbfélaga en enginn hefði
þó mótmælt þeim.
Konungssinnar úr íhaldsflokknum
sögðu að myndirnar væru móðgun.
Meðal félaga í klúbbnum er einn
frændi drottningar, svo og frammá-
menn í menningarlífi Lundúna.
Reuter
Morðingi fær gálgafrest
Bandarískur áfrýjunardómstóU
frestaöi snemma í morgun aftöku
morðingjans Roberts Altons Harris í
gasklefa Kalifomíufylkis, tæpum
tveimur klukkustundum áður en
hún átti aö fara fram.
Mannréttindasamtök höfðu dregið
í efa að aftaka í gasklefa stæðist
stjórnarskrá Bandaríkjanna.
Harris var fundinn sekur um morð
á tveimur ungum piltum árið 1979
og átti aftaka hans að verða sú fyrsta
í Kaliforníu í 25 ár.
Lögfræðingar Kalifomíufylkis
áfrýjuðu úrskurði dómstólsins til
hæstaréttar Bandaríkjanna í Was-
hington en lögfræðingar sögðu óvíst
hvort máUð yrði tekið fyrir áður en
fyrirhuguð aftaka átti að fara fram.
Reuter
FRUMSYNIR PASKAMYNDI
HETJUR HÁLOFTANNA
ÞrælQörug gaman- og spennumynd um Ieikara sem á að taka að sér ,,’Top Gun“
hlutverk i mynd. Hann er sendur í lærí til reyndasta flugmannsins á þessu svíði.
Útkoman er keimlik þeirri hjá MichaelJ. Foxer hann sóttí skóla hjájames Woods.
Aðalhlutverk: Míchael Paré og Anthony Míchael Hall.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.