Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1992, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1992.
13
Sviðsljós
VerkNínu Sæmundsson
sýnd í listasafninu
Fyrir skemmstu var opnuö sýning
á höggmyndum Nínu Sæmundsson í
Listasafni íslands. Höggmyndirnar
eru allar í eigu Listasafnsins. Nína
lést áriö 1965 og arfleiddi Listasafnið
af fjölda verka sinna. Sýningin er
haldin í tilefni þess að 100 ár eru lið-
in frá fæðingardegi hennar.
Á sýningunni er, auk höggmynd-
anna, greint frá lífi og hst Nínu í
máh og myndum, m.a frá því þegar
aðför var gerð að styttu hennar, Haf-
meyjunni, sem sprengd var í loft upp
á nýársnótt 1960.
Nína bjó um þrjátíu ára skeið í New
York og Hollywood og öðlaðist þar
frægð og frama. Nafn hennar var
sveipað ævintýraljóma hér heima. Á
sjötta áratugnum ferðaðist hún um
Evrópu og kom heim til íslands seint
á áratuginum.
Verk Nínu vöktu ekki mikla hrifn-
ingu á íslandi þegar þau komu fyrst
fyrir sjónir Ustgagnrýnenda. Nína
bjó síðustu æviár sín í lítilli íbúð við
Þórsgötu við fremur kröpp kjör. Hún
hafði enga aðstöðu til að vinna að
höggmyndum og hélt sig því nær ein-
göngu við málaraUstina.
Sigriður Hinriksdóttir, Sigurbjörg Sighvatsdóttir, og Elínbjörk Bjarnadóttir
virða fyrir sér eina af höggmyndum Nínu. DV-myndir GVA
Afstæði
- Rúrí á Kjarvalsstöðum
Rúrí, sem sýndi í austursal Kjarvalsstaða, er einn þeirra formlista-
manna sem hafa tengst hugmyndalistinni og NýUstasafninu. Þótt verk
hennar og Helga Gíslasonar í vesturendanum byggist á ólíkum forsendum
hafa þau bæði gert sér mat úr forgengileikanum sem myndefni. Hvað
Rúrí varðar nægir að nefna útilistaverk sem hún setti upp á torgum í
Kaupmannahöfn, Helsinki og Malmö fyrir fáum árum. Þetta voru tilbún-
ar rústir, hannaðar eftir gömlum byggingum í grennd og eru á Kjarvals-
stöðum tíl sýnis möppur með vinnuteikningum og ljósmyndum af þessum
verkum. Annars byggist sýning Rúríar að þessu sinni á afstæðishugtak-
inu en Ustakonan skýrir það svo í sýningarskrá: „AUt er afstætt. Það fer
eftir því hvaðan horft er, hvenær, og hver það er sem horfir, hvernig
menn skynja tilveruna. Þannig getur einfalt gUdi eins og „metri“ tekiö á
sig hinar óUkustu myndir.“
Blý, tommustokkar og núll
Til þess að túlka afstæði í tíma og rúmi teflir Rúrí saman óforgengilegu
blýi með ofurviðkvæmt yfirborð sem ætist við minnstu snertingu og tom-
mustokkum í ýmsum uppstilUngum. Blýið er í meðforum Rúríar sannferð-
ugur holdgervingur tíma og rúms sem maðurinn markar spor sín í ef
hann fer ekki eftir reglunum(I). Tommustokkurinn er þannig vopn manns-
ins og viðleitni til að skrásetja blýið, tímann eða rúmiö. Hann er einnig
hugsanlega tákn mannsins, sé mælieiningin „maður" hér sett fram í víð-
ara samhengi en á sýningu listakonunnar í Nýlistasafninu í desember.
Rúrí kveðst líta á Ust sína sem heimspeki og ér það í samræmi við hefð-
ir hugmyndalistarinnar og póstmódernismans. Því til enn frekari árétting-
ar tekur hún fyrir núllhugtakið og útfærir sem myndtákn; við hlið tommu-
stokksins er mót af honum greypt í blýið - neikvæð mynd hans; núll.
Heildin ofar hinu einstaka
Sýning Rúríar hafði sterkan heUdarsvip, heildin ofar hinu einstaka og
rennir þaö enn frekar stoðum undir hið huglæga, heimspekilega gUdi Ust-
arinnar ofar hlutlægu skreytigildi. Blýið hefur þó tvímælalaust fegurðar-
gildi og eru öll litbrigði þess í verkinu „Fimmtíu metrar“ gott dæmi um
það. Sýning þessi var ítarlegt og rökrétt framhald sýningar Rúríar í Ný-
listasafninu í desember og nú er að sjá hvar tommustokkarnir lenda
næst á vegferð sinni um ómæUsgeiminn.
Myndlist
Ólafur Engilbertsson
Olafur Jóhann Olafsson, rithöfundur
og framkvæmdastjóri hjá Sony, og
móðir hans, Anna Jónsdóttir, á
spjalli við sýningargesti.
Nína Sæmundsson vinnur við upp-
runalega gerð hafmeyjunnar í Holly-
wood 1944 til 1947. Önnur útgáfa var
síðan sett upp í Tjörninni, en var
sprengd í tætlur á nýársnótt 1960.
Ekki hefur sannast hver þar var að
verki.
It
LnJ
MYNDBANDSTOKUVÉLAR
ALSJÁLFVIRKAR
HI-FI STEREO 6XZOOM 4 LUX
FJARSTÝRING
VEGUR AÐEINS 0,590 KG
SÉRTILBOÐ KR. 64.950 STQR.
Afborgunarskilmálar
* m or
VÖNDUÐ VERSLUN
HUÖM®
FÁKAFEN 11 — SfMI 688005
Meimiiig
\£ShiJÍMSA& Tissues
MÝKT ER OKKAR STYRKUR
HEILDSOLUB. JOHN LINDSAY H.F.
DANSSKOLI HERMANNS RAGNARS
HRAÐNAMSKEIÐ, 6 eða 8 vikur, íhagnýtum
samkvæmisdönsum, létt og skemmtilegt, hefst
þriðjudaginn 28. april í Faxafeni 14.
AÐEINS FULLORÐNIR, einstaklingar og pör.
Mæting einu sinni eða tvisvar í viku, allt eftir ykkar óskum.
Innritun hefst í dag í síma 68 74 80 - 68 75 80 og 36141.
Hringdu strax og komdu með í hópinn. Takmarkaður fjöldi. Athugað verður
með flokka fyrir byrjendur og framhald.
Skrifstofan er opin alla virka daga frá kl. 13-19.
Tn/gging jydr réttri tilsögn í dansi
DANSKENNARASAMBAND ISLANDS
<><>Q
DANSINN LENGIR LÍFIÐ
Tryggðu filmunum
þínum
gœðaframköllun
hjá okkur.
HANS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI - GLÆSIBÆ - AUSTURVERl
KRINGLUNNI - LYNGHALSI - LAUGAVEGI 178 - HOLAGARÐI