Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1992, Qupperneq 17
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1992.
17
Veiðivon
Ferðir til Suð-
vestur- Grænlands
í bleikjuveiði
Sviðsljós
Þessir hressu krakkar heita Ingi Júliusson, Jórunn Jónsdóttir og Berglind
Bragdóttir.
Fjör í Fjörgyn
„Þaö er eingöngu bleikja sem veið-
ist þarna í Suðvestur-Grænlandi, ai-
geng stærð er 0,5 til 4 pund. Þessar
ferðir verða í ágúst og september,"
sagði Bjarni Olesen á Selfossi í vik-
unni en hann hefur ákveðið að bjóða
upp á veiðiferðir til Grænlands í
sumar.
„Það er um að ræða veiöi á sjó-
bleikju sem veiðist í ám og vötnum
og ekki síst í sjó framan við lækjar-
og árósa. Náttúra Grænlands er ægi-
fógur og stórbrotin, veðurfar betra
en geröist hér að sumri til. Fyrirhug-
að er að ferðin standi í sex daga. Flog-
ið er til Grænlands og lent í Narss-
arssuaq, síðan er siglt til Narsak, sem
er 1800 manna bær utan við Eiríks-
fjörð. Menn koma sér síðan fyrir í
svefnpokaplássum í húsum sem við
höfum þar til umráða. Verð slíkrar
ferðar er 65 þúsund, flug fram og til
baka frá íslandi. Bátur er til afnota
alla dagana, veiðileyfi og leiðsögu-
maður. Það geta 10 komist í hveija
ferð,“ sagði Bjami ennfremur.
-G.Bender
Áskoruntil
skotveiði-
manna
Tími farfuglanna er runninn
upp. Nú eru farfuglarnir, stórir
og smáir, á leið eða komnir yfir
hafið til varpstaðá og sumar-
heimkynna hér á landi eða með
viðkomu hér á leið enn lengra
norður á bóginn.
Að gefnu tilefni vill Skotveiðifé-
lag íslands vinsamlegast hvetia
alla skotveiðimenn til að virða
skráðar og óskráðar siðareglur
og lög sem banna dráp gæsa á
vorin.
Viljum við sérstaklega vekja
athygli á helsingjum og btesgæs,
sem hafa hér viðkomu á leið sinni
til Grænlands, en rannsóknir
sýna að stofninn má ekki við
frekari affóllum en orðið er.
Veiðimenn - virðum lifríkið.
Einhver
hundruð af
gæsum drep-
in á hverju
vori
„Gæsaveiði að vori til hefur
verið mikið vandamál í mörg ár.
Einhver hundruö af gæsum eru
drepin á hvetju vori,“ sagði Sver-
ir Sch. Thorsteinsson, varaform-
aður Skotveiöifélags íslands, i
vikunni.
„Það verður að stemma stigu
við þessum ófógnuði, þetta eru
Ijót morð,“ sagði Sverrir enn-
fremur. -G.Bender
Páskaball var haldiö í Félagsmiö-
stöðinni Fjörgyn i Grafarvogi um síð-
ustu helgi. Stóðu unghngamir að
öUu leyti á bak við undirbúninginn
og framkvæmdina en hópur frá fé-
lagsmiðstöðinni er á leiðinni til
Wales. BaUið var haldið í fjáröflunar-
skyni og fengu þau ýmsar gjafir og
framlög frá fyrirtækjum jafnt sem
einstakUngum.
Skemmtiatriðin voru fjölbreytt og
nemendur úr Ölduselsskóla komu í
heimsókn. Húsið var faUega skreytt
og greinilegt að mikil vinna var lögð
í verkið. Hægt var að vinna vegleg
verðlaun fyrir ýmsar þrautir, m.a
páskaegg og snyrtivörur.
Krakkarnir í Fjörgyn eru á leið til
Wales að heimsækja jafnaldra sína
þar. Þau dveljast í eins konar sumar-
búðum þar sem mikil áhersla er lögö
á útivist. Þau fara tU dæmis í fjalla-
klifur og sigla á kanóum. Ferðin
stendur í 10 daga.
Wales-búarnir munu svo koma
hingað til íslands í júlí og þá ætla
krakkamir í Fjörgyn að taka á móti
þeim og veita þeim aðstoð en-Wales-
búarnir ætla að eyða mestum tíman-
um uppi á hálendinu.
Bjarni Olesen með hreindýrshaus á grænlenskum slóðum.
Það var góð stemmning í Fjörgyn og talið var að um 180 unglingar hefðu
mætt á páskaballið. DV-myndir GVA
AFMÆLISDAGAR BÍLANAUSTS 21. TIL 30. APRÍL
Vááááááá....!
*Orðatiltæki sem fólk notar gjaman um eitthvað athyglisvert
KJARAPALLAR
Somkvœmtkönnun Gallups eru varahlutirhjö Bílanaustiað meðal-
tali 20% ódýrarien ínágrannalöndunum. Afmœlisdagana bjóðum
við þér sérstakt afmœlistilboð á eftirfarandi vörum:
Verð áður Tilboð
l. Barnabílstólar 8.944,- 5.998,-
2, Verkfœrasett m/85 hlutum 8.359,- 5.851,-
3. Hella 12vloftdœla 3.790,- 2.653,-
4. Hemlaliós í afturaluaaa 1.683,- 1.178,-
5. Þokuliósasett í soorttösku 6.048,- 4.234,-
6, Þvottakústur 652,- 456,-
7. Vandaðbón 996,- 598,-
8. Monroe höaadevfar f. Lödu 1.465,- 1.000,-
Þú finnur þessar vörur -
( og fleiri) á sérstökum
kjarapöllum í verslun okkar
að Borgartúni 26, svo lengi
sem þœr seljast ekki upp á
tímabilinu.
Afmœlistilboð sem
enginn œtti oð aka
framhjá!
Bíla
GLÆSILEGIR VINNINGAR
í LÉTTRIGETRAUN
Eina sem þú þarff að gera er að giska á sem nœst
réttri tölu, og senda okkur í pósti, á myndriti eða
koma við í verslun okkar að Borgartúni 26, fyrir
30. apríl nœstkomandi.
í VERÐLAUN ERU:
1. Gelhard hljómtœki í bílinn fyrir allt að kr. 100.000.
2. Vöryúttekt í Bílanaust fyrir allt að 50 þúsund.
3. Kvöldverður f. tvo í Perlunni fyrir allt að löþúsund.
Getraunaseðlar fást einnig í verslun okkar.
Spurt er: Hvað eru mörg vörunúmer á lager hjá
Bílanaust h/f'?
Nefnið einhverja tölu á bilinu 40000 til 50000, og
sá/sú sem kemst nœst réttri tölu vinnurfsileg verðlaun.
riáust
BORGARTUNI26
105 REYKJAVÍK
SÍMI62 22 62 MYNDRITI 62 23 14