Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1992, Blaðsíða 30
34
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1992.
Afrnæli
Ingimundiir Sveinsson
Ingimundur Sveinsson arkitekt,
Skeljatanga 3, Reykjavík, er fimm-
tugurídag.
Starfsferill
Ingimundur fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp í foreldrahúsum.
Hann lauk stúdentsprófum frá MR
1962, stundaöi nám í byggingarlist
við háskólann í Aachen í Þýskalandi
og lauk þaðan prófum 1969.
Eftir heimkomuna hóf Ingimund-
ar störf við Teiknistofu Skarphéðins
Jóhannssonar og starfaði þar í á
annað ár. Hann opnaði síðan eigin
teiknistofu sem hann hefur rekið
síðan.
Á fyrstu starfsárum sínum fékk
Ingimundur oft viðurkenningu í
samkeppni. Vann hann m.a. ásamt
þremur samstarfsmönnum til
fyrstu verðlauna um skipulag ísa-
íjarðarkaupstaðar. í kjölfar þess
starfaði hann mikið fyrir ísafjarð-
arbæ og einkaaðila þar.
Þá unnu Ingimundur og Gylfi
Guðjónsson fyrstu verðlaun fyrir
skipulag Hvammahverfis í Hafnar-
firði, fyrir teikningu að kirkju í
Hóla- og Fellasókn og fyrir teikn-
ingu að safnahúsi í Borgarnesi árið
1980, auk þess sem Ingimundur og
Egill Guðmundsson fengu verðlaun
fyrir tillögur að skipulagi íbúöar-
byggðar á Eiðsgranda 1981.
Hann hefur unnið að skipulagi og
hönnun miðbæja í Mosfellsbæ og
Garðabæ og unnið að skipulagi
nýrra íbúðahverfa í Garðabæ.
Meðal einstakra húsa, sem Ingi-
mundur hefur teiknað í seinni tíö,
má nefna skrifstofuhús Sjóvár-
Almennra, Perluna, Vesturbæjar-
skólann, Aöalstræti 8, Ingólfsstræti
3 og viðbyggingu að Suðurlands-
braut 4 ásamt Garðari Halldórssyni.
Ingimundur fékk DV-verðlaunin
fyrir skrifstofuhús Sjóvár-Almennra
árið 1990 og DV-verðlaunin fyrir
Perluna í Óskjuhlíö 1992.
Ingimundur er varaformaður
skipulagsnefndar Reykjavíkurborg-
ar og hefur verið formaður deildar
sjálfstætt starfandi arkitekta. Hann
situr í stjórn Almenna bókafélags-
ins og var formaöur Hverfafélags
Sjálfstæðisflokksins í vestur- og
miðbæ 1980-82.
Fjölskylda
Ingimundur kvæntist 1966 Sigríði
Arnbjarnardóttur, f. 14.4.1943,
menntaskólakennara. Hún er dóttir
Arnbjarnar Óskarssonar, kaup-
manns í Reykjavík, og Hrefnu
Karlsdóttur húsmóður.
Börn Ingimundar og Sigríðar eru
Sveinn, f. 1974, menntaskólanemi;
Arnbjörn, f. 1976, nemi í Hagaskóla;
Anna, f. 1983, nemi í ísaksskóla.
Systkini Ingimundar: Benedikt, f.
1938, hrl., stjómarformaður Sjóvár-
Almennra og bæjarfulltrúi í Garöa-
bæ, kvæntur Guðríði Jónsdóttur
húsmóður og eiga þau þrjá syni;
Guðrún, f. 1944, lögfræðinemi, búsett
á Seltjamarnesi, gift Jóni B. Stefáns-
syni verkfræðingi og eiga þau þijár
dætur; Einar, f. 1948, forstjóri Sjó-
vár-Almennra, formaður Verslunar-
ráðs og stjómarformaöur íslands-
banka, kvæntur Bimu Hrólfsdóttur
kennara og eiga þau þrjú böm.
Foreldrarlngimundar: Sveinn
Benediktsson, f. 12.5.1905, d. 1979,
framkvæmdastjóri í Reykjavík, og
kona hans, Helga Ingimundardóttir,
f. 23.12.1914, húsmóðir.
Ætt
Meðal fóðursystkina Ingimundar
varBjarniforsætisráðherra. Sveinn
var sonur Benedikts, alþingismanns
í Reykjavík, Sveinssonar Víkings,
gestgjafa á Húsavík, bróður Bjöms,
afa Guðmundar Benediktssonar,
fyrrv. ráðuneytisstjóra. Björn var
sonur Magnúar, b. á Víkingavatni,
bróður Guðmundar, afa Jóns
Trausta. Móðir Benedikts var
Kristjana Sigurðardóttir, b. á Hálsi
í Kinn, Kristjánssonar, b. á Illuga-
stöðum, Jónssonar.
Móðir Sveins var Guðrún Péturs-
dóttir, b. í Engey, Kristinssonar.
Móðir Péturs var Guðrún, systir
Guðfinnu, ömmu Bjarna Jónssonar
vígslubiskups. Guðrún var dóttir
Péturs, b. í Engey, Guðmundssonar.
Móðir Guðrúnar var Ragnhildur
Ólafsdóttir, amma Ragnhildar
Helgadóttur, fyrrv. ráðherra.
Helga er dóttir Ingimundar, b. í
Kaldárholti í Holtum, Benedikts-
sonar, ráðsmanns á Breiðabólstað í
Fljótshlíð, Diðrikssonar, b. á
Skeggjastöðum, bróður Sveins, afa
Einars Benediktssonar skálds. Móð-
Ingimundur Sveinsson.
ir Ingimundar var Kristín Þórðar-
dóttir af Víkingslækjarætt, systir
Guðlaugar, móður Jóns Ólafssonar
bankastjóra.
Móðir Helgu var Ingveldur Ein-
arsdóttir, b. á Hæli, Gestssonar, afa
Steinþórs á Hæh. Móðir Helgu var
Steinunn, systir Guðrúnar,
langömmu Ingibjargar, móður Dav-
íðs Oddssonar. Steinunn var dóttir
Vigfúsar Thorarensen, sýslumanns
á Borðeyri.
Ingimundur og Sigríður taka á
móti gestum á afmæhsdaginn í Vetr-
argarðinum í Perlunni mhli klukk-
an 17.00 og 19.00.
Jóhannes Borgþór Birgisson
Jóhannes Borgþór Birgisson
rennismíðameistari, til heimihs að
Álfhólsvegi 129, Kópavogi, er fimm-
tugurídag.
Starfsferill
Jóhannes fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp th átta ára aldurs en
flutti þá í Kópavoginn þar sem hann
ólst upp eftir það. Jóhannes lærði
rennismíði hjá Vélsmiðjunni Bjargi
1958-62. Hann lauk sveinsprófi í iðn-
inni 1%2 og öðlaðist meistarabréf
1973.
Jóhannes var innheimtumaður
hjá Skeljungi 1956-58, var lærlingur
hjá Bjargi 1958-62, rennismiður hjá
Vélaverkstæöi Sig. Sveinbjörnsson-
ar 1963-65, myndgrafari hjá Reykja-
prenti, við dagblaðið Vísi 1965-74 en
hefur starfað hjá Baader íslandi hf.
frá 1974.
Jóhannes er trúnaðarmaður á
vinnustað og situr í trúnaðarmann-
aráöi Félags járniðnaðarmanna.
Fjölskylda
Bróðir Jóhannesar er Kristján
Sigurður Birgisson, f. 5.1.1949, vél-
fræðingur og yfirvélstjóri á Frera
RE, kvæntur Amþrúði Stefánsdótt-
ur, f. 22.3.1947 og em dætur þeirra
Lilja Kristjánsdóttir, háseti á Frera,
Stella Kristjánsdóttir, búfræðinemi
á Hvanneyri, og Arna Valdís Kristj-
ánsdóttir, starfsstúlka í Sunnuhhð.
Dóttir Lhju er Jóhanna Kristín
Gísladóttir.
Foreldrar Jóhannesar vom Birgir
Kristjánsson, f. 14.9.1905, d. 1982,
jámsmíðameistari í Reykjavík og
Kópavogi, og Lhja Guðbjörg Jó-
hannesdóttir, f. 20.12.1911, d. 1984,
húsmóðir.
Ætt
Birgir var sonur Kristjáns, b. í
Álfsnesi Þorkelssonar, b. í Helgadal
í Mosfellssveit, bróður Salvarar,
langömmu Björns Th. Björnssonar.
Þorkell var sonur Kristjáns, hrepp-
stjóra í Skógarkoti í Þingvahasveit,
Magnússonar. Móöir Þorkels var
Guðrún Þorkelsdóttir, b. í Heiðarbæ
Loftssonar, og konu hans, Salvarar,
systur Salbjargar, langömmu Tóm-
asar Guðmundssonar. Salvör var
dóttir Ögmundar, b. á Hrafnkels-
stöðúm, Jónssonar og konu hans
Guðrúnar Þórarinsdóttur, b. á Kot-
völlum, Guönasonar. Móðir Guð-
rúnar var Elín Einarsdóttir, b. á
Varmadal, Sveinssonar og konu
hans Guðrúnar Bergsteinsdóttur,
b. á Minnahofi, Guttormssonar, ætt-
föður Árghsstaðaættarinnar.
Móöir Kristjáns var Birgitta Þor-
steinsdóttir, b. í Stíflisdal, Einars-
sonar, b. í Stífhsdal, Jónssonar.
Móðir Einars var Ingveldur Jóns-
dóttir, systir Guöna í Reykjakoti,
ættfóður Reykjakotsættarinnar.
Móöir Birgis var Sigríður, systir
Jóns, föður Þorgeirs í Gufunesi. Sig-
ríður var dóttir Þorláks, b. í
Varmadal á Kjalarnesi, Jónssonar.
Móðir Þorláks var Guðrún Þorláks-
dóttir, b. í Glóru, Gissurarsonar.
Jóhannes Borgþór Birgisson.
Móðir Þorláks í Glóm var Katrín
Melkjörsdóttir, b. á Vatnsleysu, Ei-
ríkssonar og konu hans Helgu Þor-
steinsdóttur, systur Stefáns, langafa
Þorláks, langafa Önnu, ömmu
Markúsar Arnar Antonssonar borg-
arstjóra. Móðir Sigríðar var Geir-
laug Gunnarsdóttir, b. á Efri Brú í
Grímsnesi, Loftssonar.
Lhja Guðbjörg var dóttir var dótt-
ir Jóhannesar, skósmiðs og bhstjóra
í Reykjavík Kristjánssonar, vinnu-
manns á Arnbjargarlæk í Staf-
holtstungum og víðar Tómassonar.
Móðir Lhju Guðbjargar var Málfríð-
ur Ólafsdóttir, á Alftanesi Eyjólfs-
sonar, á Skansinum hjá Bessastöð-
um og víðar Jónssonar. Móöir Mál-
fríðar Ólínu var Ragnheiöur Illuga-
dóttir, sjómanns á Skógstjörn á
Álftanesi Árnasonar, sjómanns á
Svalbarða Ámasonar.
Jóhannes dvelur í Hamborg á af-
mæhsdaginn.
Til hamingju með afmælid 21. apríl
80 ára 50ára
Rósa Teitsdóttir, Austurgötu 15, Keflavík. Mjöll Ásgeirsdóttir, Aðalstræti 19, ísafirði.
75 ára Lækjarhvammi9, Búðardal. Rósa Randversdóttir,
Baldvin Baldvinsson, Kirkjustræti 2, Reykjavik. Þórður Elíasson, Hraunbæ 103, Reykjavík. Þelamerkurskóla, Glæsibæjar- hreppi. Kristín Theódóra Ágústsdóttir, Æsufelhe, Reykjavík. Brynhildur Ásta Jónsdóttir,
70 ára Maríubakka 14, Reykjavík. Hólmfríður Aðalsteinsdóttir,
. SigurjónS.Ólafsson, Blesugróf 18, Reykjavik. Litlulaugaskóla, Reykdælahreppi.
Halldór Jóhannesson, Smáravegi 10, Dalvík. 40ára
Sigurjón H. Sigurjónsson, Ásbraut 19, Kópavogi. Sólveig Benjamínsdóttir, Frarnnesvegi 20b, Reykjavík.
60 ára Arou Björnsson, Safamýri 53, Reykjavík.
Michael Henry Willcocks, Áshhð 15, Akureyri. Sigrún Lárusdóttir, Flatasíðu2, Akureyri.
Grímur Grímsson
Sviðsljós
Mótelsamtökin:
Fimmtíu nemendur ljúka prófi
Hér má sjá tvær stúlkur á sýningunni í Tónabæ.
Nýlega luku yfir 50 nemendur
prófi frá Módelsamtökunum. Nám-
skeið samtakanna var haldiö í
Tónabæ og fór þátttaka fram úr
björtustu vonum. Nemendurnir
lærðu göngu, sviðsframkomu og
fleira eða allt sem viðkemur góðri
framkomu. í lokin var svo haldin
sýning þar sem þátttakendur komu
fram í fjórum aldurshópum.
Þátttakendurnir voru á aldinum
10 th 25 ára. 6 strákar voru á nám-
skeiðinu en það er æ algengara að
þeir sæki námskeið sem þessi.
Stjórnendur og kennarar voru He-
lena Jónsdóttir dansari og sýning-
arstúlkan og módelkennarinn Gu-
an Dong Ging frá Peking.
Annað námskeið hefst 27. aprh.
Grímur Grímsson prestur, Hjalla-
vegi 35, Reykjavík, er áttræður í dag.
Starfsferill
Grímur er fæddur í Reykjavík.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1933, stundaði verslunamám við
\Niels Brocks Handelsskole í Kaup-
mannahöfn 1934-35 og varð cand.
theol frá Háskóla íslands 1954.
Grímur var ritari og síðar fuhtrúi
viö tollstjóraembættið í Reykjavík
1937-54, sóknarprestur að Sauð-
lauksdal í Barðgstrandarprófasts-
dæmi 1954-63, aukaþjónusta jafn-
framt um árabh í Brjánslækjar-
prestakalh, sóknarprestur í Ás-
prestakalh í Reykjavík 1964-80 og
settur sóknarprestur í Staðar-
prestakalh í Súgandafirði 1980.
Grímur hætti störfum sjötugur að
aldri.
Grímur sat í stjórn Ræktunarsam-
bands Rauðasandshrepps 1967-68 og
var í stjóm Mjólkurfélags sama
hrepps í nokkur ár, í stjóm Prestafé-
lags Islands 1966-78 og var formaður
þess1968-77.
Fj'ölskylda
Grímur kvæntist 21.4.1939 Guð-
rúnu Sigríði Jónsdóttur, f. 4.9.1918,
húsfreyju. Foreldrar hennar: Jón
GunnlaugssonfráKiðjabergi, '
stjómarráösfulltrúi, og fyrri kona
hans, Jórunn Hahdórsdóttir.
Böm Gríms og Guðrúnar Sigríðar:
Soffia, f. 13.2.1940, hjúkrunarfræð-
Grímur Grímsson.
ingur, búsett í Sviþjóð, hún á þrjú
böm; Hjörtur, f. 11.3.1943, verslun-
armaður og fyrrverandi verktaki,
búsettur í Mosfellsbæ, hann á sex
börn; Jón, f. 22.8.1950, flugmaður,
búsettur í Kópavogi, hann á tvö
börn.
Systkini Gríms: Hildur, húsfreyja,
búsett í Danmörku; Kristín, hús-
freyja, búsett í Reykjavík. Hálf-
systkini Gríms, samfeðra: Jón, lát-
inn, hafnargjaldkeri á ísafirði; Sig-
ríður, látin, húsfreyja í Reykjavík;
Siguröur, látinn, borgarfógeti í
Reykjavík.
Foreldrar Gríms voru Grímur
Jónas Jónsson, skólastjóri á ísafirði,
og sambýliskona hans, Kristín
Kristjana Eiríksdóttir.
Grímur og kona hans, Guðrún Sig-
ríður Jónsdóttir, eru stödd erlendis
umþessarmundir.