Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1992, Síða 36
F R ÉTT
A S K O T I
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá'í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Ritstjóm - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 632700
Frjálst óhaö dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1992.
Grindavlk:
Sigldi ölvaður
10 tonna bát
Maður var handtekinn í höfninni í
Grindavík eftir að hafa siglt 10 tonna
plastbát sínum mjög glannalega utan
við og í höfninni í Grindavík og vald-
ið skemmdum. Maðurinn var einn í
bátnum og sakaði ekki en hann var
grunaður um ölvun.
Að sögn sjónarvotta var sigling
mannsins á bátnum mjög háskaleg
þar sem hann sigldi þvers og kruss
í innsiglingunni. Um tíma héldu
sjónarvottar að hann mundi sigla
beint upp á land við Hópsnesið. Er
til hafnar var komið skemmdist bát-
urinn er maðurinn sigldi honum á
annan bát og síðan á bryggjuna.
. Töluverð ölvun var í Grindavík
fram á fostudaginn langa en þá virð-
istáfengisbirgöirhafaþrotið. -hlh
Reiðubúin að
af henda völdin
Ríkisstjórn Afganistans er reiðu-
búikn að afhenda skæruliðum, sem
umkringja höfuöborgina Kabúl, öll
völd í landinu.
* Þettakomframáblaðamannafundi
Abduls Rahims Hatifs, starfandi for-
seta landsins, nú fyrir stundu. Reuter
Ungfrú alheimur:
Býstekkivið
að vinna
- segir Svava Haraldsdóttir
LOKI
Þaðerjafn gott
að Markús Örn sé ekki
handsár maður!
SeHluttu bflana
niður bratt skarð
í byl og hálku
„Það var það hvasst þama að
bílarnir vildu fjúka upp að skrið-
unni undan veörinu en það var
engin hætta á að þeir færu fram
af. í þá þrjá tíma sem viö vorum
þama uppi var stöðugur straumur
af bílum. Viðtöldum 15-20 böa sem
við aðstoðuðum. Fyrsta klukku-
tímann var erfitt við þetta að eiga
vegna byls og hálku,“ sagði Sigur-
geir Benediktsson í björgunarsveit
Slysavamafélags íslands á Höfh í
Hornafirði.
Vegagerðarmenn, lögregla og
björgunarsveitarmenn aðstoðuðu
fjölda fólks sem lenti í vandræðum
á bflum sínum vegna ófærðar í byl
í Almannaskarði síðdegis í gær.
„Við vorum kallaöir út til að
hjálpa þeim sem komust ekki leiðar
sinnar og til að stöðva frekari um-
ferð. En þegar veðriö gekk niður
gekk ágætlega að aðstoða bílana
við að komast niður. Þetta voru
mest fólksbílar sem voru að koma
austan að. En þaö var alveg ófært
upp Skarðið nema fyrir jeppa.
Þá bíla, sem vom verst búnir og
voru stopp og lokuðu veginum þeg-
ar við komum, bundum við við á
milli okkar bíla, einn í einu, og
fluttum þá þannig niður brattann
til aö þeir rynnu ekki til. Víð þurft-
um að flytja 3-4 bfla þannig. Snjór-
inn var blautur og þegar hann
tróöst var mjög hált þar sem þarna
er mjög bratt,“ sagði Sigurgeir.
Hann sagði að ekkert hefði verið
að veöri á Höfn, þar sem var rign-
ing, og fyrir austan Almannaskarð-
ið. Bylurinn og ófærðin heföi ein-
ungis verið efst í Skarðinu. Engar
skemmdir urðu á farartækjum við
björgunaraðgeröirnar, aö sögn Sig-
urgeirs.
-ÓTT
„Við erum búnar að vera ansi upp-
teknar undanfarna daga og þaö er
vaknaö mjög snemma á morgnana
en æfingamar standa yfir nánast all-
an daginn. Það er verið að æfa inn-
-Jíomuna, dansa og söngva. Kvöld-
matur er síðan um sjöleytiö og svo
taka kokkteilboðin við. Þetta er dag-
skráin í aðalatriðum og það má bú-
ast við að hún verði svona fram að
keppninni sem er 9. maí,“ sagði
Svava Haraldsdóttir, ungfrú ísland,
í samtali við DV.
Svava er nú stödd í Bangkok í
Tælandi þar sem hún veröur fulltrúi
íslands í keppninni um ungfrú al-
heim þann 9. maí nk. Aðbúnaöur
keppenda í Tælandi er mjög góður
að sögn Svövu.
„Ég held nú að ég eigi kannski ekki
mikla möguleika á að vinna keppn-
ina. Ég býst alla vega ekki við því
enda er það alls ekki aðalmálið. Það
_jer um að gera að hafa gaman af þessu
og njóta tækifærisins til að ferðast.
Þetta hefur gefið mér mikið og hefur
verið mjög áhugavert," sagði Svava.
-GRS
Veðrið á morgun:
Rigning eða
súld víða
Á morgun verður austlæg átt
á landinu, víða stinningskcddi
en allhvasst eða hvasst verður
við suðurströndina. Rigning
verður sunnanlands, súld eða
rigning við austurströndina en
víðast þurrt á Noröurlandi. Hiti
víða 4-7 stig.
Ölvaður maður í Árbæ:
Svava Haraldsdóttir, ungtrú ísland, er hér í félagsskap fegurðardrottninga Bandaríkjanna, Filippseyja og Singapore
í Bangkok í Tælandi þar sem hún býr sig undir keppnina um ungfrú alheim. Simamynd Reuter
Fór upp í rúm
hjá ókunnugum
Mjög ölvaöur maður ruddist inn í
íbúðarhús hjá fiölskyldu í Árbæjar-
hverfi á fimmta tímanum í nótt.
Heimilisfólk hafði skilið útidymar
eftir ólæstar þar sem von var á að
ungmenni úr fiölskyldunni kæmi
heim eftir fótaferðartíma.
Drukkni maðurinn fór sem leið lá
inn í barnaherbergi og ætlaði að
leggjast þar til hvflu í rúmi eins barn-
anna. Áður hafði hann lagt skó sína
snyrtilega við útidymar.
Mikil skelfing greip um sig þegar
uppgötvaðist að ókunnugur ölvaður
maður var að hreiðra um sig á heim-
ilinu. Hringt var í lögreglu sem kom
fljótlega og fiarlægði manninn. Hann
gisti fangageymslur í nótt.
Maðurinn er búsettur annars stað-
ar í Árbæjarhverfi og gat enga við-
hlítandi skýringu gefið á ferð sinni i
umrætthús. -ÓTT
Bílvelta í morgun:
Tvennt slasaðist
Okumaöur og farþegi slösuðust er'
bifreið valt á Eyrarbakkavegi við
Litla-Hraun um klukkan 6:20 í morg-
un. Ökumaður kastaðist úr bílnum í
veltunni en nota þurfti klippur til
þess að ná farþega úr bílnum.
Farþeginn var fluttur á Sjúkrahús
Suðurlands en ökumaðurinn á slysa-
deild Borgarspítala. Ekki er talið að
hann sé í lífshættu.
Töluverður erill var hjá lögreglu á
Selfossi í nótt. Tólf ökumenn voru
teknir fyrir of hraðan akstur að lokn-
umdansleikástaðnum. -ÍS
Skortur á mjólk
„Það má gera ráð fyrir töluverðum
mjólkurskorti næstu daga. Engar
vörur eru til átappaðar eftir páska-
helgina og það sem við pökkum í dag
kemur ekki í verslanir fyrr en 10-14.
Það er ekki nema 80 þúsund lítrar
sem nægir ekki þar sem allar hillur
í verslunum eru tómar. Mjólkur-
skortur verður viövarandi þessa
viku og að minnsta kosti fram í
næstu,“ sagði Pétur Sigurðsson,
framkvæmdastjóri framleiðslu- og
tæknisviðs MS. -ÍS
Smygl á Suðurnesjum
Tollgæsla Islands lagði hald á 163
lítra af áfengi í ílutningaskipinu Ori-
olus eftir komu þess í Njarðvíkur-
höfn á miðvikudag. Skipiö er í leigu
hjá Eimskipafélagi íslands.
Þegar togarinn Ólafur Jónsson
kom úr söluferð frá Bremerhaven á
skírdag lögðu tollverðir einnig hald
á 197 flöskur af léttu víni, 72 flöskur
af sterku áfengi og á þriðja hundrað
kíló af kjöti um borð í togaranum.
-ÓTT
„o,BlLAsro0(
i, A/
ÞRDSTUR
68-50-60
VANIRMENN
I
í
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
i
4