Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1992, Blaðsíða 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1992.
Afmæli
Sigurjón Sæmundsson
Sigurjón Sæmundsson prent-
smiðjustjóri, Suðurgötu 16, Siglu-
firði, er áttræður í dag.
Starfsferill
Sigurjón er fæddur í Lambanesi.
Faðir hans drukknaði í fiskróðri
1915 og við það tvístraðist fjölskyld-
an og fór Sigurjón þá fyrst í umsjá
Einarssínu, móðursystur sinnar,
sem var kaupakona, en síðan var
hann léttadrengur á ýmsum bæjum.
Hann fluttist til Siglufjarðar á tólfta
aldursári og hafði þá átt heima á
átta stöðum í Fljótum.
Siguijón dvaldi á Siglufirði til
sextán ára aldurs við síldarstörf,
sjósókn og verkamannavinnu en
fluttist þá til Akureyrar ásamt móð-
ur sinni og bræðrum og hóf prent-
nám hjá Oddi Björnssyni bókaútgef-
anda. Siguijón starfaði í sjö ár í
Prentverki Odds Björnssonar eða
þar til hann keypti Siglufjarðar-
prentsmiðju árið 1935 sem hann
hefur starfrækt allar götur síðan
ásamt viðamikilh bóka- og tímari-
taútgáfu.
Siguijón hefur tekið virkan þátt í
félagsmálum Siglufjarðar. Hann var
bæjarfulltrúi fyrir Alþýðuflokkinn
í 20 ár, bæjarstjóri í 9 ár og formað-
ur Iðnaðarmannafélags Siglufjarðar
í 15 ár en félagið rak Iðnskóla Siglu-
fjarðar á áðumefndu tímabili. Hann
söng með Karlakór Akureyrar,
Karlakórnum Geysi, Kantötukór
Akureyrar og Karlakómum Vísi á
Siglufirði en þeim síðasttöldu söng
Sigurjón með í yfir hálfa öld. Sigur-
jón var einn af einsöngvurum Vísis
og hann hefur haldið marga ein-
söngskonserta. Hann var formaður
Vísis í 30 ár og frumkvöðull að stofn-
un Tónlistarskóla Vísis sem var
undanfari Tónhstarskóla Siglu-
fjarðar.
Sigurjón hefur verið félagi í Rot-
ary í meira en hálfa öld og tekið
virkan þátt í félagsstörfum þar.
Hann var um árabh ræðismaður
Svía á Siglufirði og var í starfslok
sæmdur orðu af sænska konungin-
um fyrir störf sín á þeim vettvangi.
Fjölskylda
Sigurjón kvæntist 8.6.1935 Ragn-
heiði Jónsdóttur, f. 2.1.1914, hús-
freyju. Foreldrar hennar voru Jón
St. Melstað, bóndi á Hallgilsstöðum
Ný sending
Peysur og peysujakkar
Bolir og blússur
Síðbuxur og pils
Fallegar vörur - Gott verð
Tískuskemman
Laugavegi
TOYOTA 4RUNNER ’84
12 þ. km á vél, 36" radial, krómfelgur, topplúga, 5:71
drifhlutföll, nospin framan, loftdæla, talstöð, 2 ben-
síntankar. Verð 1.450.000, skipti á ódýrari. S. 91-71455
e. kl. 19.00.
Nauðungaruppboð
önnur saia
á neðangreindum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins í
Gránugötu 4-6
fimmtudaginn 7. maí 1992:
Aðalgata 28A og B, Siglufirði, þingl.
eign Leós R. Ólasonar, eftir kröfu inn-
heimtumanns ríkissjóðs, kl. 14.00.
Eyrargata 8, Siglufirði, þingl. eign
Sæmundar Bj. Áreh'ussonar, eftir
kröfti Þórðar Gunnarssonar hrl. og
innheimtumanns ríkissjóðs, kl. 14.10.
Mjóstræti 1, Siglufirði, þingl. eign
Jóns Sigurðssonar, eftir kröfu Islands-
banka hf., innheimtumanns ríkissjóðs
og Landsbanka íslands, kl. 14.30.
Suðurgata 24, efri hæð og ris, Siglu-
firði, þingl. eign Leós Ólasonar, eftir
kröfú innheimtumanns ríkissjóðs, kl.
14.40._____________________________
Túngata 8, Siglufirði, þingl. eign Hild-
ar Gunnarsdóttur, eftir kröfti Ólafs
Gústafssonar hrl. og innheimtumanns
ríkissjóðs, kl. 14.50.
Túngata 10B, e.h., Siglufirði, þingl.
eign Sigurðar Friðfinns Haukssonar,
eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka
íslands, Kristjáns Ólafssonar hdl.,
bæjarsjóðs Siglufiarðar og Áma Páls-
sonar hdl., kl. 15.00.
BÆJARFÓGETINN Á SIGHMffll
í Hörgárdal, og Albína Pétursdóttir,
húsfreyja.
Börn Sigurjóns og Ragnheiöar:
Stella Margrét, f. 3.12.1935, tann-
fræðingur, maki Ingvar Jónasson,
víóluleikari, þau eiga þijú börn; Jón
Sæmundur, f. 25.11.1941, fyrrver-
andi alþingismaður, maki Birgit
Henriksen, þau eiga eina dóttur.
Systkini Sigurjóns: Kristján, f.
4.12.1910, setjari í ísafold og Leiftri;
Andrés, f. 10.9.1913, d. 1.10.1929;
Sigurlaug, f. 25.3.1915, d. 1916. Hálf-
bróðir Siguijóns, sammæðra: Eirík-
ur J.B. Eiríksson, f. 27.8.1924, starfs-
maður Akureyrarbæjar, maki Rósa
Pálsdóttir kennari, þau eiga einn
son.
Foreldrar Siguijóns voru Sæ-
mundur Jón Kristjánsson, f. 16.10.
1883, d. 30.8.1915, útvegsbóndi í
Lambanesi og víðar, og Herdís Jón-
asdóttir, f. 30.7.1889, d. 14.2.1938,
húsfreyja og verkakona.
Ætt
Sæmundur var sonur Kristjáns
Jónssonar, bónda í Lambanesi í
Fljótum, og konu hans, Sigurlaugar
Sæmundsdóttur. Foreldrar Krist-
jáns voru Jón, bóndi að Hóh í Svarf-
aðardal, og Gunnhildur Hahgríms-
dóttir, bónda að Stóru-Hámundar-
stöðum, Þorlákssonar, danneborgs-
manns frá Skriðu í Hörgárdal. Með-
al niðja systkina Kristjáns eru Jón
Loftsson, kaupmaður í Reykjavík,
Jóhann G. Möher, fyrrv. bæjarfuh-
trúi á Siglufirði, Bjöm Sigurbjörns-
son, skólastjóri á Sauðárkróki, og
Kristján Rögnvaldsson, skipstjóri á
Siglufirði. Foreldrar Sigurlaugar
voru Sæmundar Jónsson, bóndi að
Felh í Sléttuhhð, og kona hans,
Björg Jónsdóttir, Eiríkssonar,
prests að Undirfelli í Vatnsdal, af
Djúpadalsætt, en kona hans var
Björg Vídalín, systir Ragnheiðar,
ömmu Einars Benediktssonar
skálds. Á meðal systkina Bjargar í
Felh voru Herdís frá Kjörvogi, ætt-
móðir Páls Ásgeirs sendiherra,
Tryggva bankastjóra og Herdísar
ritstjóra; Katrín á Barði, ættmóðir
Þuríðar Pálsdóttur söngkonu og
Katrínar Ejeldsted borgarfulltrúa;
Margrét, móðir Jóns Þorlákssonar,
fyrrv. formanns Sjálfstæðisflokks-
ins.
Herdís var dóttir Jónasar Stefáns-
Sigurjón Sæmundsson.
sonar, bónda í Minni-Brekku í Fljót-
um, Sigurðssonar, frá Fossum í
Svartárdal, og Önnu Jónsdóttur,
bónda á Brúnastöðum í Fljótum, og
Guðrúnar Einarsdóttur, prests á
Knappstöðum, en Guðrún á Kvía-
bekk, systir hennar, var amma Dav-
íðs Stefánssonar, skálds frá Fagra-
skógi.
Sigurjón og kona hans, Ragnheið-
ur Jónsdóttir, vonast til að sjá sem
flesta vini og vandamenn að Hótel
Höfn á Siglufirði í dag kl. 17-19.
Til hamingju með afmælið 5. maí
90 ára 70 ára 50 ára
Olgeir Jónsson, Magnús Þ. Torfason, Jósefína Friðriksdóttir,
Höskuldsstöðum, Reykdælahrepp i. Bergstaðastræti73,Reykjavik. _ JónS. Guðmundsson, Stuðlaseh 27, Reykjavik. ívar Sigmundsson,
85 ára Ljósvahagötu 22, Reykjavík. Friðrik Bjarnason, Bröttuhlíð 3, Akureyri.
Guðmundur Benediktsson, Hhf II, Torfunesi, Isafirði. Garða Jónsdóttir, 40 ára
Hörgi, Svalbarðsstrandarhreppi. Jörfabakka 12, Reykjavík. Valdimar Steinar Jónasson,
75 ára 60 ára Núpabakka 7, Reykjavík. Elín Jósefína Hansen,
Sigríður Guðmundsdóttir, Hringbraut 47, Reykjavík. Oddlaug Valdimarsdóttir, Kópavogsbraut 47, Kópavogi. Ólafur Jónsson, Bamaskóla Gaulveija, Gaulverja- bæjarhreppi. Barmahhð5, Sauöárkróki. Hörður Stefánsson, Stapasíðu 11D, Akureyri. Konráð Eggertsson, Túnbrekku 2, Kópvogi.
Gullbrúðkaup
Bjöm Friðriksson og Hlað
gerður Oddgeirsdóttir
Björn Friðriksson og Hlaðgerður
Oddgeirsdóttir, Blikahólum 6,
Reykjavík, eiga gullbrúðkaup í dag
en þau gengu í hjónaband á Hlöð-
um á Grenivík árið 1942.
Starfsferill
Björn er fæddur 2.9.1918 og starf-
aði í áratugi hjá Kaupfélagi Norð-
ur-Þingeyinga þar sem hann var
m.a. útibússtjóri. Hlaðgerður er
fædd 22.1.1921 og starfaði lengst
af hjá Jökh hf. og Fiskiðju Raufar-
hafnar, auk þess sem hún sinnti
heimihsstörfum.
Bjöm og Hlaðgerður bjuggu á
Raufarhöfn 1942-1992 en hafa verið
búsett í Blikahólum frá því í febrú-
ar sl. Þau hafa tekið virkan þátt í
félagslífi í gegnum tíöina og voru
m.a. félagar í kór Raufarhafnar-
kirkju frá 1943 og fram th þess tíma
er þau fluttu í höfuðborgina.
Fjölskylda
Böm Björns og Hlaögerðar: Frið-
rik, f. 1.5.1943, sjómaður, maki
Hugrún Hermannsdóttir, þau era
búsett á Raufarhöfn og eigafjögur
böm, Önnu, Bjöm, Hermann og
Þorvald Frey; Oddgeir, f. 10.9.1944,
húsgagnasmiður, maki Fanney
Sæmundsdóttir, þau era búsett í
Keflavík og eiga fiögur böm, Bjöm,
Hlaðgerði, Brynju og Ömu; Skjöld-
ur Vatnar, f. 9.3.1947, kennari,
maki Sigríður Sigurðardóttir, þau
era búsett í Reykjavík og eiga einn
son, Rúrik Vigni; Björgólfur, f. 8.7.
Björn Friðriksson og Hlaðgerður Oddgeirsdóttir.
1949, útgerðarmaður, maki Kol-
brún Stefánsdóttir, þau eru búsett
á Helhssandi og eiga tvær dætur,
Birgittu og Brimrúnu; Þorbjörg, f.
6.1.1953, starfsmaður Flugleiða,
maki Óttar Strand Jónsson, þau
era búsett í Keflavík og eiga tvo
syni, Börk Strand og Darra Strand;
Aðalheiður, f. 7.5.1957, sjúkraliði,
maki Bjartmar Pétursson, þau eru
húsett í Hafnarfirði og eiga fiögur
börn, Sigríði Önnu, Friðmar, Eyþór
og Örvar; Amheiður, f. 7.5.1957,
nuddari, hún er búsett í Reykjavík
og á tvö böm, Bríet Konráðsdóttur
og Breka Konráðsson; Edda Hrafn-
hildur, f. 26.1.1959, verslunarstjóri,
hún er búsett í Reykjavík. Bjöm
og Hlaðgeröur eiga sjö barnabama-
börn.
Systkini Björns á lífi: Guðni;
Friðný. Hálfsystkini Björns, sam-
mæðra, á lífi: Guðmundur Einars-
son; Friðrik Einarsson; Signý Ein-
arsdóttir; Björg Einarsdóttir.
Systkini Hlaðgeröar á lífi: Alma;
Aðalheiður; Jóhann Adolf; Kristján
Vemharður; Fanney; Margrét; Sig-
ríður; Hákon; Björgvin.
Foreldrar Björns voru Friðrik
Guðnason frá Hóh á Melrakka-
sléttu í Presthólahreppi og Þor-
björg Bjömsdóttir, frá Sveinunga-
vík á Melrakkasléttu í Presthóla-
hreppi en þau bjuggu á á síðar-
nefnda staðnum. Foreldrar Hlað-
gerðar voru Oddgeir Jóhannsson
frá Saurbæjargerði í Grýtubakka-
hreppi og Aðalheiður Kristjáns-
dóttir frá Végeirsstöðum í Fnjóska-
dal en þau bjuggu á Hlöðum á
Grenivík.