Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1992, Page 10
10
FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1992.
Gróðurhúsaplast
Hollensk gróðurmold
Höfum fyrirliggjandi gróðurhúsaplast í eftir-
farandi breiddum: 8 m, 9,2 m og 10 m, lengd
á rúllu 50 m.
Hollensk gróðurmold, tilbúin til notkunar, í
50 lítra pokum.
Efnaver hf., Réttarhálsi 2, s. 91-676939
OPIÐ HÚS
Opið hús verður í Félagsheimili SVFR föstudaginn
8. maí. Húsið opnað kl. 20.30.
Dagskrá:
* Veiðihorfur sumarið 1992:
Guðni Guðbergsson frá Veiðimálastofnun flytur.
* Hljómlist: Haukur Sveinbjarnarson.
* Glæsilegt happdrætti.
Fræðslu- og skemmtinefnd SVFR.
Tilkynning frá gatnamálastjóra um
hreinsunardaga í Reykjavík vorið 1992
Sérstakir hreinsunardagar verða laugardagarnir 9. og
16. maí og verða ruslapokar afhentir í hverfastöðvum
gatnamálastjóra.
Eftir hreinsunardagana munu starfsmenn Reykjavík-
urborgar fara um hverfi borgarinnar og hirða upp
poka og rusl.
Til að auðvelda fólki að losna við rusl eru gámar á
eftirtöldum stöðum:
Ánanausti móts við Mýrargötu.
Sléttuvegi í Fossvogi.
Sævarhöfða móts við Malbikunarstöð.
Gylfaflöt austan Gufunesvegar.
Jafnasel í Breiðholti.
Gatnamálastjórinn í Reykjavík
Hreinsunardeild.
Reykjavík, 4. maí 1992
Utlönd
Áhorfendastúkan á leikvanginum í Bastia er nú rústir einar. Stúkan, sem reist var til bráðabrigða, hrundi alveg
og þúsundir manna féllu til jarðar. simamynd Reuter
Mikil reiði á Korsíku eftir slysið á leikvanginum í Bastíu:
Sökudólgunum
verður að refsa
- heimildum ber ekki saman um hvort 10 eða 26 eru látnir
„Það verður að refsa þeim sem eru
sekir í þessu máli. Það var ekki rétt-
lætanlegt að hrófla upp nýrri stúku
á einni viku til að geta selt þúsundum
manna aðgang að leikvangi sem var
of lítiil," sagði Bemard Tapie, ráð-
herra í frönsku stjóminni og eigandi
knattspymuliðs Marseille, um slysið
mikla á knattspymuleikvanginum í
Bastía á Korsíku.
Mikil reiði er á Korsíku vegna
slyssins. Þar er því haldiö fram að
eigendur knattspymuliðsins á staðn-
um hafi ætlað sér að græða stórfé á
leiknum gegn Frakklandsmeisturum
Marseilie með því að selja 18 þúsund
fleiri mönnum inn á leikinn en sæti
eru fyrir. í þessu skyni var reist
aukastúka fyrir 10 þúsund manns.
Heimildum ber ekki saman um hve
margir eru látnir eftir slysið á þriöju-
dagskvöldið. Heimamenn segja að 26
séu þegar látnir en stjómvöld í París
halda fast við að 10 séu látnir. Lækn-
ar á Korsíku segja að sumir hinna
slösuðu muni ekki lifa af og því hði
nokkur tími þar til endanlegar tölur
um manntjón verða birtar.
Um 70 áhorfenur em alvarlega
slasaðir. Nokkrir þeirra hafa lamast
eftir um 20 metra fall úr efstu sætum
áhorfendastúkunnar. Alls hlutu um
700 manns meiri eða minni sár.
Franska stjómin hefur heitiö því
að málið verði rannsakað opinber-
lega og þeir dregnir fyrir dóm sem
bera ábyrgð á því hvernig fór. Ljóst
er að ekki var gengið nægilega
tryggilega frá áhorfendastúkunni
sem reist var til bráðabirgða.
Áhorfendur fundu að hún hreyfðist
þegar þeir komu upp á pallinn og
hnoðnaglar í grind hans féllu til jarð-
ar meðan fólkið var að koma sér fyr-
ir. Þá var mikil stemning á pallinum
fyrir leikinn og bylgjuhreyfing
myndaðist þegar fólkið stappaði í
takt. Reuter
AUKABLAÐ
Garðar og gróður
Miðvikudaginn 13. maí nk. mun
aukablað um garða og gróður fylgja DV.
Þar veröur fjallað um helstu vorverkin í garðinum
ogýmsar leiðbeiningar fyrir garðeigendur.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa
í þessu aukablaði, vinsamlega hafi samband við
Sonju Magnúsdóttur, auglýsingadeild DV, hið
iyrsta í síma 63 27 22.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur
auglýsinga er fimmtudagurinn 7. mai.
ATM.! Bréfasimi okkar er 63 27 27.
Verkföllin í Þýskalandi:
Viðræður fóru út um þúfur
Verkfall opinberra starfsmanna í
Þýskalandi er nú á ellefta degi eftir
að samningaviðræður milli launþega
og atvinnurekenda fóru út um þúfur
í gærkvöldi.
Stærsta verkalýðsfélag opinberra
starfsmanna, ÖTV, og viösemjendur
þess frestuðu fundi þegar komið var
fram á kvöld og sögöust ætla að halda
áfram könnunarviðræðum í dag.
Verkfóllin hafa nú staðið í tíu daga
og hafa þau valdið mikilli röskim í
landinu. Sorp heldur áfram að
hrannast upp á götum borganna og
miiljónir bréfa liggja óflokkaðar á
pósthúsum. Algjör ringulreið hefur
einnig ríkt á flugvöllum landsins og
jámbrautarstöðvum.
Talsmaður ÖTV sagði aö 320 þús-
und manns yrðu í verkfalli í dag og
aögeröum yrði haldið áfram þar til
samningar næðust. Aðaláherslan
verður lögð á verkfall við sorphirðu
um allt land.
Þegar samningafundur hafði staðið
yflr í tvær klukkustundir í gær án
þess að neitt þokaðist í samkomu-
lagsátt var gert fjögurra tíma fundar-
Monika Wulf-Mathies, formaður
stærsta verkalýðsfélags opinberra
starfsmanna i Þýskalandi, sagði að
deiluaðilar hefðu ekkert að segja
hverjir við aðra. Simamynd Reuter
hlé. Þegar viðræður hófust að nýju
stóðu þær aðeins í nokkrar mínútur.
„Við stóðum hlið við hlið og höfð-
um ekkert að segja hverjir við aðra,“
sagði Monika Wulf-Mathies, formað-
ur ÖTV.
Samningamenn hins opinbera
sögðu fyrir viðræðumar að þeir ætl-
uðu að leggja fram nýtt tilboð. Eftir
fundinn vísaði aðalsamningamaður
ríkisins því á bug að ósætti meðal
vinnuveitenda hefði komið í veg fyr-
ir að það væri gert. Launþegar fara
fram á 9,5 prósenta kauphækkun en
vinnuveitendur hafa boðið 4,8 pró-
sent. Sáttasemjari mælti með 5,4 pró-
senta launahækkun í síðasta mán-
uöi.
Verkfallsaðgerðum var aflýst á
flugvöllunum í Frankfurt, Stuttgart,
Berlín og Munchen en umferð um
flesta aöra velli var takmörkuð, þar
á meðal Köln, Hannover og Dussel-
dorf.
Á almennum vinnumarkaði er
einnig fariö að hitna í kolunum. í gær
lögðu 105 þúsund starfsmenn í
málmiðnaði niður vinnu um stund-
arsakir til að leggja áherslu á kröfur
sínar um 9,5 prósenta launahækkun.
Reuter