Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1992, Page 2
2
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1992.
Fréttir
Meirihlutinn í bæjarstjóm Kópavogs:
Svíkur gef ið loforð við
félagsmálaráðherra
- aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur fer til fyrri starfa
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra átti samtöl við Gunnar
I. Birgisson, formann bæjarráðs í
Kópavogi, og Sigurð Geirdal bæjar-
stjóra um leyfi til handa Braga Guð-
brandssyni, félagsmálastjóra í Kópa-
vogi, þegar hann réð sig sem aðstoð-
armaður Jóhöimu.
í félagsmálaráðuneytinu er litið
svo á að samkomulag hafi tekist og
loforð verið fyrir því gefiö að Bragi
mætti snúa aftur til fyrra starfs eftir
eitt ár, tvö ár, þrjú ár eða eftir kjör-
tímabiiið. Nú hefur bæjarráð sam-
þykkt að annaðhvort komi Bragi til
starfa um næstu mánaðamót eða
ekki fyrr enn að loknu kjörtímabili,
það er eftir þijú ár. Þessi ákvörðun
hefur ekki vakið hrifningu innan fé-
lagsmálaráðuneytisins.
Þegar Jóhanna Sigurðardóttir leit-
aði til Braga um að vera aðstoðar-
maður sinn kom fram að hann vildi
ekki sleppa starfi félagsmálastjóra.
Jóhanna leitaði til Gunnars I. Birgis-
sonar og Sigurðar Geirdals. Sigurður
Geirdal sagði í samtali við DV að
erfitt væri að fá hæfa menn til aö
leysa af í svo skamman tíma í senn,
það er til eins árs. Starfi félag§jnála-
stjóra gegnir nú Aðalsteinn Sigfús-
son sálfræðingur. Sigurður Geirdal
sagði Aðalstein ekki hafa beitt nein-
um þrýstingi vegna þessa máls.
Nú er eitt ár liðið frá því Bragi hóf
störf hjá Jóhönnu. Jóhanna og Bragi
geröu ráð fyrir að framlenging á leyf-
inu yrði aðeins formsatriði en svo
reyndist ekki vera. Bæjarráð, undir
forystu Gunnars I. Birgissonar, gerir
ráð fyrir að leyfi Braga renni út um
næstu mánaðamót og bæjarráð sam-
þykkti aö það skuli ekki framlengjast
nema þá til loka kjörtímabilsins, eftir
því sem Sigurður Geirdal segir. Nú
bendir flest til þess að Bragi fari aft-
ur til starfa sem félagsmálastjóri og
Jóhanna Sigurðardóttir þurfi að leita
sér annars aðstoðarmanns.
-sme
Aukning grálúðukvóta:
Gefekkimik-
iðfyrir stofn-
unsemlegg-
urslíkttil
- segirVilhelniAnnasson
Reynir Trauöaaan, DV, Flateyri
„Það er algjörlega út í hött að
auka grálúöukvótann um 20%.
Ég gef ekki mikið fyrir þá stofnun
sem stendur að svona tillögugerð.
Ef einhver stofii við landiö er í
hættu þá er það grálúðustofn-
inn,“ segir Vilhelm Annasson,
skipstjóri á togaranum Sléttanesi
ÍS.
„Ef þetta er spegilmynd af mati
Hafró á þorskstofninum þá tek
ég ekki mark á þessari spá manna
þar um ástand þorskstofnsins.
Ég skal ekkert segja um það hvort
skera á niður þorskveiðar um
10%, 30% eöa 100% eða hvort
halda á óbreyttri veiði, ég tek ein-
faldlega ekki mark á svona mats-
aðferðum," sagöi Vilhelm.
Tillögur fiskifræðinga til há-
marksafla á næsta fiskveiðiári
hafa mætt harðri gagnrýni sjó-
manna. Þær raddir eru háværar
sem segja tillögumar lítt ígrund-
aöar og ekki trúverðugar. Menn
gagnrýna sérstaklega tillögur til
hámarksveiöi á grálúðu og
þorski Almennt viöhorf raeðal
sjómanna er aö grálúðan sé of-
veídcL MikÖl grálúðukvóti er
ónýttur og ekki fyrirsjáaniegt að
hann náist. Stór hluti togaraflot-
ans hefúr ekki lengur möguleika
á aö veiða grálúöu þar sem hún
stendur mjög (fiúpt og er horfin
af hefðbundinni veiðislóð. Varö-
andl stofnmat á þorski er þaö mat
margra að togararallið sé gjör-
samlega ónýt aðferð til að meta
stærð þorskstofnsins.
Sinfónían
leikurjólalög
í þessura mánuöi hefiast upp-
tökur á nýrri hljómplötu með
Sinfóniuhljómsveit íslands. Á
plötu þessari veröa eingöngu sí-
gild jólaiög. Þaö er Ed Welch sem
sér um útsetningar á lögiraum og
stjórna hljómsveitarmni.
Auk Sinfóníuhljómsveitarinn-
ar tekur Kór Öldutúnsskóla þátt
I nokkrum laganna og Sigrún
Hjálratýsdóttir syngur eitt lag.
uu
•im
Guöm Andreasen í Guönabakaríi á Selfossi setur nýja olíuofninn af staö. „Þetta er magnaöur ofn og út úr honum
koma góö brauö,“ sagöi Guöni. DV-mynd JAK
Guðni Andersen, bakari á Selfossi, kyndir með olíu:
Lækkar kyndingarkostn-
aðinn um ríflega þriðjung
- Ásbjöm Blöndal veitustjóri er ekki sammála
Guöni Andreasen í Guðnabakaríi
á Selfossi er eini sjálfstæði bakarinn
á landinu sem kyndir bökunarofn-
ana með olíu. Vitaö er um olíuofn í
brauögerð Mjólkursamsölunnar í
Reykjavík. Guöni hefur starfrækt
eigið bakarí í 20 ár og síðustu fjögur
ár hefur hann kynt ofnana með olíu.
Núna eru olíuofnarnir orðnir tveir,
sá nýjasti var tekinn í notkun fyrir
hálfu ári. Guðni segist spara ríflega
þriðjung með því að kynda með olíu
en ekki rafmagni en veitustjórinn á
Selfossi er bakaranum ekki alveg
sammála.
„Þetta byrjaði með könnun sem
Landssambönd iðnaöarmanna og
bakara gerðu sameiginlega á raf-
orkuverði. Þá kom í Ijós að raforku-
verð til brauðgerðarhúsa á íslandi
var allra dýrast á Selfossi. Við töluð-
um fyrir daufum eyrum um að fá
leiðréttingu á töxtum rafveitunnar.
Þannig aö ég lét verða af því að kaupa
mér olíuofn," sagði Guöni.
Eldri ofninn framleiðir um 48 kíló-
vött á klukkustund. Guðni segir
reynsluna af honum hafa verið mjög
góða. Þó að Guðni kyndi bökunarofn-
ana með olíu þá fær hann senda dá-
góða reikninga frá Rafveitu Selfoss.
Hann sýndi okkur einn þar sem
stendur að kílóvattstundin kosti
rúmlega 5 krónur, fyrir utan viröis-
aukaskatt. „Verðið á olíuframleiddri
kilóvattstund er rúm 1 króna,“ segir
Guðni.
Afköst nýja olíuofnsins eru 120
kílóvattstundir. Ofninn kostaði um
tvær miiljónir króna og hefur reynst
vel að sögn Guðna. Guðni segist nota
um 1000 lítra af olíu á mánuði.
Eins og áður sagði er veitustjóri
Selfoss, Asbjöm Blöndal, ekki sam-
mála Guðna um hagkvæmni þess að
kynda með olíu. í samtali viö DV
sagðist Ásbjöm ekki skilja útreikn-
inga bakarans.
„Ásbjöm bauð mér að endurskoða
það raforkuverð sem var í boði en
þaö var orðiö of seint, ég var búinn
að panta nýjan olíuofn. Efdr sem
áður erum við héma á Selfossi með
dýrasta raforkuverðið á íslandi,"
sagði Guðni.
Aðspurður sagðist Guðni ekki
skipta yfir í rafmagn næstú árin en
vildi þó ekki útiloka það. Hann sagöi
kostnaöinn við að breyta nýja ofnin-
um yfir í rafmagn vera um hálfa
milijón króna.
-bjb
Hinn frægi langhali matreiddur
Aflakaupabankinn, sem er sam-
starfsverkefni aflanýtingamefndar
sjávarútvegsráöuneytisins og Rann-
sóknastofnunar fiskiönaðarins,
stendur aö kynningu á nýjum fisk-
tegundum á 20 veitingahúsum dag-
ana 19. til 26. júní. Kynningin ber
nafniö „Sælgæti úr sjó“ og veröa
þijár fisktegundir kynntar: hinn
frægi langhali, stinglax og háfur.
Hin síðari ár hefur athygli manna
beinst í auknum mæli aö vannýttum
fisktegundum í hafinu við ísland og
ijóst er að sá áhugi á ekki eftir að
minnka þegar fyrirsjáanleg er skerö-
ing á þorskkvótanum. Fjöldi tegunda
er lítiö veiddur þrátt fýrir að um sé
að ræða-góðan matfisk og afar eftir-
sóttan, til dæmis í Frakklandi, Eng-
landi og Spáni.
Aílakaupabankinn kaupir allar
vannýttar fisktegundir sem aö landi
berast. Bankinn hefur það hlutverk
að stuöla að nýtingu, vinnslu og
markaðsetningu á vannýttum fisk-
tegundum.
-Ari
Áttræður flugmaður:
FráWashing-
ton til Moskvu
í einum áfanga
-áeins hreyfilsflugvél
I gær flaug lítil eins hreyfils vél
af geröinni Beachcraft Bonanza
yfir ísland. Vélin kom frá Was-
hington í Bandaríkjunum og er
feröinni heitið alla Jeið tii
Moskvu án lendingar. Áætlaður
flugtími er rúmar 30 stundir.
Þetta væri í sjálfu sér ekki í frá-
sögur færandi ef flugmaðurinn
væri ungur og sprækur en hér
er á ferðinni maður á áttræðis-
aldri. Hann er auk heldur einn í
vélinnL Hér er á ferð dr. Charles
Mack sem giftur var íslenskri
konu og er vel kunnugur hér á
landi.
Fyrir nokkrum árum flaug
Charles Mack frá Alaska yfir
norðurpólinn til Helsinki í Finn-
landi án millilendingar. Áður
hefur hann flogið milii New York
og Parísar bæði austur og vestur.
Að þessu sinni mun Charles
Mack fljúga heim án millilend-
ingar til Bancor í Main-ríki í
Bandaríkjunum en þar er hann
fæddur.
-ask
KeflavíkurflugvöUur:
Atvinnumálín
í brennidepli
Næstkomandi þriöjudagskvöld
mun utanríkisráöherra, Jón
Baldvin Hannibalsson, eiga fund,
meö íslenskum starfsmönnum á
Keflavikurflugvelli um horfur í
atvinnumálum á vellinum. Und-
anfariö hefur íslendingum verið
sagt upp störfum bjá varnariíð-
inu sökum samdráttar. Jón hélt
fund með starfsmönnunum í okt-
óber sl. og hafa verkalýðsfélög á
Suðurnesjum síðan farið fram á
annanfúnd.
„Við viljum fá fram stöðuna hjá
vamarliðinu og stöðuna í þeim
viðræðum sem hafa verið í gangi
milli vamarliösins og íslenskra
stjórnvalda," segir Kristján
Gunnarsson híá Verkalýðs- og
sjómannafélagi Keflavíkur. „Við
munum reyna að knýja á um svör
við því hvort það verður frekarí
samdráttur og hvort stjómvöld
ætli þá að beita Bandaríkjamenn
einhveijum þrýstingL“
Kennarar Víðistaðaskóla:
Bréfleg tilmæli
umað Eggert
hafnistöðunni
Kennarar og aðrir starfsmenn
Víöistaðaskóla hafa sent Eggerti
J. Levy bréf þar sem þeir mælast
tfl þess að hann hafni stöðu skóla-
stjóra við skólann. Er þetta gert
i framhaldi af fundi sem starfs-
menn skólans áttu í fyrrakvöld.
Þar vora samþykkt haröorð mót-
mæli til menntamálaráöherra
vegna embættisveitingarinnar.
-JSS
- Sjá nánar á bls. 4,5 og 7
Reykjavík:
Lýsteftir
Lögregian í ReyKjavik lýsir eftir
bifhjóli sem var stoUð frá húsi við
HjaUalund aðfaranótt 20. apríl
síðastUöinn. BifhjóUð er af gerðj
inni Suzuki TS 50. Þegar því var
stoUð bar það skráningamúmer-
ið ÖA-097. HjóUÖ var blátt og
hvítt aö Ut, árgerð 1989.
Vélaraúmer hjólsins er 124806
og stellnúmer 124586. Þeir sem
telja sig vita hvar hjóUð er niður-
komið em beðnir að hafa sam-
bantfvið lögregluna í Reykjavík.