Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1992, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 20. JUNÍ 1992.
Fréttir
Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleikstjóri:
Höfum ekkert aðhafst sem
gæti truf lað einn eða neinn
„Viö höfum ekkert aðhafst þama
sem gæti truflað einn eða neinn. Við
reistum þennan eina fommanna-
haug á túninu fyrir 1. maí,“ sagði
Hrafn Gunnlaugsson kvikmynda-
leikstjóri viö DV vegna ummæla
Guðjóns Jónatanssonar, efdrlits-
manns í Gróttu, um að framkvæmdir
viö 'undirbúning að töku atriöa úr
kvikmyndinni Hin helgu vé væm
búnar að leggja fuglalíf í eyjunni í
rúst. Fyrirhugað er að hefja upptök-
ur í Gróttu 7. eða 8. júlí.
Aðspurður um hvort rétt væri að
unnið hefði verið að undirbúningi
fram yfir 20. mai sagði Hrafn: „Mér
er sagt að mínir menn hafi farið eitt-
hvað í íbúðarhúsið þama. Leikurinn
gerist í því. Þeir skildu eftir einhver
verkfæri þama og dót og vom eitt-
hvað á ferðinni við að taka til í hús-
inu. Að öðra leyti vora þeir ekki með
neinar framkvæmdir."
Hrafn sagði aö allar stærri fram-
kvæmdir, viðgerð á bryggjunni og
fleira, biðu fram yfir lok friðunar-
tímans sem er 1. júlí.
„Ég held aö þaö séu ekki fram-
kvæmdir okkar sem hafa eyðilagt
fuglalífið þama,“ sagði Hrafn. „Sam-
kvæmt fréttum útvarps um miðjan
júní átti ég að hafa verið með ein-
hver mikil læti þama á tilteknum
tíma. Þegar betur var að gáð var ég
úti í Frakklandi og mennimir, sem
áttu að vera á mínum vegum þama,
vora löngu komnir til Noregs. Þetta
reyndust hafa verið einhverjir menn
sem vora að drekka þama úti, höfðu
brotið rúður og eyðUagt eitthvað."
Hrafn sagöi að tfitektimar í húsinu
og hlöðunni úti í Gróttu hefðu verið
gerðar í samráði við Vita- og hafnar-
málastjóm. Að auki væri fuglalífið
ekkert í námunda við bæinn heldur
fyrir utan tún.
„Ef mínir menn hefðu verið látnir
vita að þetta gæti haft einhver áhrif
á fuglalífið hefðum við alveg eins
getað beðið fram yfir friðunartíma.
Menn vora aðallega aö taka tfi í hús-
unum en þetta vora engar fram-
kvæmdir.“
-JSS
I
Gamla hlaðan úti í Gróttu kemur til með að leika hlutverk í mynd Hrafns Gunnlaugssonar. Bent hefur verið á að
alls kyns draslt hafi vérið rótað út úr henni til litillar prýöi fyrir eyjuna sem er friðlýst. DV-mynd JAK
Menntamálaráðherra um mótmæli kennara Víðistaðaskóla:
Eins og til verði
klúbbur kunningja
- sem slá skjaldborg hver um annan
ekki ráðið neinum úrshtum, því
hann er með stúdentspróf, sem hinn
hefur ekki.“
Aðspurður hvort ekki væri hætta
á að óeining yrði í skólastarfinu, þeg-
ar slík úlfúð hefði orðið í kringiun
ráðninguna, sagði Ólafur: „Ég trúi
því ekki fyrr en ég tek á því að ein-
hver fari að sýna þessum manni ein-
hveija vanvirðu. Ég mun senda frá
mér greinargerð vegna þess hvernig
bragðist hefur verið við þessu.
Varðandi það að ég hafi stungið af
úr iandi er rétt að taka fram að ég
þurfti að fara til Finnlands mánudag-
inn 15. júní. Daginn eftir var fréttatfi-
kynningin send úr ráðuneytinu. Á
frídegi, þann 17., var ég kominn aftur
úr þessari flóttaferð minni.“ Sjá enn-
fremur bls. 5 og 7.
-JSS
„Mér finnst ekki eðlfiegt að það sé
reynt að koma því á sem einhverri
aöalreglu að menn eigi vísan fram-
gang innan síns skóla og loki þannig
úti alla hæfa umsækjendur. Þaö er
eins og verði til einhver klúbbur
kmmingja, sem slá skjaldborg hver
um annan. Mér þykir þetta ekki eðli-
legt og vfi bijótast út úr því. Ég vfi
sjá það sem ríkjandi reglu að utanað-
komandi fólk eigi jafna möguleika á
faglegum grundvelli," sagði Ólafur
G. Einarsson menntamálaráðherra
vegna framkominnar gagnrýni á
setningu Eggerts Levy í embætti
skólastjóra í Víðistaðaskóla.
Starfsfólk skólans sendi frá sér
harðorð mótmæh eftir fundahöld í
fyrrakvöld. Þar sagði að mennta-
málaráðherra hefði látið fagleg sjón-
armið víkja fyrir pólitísku ofstæki
með því að setja ekki Magnús Jón
Amason yfirkennara í starfið.
Ólafur kvaðst vísa gagnrýni starfs-
fólksins á bug. Hann hefði ekki dreg-
ið óeðlfiega lengi að afgreiða setn-
ingu í embætti skólastjóra. Hann
hefði þurft að taka sér tíma til að
meta stöðuna, því nánast strax hefði
verið byijað að þyrla ýmsu upp í
kringum málið. Hann hefði ekki talið
sig fá nægfiega eðlilegt mat á málinu
frá skólanefnd né öðrum aðfium í
Hafnarfiröi.
„Þar hófst nú pólitíkin í þessu máh
en ekki hjá mér,“ sagði Ólafur.
„Ég vísa því á bug aö póhtískt sjón-
armið hafi vikið fyrir hinu faglega.
Ég leitaði faglegrar umsagnar og tel
að ég hafi einmitt tekið ákvörðun á
faglegum grunni. Ég vísa einfaldlega
til þess að Eggert Levy hefur 11 ára
skólastjórareynslu að baki. Hann
hefur meiri menntun, þótt það hafi
Náttúruvemdarráö:
Hvorki heimild til
að leyfa né banna
- umstang og kvikmyndatökur 1 Gróttu
„Náttúravemdarráð veitti aldrei
undanþágu tfi þess aö farið væri út
í eyna. Hins vegar kom skýrt fram í
bréfi, sem Amþór Garðarsson, for-
maður Náttúravemdarráðs, sendi
Hrafni að það væri mjög óæskfiegt
að vera mikið á ferðinni þama, þótt
komið væri ffarn í júh og friðunar-
tímannm lokið. Það væri betra í ág-
úst,“ sagði Guðríður Þorvarðardóttir
hjá Náttúravemdarráði við DV.
Guðríður sagði að í reglugerð um
eyna stæði að þar væri öllum heimil
umferð. Vita- og hafnamálastofnun
ætti eyna og hún hefði heimfiað
Hrafni að kvikmynda þar. Náttúra-
vemdarráð hefði ekki getað bannað
honum það eftir að friðunartíminn
væri úti, þann 1. júh. Samkvæmt
reglugerð gæti ráöið ekki bannað
slíkt En hann mætti ekki reisa nein
mannvirki né raska jörð, því það
gengi gegn reglugeröinni. Hitt væri
rangt að segja að ráðið hefði heimfiað
honum kvikmyndatöku eftir ffiðun-
artímann. Þess má geta að eyjan er
ffiðlýst allt árið, en friðunartíminn
vegna fuglavarps er frá 1. mai - 1.
júh.
„Eftir því sem mér skilst, þá heim-
ilaöi Guðjón Jónatansson eftirlits-
maður mönnunum, sem unnu að
undirbúningi kvikmyndarinnar, að
fara út í Gróttu fyrstu vikuna eftir
lokun, en það á ekki að hafa verið
nein umferð eftir það,“ sagði Guðríð-
ur. „Hafi þeir verið þama eftir 20.
maí, eins og hann segir, þá hafa þeir
verið þama í algjöra leyfisleysi."
Guðríður kvaöst vilja benda á að
mikið væri um fólk með hunda úti í
eynni og shkt hefði mjög slæm áhrif
á fuglalífið. Því væra fleiri þama á
ferðinni en Hrafn, þótt hún væri
„ekki ánægð meö hvemig hann hef-
ur oft skihð við“. Hún gæti því ekki
að ókönnuðu máh fufiyrt að það
væri einungis honum að kenna
hvemig komið væri fyrir varpinu í
Gróttu.
Ekki náðist í Þórodd Þóroddsson,
framkvæmdastjóra Náttúravemdar-
ráðs, í gær.
-JSS
Enn einn Óskar-
inn í embætti
hjá Ólafi G.
Menntamálaráðherra hefur
skipað enn einn Óskarinn í emb-
ætti, og nú sem skólastjóra í Víði-
staðaskóla. í þetta skiptið er það
Eggert J. Levy, sem sótti um starf-
ið á síðustu stundu undir töfraorð-
unum: „Óskar nafnleyndar“. Hann
hreppti hnossið, eins og kunnugt
er.
Mikil óánægja braust út meðal
starfsmanna skólans því þeir vildu
Magnús Jón Ámason yfirkennara
í starfið. Þeir hafa sent frá sér harð-
orð mótmæh og íhuga nú frekari
aðgerðir.
Þessi uppákoma minnir á ýmsar
aðrar embættisveitingar ráðherra,
sem hafa veriö með eindæmum
óvinsælar. Þegar embætti útvarps-
stjóra var auglýst laust til umsókn-
ar sóttu allmargir um. Útilokað
reyndist að fá upplýsingar um
hverjir það væra þótt umsóknar-
frestur væri útrunninn. Eftir tals-
vert pukur barst svo tilkynning frá
skrifstofu ráöherra um að Heimir
Steinsson hefði verið settur í stól-
inn. Menn vora vægast sagt þrumu
lostnir.
Leiklistarskpli ríkisins lék sitt
hlutverk í sögulegri embættisveit-
ingu. Þar sóttu sex um stöðu skóla-
stjóra. Meirihluti skólanefndarfull-
trúa mælti með Hafhða Amgríms-
sym. Ráðherra kaus að fara aðra
leið og réð Gísla Alfreðsson. Gísh
hafi verið svo lánsamur að merkja
umsókn sína með „Óskar nafri-
leyndar".
Guðmundur Magnússon, sem
ráðherra setti þjóðminjavörð,
þurfti ekki að óska nafnleyndar til
þess að komast inn á Þjóðminja-
safnið. Sú staöa var nefnfiega aldr-
ei auglýst. Embættisveitingin kom
svo eins og þruma úr heiðskíra
lofti. Skiljanlega braust út mikfi
óánægja meðal starfsmanna þar,
sem vildu að Lfija Ámadóttir safii-
stjóri yrði staðgengfii Þórs Magn-
ússonar.
-JSS