Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1992, Síða 10
10
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1992.
Myndbönd
ot tlic tuturc.
Bctrayod
by a vvom.m
r>» t>i» pa&t.
Fr.vnM Warrrsn
ifai wirud to
nxplndo.
Fangelsi
framtíöarinnar
WEDLOCK
Útgefandi: Sam-myndbönd.
Leikstjóri: Lewis Teague.
Aðalhlutverk: Rutger Hauer, Mimi Rog-
ers og Joan Chen.
Bandarisk, 1990 - sýningartimi 100 mín.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
Wedlock gerist einhvem tímann
í nánustu framtíð og leikur Rutger
Hauer snjallan þjóf, Frank Harris,
sem er svikinn af félögum sínum.
Áður hefur honum tekist að fela
mikil auðæfi í demöntum. Hairis
lendir í fangelsi sem hefur enga
girðingu, en er þó alveg ömggt.
Utan um háls fanganna er hringur
sem er rafeindatengdur við annan
sams konar og ef þessir hringir
mælast í 100 metra fjarlægð hvor
frá öðmm verður sprenging með
þeim afleiöingum að viðkomandi
drepast. Fangamir fá að sjálfsögðu
ekki að vita hveijir em samtengd-
ir. Einn samfanganna, stúlka að
nafni Tracy, kemst að því að hún
er samtengd Harris og saman flýja
þau, en þeirra bíöur hættufór því
margir vilja eignast demantana...
Wedlock er spennandi mynd og
frumleg framan af, enda er hug-
myndin snjöli, en úrvinnslan er
eldd nógu góð og þegar að flóttan-
um kemur um miðja mynd er fátt
eftirtektarvert eftir það.
Veðravíti
SLIPSTREAM
Útgefandi: Myndform.
Leikstjóri: Steven M. Lfsberger.
Aðalhlutverk: Mark Hamill, Bill Paxton,
Eleanor David, Ben Kingsley og F.
Murray Abraham.
Bresk, 1989 - sýningartimi 101 mín.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Sjálfsagt verða spennumyndir
sem gerast eiga í framtíðinni aldrei
sannfærandi nema miklu sé kostað
til. Tæknin er orðin það mikil, en
að sama skapi dýr, að þegar reynt
er að gera slikar myndir á ódýran
máta sést fljótt að mörg atriði hefðu
verið áhrifameiri með meiri til-
kostnaði.
Slipstream er ein slik mynd.
Umgjörðin sem er jörðin í framtíð-
inni þegar geysimiklir vindar sem
hér eru kaUaðir loftrásir (SUpstre-
am) eru að gera jörðina óbyggUega.
Jarðarbúar sem eftir eru hafa því
búið sér heimiU í djúpum dölum.
Slipstream er spennumynd sem í
byijun snýst um að koma eftirlýstu
vélmenni til réttra yfirvalda og
hirða verðlaunaféð, en vélmennið
sem er í mennskri mynd og ræður
sjálft hvort það viU láta handtaka
sig eða ekki, hefur góða „sál“, ann-
að en hægt er að segja um suma
þá sem eltast við það.
SUpstream er ágæt afþreying fyr-
ir unnendur vísindaskáldsagna en
hún hefði getað orðið betri.
★★★
Ekkert yenjulegt stefnumót
DOGFIGHT
Útgetandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Nancy Savoca.
Aðalhlutverk: River Phoenix, Lili Taylor
og Richard Panebianco.
Bandarísk, 1991 - sýningartími 90 min.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Þótt langstærsti hluti kvik-
mynda, sem sýndar eru hér á landi
í kvikmyndahúsum, sé frá Banda-
ríkjunum þá eru það aUtaf nokkrar
bandarískar úrvalsmyndir sem
fara beint á myndbandamarkaöinn
og er Dogfight ein þeirra. Er hér
um að ræða vel heppnaða mynd
um sérkennUegt ástarsamband.
Myndin gerist snemma á sjöunda
áratugnum. Víetnamstríðið er í
augsýn og eru aðalpersónumar
fjórir ungir pUtar sem eru að halda
tíl Víetnams.
Þeir ákveða ásamt félögum sín-
um að sletta ærlega úr klaufunum
í San Francisco kvöldið áður en,
lagt er af stað. Ákveðið er að halda
samkvæmi á einum dansstað og er
lagt í púkk og fær sá sem kemur
með ljótustu stúlkuna í samkvæm-
ið aUan peninginn sem safnast hef-
ur.
Eddie Birdlace (River Phoenix)
gengur í fyrstu Ula að hitta ein:
hveija stúlku sem er við hæfi. Á
kaffihúsi einu sér hann svo Rose,
feitlagna og hlédræga stúlku sem
aldrei myndi fá þátttökurétt í feg-
urðarsamkeppni. Rose, sem hefur
ekki haft mikU afskipti af karl-
mönnum, er draumlynd stúlka og
auðveld bráð fyrir Eddie. Þrátt fyr-
ir að samviskan nagi Eddie fer
hann með hana í samkvæmið þar
sem Rose kemst fljótt að því hvers
vegna henni var boðið og heUir sér
yfir Eddie og félaga hans áður en
hún heldur á hrott. Eddie skynjar
aftur á móti að fegurðin er ekki
alltaf sjáanleg og heldur í humátt
Lili Taylor og River Phoenix leika tvo einstæðinga sem dragast hvor
að öðrum í Dogfight.
á eftir henni...
Leikstjóri Dogfight er ung kvik-
myndagerðarkona, Nancy Savoca,
sem vakti mikla athygh með fyrstu
mynd sinni, True Love, en sú mynd
hreppti aöaiverðlaunin á kvik-
myndahátíðinni í New York 1989.
Dogfight er ekki síðri kvikmynd,
vel útfærð og einlæg í afstöðu sinni
tíl mannfólksins og einnig stund-
um fyndin. Það reynir mikið á aðal-
leikarana, River Phoenix og LUi
DV-myndbandalistinn
Ellen Barkln leikur aðalhlutverklð í gamanmyndinnl Swltch sem er
í fjórða saetí listans og er á uppleiö. Leikur hún karirembu sem kom-
ið er fyrir kattarnef en kemur aftur til jarðarinnar I k venmannslíkama.
The Mariboro Man
2(2) FX2
3 (7) The Fisher King
4 (6) Switch
5(3) Ricochet
6 (5) Not without My Daughtí
7 (4) Doc Hollywood
8 (-) Don’t Tell Mom
the Babysitter’s Dead
9 (12) Wedlock
10 (10) Mortal Thoughts
11 (8) Body Parts
12 (-) Thelma and Louise
13(9) Jungle Fever
14 (11) K«2
15«
Aheitu sumri 1968
MAÍDAGAR (MILOU EN MAI)
Útgefandi: Háskólabió.
Leikstjóri: Louis Malle.
Aðalhlutverk: Michel Piccoli og Miou
Mlou.
Frönsk, 1991 - sýningartimi 95 min.
Leyfð fyrir alla aldurshópa.
Árið 1968 verður sjálfsagt áváUt
tahð meðal merkari ára á þessari
öld. HippatímabUið var í algleym-
ingi þar sem ungt fólk boðaði frið
og ást og þetta ár gerðust margir
örlagaríkir atburðir. Stúdentaó-
eirðimar í París voru einn slíkur
atburður.
Nýjasta kvikmynd franska leik-
stjórans Louis Malle, Maídagar
(MUou en mai) gerist einmitt í maí
1968 þegar stúdendaóeirðimar
vom í algleymingi. Myndin er sér-
lega skemmtíleg gamanmynd. Bak-
grunnurinn og áhrifavaldur em
óeirðimar þótt myndin gerist í
sveit langt frá París og fjallar um
fiölskyldu sem er tvístruð en hittist
þegar ættmóðirin deyr.
Fjölskyldumeðlimimir, sem eru
ákafalega ólíkir, sameinast á þess-
ari stundu en fljótt kemur upp
ágreiningur um hver á að fá hvað
úr búinu og em aðferðimar ekki
aUtaf heiðarlegar í þeim efnum.
Flestir vUja selja ættarsetrið en þar
hefur búið elstí bróðirinn, sem Mic-
hel PiccoU leikur snUldarlega, og
segist hann ætla að drepast þama
hvað sem hver segir. VandamáUn
hlaðast upp. TU að mynda fara
grafarar í samúðarverkfaU með
stúdentum í París og sú gamla
verður því að Uggja í stofunni dáUt-
iö lengur en ætlað var.
Á þessum tíma var boðað fijáls-
lyndi í ástum og fer sú bylgja ekki
framhjá fiölskyldunni. í hita dags-
ins er dregin upp hasssígaretta sem
látin er ganga á milU og hefur núk-
U áhrif á hormónastarfsemina.
Bundinn er snöggur endi á þá
veislu þegar óstaðfestar fréttir ber-
ast frá París um að stúdentar séu
búnir að taka við stjóm lands-
ins...
Maídagar er skemmtileg og
mannleg kvikmynd. Þótt hún
standist ekki samanburð við síð-
ustu mynd Louis MaUe, Verið þið
sæl krakkar (Au Revoir le En-
fants), þá er hún kærkomin til-
breyting og húmorinn í myndinni
er frábær þótt stundum sé stutt í
alvöruna. Maídagar er mynd sem
óhætt er að mæla með fyrir aUa.
-HK
Taylor. Phoenix sem vakti athygh
sem barn er vaxandi með hverri
mynd og fer vel með hlutverk Eddi-
es. LUi Taylor nær mjög góðum
tökum á hlutverki sínu, er fyrst
aðeins ófríð gengilbeina en er líður
á myndina tekur maður ekki eftír
útUtinu lengur, innri persónan hef-
ur yfirhöndina.
-HK
Vafasamur frændi
SHADOW OF A DOUBT
Útgefandi: ClC-myndbönd.
Leikstjóri: Karen Arthur.
Aóalhlutverk: Mark Harmon, Diane
Ladd og Margaret Welsh.
Bandarisk, 1991 -sýningartími 100 min.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Þær eru margar kvikmyndaperl-
urnar sem Alfred Hitchcock sldldi
eftir sig. Meðal þeirra er Shadow
of a Doubt sem hann gerði 1943.
Mynd þessi var endurgerð 1958
undir öðru nafni og nú hefur þriöja
útgáfan Utiö dagsins ljós og þótt
handbrögð meistarans séu ekki til
staðar þá er hin nýja Shadow of a
Doubt hin besta afrreying.
Hinn sjarmerandi en slægi
Charlie frændi var leikinn af Jos-
eph Cotten í útgáfu Hitchcocs en
hér er það Mark Harmon sem leik-
ur þennan morðingja sem kemur
heim til sín í smáhæ þar sem hon-
um er fagnað sem hetju enda veit
fiölskylda hans ekki betur en að
hann starfi sem verðbréfasaU í
New York. Frændinn er sérlega
heiUaður af ungri frænku sinni
sem hefur verið skírð í höfuö hon-
um. Það er svo einmitt hún sem
kemst að hinu sanna en veit að ef
sannleikurirm kæmi fram í dags-
ljósið myndi móðir hennar, sem er
systir CharUe, aldrei ná sér.
Það er ekkert verið að fela að
verið er að herma eftir einstökum
atriðum úr myndum eftir Hitc-
hcock og má þar nefna kamival-
atriði sem er eins og kUppt út úr
'Strangers on a Train. TU að undir-
strika þetta leikur svo Tippi He-
dren, ein af þekktustu leikkonum
Hitchcocks, Utiö hlutverk í mynd-
inni.
__________ -HK