Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1992, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1992.
11
Matthias Guðmundsson er á níræðisaldri en er enn í fullu fjöri. Hann starf-
ar nú einn í vélsmiðju sem verið hefur í núverandi húsnæði síðan 1913.
Fyrst er járnið hitað í yfir 1400 gráður í oliukyntum ofni...
... síðan er potturinn tekinn upp með þar til gerðum töngum .
... og hellt
sjálfur gert.
mót sem hann hefur
DV-myndir BG
Matthías Guðmundsson á Þingeyri:
Vélsmiðja
rekiní
sama húsi
frá 1913
- lítið að gera núorðið því útgerðin kaupir ekki neitt
„Faðir minn byijaði í þessu sem
ungur maður fyrir aldamót en vél-
smiöjan flutti í þetta hús 1913. Ég er
fæddur 1911 og byrjaði' nú ekki að
vinna héma 2 ára,“ segir Matthías
Guðmundsson á Þingeyri og hlær
ógurlega. „En 4-5 ára fór maður að
líta héma inn og um fermingaraldur
var maður orðinn drallugur upp fyr-
ir haus. Nú, svo var ég hér til náms
náttúrlega hjá fóður mínum.“
Faöir hans flutti vélsmiðjuna í
þetta húsnæði 1913 og rak hana með
bræðranum Proppé en keypti þá síö-
ar út úr fyrirtækinu. Matthías vann
með honum meira eða minna alla tíð
en fór til náms í Danmörku á fyrsta
kreppuárinu. Áður unnu margir í
smiðjunni, oft um 14-16 menn, og
nefndi hann t.d. að Jónas Ólafsson,
sveitarstjóri á Þingeyri, hefði lært
hjá sér og afi Ólafs Ragnars Gríms-
Það er litið að gera núorðið enda útgerðin hætt að kaupa nokkuð. Matthí-
as fæddist inn i Sjálfstæðisflokkinn og hefur verið þar síðan. Hann segir
þó að persónur skipti meira máli en flokkarnir og sjálfstæðismenn geti
verið forskrúfaðir og blindir. Aðalmálið sé að hafa mannfrelsi.
sonar hefði lengi unnið þama og Ól-
afur verið mikið sjálfur að þvælast
þarna með afa sínum. Nú er hann
hins vegar einn þama þar sem lítið
sé orðið að gera en fær tvo menn til
að aðstoða sig þegar hann hellir í
mótin.
„Þetta er ekkert orðið núna. Núna
síðasta árið hefur þetta dottið niður
svo mikiö vegna þess að útgerðin
hefur ekki keypt neitt.“
DV var á ferð um Vestfirði á dögun-
um og fylgdist með Matthíasi að
störfum. Fyrst hitar hann járnið í þar
til gerðum potti upp í yflr 1400 gráður
í olíukyntum ofni. Síðan hellir hann
kraumandi járninu í þar til gerð mót
sem hann hefur gert Þetta*er mikil
nákvæmnisvinna því ekkert má út
af bregða til að stórslys eigi sér stað.
En þrátt fyrir háan aldur dregur
Matthías hvergi af sér. Líkamlega er
hann gríðarlega sterkur og ekki síð-
ur andlega. Hann hefur mjög
ákveðnar skoðanir og er vel inni í
þjóðmálunum. Hann segist hafa
fæðst inn í Sjálfstæðisflokkinn og
verið þar síðan og setið marga lands-
fundi flokksins. Hann leggur þó
áherslu á að góðir menn sén í öllum
flokkum og einnig slæmir, persón-
umar skipti meira máh en hvaða
flokkum þeir sitji í. „Sumir sjálfstæð-
ismenn er forskrúfaðir og blindir."
Aðalmálið er að hans mati mann-
frelsið.
-pj
LUS
DANSKAR GÆÐATRÉVÖRUR
Sólpallar - girðingar - skjól- og skilrúmsveggir
Sérlega vandaðar danskar gæðatrévörur úr völdu gagnvörðu
timbri í miklu úrvali á góðu verði.
Afgreitt að mestu leyti samsett með ítarlegum
leiðbeiningum um uppsetningu.
★ Afgreiðsla tekur íjórar vikur frá pöntun.
★ Hafðu samband við okkur í síma 26911
og fáðu litabækling og verðlista.
Skipholti 19 3h.
Sími 91-26911 Fax. 91-26904
REYKIALUNDUR - með vatnið a hreinui