Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1992, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1992, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1992. Skák Ólympíuskákmótið í Manila: Enskir lagðir 17. júní - Rússar langefstir fyrir lokasprettinn íslenska ólympíuskáksveitin kom saman í léttar veitingar áður en haldiö var til Manila á Filippseyjum þar sem hún hefur staðið sig með sóma. Jón L. Ámason, DV, Manila; Því er ekki að leyna að nokkur beygur var í íslensku skákmönn- unum fyrir taflið við Englendinga í niundu umferð ólympíuskák- mótsins hér í Manila. Enska sveitin er skráð í 2. sæti í styrkleikaröð- inni - á eftir Rússum - og oft hafa ensku stórmeistaramir verið ís- lendingum skeinuhættir. Á síðasta ólympíumóti í Novi Sad fyrir tveimur árum skildu þjóðimar raunar jafnar, 2-2, og máttu enskir þakka fyrir. Hins vegar vom minn- ingamar frá Dubai 1986 ekki jafn- ánægjulegar. Er upp var staðið höfðu Englendingar unnið skákir sínar á öllum borðum-fjögur núll! En í Manila var stund hefndar- innar mnnin upp. Svo skemmti- lega vildi til að taflið bar upp á þjóð- hátíðardaginn, 17. júní. Auðvitað gátum við ekki verið þekktir fyrir annað en að standa okkur þennan dag og vera landi og þjóð tU sóma. Engu að síður komu úrslitin á óvart: íslendingar fengu þrjá vinn- inga gegn einum vinningi enskra. Kunnugustu menn segja að enska sveitin sé sú sterkasta sem íslend- ingar hafi nokkm sinni unniö á ólympíuskákmóti. Englendingar hafa nú staðið sig mun lakar en búist var við fyrirfram. Gárang- amir segja að þeir geti ekki ein- beitt sér að taflinu fyrir áhyggjum af hjónabandsmálum bresku kon- ungsfj ölskyldunnar. Sigling á Manilaflóa Vel fer um íslendingana á Hótel Manila og sannast sagna eru að- stæður og skipulagning mótsins betri en við höfðum búist viö. Mat- urinn fer meira að segja vel í mann- skapinn þrátt fyrir viðvaranir ís- lendinga sem farið hafa á þessar slóðir og spáðu okkur löngum kam- arsetum. Á frídögum hafa sveitarmenn reynt að slaka á frá baráttunni á skákborðinu. Farið var í skoðunar- ferð til Corregidor - eyju sem er sögufræg úr seinni heimsstyijöld- inni og Gunnar Eyjólfsson, sérleg- ur aðstoðarmaður sveitarinnar, gerðist félagi í siglingakiúbbi Man- ila um stundarsakir. Nokkrir liðs- manna fóm í siglingu um Manila- flóa í boði fyrrverandi sendiherra Filippseyja í Róm og drukku kaffi með borgarsfjóranum. Þá buöu mótshaldarar, með Campomanes, forseta Fide, í broddi fylkingar, til glæsilegs kvöldsam- kvæmis þar sem borð svignuðu undan krásum, óþijótandi drykkj- arfong vom af öllum gerðum og sextán manna stórhljómsveit sá um að skemmta gestum. Eftir þvi var tekið hvað íslendingamir voru stilltir og fóru snemma heim en nokkrir keppenda, einkum frá hin- um nýju lýðveldum, fóru bersýni- lega heldur of geyst í sakimar. Kasparov og Kramnik Rússneska sveitin virðist ætla að stinga af með gullverðlaunin og raunar hafa Rússamir staðið sig ennþá betur en sveit „gömlu Sovét- ríkjanna". Heimsmeistarinn, Garrí Kasparov, er óstöðvandi á fyrsta borði - hefur 5,5 vinninga af 6 er þetta er ritað. Auk hans tefla í sveitinni Khalifman, Dolmatov, Dreev, Vizmanavin og Vladimir Kramnik sem hefur farið hamfór- um - unnið allar sex skákir sínar til þessa. Baráttan stendur fyrst og fremst um silfur og brons og þar eru marg- ir um hituna. Nýju sovésku lýð- veldin, sem hafa á að skipa mörg- um öflugum mönnum, hafa breytt Umsjón Jón L. Árnason myndinni frá því sem áöur var. Vonandi tekst íslensku sveitinni að blanda sér í baráttuna. Sigurinn gegn Englendingum gefur vissu- lega fögur fyrirheit. I taflinu við Englendinga komst Jóhann langt með Short á fyrsta borði en tókst þó ekki að leggja kappann. Skák Margeirs við Speel- man á 2. borði lauk einnig með jafn- tefli. Margeir varðist þar vel yinn- ingstilraunum Speelmans. Á 3. borði tefldi ég gegn Adams í þriðja sinn og tókst nú loks að snúa við blaðinu - fyrri tveimur skákum okkar lauk með sigri Adams. Þá tefldi Hannes við Chandler á 4. borði og yfirspilaði Englendinginn gjörsamlega í miðtaflinu. í loka- stöðunni er tafl Chandlers algjör- lega í rúst. Hvítt: Jón L. Árnason Svart: Michael Adams Vínar-bragð. 1. e4 e5 2. Rc3 Rc6 3. f4!? Fyrir skákina bað ég Kristján Guðmundsson liðsstjóra um leyfi til að tefla kóngsbragð. Hann veitti það góðfúslega en vitaskuld er þetta afar tvíeggjað vopn. Raunar frestaði ég framrás f-peðsins um einn leik, svona til að róa taugar liðsstjórans andartak. 3. - exf4 4. Rf3 g5 5. d4 d6? Þekkt mistök sem Helgi Áss gerði sig einnig sekan um gegn Skotan- um Motwani á Hafnarborgarmót- inu á dögunum. Svartur verður að taka áskoruninni og leika 5. - g4 6. Bc4! gxf3 7.0-0 með afar óljósum afleiðingum. 6. d5! Re5 7. Bb5+ Bd7 8. Bxd7 Rxd7 9. Dd4 f6 10. h4! En ekki 10. Rxg5? fxg5 11. Dxh8 Rdf6 og drottningin lokast inni. 10. - g4 11. Rg5 Rc5 12. Re6 Ef 12. b4 getur svartur svarað með 12. - h6, eöa 12. Dd7!? 13. bxc5 dxc5 og drottningin verður að hrökklast af homalínunni. 12. - Rxe6 13. dxe6 c6 14. Bxf4 Db6 15. Dd3 0-0-0 16. 0-0-0 h5 Svartur hefur varla átt aðra kosti en staða hans er afar slæm. 17. Dg3 Dc7 18. Hd3 De7 Hótunin var m.a. 19. Rd5! cxd5 20. Hc3 o.s.frv. 19. Hhdl Dxe6 20. Bxd6 Bxd6 21. Hxd6 Hxd6 22. Hxd6 De7 23. Df4 Hh7 24. Re2! Riddarinn er á leið til g3 þar sem hann heijar á svörtu peðin. Ef nú 24. - Dc7 25. Df5+ Kb8 26. Dg6! og svartur er í miklum kröggum. 24. - Hf7 25. Df5+ Kc7 26. He6 Dd7 27. Df4+ Kc8 28. Hd6 De7 29. Rg3! Á réttri leið eftir hringferðina. 29. - De5 30. Dxe5 fxe5 31. He6! Kd7 32. Hxe5 H£2 33. Rxh5 Hxg2 34. Hg5 Rh6 35. Hg7+ Ke8 36. Hg6 Rf7 37. Hxg4! Hh2 Ef 37. - Hxg4 38. Rf6 + og hrókur- inn fellur. Hvítur hefur nú unnið tvö peð og ætti að vinna en þarf að tefla nákvæmt. 38. Rg7+ Ke7 39. Rf5+ Kf6 40. b3 a5 41. Hg8 Ke5 42. Hf8 Rd6 43. Rxd6 Kxd6 44. Hf4 b5 45. a3 Ke6 46. Hg4 Ke5 47. Hg6 Hxh4 48. Hxc6 Kd4 49. a4! bxa4 50. Hc4+ Ke3 51. Hxa4 Hh5 52. Kb2 Hg5 53. Hc4 Hh5 54. Ka3 He5 55. Ka4 Kd2 56. Hc8 Kcl 57. c4 Kb2 58. Hb8 Kc3 59. Hb5 Og Adams gafst upp. Hvítt: Murray Chandler Svart: Hannes Hlífar Stefánsson Spænskur leikur. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. De2 b5 7. Bb3 0-0 8. c3 d5 9. d3 Bb7 Nákvæmara er 9. - He8. Nú lend- ir Hannes í dálitlum erfiðleikum. 10. Bg5 Ra5 11. Bc2 h6 12. Bh4 dxe4 13. dxe4 Rd7 14. Bg3 Bd615. Hdl Rc6 16. Rbd2 He8 17. Rfl Dc8 18. Re3 Bf8 19. Rh4 Rd8 20. a4 Bc6 21. Rd5 Re6 22. b4 bxa4 23. R£3 Bd6 24. h3? Frá og með þessum leik missir Chandler algjörlega þráðinn. Hann var nú að komast í tímahrak og kýs því að leika „varúðarleik". Betra er 24. Bxa4 og hvítur viröist eiga heldur betra tafl þótt svarta staðan sé traust. 24. - a5 25. b5? Bxd5! 26. Hxd5 Rec5 27. De3 He6! 28. Rh4 c6 29. dxc6 Dxc6 30. Rf5 Rf8 31. Bh4 Rb6 32. Hddl Rc4 33. De2 Rb3! 34. Hbl Hb8 35. Bd3 Ra3 36. Hb2 Dxc3 Og í þessari vonlausu stöðu féll Chandler á tíma. Staða yfirlæknis Staða yfirlæknis í geðlækningum er laus til umsókn- ar. Gert er ráð fyrir að læknirinn sinni geðlækningum við Sjúkrahús Suðurlands á Selfossi, verði yfirlæknir vistheimilis fyrir ósakhæfa geðsjúka afbrotamenn að Sogni í Ölfusi og verði ráðgefandi geðlæknir við fangelsið að Litla-Hrauni. Umsóknir um stöðuna ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu sendast til skrifstofu Sjúkrahúss Suðurlands á Selfossi. Umsóknarfrestur um stöðuna er til 15. júlí 1992. Upplýsingar um stöðuna eru veittar í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Heilbrlgðis- og tryggingamálaráðuneytið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.