Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1992, Side 23
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1992.
Sviðsljós
Julian Lennon.
Julian Lennon
á flöskunni
Sjónvarpsleikkonan Olivia d’Abo
hefur endanlega sagt skiliö við Jul-
ian Lennon, son Johns Lennon. Oliv-
ia fékk loks nóg eftir þriggja ára
stormasama sambúð með bítilssyn-
inum. Sama kvöld og upp úr slitnaði
sýndi Julian svo ekki var um að vill-
ast hvað það var sem eyðilagði sam-
bandið: Bakkus. Hann drakk sig
öskrandi fullan af tequila á nætur-
klúbbi og kastaði síðan upp á dans-
gólfinu. Julian hefur leitað trausts í
brennivíni þegar lífið hefur verið
honum erfitt og þetta kvöld var eng-
in undantekning. Hann virðist ekki
eiga sjö dagana sæla, blessaður: kær-
astan farin frá honum, timburmenn-
irnir herja á hann og plötumar selj-
ast mjög illa. Síðasta plata Julians,
Help yourself, eða Hjálpaðu þér sjálf-
ur, gerði lítið til að lappa upp á sjálfs-
traustið. Lag af plötunni, Saltvatn,
gekk heldur ekki vel.
Frá keppninni ungfrú alheimur.
Plastpíur?
Fullyrt er í erlendum blöðum að
óvenju margir af keppendunum í feg-
urðarsamkeppninni Miss Universe -
ungfrú alheimur - sem fram fór í
Bangkok í Tælandi fyrir skömmu,
hafi gengist undir fegrunaraðgerðir.
78 fegurðardrottningar tóku þátt í
keppninni. Sigurvegarinn var frá
Namibíu en indversku og kólumb-
ísku stúlkumar fylgdu í kjölfarið.
Vakti undrun margra að fulltrúi
Namibíu skyldi vera hvit stúlka en
meirihluti íbúa Namibíu er dökkur
á hörund. Fulltrúi íslands var Svava
Haraldsdóttir.
y
Auglýst er eftir
lögum til þátttöku í
„LANDSLAGINU Á AKUREYRI"
sem haldið verður í Sjallanum
23. október n.k.
Lögin skal senda í umslagi merktu
„LANDSLAGIÐ ÁAKUREYRI 1992“
,:,JÍ I f
, 4 X
\ 1
VvW j
.;ft'
•,.yy
til Islenska útvarpsfélagsins
Lynghálsi 5, 110 Reykjavík.
Skilafrestur er til hádegis 10. ágúst n.k.
Lögin skal senda inn á hljóðsnældu
ásamt texta, merkt með dulnefni en nöfn höfunda skulu fylgja með í lokuðu
umslagi merktu dulnefninu. Reglur um „ LANDSLAGIÐ Á AKUREYRI 1992“
liggja frammi í afgreiðslu íslenska útvarpsfélagsins Lynghálsi 5,
til frekari glöggvunar.
Nánari upplýsingar fást
hjá dagskrádeild
íslenska útvarpsfélagsins
í síma 672255.
EIN
MILLJÓN KR.
Ife f
I VERÐLAUN FYRIR
LANDSLAGIÐ
1992
i, 'Á
'srm
4$
SAMVER
Starfsmenn Islenska útvarpsfélagsis, Samvers á Akureyri og fjölskyldur þeirra hafa ekki þátttökurétt
R E G I
m
131
E F T I R 5
H
A G A
BILL MANAÐARINSIASKRIFTARGETRAUN DV
DREGINN ÚT 24. JÚNÍ ’92
Til sýnis í Kringlunni.
Ford Orion er þrautreyndur þýskur gæðagripur, nýr þíll í millistærðarflokki
og klassískt dæmi um framúrskarandi hönnun yst sem innst. Hann er lítill
að utan en stór að innan og býður upp á meiri þægindi og öryggi en fólk á
að venjast af þílum í þessum stærðarflokki. Orion er nýr bíll frá Ford og
um leið ný viðmiðun hvað varðar þægindi, öryggi og hagkvæmni. Ford
Orion CLX, að verðmæti 954.000 kr„ verður eign heppins DV-áskrifanda
þann 24. júní nk.
ÁSKRIFTARSÍMI 63 27 00 GRÆNT NÚMER 99 62 70
A FULLRB FERÐ!
Ford Orion 1,3 CLX: 1300 cc vél. 63 hö.. 5 gíra. léttstýri. samlæsingar, snúningshraðamælir. lúxusinnréttingar. litað gler. Ijós í hanskahólfi og farangursrými, fellanlegt aftursæti, 60:40. speglar stillanlegir innan frá. Eyðsla 4:8-5.6 1/100 km.
Verð 954.000 kr. (gengi mars '92) Umboð: Globus hf.