Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1992, Síða 25
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1992.
25
Omar Sharif skrifar skýringar með spilunum í Epson-alheimstvímenningnum
sem spilaður var í gær. DV-mynd EJ
EPSON alheimstvímenningskeppnin:
Þrír riðlar
spilaðir
á Islandi
í gær var 7. Epson alheimství-
menningskeppnin spiluð og er talið
að yfir 100.000 spilarar frá 90-100
löndum hafi tekið þátt. Þrír riðlar
voru spilaðir á íslandi, einn í Sigtúni
9, annar á Akureyri og sá þriðji á
Reyðarfirði.
í fyrra sigruðu Pólverjarnir
Kopowski og Maczkowski með
79,53% skor, sem er ein sú hæsta sem
um getur. Eins og í fyrra skrifar
Omar Sharif skýringar með spilun-
um og að lokinni keppni fær hver
keppandi eintak af bók með öllum
spilunum með útskýringum Sharifs.
Við skulum skoða eitt spil frá
keppninni í fyrra og hlusta á skýring-
ar Sharifs.
N/N-S
♦ Á 10 8 6
V Á 8 4 3
♦ G 7 5
♦ 42
* K 9 5
V D 10 7
♦ Á D 10 6 4
+ Á9
♦ 4
V 652
♦ K 9 2
+ D 10 8 7 5 3
í útskýringum sínum gerði Sharif
ráð fyrir því að flestir myndu spila
íjóra spaða á spil a-v og þeir myndu
fara einn niður. Vömin myndi fá
einn slag á hjarta, einn á tígul og tvo
trompslagi. Omar sýndi síðan fram á
að þijú grönd væru betri samningur,
þau myndu ávallt vinnast og raunar
myndi sagnhafi fá 10 slagi. En hann
gerði ekki ráð fyrir þeirri vöm sem
óheppinn sagnhafi fékk á sig.
» u u I 3 z
V K G 9
♦ 83
tr n c
N
V A
S
Suður spilaði út laufi gegn þremur
gröndum austurs og sagnhafi fékk
fyrsta slaginn á laufníu. Þá kom
spaði á drottningu, sem norður gaf
án hiks. Enn spaði á kónginn og suð-
ur kastaði laufi. Sagnhafi hætti nú
við spaðann og spilaði hjarta á gos-
ann, sem norður gaf. Nú var kominn
tími til þess að prófa tígulinn og aust-
ur spilaði þristinum og svínaði
tíunni. Suður gaf án þess að hika og
allt virtist ganga sagnhafa í haginn.
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
Að vísu vom samgönguerfiðleikar
milli handanna, en það er ekki hægt
að gera kröfur um allt. Hann tók nú
laufaás, spilaði hjarta á níuna og enn
gaf norður án þess að hika.
Hann var nú í síðasta sinn í blind-
um, tók því laufkóng og spilaði tígli.
Hann hafði nú fengið átta slagi og
tígulásinn var sá níundi. Hann sá
hins vegar fram á það að með tígul-
kóng réttan ynnu allir fjóra spaða,
sem væru í þeim, og þá voru 400 fyr-
ir þrjú grönd botn. Hann svínaði því
tíguldrottningu til þess að fá tíu slagi
og þar með var draumurinn búinn.
Suður drap á tígulkóng, tók tvo slagi
á lauf og spilaði hjarta. Norður fékk
því tvo síðustu slagina á hálitaásana
og spilið var einn niður.
Einstök vöm, því gefi vörnin ekki
fimm fyrstu slagina, sem hún átti
kost á, þá vinnur sagnhafi sennilega
spilið með yfirslag.
Staða
heilbrigðisfulltrúa
(framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits)
á Norðurlandi vestra
er hér með auglýst laus
Umsóknir með upplýsingum sendist formanni svæð-
isnefndar í pósthólf 83 á Sauðárkróki fyrir 20. júlí
nk. en hann og formenn heilbrigðisnefnda á svæðinu
veita frekari upplýsingar.
Sauðárkróki 18. júní 1992
Héraðslæknirinn Norðurlandshéraði vestra
Bridge
Epson tvímenningurinn verður
spilaður um allan heim föstudags-
kvöldið 19. júní næstkomandi. Spil-
aðir verða þrír riðlar á íslandi og
reiknað út á landsvísu cins og í
PIúlip Morris tvímemúngnum síð-
astliðið haust.
Einn riðill verður
sa
9.
þriðjí á
annar á Akureyri og
Reyðarfirði. Mitchell-þyrirkomulag
verður notað og hvert par fær aö
lokinni spilamennsku bók meö
spilunum, sem spiluð verða, með
umsögn um hvert spil eftir Omar
Sharif. Skráning er hafin á skrif-
stofu BSÍ í síma 689360 og í sumar-
bridge á Akureyri og Reyðarfirði.
-ÍS
Nýttglæsilegt
afmælishefti
á næsta sölustað
eða í áskrift
í síma 63 27 00