Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1992, Qupperneq 32
44
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1992.
Trimm
íþróttadagur verður haldinn i Reykjavik i fjóröa skipti nk. laugardag og þá
geta ungir jafnt sem aldnir m.a. fengiö sér ókeypis sundsprett í laugunum.
Tilhlökkun að
taka þátt í ein-
stökumviðburði
Áætlunin í fullu maraþoni fyrir
næstu viku er sú sama og birtist í
DV sl. laugardag. Ég hef nú breytt
mínútunum yfir í kílómetra til aö
hafa samræmingu í töflunum
þremur. Miöaö er við þá sem eru
að hlaupa sitt fyrsta maraþon og
ætla sér að komast tiitölulega þægi-
lega frá því á 4-4 'A klst. Miðað við
áðumefndan tíma er kílómetrinn á
simnudags-, miðvikudags- og föstu-
dagsæfingum hiaupinn á 5:41-6:41
mínútum. Á mánudögum og
fimmtudögum á að hiaupa rólegar
en hraðar á þriðjudögum og laug-
ardögum. Samanlögð vegalengd,
miðað við áður uppgefinn tíma, er
því 67-85 kílómetrar.
í hálfmaraþonáætluninni bætist
við svonefnt áfangahlaup (interval)
en þá er hlaupið á hraða sem er
talsvert meiri en venjulega. Hlaup-
in er ákveðin vegalengd með
ákveðinni hvíld á milii spretta en
mjög gott er að taka þessa æfingu
á braut þar sem hver hringur er
400 metrar. Núna ætlum við að
hlaupa 3x1000 metra með þriggja
mínútuna hvild á milli spretta.
Samanlögð vegalengd á þriðjudags-
æfingunni er 10 km sem miðar við
4 km upphitun fyrir brautaræflngu
og 3 km skokk að henni lokinni.
í síðustu viku tók ég lítfllega fyr-
ir skófatnað og talaði m.a. um ágæti
loftpúða í skóm. Því er við að bæta
að sjálfsögðu eru til jafn frambæri-
legir skór án loftpúða en þeir hafa
þá eitthvað annað í staðinn eins og
t.a.m. gel eða loftpumpu. En snúum
okkur þá næst að hiaupum og heil-
brigöi og þeim jákvæðu áhrifum
sem það fyrrnefnda hefur á ein-
stakhnga. Það er vísindalega sann-
að að langhlaup eykur starfshæfni
hjartans og súrefnisupptöku þess,
eykur blóðmagn kransæða og
starfshæfni öndunarfæra að
ógleymdu auknu þoli vöðva í fót-
leggjum.
Hlaupin gera fólk unglegra, já-
kvæðara og umfram ailt heilbrigð-
ara og þá má ekki heldur gleyma
félagsskapnum sem er í kringum
almenningshlaupin sem haldin eru
árið um kring. Hlaupahópar eru
alls staðar og gróskan í þeim efnum
er mikil. En umfram aUt er það
stemningin sjálf í hinum ijölmenn-
ari almenningshlaupum og sú til-
hlökkun að taka þátt í einstökum
viðburði.
Kveðja, Jakob Bragi Hannesson
Skemmti- skokk Hálfmaraþon Maraþon
21.6. 3km 16 km rólega 20 km rólega
22.6. Hvíld Hvíld 9 km rólega
23.6. 2km 10km (3x1000) 10 km jafnt
24.6. Hvíld 8 km jafnt 15 km rólega
25.6. 3km 10 km rólega 5 km rólega
26.6. Hvíld 8 km (hraðal.) 15 km rólega
27.6. Hvíld 8kmjafnt 8km (hraðal.)
VOLVO 850 STYRKTARAÐILI REYKJAVÍKUR MARAÞONS
DV
íþróttadagur í Reykjavík:
Stefnan að
fá alla til að
vera með
- segir Jónas Kristinsson, fulltrúi hjá ÍTR
„íþrótta- og tómstundaráð ætlar í
samráði við íþróttafélögin í Reykja-
vík að halda íþróttadag fyrir Reyk-
víkinga 27. júní nk. en þetta er í fjórða
skipti sem slíkur dagur er haidinn. Á
þessum degi verður ókeypis aðgang-
ur á sundstaðina en jafnframt verð-
um við með leiðbeinendur og þá
verða sett bamaleiktæki í laugamar.
Einnig hjálpum við fólki með skokk-
leiðir en kort af einhveijum þeirra
eiga aö vera til á flestum sundstað-
anna,“ sagöi Jónas Kristinsson, fuU-
trúi h)á Iþrótta- og tómstundaráði
Reykjavíkur, í samtaU við DV.
Eitthvað við
allra hæfi
Næstkomandi laugardag verður
haldinn sérstakm- íþróttadagur í
Reykjavík og er það í fjórða skipti
eins og fram kom hjá Jónasi. Dag-
skráin hefst á gervigrasinu í Laug-
ardal kl. 9.00 með morgunleikfimi
HaUdóm Bjömsdóttur en hana ættu
flestir að kannast við úr Ríkisútvarp-
inu sem stjórnanda morgunleikfim-
innar þar á bæ. í kjölfarið tekur við
dagskrá út um alla borg og ættu all-
ir, jafnt ungir sem aldnir, að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Sigl-
ingaklúbburinn í Nauthólsvík verð-
ur opinn og sama er að segja um
KeilusaUnn í Öskjuhlíð en á báðum
þessum stöðum verða leiðbeinendur
fólki innan handar og rétt er taka
fram að þessi þjónusta eða kynning
er endurgjaldslaus eins og reyndar
aUt annað á þessum degi.
Fjölskyldutrimm á
öllum íþróttasvæðum
Golfáhugamenn geta farið á Korp-
úifsstaði en þar verður Golfklúbbur
Reykjavíkur með leiðbeinendur. Net
verða sett á aUa helstu blak- og tenn-
isvelU í borginni og má þar t.d. nefna
íþróttavelUna við Hagaskóla, HUðar-
skóla og í Laugardal en þar verður
jafnframt hægt að fara á hjólaskauta
Brýn nauðsyn á sameiningartákni
fyrir íþróttir í borginni, segir Jónas
Kristinsson. DV-mynd Hanna
Keiluíþróttin er ein af þeim fjöl-
mörgu íþróttagreinum sem standa
fólki til boða.
á skautasveUinu en yfir sumarmán-
uðina tcika fyrrnefndir skautar við
af þeim hefðbundnu. Auk áður-
nefndra möguleika veröur dagskrá
hjá öllum íþróttafélögum í borginni
og því ætti enginn að eiga í erfiðleik-
um meö að taka þátt í íþróttadegin-
um því eitthvað verður um að vera
í hverju einasta hverfi að sögn Jónas-
ar.
„Klukkan tíu byijar dagskrá fyrir
yngstu krakkana, 3-6 ára, og hún
verður sú sama í öUum hverfum,
hvort heldur mætt er í vesturbæinn,
á HUðarenda, í Árbæinn og svo fram-
vegis. Síðan heldur þetta áfram með
7-8 ára og 9-12 ára en með aUa þessa
hópa verður farið 1 ýmsa leiki og ein-
hveijar íþróttagreinar kynntar. Dag-
skráin hjá félögunum verður aUs
staðar sú sama og því þarf enginn
að óttast að hann sé að missa af ein-
hveiju. Síöar um daginn, eða kl. 14,
verður fiölskyldutrimm á hveiju ein-
asta íþróttasvæði en þá veröur farinn
hringur sem er 3,5 km og þeir sem
vilja hlaupa eða skokka lengra fara
þá bara tvo hringi.“
Vakning um almenn-
ingsíþróttir
í fyrri skiptin, sem íþróttadagur
hefur verið haldinn, hafa skólaveU-
irnir meira verið vettvangurinn en
nú er búið að fá íþróttafélögin tíl að
slást með í hópinn og þá eru ekki
síður hæg heimatökin með aUa að-
stöðu. Ágæt þátttaka hefur verið á
þessum íþróttadegi fram tíl þessa en
í ár á að gera enn betur enda þarf
enginn að leita langt yfir skammt til
að vera með. Að mati Jónasar er
brýn nauðsyn fyrir sameiningartákn
um íþróttir í borginni a.m.k. einu
sinni á ári og ekki síst í ljósi þeirrar
vakningar sem orðið hefur um
íþróttir almennings á undanfómum
árum. Hann segir mikinn undirbún-
ing Uggja að baki svona degi en stefn-
an sé að fá aUa tU að vera með.
Frekari upplýsingar um íþrótta-
daginn verður að finna í fiölmiðlum
á næstu dögum en jafnframt er hægt
að snúa sér til íþrótta- og tómstunda-
ráðs Reykjavíkur með fyrirspumir.
Ráðið er til húsa að Fríkirkjuvegi 11
ogsíminner 622215. -GRS
íþróttavika kvenna stendur nú yfir og meðal þess sem boðið er upp á er tenniskynning en meðfylgjandi mynd
var elnmltt tekin á einni slfkri fyrr í vikunni. í dag ber hæst Kvennahlaup ÍSÍ en á morgun verður sundmót i
Laugardalshöll, golfmót á Selfossi og tenniskynning á Þróttarvelli. íþróttavikunni lýkur á mánudag með tenniskynn-
ingu viö Kópavogsskóla og landsleik kvenna í knattspyrnu við Skota á Akranesi. DV-mynd S