Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1992, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1992.
LífsstHl
DV kannar verð í matvöruverslunum:
Mikill munur á
hæsta og lægsta verði
Neytendasíða DV kannaði að þessu
sinni verð í eftirtöldum verslunum:
Bónusi í Faxafeni, Fjarðarkaupi í
Hafnarfirði, Hagkaupi við Laugaveg,
Kaupstað í Garðabæ og Miklagarði
við Sund.
Neytendur
Bónusbúðirnar selja sitt grænmeti
í stykkjatali á meðan hinar saman-
burðarverslanimar selja eftir vigt.
Til þess að fá samanburð þar á milli
er grænmeti í Bónusi vigtað og um-
reiknað eftir meðalþyngd yfir í kíló-
verð.
Að þessu sinni var kannað verð á
1 kg af gúrkum, bláum vínberjum,
gulri papriku, kartöflum, gulrótum,
perum, appelsínum, 400 g af Cheeri-
os, 1 kg af nautafillet, 10 stk af Sens-
or rakvélarblöðum, 33 cl Coke-dós
og viðbitinu Léttu.
Það er sérlega áberandi í könnun
vikunnar hve miklu munar á hæsta
og lægsta verði á grænmeti og ávöxt-
um. Munurinn er 426% á gúrkum
sem þýöir að meira en fimm gúrkur
fást fyrir hverja eina ef verslað er á
Munur hæsta og lægsta verðs á grænmeti og ávöxtum er meira en fimmfaldur í nokkrum tilfellum.
ódýrasta stað í
Verðið á gúrkum
stað þess dýrasta.
var 74 í Bónusi, 149
Hæsta og lægsta verð
Nautafillet
2000r
Hæst Lægst
Cheerios
Hæst Lægst
Appelsínur
Hæst Lægst
Kók 33 cl.
90
70
50
30
10
Hæst Lægst
Létta
150
130 r
110!
Hæst Lægst
Rakvélablöð
700
650
600 ■
550 ■ Bónus
500
..Mi....
Hæst Lægst
í Fjarðarkaupi, 160 í Miklagarði en
389 í Hagkaupi og Kaupstað. Blá vín-
ber voru á lægsta verðinu í Bónusi,
á 65, kostuðu 149 í Fjarðarkaupi, 299
í Hagkaupi, 349 í Kaupstað en feng-
ust ekki í Miklagarði. Þar er munur
hæsta og lægsta verðs 437%.
Gul paprika fékkst hvorki í Bónusi
né Miklagarði en var á 149 í Fjarðar-
kaupi, 399 í Hagkaupi en langdýrust
í Kaupstað, 854 krónur kílóið. Munur
hæsta og lægsta verðs er 473%. Kart-
öflur voru heldur skárri útlits í þess-
ari viku en í þeirri síðustu. Þær voru
á 18 krónur í Bónusi, 49 í Mikla-
garði, 59 í Hagkaupi, 62 í Fjarðar-
kaupi og 75 í Kaupstað. Þar er munur
hæsta og lægsta verðs 317%. Blaða-
maður átti leið inn í Blómaval í vik-
unni og þar voru seldar kartöflur frá
Homafirði sem líta mjög vel út,
fyrsta flokks.
Gulrætur vom á lægsta verðinu í
Bónusi, á 46, en vom á 49 í Mikla-
garöi, 79 í Hagkaupi en 132 í Fjarðar-
kaupi og Kaupstað. Þar mæhst mun-
ur hæsta og lægsta verðs vera 187%.
Eina ávaxtategundin þar sem ekki
munaði miklu á hæsta og lægsta
verði var perur en munurinn er 35%.
Perur fengust á 99 í Hagkaupi, 129 í
Fjarðarkaupi og 134 í Miklagarði en
vom hvorki til í Bónusi né Kaupstað.
Appelsínur kostuðu aðeins 32
krónur kílóið í Bónusi, voru á 85 í
Fjarðarkaupi og Miklagarði, 109 í
Kaupstað og 119 í Hagkaupi. Munur-
inn á hæsta og lægsta verði er mikill
eða 272%. Cheerios var á svipuðu
verði í verslununum fimm, paldíinn
kostaði 160 í Bónusi og Miklagarði,
166 í Hagkaupi, 177 í Fjaröarkaupi
og 179 í Kaupstað. Munur á hæsta
og lægsta verði er 12 af hundraði.
Nautafillet er á 1.349 í Bónusi,
fékkst ekki í Hagkaupi, 1.502 í Mikla-
garði, 1.685 í Kaupstað og 1.690 í
Fjarðarkaupi en munur hæsta og
lægsta verðs reiknast vera 25%.
Sensor rakvélarblöð fengust ekki 10
saman í pakka í Miklagarði (aðeins
fimm saman) en vom á 521 i Bónusi,
540 í Hagkaupi, 634 í Fjarðarkaupi
og 639 í Kaupstað. Munur hæsta og
lægsta verðs er 23 af hundraði.
Coke í 33 cl dósum fæst ekki í ein-
ingum hjá Miklagaröi (aðeins 15
saman) en var á 64 í Bónusi, 69 í
Fjaröarkaupi og Hagkaupi en 71 í
Kaupstað. Sex sinnum meira magn
af Coke (tveggja lítra flaska) fæst á
99 krónur í sumum verslunum. Við-
bitiö Létta er á 93 krónur í Bónusi
þar sem verðið er lægst, 96 í Mikla-
garði, 114 í Fjarðarkaupi, 115 í Hag-
kaupi og 127 í Kaupstað en munur
hæsta og lægsta verðs er 37%.
-ÍS
Gulrætur og gul papr-
ika hækka í verði
Ef línurit vikunnar em skoðuö
sést að verð tekur miklum breyting-
um milli vikna á fjómm tegundum
af sex en er heldur stöðugra á hinum
tveimur. Meðalverð tveggja tegunda
hækkar töluvert, lækkar í tveimur
tilfellum en stendur nánast í staö á
kartöflum.
Meðalverð á perum var neytendum
hagstætt í maímánuði, rétt yfir 100
krónur, en hækkaði mjög í júní. Það
fer nú lækkandi á ný og er þessa vik-
una 121 króna. Gulrætur vom á með-
alverðinu í kringum 60 krónur í maí
og júní en snarhækka nú í byijun
júlí. Meðalveröið á þeim er nú 88
krónur.
Meðalverö á gulri papriku hefur
veriö frekar hátt í sumar og virðist
jafnvel enn fara hækkandi. Á hálfum
mánuði hefur það hækkað um 100
krónur og er nú 467 krónur. Á sama
tíma í fyrra var græn paprika á um
500 krónur kílóið. Meðalverö á gúrk-
um hefur verið ótrúlega sveiflukennt
síðustu tvo mánuði en þaö er nú 232
krónur. Á sama tíma í fyrra var
meðalverðið 154 krónur.
Meðalverð blárra vínbeija hefur
haldist stööugt undanfamar vikur
og er 216 krónur nú sem er um helm-
ingi lægra verð en í fyrra. Ánægjuleg
þróun fýrir neytendur. Kartöflur
vom á mjög sveiflukenndu verði í
fyrra en það hefur haldist mun stöð-
ugra í ár. Meðalverðið er nú 53 krón-
ur á móts við 76 í fyrra.
-ÍS
Sértiiboð og afsláttur:
Allttilúti-
legunnar
f Miklagarði við Sund hefst á
föstudag sérstakt tilboö á Mix frá
Sanitas í tveggja lítra flöskum
sem seldar verða á 99 krónur
stykkið og einnig verða Goða
pylsur á tilboðsverði. Royal Oak
grilikolin eru á afsláttarverði í
Miklagarði, 2 kg á 192 og 4,5 kg á
377 krónur pakkinn. Ennfremur
dönsk Gaucho kolagrill í mörgum
tegundum.
I Hagkaupi við Laugaveg verð-
ur Goðalamb á sértilboðsverðinu
699 krónur alla næstu viku, frá
og með fimmtudeginum. Sömu-
leiðis Apolló lakkrískonfekt, 420
g á 129, E1 Vital sjampó, 2 stk
saman á 199, og Fun appelsínu-
djús sem er ný tegund á mark-
aðnum, 1,51 á 169 krónur.
í Fiarðarkaupi em Libero blei-
ur fýrir bömin, tvöfaldir pakkar
á 1.490 króna tilboðsverði, sömu-
leiðis úr kjötborðinu svínaskank-
ar á aðeins 75 kílóið og Blá Band
súpur, 6 tegundir. í Fjarðarkaupi
voru nýkomnar íslenskar rófur,
mjög fallegar, sem kosta 329
krónur kílóið.
í Bónusi í Faxafeni einkennast
sértilboðin af útiieguvörura.
Frauðglös, 75 stykki saman, era
á 199 krónur, plasthnífaparasett,
48 stk. er á 149,100 pappadiskar
era seldir á 279 og leikfangabilar,
tílvaldir fýrir bömin aö leika sér
með, 10 bílar i pakka kosta aöeins
149 krónur.
f Kaupstað Garðabæ er St. Ives
sjampó og hámæring saman í
pakka á sértilboðsverðinu 499
krónur, ennfremur Hy Top hrís-
gijóh, 454 g á einungis 35 krónur,
nautasnitsel á 998 krónur kílóiö
og Pims-kex sem er selt á 99 krón-
urpakkinn. -ís