Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1992, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1992.
Útlönd
Breska stjórnm
fyrirskipar
breyttar
lífsvenjur
Breska stjórnin skipaði í gær
þeim Bretum, sem háðir eru
áfengi, sígarettum og fitandi mat,
að breyta venjum sínum ef þeir
vildu lifa lengi.
Heilbrigðisráðuneytið gaf út
skýrslu sem kallast Heilsa þjóð-
arinnar og tilgangur hennar er
að berjast fyrir betri lífsvenjum
og draga úr dauðsfóllum af völd-
um hjartasjúkdóma, krabba-
meins, eyðni og annarra kynsjúk-
dóma.
Ofnæmislyfgefur
veriðhættulegt
Bandaríska lyfja- og matvæla-
stofhunin (FDA) hefur varað við
því að sumir notendur ofhæmis-
lyfsins Seldane geti hugsanlega
fengið lífshættulega óeðhlegan
hjartslátt Þeir eru m.a. í hættu
að fá sjúkdóminn sem nota lyfið
með tilteknum lytjum öðrum.
Reuter
Ráðstefna um öryggi og samvinnu í Evrópu:
Þjóðernisdeil
urefstábaugi
Þjóðernisdeilur í Júgóslavíu og
fyrrum lýðveldum Sovétríkjanna
verða meginmáhð á tveggja daga ráð-
stefnu um öryggi og samvinnu í Evr-
ópu, RÖSE, sem hófst í Helsinki í
Finnlandi í morgun.
Leiðtogar 51 ríkis sitja ráðstefnuna
sem ætlað er að móta nýja stefnu í
öryggismálum Evrópu í ljósi enda-
loka kalda stríösins. Leiðtogamir
munu leitast við að sameina fyrmm
óvini kalda stríðsins og búist er við
að ráðstefnunni verði veitt aukið
vald til umsjónar með átakasvæðum
og friðargæslu.
Erindrekar landanna ákváðu ein-
ungis fáum klukkusttmdum áður en
leiðtogamir byrjuðu að flykkjast til
Helsinki að fulltrúa frá nýju Júgó-
Gosdagar
[™j Sértilboð
Pepsi 2 1
Pepsi 0,5 1.
7Up 2 1....
7Up 0,5 1
Appelsín 2 1..
Appelsín 0,5 ]
Mix 0,5 1..
Grape 1,5 1...
Grape 0,5 1...
Soda 0,5 1.
Pilsner 0,5 1..
Malt 0,5 1.
SPREN GITILBOÐ
1,5 1 ...kr. 99,-
AIIKLIG4RDUR
VIÐ SUND
Forseti Króatíu, Franjo Tudjman, undirritar hér sáttmála RÖSE-ráðstefnunn-
ar en átta nýir þjóðarleiðtogar sitja ráðstefnuna. Simamynd Reuter
slavíu, sem samanstendur af Serbíu
og Svartfjallalandi. skyldi meinaður
aðgangur að ráðstefnunni sökum
aðildar Serbíu að átökunum Bosn-
íu-Hersegóvínu.
Yfirmaður Vestur-Evrópu banda-
lagsins, sem er vamarbandalag níu
Vestur-Evrópulanda sagði að utan-
ríkisráðherrar landanna myndu
nota tækifærið og hittast í Helsinki.
Hann sagði aö vonir stæöu til þess
að þeir kæmust að samkomulagi um
að senda flota bandalagsins til Júgó-
slavíu. Hann tók þó fyrir notkun
landhers til aö binda enda á átökin.
Búist er við leiðtogar landanna á
RÖSE-ráðstefnunni muni samþykkja
yfirlýsingu um átökin á milii Armen-
íu og Azerbajdzhan í Nagomo-Kara-
bak.
Reuter
Hvalveiðimálið:
Gro skammar
Svía og Finna
Forsætisráðherra Noregs, Gro
Harlem Brundtland, notaði tækifær-
iö
á fundi norrænu forsætisráðherr-
anna í Helsinki í gær til að skamma
forsætisráðherra Svía og Finna fyrir
frammistöðu þeirra á ráðstefnu Al-
þjóða hvalveiðiráðsins í Glasgow fyr-
ir stuttu.
„Við höfum hingað til verið sam-
mála um hvalveiðarnar og ég var
hissa þegar sendimenn Svía og Finna
ákváðu að taka upp nýjar forsendur
og samþykkja lokayfirlýsingu fund-
arins. Það er ekki viðfehdið þegar
nágrannalöndin byrja að gagnrýna
mann á röngum forsendum," sagði
Gro Harlem.
Stærsta máhð á fundi forsætisráð-
herrana var hins vegar ekki hvala-
máhð heldur framtíö Norðurlanda-
ráðs. Vinnuhópur hefur veriö skip-
aður til að koma með thlögur um það
efni. Niðurstaöa mum svo verða ul-
kynnt á fundi norrænu forsætisráð-
herrana á Bomhólmi 17. og 18. ágúst.
Hanna Suchocka hefur verið falið
að mynda meirihlutastjórn í Pól-
landi. Simamynd Reuter
Miklarvonir
bundnar við
Suchocka
Pólska þingið mun ganga th at-
kvæða um það á laugardaginn hvort
ríkisstjórn Hanna Suchocka verður
staðfest. Ríkisstjórnin yrði þá hugs-
anlega sjöflokka og í forsvari yrði
Suchocka sem er lagaprófessor. Að
sögn stjómmálaskýrenda em
bundnar miklar vonir við að henni
takist að mynda sterka meirihluta-
stjórn, þá sterkustu frá faUi komm-
únista.
Minnihlutastjóm Jan Olszewski
féU eftir að hafa aðeins haldið um
stjórnartaumana í fimm mánuði og
Waldemar Pawlak, sem var eftir-
maður hans, gafst upp við að mynda
stjórneftirmánuð. Reuter
DV
Danirdugiegasl-
iríEB-laga-
breytingum
Þrátt fyrir höfnun Dana á Maa-
strícht-samkomulaginu og þar
með pólitískum samruna við Evr-
ópubandalagiö þá er Ðanmörk
hvað duglegust af öllum Evrópu-
bandalagslöndum við að breyta
lögum landsins í samræmi víð
EB.
Ðanir hafa tekið upp 92 prósent
þeirra laga sem þarf til að þeir
verði tilbúnir í EB-samrunann
sem á að verða nú í árslok. Belg-
ía þar sem Evrópubandalagiö er
til húsa er neðst í röðinni og hef-
ur einungis tekið upp 69 prósent
nauðsynlegra laga.
Aurskriða gref ur
40mannarútu
í Ecuador
Rúta meö 40 farþegum grófst í
aurskriðu í Ecuador i Suður-
Ameríku í gær.
Björgunarmenn vinna við aö
grafa sig niöur á rútuna. Þeir eru
óvissir um hve margir, ef ein-
hver, hafa lifað af. Rútan sem
grófst í aurinn nálægt perúsku
landamærunum var á leið frá
Quito, höfuðborg landsins. Mikið
hefur rignt í Andes-Söllunum
upp á síökastið og þvi er hætta á
skriðum.
20látastaf
völdum hunda-
Hundar eða kettir smitaðir af
hundaæði bitu og drápu 20 manns
í Alsír á síöasta ári að því er
einbættismenn landsins skýrðu
frá í gær.
Alls þurftu um 56 þúsund
manns að leita sér læknis eftir
að hafa komist í tæri við dýr með
hundaæði. Rúmlega helmingur
þeirra katta og hunda sem yfir-
völd hafa fundið dauð og rann-
sakað sérstaklega hafa reynst
vera meö hundaæði.
Talsmaður yfirvalda sagði að
þeir 20 sem dóu hafi vanrækt að
leita læknis og fá þar rétta með-
ferð við æöinu.
Bretar styðja
MajoríEB-
málum
Bretar virðast styðja og treysta
núverandi forsætisráðherra sín-
um, John Major betur en Margr-
éti Thatcher í Evrópubandalags-
málum ef marka má skoðana-
könnun sem birt var í gær.
Bretar voru spurðir um þaö
hver hefði áreiðanlegustu skoð-
anir á framtíð Bretlands í Evr-
ópubandalaginu. 61 prósent að-
spuröra sögðu að það væri Major,
24 prósent studdu Thatcher og 15
voru óvissir.
Það var breska dagblaöið the
Guardian sem stóö aö könnun-
inni.
Drapmörgæsí
sjálfsvöm
Eftirlaunaþeginn Nimrod Nbini
frá Suður-Afríku sem sakaður er
um að drepa mörgæs sagði dóm-
aranum í gær að hann hafi haldið
aö mörgæsin væri kjúklingur í
drápshugleiðingum.
Nbini sem er 76 ára sagði að
mörgæsin heíði goggaö í fótlegg-
inn á honum þegar hann lá á
ströndinni.
„Ég taidi aö það værí best að
drepa þetta því að það leit út fyr-
ir að ætla að drepa mig,“ sagði
Nbini sem var sýknaður af ákær-
unni. Reuter