Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1992, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1992.
11
Utlönd
Hús brennur í Sarajevo, en sprengjum rigndi yfir borgina í nótt. Simamynd Reuter
Sarajevo:
Þörf ámun
meiri hjálp
Bardagamir í Sarajevo harðna enn
með hverjum deginum sem líður en
heldur rólegra er á daginn heldur en
á nætumar. Það sama átti við í morg-
un er byssumar hljóðnuðu eftir þá
hörðustu bardaga í nótt sem verið
hafa í borginni í margar vikur. Þegar
síðast fréttist var lífið í borginni að
komast í venjulegt horf en enn
heyrðust samt skothvelhr af og til
en íbúarnir em löngu hættir að kippa
sér upp við slíkt.
Að sögn fréttamanns við útvarpið,
Izet Tiragic, var fólk farið að koma
út úr loftvamarbyrgjunum þar sem
það leitaði skjóls í nótt undan
sprengjum og fallbyssuskotum.
Einnig sagði fréttamaðurinn að friö-
argæslusveitir Sameinuðu þjóðanna
hefðu ekki sést á götum úti eftir að
sprengjum byrjaði að rigna yfir borg-
ina. Sveitimar hafa gætt aðalum-
ferðaræða borgarinnar til þess að
hægt væri að koma hjálpargögnum
til dreifingaraðila.
Sadako Ogata, forstöðumaður
flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóð-
arinnar, var á ferð um borgina í gær
og sagði hún að um 900 tonn af mat
og lyfjum væru komin til Sarajevo,
en það væri alls ekki nóg til að metta
alla 380.000 íbúa borgarinnar. Hélt
hún því fram að aðeins flutningar á
landi gætu leyst málið og að borgar-
yfirvöld segðu að það þyrfti um 700
tonn daglega til að hjálpa borgarbú-
um en nú em aðeins flutt um 150
tonn þangað daglega.
„Við þolum þetta ekki lengur, fólk
verður óþohnmóðara með hverri
mínútu sem hður þar sem það veit
að hjálp berst til borgarinnar. Th að
bæta gráu ofan á svart getur fólk
ekki unnið,“ sagði Tiragic.
Reuter
Bjóst ekki við meiru
- sagði Jeltsin eftir fimd sinn með leiðtogum sjöveldanna
Borís Jeltsín, forseti Rússlands,
kvaðst ánægður með viðtökur leið-
toga sjö helstu iðnríkja heims þegar
hann hitti þá við lok fundarins í
Munchen í gær.
„Ég bjóst ekki við meiru og ég vhdi
ekkert rninna," sagði Jeltsín eftir við-
ræður sínar við leiðtogana. Ákveðið
var á fundinum að endurskipuleggja
lán fyrrum lýðvelda Sovétríkjanna
og veita þeim aðra efnahagsaðstoð
sem þó var ekki mikh.
Jeltsín sagði að brottflutningur 130
þúsund hermanna frá Eystrasalts-
ríkjunum væri þegar hafmn og ætti
að vera lokið eftir um tvö ár en leið-
togarnir höfðu lagt pressu á forset-
ann um að hefja nú þegar brottflutn-
inginn.
Jeltsín hefur ákveðið að fara í
heimsókn th Japan í september og
sagði í gær að sú heimsókn gæti auð-
veldað lausn dehumála landanna um
Kúrheyjar sem Sovétríkin hertóku
frá Japan í kjölfar síðari heimsstyij-
aldarinnar.
Ekki voru teknar neinar meiri
háttar ákvarðanir á fundi leiðtog-
anna en þeir sögöust stefna að því
að binda enda á Gatt-viðræðurnar
um toha og viðskipti í heiminum fyr-
ir árslok.
Reuter
Þjónustuíbúðir fyrir aidraða við
Suðurgötu
I fyrirhuguðu fjölbýlishúsi á lóð þeirri sem Bandalagi
háskólamanna var úthlutað við Suðurgötu, sunnan
Hjónagarða, eru til ráðstöfunar 12-14 íbúðir fyrir
aðra en félagsmenn.
Við húsið mun Reykjavíkurborg byggja þjónustusel
að stærð 300-400 m2 fyrir íbúa hússins og nágrenn-
is þess.
Þátttakendur í byggingunni þurfa að hafa náð 63
ára aldri þegar hún er fullgerð.
Upplýsingar um bygginguna eru veittar á skrifstofu
BHM, Lágmúla 7, símar 812090 og 812112. Þar
fást umsóknareyðublöð fyrir þá sem gerast vilja þátt-
takendur í byggingunni.
F.h. byggingarnefndar BHM
Valgarð Briem hrl. formaður
SUZUKISWIFT
5 DYRA, ÁRGERÐ 1992
* Aflmikil, 58 hestafla Vél með beinni innspýtingu.
* Ódýr í rekstri - eyðsla frá 4.0 1. á hundraðið.
* Framdrif. $ SUZUKI
* 5 gíra, sjálfskipting fáanleg. m-
* Verð kr. 828.000.- á götuna, stgr. SUZUKl bílarhf.
SKEIFUNNI 17 SlMI 685100
UPUR OQ SKEMMTLEQUR 5 MANNA BfU-
II
A 500g smjörstykkjunum.
► ÁöuiF^tT. ► Nú 220 kr.
Síðasta tækifærið í sumar!
Vertu klár í slaginn Garcia
rr» 11 / # /» / V « V « / V « ^
Fjölbreytt úrval afgóðum veiðivörum d verði,
sem kemur skemmtilega d óvart
Opið til kl. 18 mánud,- fimmtud.
til kl. 19 á föstudögum
frá kl. 10 til 16 á laugardögum
og á sunnudögumfrá kl. 11 til 16.
Hafnarstræti 5, Símar 1 67 60 og 1 48 00