Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1992, Page 8
8
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1992.
Svipmyndir
Af hveijum er
svipmyndin?
Sá sem svipmyndin er af vissi
hvað hann vildi verða þegar hann
yrði stór. Hann ætlaði að skrifa
tímaritsgreinar og bækur.
Þegar hann var átta ára fór hann
að gefa út htiö blaö. í því voru frétt-
ir og myndasögur en sjálfur teikn-
aði hann myndimar.
Hann skrifaði blaðið í nokkrum
eintökum á ritvél foður síns. Svo
fór hann um hverfið sem hann bjó
í og seldi þau.
Honum gekk illa í skóla. Hann
hlustaði ekki á það sem kennslu-
konan sagði og teiknaði myndasög-
ur.
Foreldrar hans urðu áhyggjufull-
ir. Þeir sendu hann til sálfræðings
sem rannsakaði hann vandlega.
Sálfræðingurinn komst að þeirri
niðurstöðu að sá sem hér er lýst
væri „gáfnaljós". Hann hafði
reynst hafa gáfnavísitöluna 152. En
honum leiddist í skólanum og þess
vegna hafði hann ekki fylgst með
í kennslustundum.
Æskudraumur hans rættist. Eftir
nám og herþjónustu tókst honum
að fá starf við tímarit. En honum
tókst ekki að selja myndasögumar
sínar. Þess vegna varð hann blaða-
maður og fréttaritari.
Næstum alla blaðamenn dreymir
um að gefa út eigið blað. Sá sem
svipmyndin er af var engin undan-
tekning frá því. Löngunin sótti fast
á hann. Og loks fannst honum hann
vera búinn að fá góöa hugmynd.
En peninga átti hann enga. Hann
yrði að fá þá að láni. Með því aö
veösetja húsgögnin sín tókst hon-
um að fá lánaða 600 dali í banka.
Þaö var féð sem renndi stoðum
undir atvinnurekstur hans.
Dag einn sá hann myndir í daga-
tali og fannst mikið til þeirra koma.
Þær yröi hann að birta í blaðinu
sínu. Hann keypti myndimar fyrir
500 dali.
Fyrir þá 100 dali sem nú vom
eftir lét hann prenta bréfsefni með
nafni „fyrirtækis" síns. Hann
nefndi það Nationwide News
Company. Það var ekki skráð.
Hann vonaöi að þeim sem seldu
almenningi tímarit í landinu fynd-
ist mikiö til bréfsefnisins koma.
Svo skrifaði hann miklum fjölda
tímaritasala bréf. Mörgum þeirra
leist vel á hugmynd hans um tíma-
rit. Pantanir tóku að streyma til
hans þótt enn hefði ekkert tölublaö
komið út.
Yrði eintakaflöldinn 20.000 ætti
allt að ganga vel að hans mati. En
70.000 eintök vom pöntuð. Sá sem
hér er lýst varö mjög glaður. Ár-
angurinn hafði orðið betri en hann
hafði nokkm sinni gert sér grein
fyrir.
Hann sagði nú upp starfmu sem
hann hafði haft. Þar var hann var-
aður við því að ilia gæti farið fyrir
honum fjárhagslega. Yrðu honum
á mistök missti hann aleiguna. Þá
fengi hann ekki einu sinni aö halda
skóreimunum sínum.
Prentsmiðjan féllst á að lána hon-
um. Allt leit því vel út. En á síð-
ustu stundu kom upp óvænt vanda-
mál.
Sá sem hér lýst hafði nefnt blaðið
sitt „Stag Party“. En nokkmm dög-
um áöur en prentun þess átti að
hefjast fékk hann bréf frá lögfræð-
ingi. Hann kom fram fyrir hönd
tímaritsins „Stag“ og hélt því fram
að óleyfilegt væri að nefna nýja
tímaritið því nafni sem valið hafði
veriö. Því varð aö gefa þvi annað
nafn. En hvað átti það að heita?
Eftir miklar vangaveltur kom
honum annað og betra nafn í hug.
Jafnframt gaf hann því tákn sem
átti sinn þátt í því aö gera það
þekkt.
Sá sem svipmyndin er af hélt
eignum sínum. Tímaritið fékk
feiknagóðar viðtökur. Peningamir
streymdu í kassann.
Fyrsta tölublaðið kom út í októb-
er 1953. Um ári síðar gerði hópur
kaupsýslumanna tilboðí tímaritið.
En hann hafnaði því. Of lítið var
boðið, sagði hann.
Auðvitað tók hann rétta afstöðu.
Hann hagnaðist um margar miRj-
ónir dala á því að eiga tímaritið
áfram. Hann fór nú aö festa fé í
bílum, húsum, kvikmyndafyrir-
tækjum, veitingahúsum og nýjum
tímaritum en hélt sömuleiðis jass-
konserta og veislur.
Hann keypti hús með 100 her-
bergjum í besta hverfl Chicago. Þar
hélt hann ótrúlegar veislur. Gest-
imir voru sú auglýsing sem nýttist
tímaritinu hans best.
Snemma á áttunda - áratugnum
stóð hann á hátindi frægðar sinn-
ar. Þá voru árslaun hans 300.000
dalir. Hlutafjáreign hans í eigin
fyrirtæki var þá 6,7 milljónir dala
Mat á eignum hans til skatts var
200 milljónir dala. Hann var því
einn ríkasti tímaritsútgefandi í
heimi.
En peningar tákna ekki alltaf
hamingju. Hann skildi við konuna
sína árið 1959. Síðan hefur hann
sést í fylgd margra ungra og fag-
urra kvenna.
Þaö var kvenleg fegurð sem leiddi
til þess að hann hlaut fé og frama.
Sá sem svipmyndin er af kunni að
nýta sér hana vel í tímaritinu sínu.
Hver er hann?
Svar á bls. 56
Matgæðingur vikunnar
N autalundir í
portvinssósu
„Það var nú af því að ég var bú-
inn að fást svo mikið viö sölu á
mat að ég fór að fást við elda-
mennsku. Ég fékk áhuga á því að
prófa sjálfur," segir Sigurður Mar-
kússon, markaðsstjóri hjá Hag-
kaupi á Seltjarnamesi. Hann segist
bæði vera veislukokkur og hvers-
dagskokkur en eiginkonan eldar
samt oftar en hann. Sigurður ætlar
að gefa lesendum uppskrift að ein-
um af uppáhaldsréttunum sínum,
nautalundum með camembertosti
í portvínssósu. „Mér fannst reynd-
ar erfitt að búa til nákvæma upp-
skrift því ég hef þróað þennan rétt
sjálfur smátt og smátt.“ Uppskrift-
ina miðar Sigurður við fjóra.
Lundimar:
600 g nautalundir
2 ætiþistilhjörtu, hreinsuð og soðin
'A camembert
sált og pipar
eftir smekk
Kjötið er steikt á pönnu um það
bil tvær mínútur á hvorri hlið eða
eftir smekk. Camembertsneiö og
hálft ætiþistilhjarta sett ofan á um
Sigurður Markússon, matgæðing-
ur vikunnar.
leið og kjötinu er snúið við til að
osturinn bráðni aðeins.
Sósan:
1 tsk. matarolía
1 litill, saxaður laukur
1 msk. tómatmauk
bolli portvín
1 bolli sterkt kjötsoð
1 msk. smjör
Laukurinn er steiktur í olíunni
og tómatmaukinu bætt út í og soðið
í tvær mínútur. Síðan er portvín-
inu bætt í og soðið í aðrar tvær
mínútur. Kjötsoði hellt út í og síðan
er allt látið malla þar til sósan hef-
ur þykknað. Þá er hún tekin af hit-
anum og smjörinu þeytt saman við.
Saltað og piprað eftir smekk og svo
er sósan sigtuð að lokum.
Sigurður segist framreiða réttinn
þannig að hann setur fjórar mat-
skeiöar af sósu á hvern disk og
nautalundirnar ofan á. Best þykir
honum að bera fram soðiö græn-
meti með, til dæmis spergilkál og
soðnar gulrætur og soðnar nýjar
kartöflur.
Sigurður skorar á Sigurjón Aðal-
steinsson, iðntæknifræðing í Vest-
mannaeyjum, að vera matgæðing-
ur næstu viku.
-IBS
Hinhlidin
Helga Hauksdóttir, tónleikastjóri sinfóníunnar:
Sefúr framan
við sjónvarpið
Helga Hauksdóttir hefur starfað
sem tónleikastjóri Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands frá 1. september
1991. Það má segja að Helga sé á
heimavelli í þessu starfi þar sem
hún hefur verið viðloðandi hljóm-
sveitina síðastliðin 30 ár. Helga
byrjaði að leika á fiðlu með Sinfó-
níuhljómsveitinni meðan hún var
í menntaskóla en varð fastráðin
1968. í dag spilar hún af og til með
hljómsveitinni en reglulega með
hljómsveit íslensku óperunnar.
Tónleikastjómin er hennar aðal-
starf.
„Tónleikastjóri hefur hönd í
bagga með öllu sem lýtur að tón-
leikahaldi. Það fer mikill tími í að
leita eftir erlendum listamönnum,
semja viö þá og sjá um þá þegar
þeir koma. Sú vinna er unnin sam-
kvæmt samþykktum stjómar sin-
fóníunnar," segir Helga.
Hún segir áhuga á klassískri tónl-
ist vera að aukast. „Það er mikil
ásókn í áskriftarkortin hjá okkur.
Mikið af nýju fólki ætlar aö sækja
tónleika okkar reglulega, ekki síst
ungt fólk. Það jafnast ekkert á við
lifandi tónlist."
Fullt nafn: Helga Hauksdóttir.
Fæðingardagur og ár: 29. ágúst
1941.
Maki: Kristján Jónsson.
Börn Fimm.
Bifreið: Mitsubishi Pajero.
Starf: Tónleikastjóri Sinfóníu-
hljómsveitar íslands.
Laun: Samkvæmt launatöflu
BHMR.
Áhugamál: Það er ekki hægt að
kalla það áhugamál en flestar tóm-
stundir mínar fara í hreingeming-
ar.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
Helga Hauksdóttir.
tölur í lottóinu? Ég er löngu búin
aö gefast upp á lottóinu, ég fékk
aldrei nema tvær tölur réttar.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Sofa fyrir framan sjónvarpið
og spila á fiðluna mína.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Elda mat.
Uppáhaldsmatur: Rjúpur.
Uppáhaldsdrykkur: Undanrenna.
Hvaða iþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Ólafur Ei-
ríksson sundmaöur.
Uppáhaldstímarit: Ég glugga varla
í tímarit nema þegar ég flýg, Því
nefni ég Við fljúgum. Sem fyrir-
myndarhúsmóðir er ég auðvitað
áskrifandi að Gestgjafanum.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð fyrir utan maka? Synir mínir
eru alhr íjallmyndarlegir. Michael
Jordan er heldur ekki til að fúlsa
við.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn-
inni? Andvíg.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Victor Borge.
Uppáhaldsleikari: Ég nefni Erling
Gíslason og Sigurð Sigurjónsson.
Uppáhaldsleikkona: Marilyn
Monroe.
Uppáhaldssöngvari: Luiciano Pa-
varotti.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Mik-
hafi Gorbatsjov.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Homer Simpson.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Spaug-
stofan, meðan hún var og hét.
Ertu hlynnt eða andvíg veru varn-
arliðsins hér á landi? Andvíg.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rás eitt, gamal gufan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Knútur
R. Magnússon.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Sjónvarpið. Ég horfi þó
alltaf á fréttir á Stöð 2 þegar ég kem
því við.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Jón
Ársæll Þórðarson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Kaffi-
stofa Sinfóníuhljómsveitarinnar í
Háskólabíói.
Uppáhaldsfélag í iþróttum: Vegna
bama minna nefni ég KR. Annars
held ég alltaf með þeim sem eru að
tapa hveiju sinni.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Að koma bömum
mínum til manns og að verða betri
og skemmtilegri manneskja.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
reyndi að slappa af og njóta sum-
arsins.
-hlh