Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1992, Síða 16
16
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1992.
Skák
i>v
Enn blæs Fischer lífi
í uppskiptaafbrigðið
- Fischer er vel undirbúinn þrátt fyrir tuttugu ára fjarveru
Taflmennsku Spasskijs hefur
hrakaö síðan hann missti heims-
meistaratitilinn í hendur Fischers
í Reykjavík en þó hefur hann ætíð
staðið uppi í hárinu á þeim bestu.
Staðan í skákum hans við Ka-
sparov er t.a.m. jöfn og Spasskíj er
þekktur fyrir að taka hraustlega á
móti þegar á reynir.
Tíöindin frá Sveti Stefan í Svart-
fjallalandi eru því óvænt: Spasskíj
hefur tapað þremur skákum í röð
og þeirri þriðju í aðeins 21 leik.
Þetta er stysta vinningsskák Fisc-
hers gegn Spasskíj og í raun og
veru má segja að hún hafl aöeins
verið fimm leikir því að í 17. leik
hristi Fischer nýjung fram úr erm-
inni sem Spasskíj fann ekki svar
við.
í þessari skák beitti Fischer
gömlu eftirlætisvopni sínu, upp-
skiptaafbrigði af spænskum leik.
Umsjón
Jón L. Árnason
Aíbrigðiö virðist falla einkar vel
að skákstíl Fischers en aðrir skák-
menn hafa ekki náð sama árangri
með því. Fischer kom öllum á óvart
á ólympiumótinu í Havana 1966 er
hann beitti afbrigðinu í fyrsta sinn.
Eftir sigurskákir hans gegn Port-
isch, Gligoric og Jiminez naut af-
brigðið mikilla vinsælda en síðasta
áratuginn eöa svo hefur því æ
sjaldnar sést bregða fyrir.
En nú hefur Fischer aftur náð að
blása lífi í þetta afbrigði, sem hefur
á sér jafnteflisstimpil, enda verða
oft drottningakaup snemma og tafl-
ið einfaldast. í níundu skákinni við
Spasskíj á miðvikudag sýndi Fisc-
her að frumkvæðið er mikils virði
þótt mönnum hafi fækkað á borð-
inu. Þá kom einnig í ljós að Fischer
mætir vel undirbúinn til leiks þrátt
fyrir tuttugu ára fjarveru.
Lítum nánar á stöðuna í níundu
einvígisskákinni eftir 17. leik Fisc-
hers sem hafði hvítt. Fyrstu leikir
skákarinnar voru: 1. e4 e5 2. Rf3
Rc6 3. Bb5 a6 4. Bxc6 (upphafsleikur
uppskiptaafbrigðisins) dxc6 5. 0-0
f6 6. d4 exd4 7. Rxd4 c5 8. Rb3 Dxdl
9. Hxdl Bg4 10. f3 Be6 11. Rc3 Bd6
12. Be3 b6 13. a4 0-0-0 14. a5 Kb7
15. e5! Be7 16. Hxd8 Bxd8 17. Re4!
og nú á svartur úr vöndu að ráða:
Jl *1
* A ii
Jl*
a a A
&
A
A A A A
2 A B C D E F G H
í þessari stöðu lék Spasskfj 17. -
Kc6?? og eftir 18. axb6 cxb6 19.
Rbxcð! Bc8 20. Rxa6 fxe5 21. Rb4+
gafst hann upp.
„Kóngleikur minn til c6 var fing-
urbijótur," sagði Spasskíj eftir
skákina. „í stað hans var ég að
reikna langt afbrigöi með Bd5 og
ég sá ekki hvemig hvítur gæti feng-
ið betra. Skyndilega skipti ég um
skoðun og það voru mikil mistök,"
sagði Spasskij.
En staða hvíts eftir 17. leik er
áferðarfalleg - svartur á t.d. enn
eftir að koma hrók og riddara sín-
Boris Spasskíi er þekktur fyrir að taka hraustlega á móti þegar á reynir og þau tíðindi að hann hafi tapað þrem skákum í röð í Sveti Stefan koma
því mjög á óvart. Símamynd Reuter
um í leikinn. Ég sé ekki hvemig
svartur nær ömggri tafljöfnun frá
stöðumyndinni - heldur ekki eftir
tillögu Spasskíjs, 17. - Bd5.
Eftir 17. - Bd5 gæti teflst 18. axb6
cxb619. Rd6+ (19. Hdl kemur einn-
ig til greina) og hvítur getur fylgt
sókninni laglega eftir, hvort sem
svartur leikur nú 19. - Kc6 eða 19.
- Ka7 eins og eftirfarandi afbrigði
gefa til kynna:
A) 19. - Kc6 20. Hxa6 fxe5 21. Bxc5!
Bxb3 22. cxb3 Rh6 (ef 22. - Kxc5 23.
Rf7! og hrókurinn á h8 fellur) 23.
Ba3 og hvítur á peð til góða og betri
stöðu. í stað 21. - Bxb3 er 21. - Bc7
betri tilraun en 22. c4 Be6 23. Re8!?
Bxc4 24. Ra5+ Kxc5 25. Rxc4 Kxc4
26. Rxc7 gefur hvítum vinnings-
möguleika.
B) 19. - Ka7 20. c4 Be6 21. Bxc5!
og ef nú 21. - bxc5 22. Rxc5 og bisk-
upinn á e6 fellur, eða 21. - fxe5 22.
Ra5! bxc5 23. Rc6+ Kb6 24. Rxd8
og vinnur.
Frá stöðumyndinni er 17. - Be7
18. axb6 Bxb3 (ef 18. - cxb619. Bxc5!
Bxb3 20. Bxe7) 19. cxb3 cxb6 trúlega
besti kostur svarts. Áhorfendur í
Faxafeni stungu þá upp á 20. Rd6+
(20. e6 f5 21. Rg5 Rf6) Bxd6 21. exd6
með hættulegum fæmm. t.d. 21. -
Rh6 22. Bxh6 gxh6 23. Hel Kc6 24.
He6 (eða 24. He7) Hd8 25. HxfB Hxd6
26. Hxd6+ Kxd6 og peðsendataflið
er nálægt því að vera unniö á hvítt.
Þessi afbrigði sýna aö svartur á
við ýmsa erfiðleika að etja í stöð-
unni. Greinilegt er að Fischer hefur
ekki setið auðum höndum þessi
tuttugu ár!
Sex sigrar
- tvö jafntefli
Með skákinni í Sveti Stefan hefur
Fischer átta sinnum á ferlinmn
beitt uppskiptaafbrigðinu í kapp-
skák. Hann vann Portisch, Gligoric
og Jiminez í Havana eins og fyrr
segir, síöan jafntefli viö Smyslov á
alþjóðamóti í Monaco 1967, vann
Rubinetti í Buenos Aires 1970 og
Unzicker á ólympíumótinu í Siegen
sama ár. Loks jafntefli viö Spasskíj
í 16. einvígisskákinni í Reykjavík.
Skákina viö Gligoric birtir Fisc-
her í bók sinni með 60 minnisstæð-
um skákum sem út kom 1969. Glig-
oric fékk þar engu bhöari móttökur
en Spasskíj á miðvikudag - hefði
raunar getað gefist upp eftir 19
leiki!
Hvítt: Bobby Fischer
Svart: Svetozar Gligoric
Spænskur leikur.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Bxc6 dxc6 5. 0-0
Fyrri tíma meistarar léku hér 5.
d4 en grundvallarhugmynd hvíts í
þessu afbrigði er að skapa peða-
meirihluta á kóngsvæng. Fischer
dustar rykið af gömlu afbrigði og
nú á dögum þykir sjálfsagt að
hróka. „Eg haföi skoðað þetta í
langan tíma áður en ég ákvað að
bæta því í vopnabúriö," segir Fisc-
her.
5. - f6 6. d4 Bg4
í skýringum sínum telur Fischer
þetta best en Portisch fór flatt á 6.
- exd4 7. Rxd4 c5 8. Rb3 Dxdl 9.
Hxdl Bd6 10. Ra5! b5 11. c4! fyrr í
mótinu.
7. c3!?
Seinna lék Fischer 7. dxe5 gegn
Spasskíj í Laugardalshöllinni.
7. - exd4
Nú er talið betra að leika 7. - Bd6
og gefa ekki eftir á miðborðinu.
8. cxd4 Dd7 9. h3! Be6
Eftir 9. - Bh5 10. Re5! Bxdl 11.
Rxd7 Kxd7 12. Hxdl tókst Fischer
að vinna gegn Jiminez en segir
raunar sjálfur að svartur hefði átt
að halda taflinu.
10. Rc3 0-tW) 11. Bf4! Re7?
Fischer telur 11. - Bd6 12. Bxd6
Dxd6 betra en eftir 11. - g5 12. Bg3
h5 12. d5! cxd5 13. Hcl gefur hann
m.a. 13. - dxe4 14. Ra4! Kb8 15.
Hxc7! Dxdl 16. Hc8 +! Ka717. Bb8 +
Ka8 18. Rb6 mát, sem svo sannar-.
lega gleður augað!
12. Hcl Rg613. Bg3 Bd614. Ra4! Bxg3
Aftur gagnrýnir Fischer leik
Ghgoric og mælir með 14. - Kb815.
Rc5 De7.
15. fxg3 Kb8 16. Rc5 Dd6 17. Da4!
Ka7?
Nauðsynlegt er 17. - Bc8 18. Hc3
Rf8! að sögn Fischers.
8 X X
7 tir A A A
6 A ifJ!4
5 :+;i-+A
4 W A A -
3 áaS A A
z A A A
A B S C D B* E F G H
18. Rxa6!
Vinnur því að eftir 18. - bxa6 19.
Hxc6 verður svartur að láta drottn-
inguna til að forðast mát.
18. - Bxh3 19. e5! Rxe5
Svartur hefði eins getað gefist
upp því að eftir 19. - fxe5 20. Rc5+
Kb8 21. Hc3 ásamt 22. Ha3 er hann
vamarlaus.
20. dxe5 fxe5 21. Rc5+ Kb8 22. gxh3
e4 23. Rxe4 De7 24. Hc3 b5 25. Dc2
- og nú fyrst gaf Ghgoric taflið.
Haustmót TR
Haustmót Taflfélags Reykjavíkur
hefst á morgun, sunnudag, í húsa-
kynnum félagsins í Faxafeni. Mótið
verður með svipuðu sniði og áður,
nema hvað umhugsunartími verð-
ur styttri og engar biðskákir. Tefld-
ar veröa 11 umferðir í öllum flokk-
um og hefur hver keppandi 90 mín-
útur til umhugsunar á 36 leiki og
síðan 45 mínútur til aö ljúka skák-
inni.
Skipt verður í flokka með hlið-
sjón af Elo-stigum en í neðsta flokki
verður teflt eftir Monrad-kerfi og
þar er öllum heimil þátttaka. Teflt
er þrisvar í viku, á sunnudögum
kl. 14, miðvikudögiun og föstudög-
um kl. 19.30. Lokaskráning í keppn-
ina er í dag frá kl. 14-22 í símum
félagsins. Fyrstu verðlaun í A-
flokki eru kr. 65.000, önnur 35.000
og þriöju verðlaun eru kr. 20.000.
Keppni í unglingaflokki hefst
laugardaginn 26. sepbember kl. 14
og tekur keppnin þrjá laugardaga.
Tefldar verða 9 umferðir eftir
Monrad-kerfi, umhugsunartími 40
mínútur á skák. Hausthraðskák-
mótið verður síöan sunnudaginn
18. október kl. 14.,
Frá Skákfélagi
Akureyrar
Aðalfundur Skákfélags Akur-
eyrar verður haldinn nk. fimmtu-
dag, 24. september, kl. 20.
Vetrarstarf félagsins hófst með
Startmótinu sl. sunnudag en haust-
mót Skákfélags Akureyrar hefst
sunnudaginn 27. september kl. 14.
Starfsemin fer fram í skákheimil-
inu, Þingvahastræti 18. Núverandi
formaður félagsins er Gylfi Þór-
hahsson.
-JLÁ