Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1992, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1992.
21
Sóley Eliasdóttir leikur aðalkvenhlutverkið í kvikmyndinni Sódómu Reykjavík. Sóley segist alltaf hafa ætlað að
verða leikari og lætur vel af vinnunni við tökur Sódómu. „Þetta er allt toppfólk." DV-mynd Brynjar Gauti
Sóley Elíasdóttir leikur aöalkvenhlutverkið í Sódómu Reykjavík:
Bameignir og
kvikmynd aleikur
„NÝTT“ „NÝTT“ „NÝTT“
KARAOKE
LEIGJUM ÚT KARAOKE-VIDEOTÆKI.
YFIR 200 ÞEKKT LÖG FYRIR ALLA.
TIL LEIGU Á EFTIRTÖLDUM MYNDBANDALEIGUM:
KEFLAVÍK
FRISTUND HOLMGARÐI
SÍMI 15005 \
HAFNARFJÖRDUR
SKALLI REYKJAVIKURVEGI.
SÍMI 53371
GARÐABÆR ,
SÆLGÆTIS & VIDEOHOLLIN
GARÐATORGI SÍMI 656677
k
Ti KÓPAVOGUR
m
«VI
%
Éo-mfiRHflouRinn
amrabong 20a - 200 Köpavogi - Simi 46777
REYKJAVÍK
TROLLA VIDEO
EIÐISTORGI SÍMI 629820
VIDEÓLJÓNIÐ
DUNHAGA SÍMI 627373
„Það er eiginlega best að lýsa
myndinni sem reykvískri mafíósa-
mynd, hraðri og spennandi með góð-
um slatta af gríni,“ segir Sóley Elías-
dóttir leikkona. Sóley leikur aðal-
kvenhlutverkið í kvikmyndinni Só-
dóma Reykjavík sem frumsýnd verö-
ur í byrjun næsta mánaðar. Leik-
stjóri er Óskar Jónasson.
Sóley leikur Unni, prestsdóttur
sem stendur á krossgötum eftir
menntaskólanám, getur ekki gert
upp hug sinn varöandi framtíðina,
er úti á lífinu eins og gengur. Moli
bróðir hennar, leikinn af Helga
Björnssyni, er sprúttsah, bruggar
sjálfur og selur skemmtistaðnum
Sódómu afurðimar fyrir milligöngu
Unnar. Unnur kynnist síðan Axel,
sem leikinn er af Bimi Jörundi Frið-
bjömssyni.
„Axel er lúði og þegar Unnur kynn-
ist honum fara hjólin virkilega að
snúast," segir Sóley.
Fyrsta
kvikmynd Sóleyjar
Sódóma er fyrsta kvikmynd Sóleyj-
ar. Hún útskrifaöist frá leiklistar-
skóla í London 1989, eftir fimm ára
dvöl þar ytra. Hún segist hafa verið
Lundúnafíkill og viljað „meika þaö“
þar ytra. „En það mistókst," segir
Sóley og hlær við.
Eftir heimkomuna sama ár fór hún
norður yfir heiöar, var á Akureyri í
eitt ár. Lék hún í fjómm verkum hjá
Leikfélagi Akureyrar. Þá varð hún
ófrísk og átti stelpu, Gígju, sem nú
er 18 mánaða. Skömmu síðar byrjaði
hún að vinna við kvikmyndina Só-
dómu. Það leið síöan ekki langur tími
frá því tökum lauk að annað barn
var væntanlegt. Fyrir fjórum mán-
uðum fæddi Sóley síðan Eygló. Það
er því óhætt að segja að hún hafi
haft í nógu að snúast síðastliðin tvö
ár, leikið í kvikmynd og eignast tvö
börn.
„Ég geri ekki mikið meira en að
pá'ssa börnin þessa dagana. Ég fékk
reyndar aðstoð meðan tökur Sódómu
stóðu yfir, öðmvísi hefði þetta ekki
gengið. Nú er ég farin að svipast um
eftir vinnu og geri mitt besta til að
fylgjast með, fara í leikhús, lesa,
syngja, vera í leikfimi og fleira."
Maður Sóleyjar er Hilmar Jónsson
leikari. Hann útskrifaðist úr Leikhst-
arskóla ríkisins og hefur unnið í
Þjóðleikhúsinu, meöal annars í
Kæru Jelenu.
Góður hópur
Sóley segir leikara Sódómu hafa
æft mjög stíft fyrir tökumar.
„Það er mjög mikilvægt. Viö
spunnum forsöguna og teljum okkur
þannig hafa fengið meiri dýpt í kar-
akterana sem við leikum. Unnur
varð að alvöru persónu í forvinnunni
þó búið væri að skrifa handritið að
myndinni."
Sóley hrósar mjög því fólki sem
stendur að og vinnur að gerð Só-
dómu.
„Þetta er allt topþfólk, hvort sem
það hefur unnið við kvikmyndir áður
eða ekki. Þetta er góður hópur þar
sem geysilegur dugnaður og sam-
staða er ríkjandi og það lögðu ahir
mjög hart að sér. Þá skiptir hka
máh að leikurunum leið alltaf vel,
það var vel hugsað um þá. Það er
mikilvægt í tökum þar sem biðtími
getur veri langur og mismikið að
gerast hveriu sinni.“
Sóley er uppalin í Hafnarfirði. Hún
segist ahtaf hafa ætlað sér aö veröa
leikkona og lagöi hart að sér aö ná
því takmarki. En um leið var hún
komin inn í harðan heim þar sem
samkeppnin er mikil.
„Það er mun erfiðara að fá hlut-
verk sem kona en karl og geysileg
samkeppni meðai leikkvenna.
Reyndar er þetta aðeins að breytast
þar sem fleiri hlutverk eru skrifuð
fyrir konur en áður auk þess sem
kvenleikskáld eru farin að láta meira
til sín taka.“
Tökum á Sódómu Reykjavík lauk
í fyrrahaust og þessa dagana er veriö
að leggja síðustu hönd á hljóðsetn-
ingu myndarinnar. Sóley segist vera
orðin verulega spennt að sjá útkom-
una.
„Ég er spennt og stressuð þar sem
ég hef eiginlega ekkert séð af mynd-
irrni. En vona að ég sjái hana fyrir
frumsýninguna. Annars fer tauga-
stríðið alveg með mann. Það er hka
þannig að þegar maöur sér sjáifan
sig í fyrsta skipti í kvikmynd einblín-
ir maður ekki á annað en sjálfan sig.
Það er ekki fyrr en í annaö eða þriðja
skipti sem maður fer að skoða sjáifa
myndina."
-hlh
Líkamsrœkt
Fullkomin
líkamsrækt
júdó
Byrjendanámskeib
Abalþjálfarar:
Michal Vachun 6. Dan
Bjarni Fribriksson 5. Dan
Líkamsrækt
GYM 80 tækjasalur
Dynavit þrektæki
Lifestep þrekstigar
Sjálfsvörn
]iu - jitsu
Þjálfari:
Elín Þórbardóttir 1 Kyu
• 500 ferm. glæsilegt húsnæði, að Einholti 6
° Mánaðarkort kr. 4.500
3 mánaða kort kr. 9.500
3 mánaða kort (dagtímar frá kl. 10-16) kr. 8.000
Upplýsingar og innritun alla virka daga frá kl. 10-22 í síma 627295
eoa frá kl. 11-16 laugardaga og sunnudaga.
ÁRMANN
Jillln líYIVl
I
1