Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1992, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1992.
5
Norðlendingar streyma til Skotlands og írlands:
Um 1500fara
út til að versla
- tollgæslan boðar hertar aðgerðir á Akureyrarflugvelli
Gylfi Kristjáxisson, DV, Aknreyri:
Tæplega 1500 Norðlendingar hyggj-
ast fara í svokallaðar verslunarferðir
til Skotlands og írlands á næstunni
og er það mikil íjölgun frá fyrra ári
þegar farþegar í þessum ferðum voru
um 1000 talsins. Alls verða farnar 9
feröir í beinu flugi frá Akureyri á
vegum tveggja ferðaskrifstofa og er
uppselt í aUar ferðirnar.
Samvinnuferðir fara 4 ferðir frá
Akureyri til Dublin á írlandi og er
um að ræða 3 og 4 daga ferðir. Áform-
uð var dagsferð en sennilega verður
hætt við hana vegna ónógrar þátt-
töku. í ferðimar fjórar fara alls 704
farþegar.
Á vegum Úrvals-Útsýnar verða
fimm ferðir til Edinborgar og er upp-
selt í þær allar og samtals fara 765
manns. Þar er einnig um að ræða 3
og 4 daga ferðir.
Farþegar í þessum ferðum eru
flestir frá Akureyri en þeir koma
einnig víðar að, s.s. frá Ólafsfirði,
Dalvík, Húsavík og Vopnafirði.
Tollgæsla á Akureyrarflugvelh
varðandi þessar ferðir hefur undan-
farin ár verið fremur Util og flestir
hafa fengið að koma heim án af-
skipta toUvarða. ToUyfirvöld á Akur-
eyri hafa hins vegar lýst því yfir nú
að eftirht verði hert frá því sem ver-
ið hefur og verður fólki gefinn kostur
á að greiöa aðflutningsgjöld af þeim
vamingi sem það hefur keypt og er
umfram það sem leyfilegt er að
kaupa erlendis.
Akureyrarhöfn:
Um 700 lítrar af
gasolíu
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
„Að mínu viti er um handvömm
að ræða í báðum þessum tilfeUum.
Óhöpp geta auðvitað átt sér stað þeg-
ar verið er að dæla oUu um borð í
skip en þegar tankar yfirfyUast eins
og tvívegis hefur gerst nú á fimm
dögum þá er um handvömm að
ræða,“ segir Gunnar Arason, hafnar-
vörður á Akureyri, en tvívegis á
nokkrum dögum hefúr nokkurt
magn gasoUu farið í sjóinn í höfninni
á Akureyri.
í fyrra tilfellinu flaut upp úr tönk-
um þegar verið var að setja ohu á
togarann Svalbak sem er í eigu Út-
gerðarfélags Akureyringa og var þar
í sjóinn
um að ræða um 200 Utra. Nú í vik-
unni gerðist svo það sama þegar oUu
var dælt í skip Samherja, Oddeyrina,
og fóru þá sennilega um 500 Utrar í
sjóinn.
Gunnar Arason segir að gasoUan
gufi fljótlega upp en hafnarstarfs-
menn hafi úðað dreifiefnum á oUu-
flekkina. Enginn búnaður er í eigu
Akureyrarhafnar til að fást við al-
varleg slys af þessu tagi en slík tæki
eru þó væntanleg fljótlega. Sveitarfé-
lög við Eyjafjörð eru að kaupa slikan
búnað sem staðsettur verður á Akur-
eyri en fljótlegt er að flytja hann á
milh staða. Þar er um að ræða 300
metra flotgirðingu, dælur og fleiri
tæki.
Svalbarðseyrarmáliö:
Jarðir 3ja bænda
áleiðáuppboð
Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyri:
„Ég vil sem minnst láta hafa eftir
mér á þessari stundu. Við bændurnir
ætlum að hittast áður en til uppboð-
anna kemur og ég tel að við munum
reyna að ná samningum við bankann
fram á síðustu stundu," segir Ingi
Þór Ingimarsson, bóndi á Dálksstöð-
um á Svalbarðsströnd í Eyjafirði, en
sýslumaðurinn í Eyjafirði hefur aug-
lýst uppboð á jörð hans nk. mánudag.
Ingi Þór er einn bændanna fjögurra
sem gengust í ábyrgðir fyrir Kaupfé-
lag Svalbarðseyrar á sínum tíma en
félagið varð síðan gjaldþrota. Lauga-
tún 18 á Svalbarðseyri, sem er í eigu
Bjama Hólmgrímssonar, hefur einn-
ig verið auglýst á uppboði nk. mánu-
dag vegna þessa máls og sýslumað-
urinn á Húsavík hefur auglýst upp-
boð á Hallgilsstöðum í Fnjóskadal
nk. miðvikudag en þar býr Tryggvi
Stefánsson, einn fjórmenninganna.
Sá fjórði þeirra er Jón Laxdal, bóndi
í Nesi í Grýtubakkahreppi. Hann
rekur nú mál fyrir Hæstarétti þar
sem leitað er svara við spumingunni
hverjir eigi Samband íslenskra sam-
vinnufélaga en bændumir töldu að
Sambandið hefði átt að greiða þær
skuldir sem þeir gengust í ábyrgðir
fyrir, enda eigi kaupfélögin Sam-
bandið. Uppboð hefur ekki verið aug-
lýst hjá honum ennþá.
Upphæðin, sem íslandsbanki átti
kröfu á, nam um 60 milljónum króna.
Sú upphæð, sem bændunum er nú
gert að greiða, nemur um 20 milljón-
um króna. Samningaviðræður, sem
fram fóm milh bankans og bænd-
anna í vor, leiddu ekki til samkomu-
lags og aðilum ber ekki saman um
hvort það hafi verið lokaviðræður
eða ekki.
Dagsb ■■i . ■ ■ _ _ r » m rún: IK * ■ W
i-æKKar a awinnuieysissKra
ijruoinuniuiir u. uuwuuuuyiiuu, formaður Verkamannafélagsins ostæouna iyrir pvi nve iæKKao hefur á atvinnuleysisskrá hjá
Dagsbrúnar, segir að það sem af er september hafi fækkað um fast Dagsbrún undanfarið taldi Guð- mundur vera Jtá að þegar skóla-
að 80 manns á atvinnuleysisskrá fólkið hættir vinnu sé alitaf eitt-
leysiskrá 130-140 manns og hafi ekkijafnfáirveriðáskrái sumar. ljúka og því séu verkamenn ráðnir, cnoftastískammantíma. -S.dór
Dúi Bjömsson, kirkjugarðsvöröur á Akureyri, við lyftubúnaðinn sem kisturn-
ar eru settar á og slakar þeim niður í grafirnar. DV-mynd gk
Kirkjugarðar Akureyrar:
Lyftubúnaður f lytur
kisturnar í graf irnar
Gylfi Kristjánssom, DV, Akureyri:
„Þetta er sáraeinfaldur búnaður en
gerir það mun auðveldara og þægi-
legra að koma kistunum fyrir,“ segir
Dúi Bjömsson, kirkjugarðsvörður á
Akureyri, um nýjan lyftubúnað sem
starfsmenn kirkjugarðsins hafa tek-
ið í notkun.
Með þessum útbúnaði er úr sög-
unni aö fjórir menn láti kistuna síga
í gröfina á köðlum. Jámgrind er
komið fyrir hringinn í kringum gröf-
ina hverju sinni. Á þessa grind em
strengdir.borðar sem kistan er sett á
og með einu handtaki slaknar á borð-
unum og kistan sígur niður í gröfina.
Dúi segir að mikið hagræði sé að
þessu og mun þægilegra að vinna
þetta verk á þennan hátt en með
gömlu aðferðinni.
Fréttir
IsstöðináDalvík:
Hagnaður
fyrstu sex
mánuðina
Heímir Kristinsson, DV, Dalvík:
i milliuppgjöri ísstöðvarinnar
hf. á Dalvík fyrir fyrstu sex mán-
uði þessa árs kemur fram að tekj-
ur fyrirtækisins voru rúmar 4,5
milljónir og gjöld um 4,1 milljón
þannig að um 450 þúsunda króna
hagnaður var fyrstu 6 mánuðina.
Um 1,6 milljóna tap varö á
rekstri ísstöðvarinnar í fyrra. í
reikningum fyrirtækisins fyrir
árið 1991 kemur fram að eigið fé
var 1 árslok röskar 12,6 milljónir
króna. Skammtímaskuldir fyrir-
tækisins um síðustu áramót voru
12,3 milijónir króna og eignir
rúmar 38 milljónir.
ísstöðin hf. hóf framleiðslu í
júni 1991. Á síðasta ári störfuðu
að meðaltali 3 menn við stöðina.
i sumar var ísþörfm í skip og
báta óvenju mikil eða nær helm-
ingi meiri en í fyrra þegar mest
var og hafði stöðin engan veginn
undan um tíma. Annarri véla-
samstæðu verður bætt við eftir
áramótin.
Steinullarverksmiðjan:
Tekjulækkun
varðminnien
búistvarvið
f'óiiiafiux Asmundss., DV, Sauðárkr:
Fyrstu átta mánuði þessa árs
varö 14 prósent samdráttur á sölu
steinullar. Er það svipað og áætl-
að var en tekjulækkunin hefur
ekki orðið eins mikil og búist var
við eða 8,3 prósent. Má það rekja
til þess að hærra verð hefur feng-
ist fyrir framleiðslu Steinullar-
verksmiðjunnar en reiknað var
með.
Mestur hefur samdrátturinn
orðið í útflutningum, eða 12,5 pró-
sent milli ára, en hafa ber í huga
að á síðasta ári voru seld um 500
tonn ísiórt verk í Bretlandi. Þrátt
fyrir það hefur útflutningur verið
nokkuð stöðugur það sem af er
ári.
Að sögn Einars Einarssonar
framkvæmdastjóra kom ágúst-
tnánuður vel út í sölu og gott út-
lit væri íýrir semtember. Hins
vegar væri ekki bjart framundan
þar sem byggingamarkaðurinn
bæri með sér greinileg merki um
samdrátt.
Uggandi um
fiskvinnsluna
Þórhallur Asmundss., DV, Sauöárkr:
Á síðasta fundi hreppsnefndar
Höfðahrepps áttu sér stað tals-
verðar umræður um stöðu og
horfur í atvinnulífi staðarins.
Fram kom að hreppsnefndar-
menn eru mjög uggandi um fram-
tíð fiskvinnslunnar. Samþykkt
var að stjórnir fiskvinnslu og út-
gerðar fundi ásamt hreppnefnd-
inni um málið.
Sveinn Ingólfsson, oddviti
Höfðahrepps, upplýsti að afli á
hvern úthaldsdag hefði stórm-
itmkað undanfarið og sjómenn
óttist mjög þá þróun sem virðist
vera í fiskistofnum. Sveinn
skýrði einnig frá því að Skag-
strendingur hefði látið skoða
hvaöa möguleikar væru hag-
kvæmastir til útgerðar og einnig
hefði veriö leitaö leiða um sköpun
nýrra atvinnutækifæra.